Morgunblaðið - 22.11.1973, Síða 1
32 SIÐUR
264. tbl. 60. árg.
FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1973
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tíu ár frá
morði John
F.Kennedys
í DAG eru tíu ár liðin frá þvf
tíðindi bárust svo iII. að óhug
sb') á heimsbvggð alla. John F.
Kennedv forseti Bandaríkj-
anna hafði fallið fyrir hendi
morðingja í borginni Oallas í
Texas, þar sem hann var í
heimsókn ásamt konu sinni og
öðru fylgdarliði. Þar á meðal
var John Connally. þáverandi
ríkisstjóri f Texas, síðar fjár-
málaráðherra Bandaríkjanna
og af mörgum talinn líklegur
til forsetaf ramboðs ánæstu ár-
um. Hann særðist hættulega.
Óhætt er að fullyrða. að fáar
fréttir hafa haft slík áhríf sem
þessi. Kennedy hafði sem for-
seti gefið Bandaríkjunum nýtt
líf og nýja reisn, ungt fólk víða
um heim dáði hann og tileink-
aði sér þann boðskap hans við
embættistöku, að menn skvldu
ekki spyrja, hvað iand þeírra
gæti gert fyrir þá. heldur hvað
þeir gætu gert fyrir land sitt.
Morðingi Kennedys var tal-
inn Lee Harvey Oswald. en
yfirheyrslum yfir honum var
ekki lokið, þegar hann var
myrtur, þai- sem verið var að
flytja hann milli fangelsa.
Þegar i upphafi komu fram
tilgátur um,að morðið ætti sér
rót f samsæri og lifa spurning-
ar þar að lUtandi enn í dag.
KANELLOPOULOSI
STOFUVARÐHALDI
Forsfða Morgunblaðsins, laug-
ardaginn 23. nóvember. dag-
inn eftir morð Kennedys.
AÞENU, 21. nóvember (NTB-
Reuter) — Þrír kunnir and-
stæðingar núverandi stjórnar í
Grikklandi voru hnepptir í stofu-
fangelsi f morgun vegna
stúdentaóeirðanna að undan-
förnu.
Þeir eru: Panayotis
Kanellopoulos fv. forsætisráð-
herra, Georg Mavros foringi
Frjálslynda flokksins og
Marionannis Zigids fv. ráðherra.
Að minnsta kosti 250 eru enn i
haldi vegna uppþotanna, 11 hafa
beðið bana og 200 særzt, sam-
kvæmt opinberum heimildum.
Talsmaður stjórnarinnar sagði,
að Kanellopoulos, Mavros og
Zigdis hefðu veitt uppreisnar-
sinnuðum stúdentum siðferði-
legan stuðning og að fyrir
stUdentaóeirðunum hefðu staðið
stjórnleysingiar, sem vildu koll-
varpa stjórninni.
Bæði Kanellopoulos og Mavros
lýstu opinberlega yfir stuðningi
við stUdentana. Hervörður er enn
við tækniháskólann, forseta-
höllina og aðrar opinberar
byggingar og öllum æðri mennta-
stofnunum hefur verið lokað til
10. desember.
Spyros Markezines forsætisráð-
herra sagði í gærkvöldi, að
stjórnin stefndi að því að koma
aftur á eðlilegu stjórnmála-
ástandi jafnskjótt og lögum og
reglu hefði aftur verið komið á.
í París sagði kvikmyndaleik-
konan Melina Mercouri f skeyti til
Henry Kissingers utanrfkisráð-
herra, að Bandarfkjamenn bæru
ábyrgðina á manntjóninu í
óeirðunum. HUn sagði, að 400
hefðu beðið bana.
í kvöld leysti stjórnin upp 29
stUdentafélög og gerði eignir
þeirra upptækar.
i
i
í
)
t
Emil Reichert, fyrrverandi kennari f Karlsruhe 1 Vestur-Þýzkalandi, kvfðir ekki olfuskortinum, sem allir
spá. 1 staðinn fyrir bensfn á bHinn notar hann timbur, það hefur hann gert sfðan hann keypti hann og
gerði á honum nauðsynlegar breytingar í lok strfðsins. Bílinn hefur ekið 90.000 kflómetra og er f góðu lagi
þótt hannsé frá 1936— af gerðinni Wanderer-Diplomat.
Japanir láta undan
olíuþvingunum Araba
Tokyo, 21. nóvember, AP. NTB.
OLlUÞVINGANIR Arabaríkja
leiddu til þess í dag, að japanska
stjórnin tók vinsamlegri afstöðu f
þeirra garð og krafðist þess, að
Israelár hörfuðu frá arahískum
svæðum, sem þeir hertóku í sex
daga strfðinu 1967.
Þetta kom fram í yfirlýsingu
Yasuhiro Nakasone viðskiptaráð-
herra og utanríkisráðherrann,
Mosoyoshi Ohira, sagði á þingi, að
stjórnin mundi gefa út yfir-
lýsingu, þar sem ályktun Öryggfs-
ráðins frá nóvember 1967 um
hrot tf lutning frá herteknum svæð
um yrði túlkuð skýrt og ótvírætt.
Japanir hafa aldrei áður lýst
yfir stuðningi við Araba í deilum
þeirra og ísraela. Japanir fá rúm-
lega 80% olíu sinnar frá Araba-
löndunum.
í Vín sagði olíuráðherra Saudi-
Arabfu f viðtali við japanska út-
varpið, að hann hefði skorað á
japönsk yfirvöld að grípa til refsi-
aðgerða gegn israelum og ef þeir
gerðu það mundu Arabar hefja
aftur olíusölu til Japans. Olíuráð-
herrann, Sheikh Ahmed Zaki
Yamani, kallaði refsiaðgerðir
„vinargreiða". Japanir hafa verið
á lista yfir lönd, sem eru ,,ekki
vinveitt Arabalöndunum í bar-
Kafró,21. nóvember (AP).
IIERMENN Egypta í fremstu víg-
Ifnu virðast albúnir að berjast ef
tsraelar framfvlgja ekki vopna-
hléssamningunum og hörfa ekki
áttunni gegn israel“, en staða
þeirra breytist úr „hlutlausu“
landi í „vinveitt" ef þeir grípa til
aðgerðanna, að sögn Yamanis.
Aðspurður, hvort Japanir ættu
að slfta stjórnmálasambandi við
israel til að verða taldir „vinveitt-
ir“ sagði hann: „Ef einhvergetur
bent mér á betri tillögu skal ég
hlusta. Persónulega sé ég engan
til stöðva þeirra, sem þeir héldu
fyrir 22. október, að sögn her-
málafulltrúa, sem fóru til vfg-
stöðvanna f dag.
Talsmaður egypzku stjórnar-
annan möguleika, eins og nú er
ástatt.“
í Washington sagði Roy Ash
fjárlagaráðherra, að Nixon forseti
athugaði möguleika á þvf að loka
bensínstöðvum um helgar og
hækka bensínverð, þótt enn hefði
engin ákvörðun verið tekin. Ekki
er í ráði að banna akstur einka-
Framhald á bls. 18
innar sagði, að viðræðurnar við
israela væru komnar í sjálfheldu
og að það væri skýlaus krafa
Egypta, að ísraelar stæðu í einu
og öllu við samningana.
Samningamenn landanna rædd-
ust enn við í dag á eftirlitsstöð-
inni 101. kílómetrinn á veginum
til Súez borgar, en þótt Egyptar
kölluðu þetta „úrslitafund" bar
hann ekki árangur.
Talsmaður Sameinuðu þjöð-
anna sagði hins vegar, að fanga-
skiptum Egypta og Israela lvki í
dag samkvæmt áætlun og jafn-
framt er enn einn fundur ráð-
gerður á morgun um vopnahlés-
línuna. Sá fundur getur orðið af-
drifarikur að dómi kunnugra í
Kafró og bent er á, að vopnahlés-
brotum hafi fjölgað síðustu daga.
Talsmaður S.Þ. í Kaíró sagði, að
sfðustu skýrslur um vopnahlés-
brot væru frá 19. nóvember og þá
hefðu fjórar kærur borizt frá
Egyptum og níu frá israelum. Eft-
irlitsmenn S.Þ. staðfestu eina
Framhald á bls. 18
Sendu Rússar Egyptum
k j arnorkueldflaugar?
WASHINGTON, 21. nóvember
(NTB-Reuter) — Rússar sendu
sennilega kjarnorkuvopn til
Egyptalands á október-strfð-
inu segir f grein í Washington
Post f dag.
Blaðiðhefur eftir heimildum
f bandarfska landvarnaráðu-
neytinu, að kjarnorkuvopnin
séu sennilega ennþá í Eg.vpta-
landi. Hins vegar munu þau
vera í vörzlu sovézkra sér-
fræðinga.
Talsmaður Pentagon, Jerry
Fridheim, neitaði að láta hafa
nokkuð eftir sér um fréttina.
Að sögn Washington Post er
hér um að ræða kjarnaodda
fyrir eldflaugar af Scud-gerð.
Þær draga 310 mílur og ná því
til skotmarka í ísraelskum
borgum.
Bandaríska tímaritið Aviati-
on Week hermdi nýlega, að
Egyptar hefðu fengið nokkrar
Scud-eldflaugar frá Sovétríkj-
unum. Bandarískir könnunar-
hnettir hafa tekið ljósmyndir af
hernaðarmannvirkjum þar sem
eldflaugunum hefur verið kom-
ið fyrir að sögn ritsins.
Egyptar viðbúnir átökum
eftir misheppnaða fundi