Morgunblaðið - 22.11.1973, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1973
23
Augu í svartan himin
UT er komin hjá Hörpuútgáfunni
ljóðabókin „Augu í svartan him-
in“, eftir Friðrik Guðna Þórleifs-
sin. Þetta er önnur ljóðabók höf-
undar, en 1970 kom út eftir hann
ljóðabókin RYK og vakti hún
mikla athygli.
Augu í svartan himin skiptist í
7 kafla, sem nefnast Um ársins
hring, Með spekings svip, Um
göngulúna menn, Um gamalt og
nýtt, Frá hinu opinbera, Gamalt
stef og Um sólina og blómin. Kafl-
ar þessir eru hver með sínum blæ
og tóni, og bókin í heild er
skemmtilega ólík fyrri bók höf-
undar, segir á bókarkápu. Bæk-
urnar eiga þó tvímælalaust eitt
sameiginlegt: Þann undralega
samleik fortíðar og nútíðar, er
gæðir mörg ljóðin sérstæðu lífi,
sem fullt er af andstæðum og
þversögnum eins og líf vor
sjálfra.
Á bókarkápu segir, að það ger-
ist margt á leiðinni frá Eden lil
Emmaus. Og það gerast ýmsir
skoplegir hlutir ,,á alþingi hinu
Friðrik Guðni Þórleifsson
forna, sem brosandi hyllir andrés
önd “.
Bókin er prentuð í Prentverki
Akraness h.f. Bundin f Bók-
bindaranum h.f. Káputeikningu
gerði Gyða L. Jónsdóttir.
SAMEIGINLEG
VÖRUMÓTTAKA
FLUGFÉLAGANNA
Frá og með 21. nóvember tekur til starfa sameiginleg vörumóttaka
Loftleiða og Flugfélags íslands. Vörumóttakan er á Reykjavíkurflug-
velli, austan við farþegaafgreiðslu Flugfélags íslands, og verður þar
framvegis tekið á móti fragt í millilandaflug beggja félaganna.
Félagslíf
St:. St:. 597311227 — VII, 7.
I.O.O.F. 11 ST 15511228'/2 S
9.0.
1.0.0.F. 5S 155 11 22 8’/a =
9 III.
Bræðrafélag Árbæjarsafnaðar
Fundur verður haldinn að Hlaðbæ
2, fímmtudaginn 22 nóv. og
hefst kl. 9 síðdegis. Fundarefni:
Skóiamál, o.fl.
Stjórnin.
Eyvakvöld
Verður f Lindarbæ (niðri) f kvöld
(22/11.) kl. 20,30. Einar Þ.
Guðjohnsen sýnir myndir.
Ferðafélag íslands.
Áfengisvarnarnef nd kvenna !
Reykjavík og Hafnarfirði
heldur fulltrúafund föstudaginn
23 nóv. kl. 8.30 s.d í Traðarkots-
sundi 6.
Stjórnin
Hjálpræðisherinn.
Fimmtudag kl. 20.30: Almenn
samkoma. LTN. TODAL frá ísafirði
tekur þátt í samkomunni. Allir
velkomnir.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að Óðinsgötu
6a i kvöld kl. 20.30 Allir
velkomnir.
Fíladelfía
Vakningarsamkoma i kvöld kl.
20.30 Ræðumaður: Willy
Hansen
Flóamarkaður
Félags einstæðra foreldra verður f
Félagsheimili Kópavogs, sunnu-
daginn 25. póv. Tekið á móti
munum á skrifstofunni i Traðar-
kotssundi 6, og i Félagsheimilinu,
laugardaginn 24 nóvemberfrá kl.
19 — 22 e.h.
Stjórnin.
Ingólfsstræti 4,
Samkoma i kvöld kl. 9,
Allir velkomnir.
Stefán Runólfsson
KFUM —AD
Aðaldeildarfundur i kvöld kl 8 30
að Amtmannsstig 2B. „Kaþólskir
og Mótmælendur á Norður ír-
alndi" séra Ingólfur Guðmundsson
annast fundarefnið. Allir karlmenn
velkomnir
Félagsf undur
N.L.F.R.
verður haldinn fimmtudaginn'
22. nóvember kl, 9.00 siðdegis
i Guðspekifélagshúsinu, Ingólfs-
stræti 22. Fræðslufundur, upp-
lestur: Eggert V. Kristinsson
Stjórnin.
Spilakvöld
verður n.k. fimmtudags kvöld og
hefst kl. 8.30 i Farfuglaheimilinu,
Laufásvegi 4 1 .
Stjórnin.
Basar
Kvenfélags Hallgrímskirkju verður
haldinn laugardaginn 24. nóvem-
ber kl. 2. Konur og velunnarar
kirkjunnar vinsamlega komi
munum í félagsheimilið fimmtu-
daginn 22. og föstudaginn 23.
nóv. milli kl. 3 og 6 síðdegis.
Uppl. veitir Þóra Einarsdóttir í
sima 1 5969
Kvenfélag Neskirkju
Afmælisfundur félagsins verður
haldinn, fimmtudaginn 22. nóv-
ember kl. 20.30 i félagsheimilinu.
Hugrún skáldkona verður gestur
fundaians.
Nokkur ungmenni spila og syngja.
Afmæliskaffi.
Mætið vel.
Stjórnin.
Vörumóttakan verður opin kl. 8:00 — 19:00 alla virka daga, nema
laugardaga, en þá verður opið kl. 9:00 — 1 2:00.
Flugfélag íslands.
Loftleiðir.
Mikið Uósmagn
Það hefir sýnt sig að litur 30 ó flúrpíp-
um fró OSRAM hentar einkar vel við
íslenzkar aðstæður.
Mest Ijósmagn allra flúrpera fró OSRAM
80 Im/W miðað við 40 W Ijósrör.
(Ath. litur 20 gefur sama Ijósmagn en
liturinn er blórri og því ekki eins hlý-
legur).
Góð reynsla ó skrifstofum, leikfimisöl-
um, fundarherbergjum, stigahúsum,
vinnustöðum, fyrir útilýsingu o.fl. o.fl.
Litarsamsetning-. Mikið gult, sem gef-
ur mikið Ijósmagn. Rautt, sem veitir hlý-
legan blæ.
Góður litur gegn skammdegi og kulda.
OSRAM
Hvaár gera
FRAMARAR
í kvöld?
DYNAMO PANCEVO
Júgóslavíu
FRAM
Reykjavíkurmeistarar
í LAUGARDALSHÖLL I kVÖIfl Kl. 8.30
FORSALA
aðgöngumiða hefst kl. 5 í
dag í Laugardalshöll.