Morgunblaðið - 22.11.1973, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.11.1973, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1973 31 Göppingen í öðrusæti GEIR HALLSTEINSSON og fé- lagar hans f Göppingen léku um sfðustu helgi við sterkt lið f Suð- urdeildinni og sigruðu Geir og co með 20 mörkum gegn 14. Eins og fyrri daginn stóð Geir sig frábær- lega vel og skoraði 5 mörk. Leik Göppingen og Leuterhausen var sjónvarpað beint og eitt sinn er Geir hafði sent knöttinn f net andstæðinga sinna hrópaði sjón- varpsþulurinn upp yfir sig, að Geir Hallsteinsson væri bæði bezta og fjölhæfasta skyttan í þýzkum handknattleik. í leiknum viðLeuterhausen var þó mikill barningur framan af, en er síðari hálfleikurinn var nýhaf- inn og staðan 11:11 fór Göpping- en-liðið af stað, breytti stöðunni í 17:11 og gerði þar með út um leikinn. Göppingen er nú í öðru — og Geir stendur sig vel nú eins og fyrri daginn sæti í Suðurdeildinni með 10 stig eftir 7 leiki, en Iiðið sem er efst, Huttenberg, er með 11 stig eftir jafn marga leiki. I Norðurriðlin- um er Gummersbach í efsta sæti, með 13 stig eftir 8 leiki. Liðið tapaði nýlega fyrir Wellinghofen 9:14, það lið er í öðru sæti Norður- riðilsins með einu stigi minna en Gummersbach. Ef vikið er að blaðaúrklippum frá síðasta leik Geirs þá éru það einkum tveir menn, sem fá hrós f þýzku blöðunum, það eru Brod- beck markvörður liðsins og Geir Hallsteinsson. Um Geirsegir blað- ið Göppinger Kreisnachrichten: „Mikil heppni var það, og það segjum við ekki f fyrsta skipti, að Geir Hallsteinsson gerðist liðs- maður Göppingen. í þessum leik var hann eins og svo oft áður lykilmaður Göppingen, hélt ró sinni allan tímann og skoraði mörk á mikilvægum augnablik- um. Leikmaðurinn meðnúmer3 á bakinu hefur fyrir löngu fundið leiðina að hjörtum fylgismanna Göppingen." Joe Hooley, George Smith. Hooley kemur aftur T?YPCTT T .FJKTTR KR og ganga frá þjálfaramálum M Æ M Æ M 1 1. V/ lw KR-INGAR og Keflvíkingar hafa næsta ári. Sagðist Hooley vera illa ii JÚGÓSLAVANNA JUGÓSLAVNESKA Iiðið Dynamo Pancevo, sem nú dvelur hér á landi f boði Armenninga leikur sinn fyrsta leik f Islandsferðinni á móti Reykjavfkurmeisturum Fram f Laugardalshöllinni í kvöld. Þetta lið er mjög sterkt á júgóslavneskan mælikvarða og júgóslavneskur handknattleikur stendur með miklum blóma um þessar mundir. 1 liðinu leika sjö menn, sem leikið hafa í landsliði Júgóslavíu, og einn þeirra, Branislav Pokrajak, er einn bezti leikmaður Júgóslavfu nú. Dynamo Pancevo er um þessar mundir í einu af efstu sætunum i 1. deildar- keppninni í Júgóslavíu. Liðið kemur hingað frá Svfþjóð, þar sem það lék einn leik. Hér leikur það fjóra leiki, við Fram, Val, FH og landsliðið. Mótherjar Dynamo Pancevo í kvöld, Reykjavikurmeistarar Fram, hafa oftast staðið sig vel f leikjum við erlend lið og í fyrra- vor gerðu þeir jafntefli við Zagreb frá Júgóslavíu, erliðið var hér á keppnisferðalagi. Axel Axelsson lét svo ummælt, er hann frétti af stvrkleika júgóslavneska liðsins, að þó hann vissi að júgó slavnesk lið væru frábær, þá væru Framarar þekktir fyrir allt annað en að gefa sinn hlut eftir, ef heiður Framara væri í veði. Leikur Dynamo Pancevo og Fram hefst í Laugardalshöllinni klukkan 20.30 í kvöld. KR-INGAR og Keflvfkingar hafa nú svo gott sem gengið frá ráðn- inu þjálfara fyrir 1. deildarlið félaganna í knattspyrnu. Til ÍBK kemur að öllum Ifkindum Englendingurinn George Smith og til KR gamall kunningi frá sfðastliðnu sumri, maðurinn sem gerði IBK að þreföldum meistur- um, Joe Hooley. Báðir þessir þjálfarar dvöldu hér um helgina og ræddu við for- ráðamenn ÍBK og KR, svo og leik- mann. Joe Hooley var mjög hrif- inn af aðstöðu KR-inga og er hann hélt heimliðis í gærmorgun með drög að samningum, sagði hann að ölíklegt væri annað, en að hann kæmi aftur hingað í marz á Landsliðsæfingar næsta ári. Sagðist Hooley vera illa svikinn ef honum tækist ekki að koma KR-ingum að minnsta kosti upp íþriðja sætiðí 1. deild. George Smith hélt sömuleiðis utan í gær með drög að samning- um, sem hann ætlaði að leggja fyrir sfna nánustu. Taldi hann mjög líklegt að hann kæmi aftur 1. febrúar. Smith er 36 ára, lék á sinum tíma sem atvinnumaður hjá Birmingham en fæst nú við kennslu og þjálfun. Smith er greinilega ekki eins stórorður og kollega hans Joe Hooley, en þó ákveðinn ef því ér að skipta. Sagð- ist hann myndu byrja á því næsta vor að skipuleggja leik Keflvík- inganna eftir sínu höfði. — Ég verð með meistaralið i höndunum og það er ekki svo slæm byrjun, sagði hann. Keflvíkingar gerðu vel síðastliðið keppnistímabil og það er spurningin hvort hægt er að ná betri árangri. Eg kem hing- að með því eina markmiði að gera mitt bezta og vonandi verður það nógu gott. Bæði Smith og Hooley eru upp- haflega komnir í samband við íslenzku félögin í gegnum Enska knattspyrnusambandið og 'um þessar mundir eru bæði Vfkingur og ÍA að Ieita að þjálfara í gegn- um sömu aðila. r • r J| r i judo NÝLEGA hefur verið skipuð landsliðsnefnd í júdó, og er ákveðið að senda landslið f júdó til keppni á Norðurlandamóti. Þá standa yfir samningar við Norð- menn um landskeppni, og verið er að kanna möguleika á þátttöku í Evrópumeistaramöti, sem fram fer í London skömmu eftir ára- mót. Landsliðsnefnd hefur valið 15 menn til landsliðsæfinga, og verður kennari hópsins Maichael Vachun,4. dan. Stórleikur í 1. deildinni FH og Valur leika í 1. deildinni f handknattleik í kvöld, og fer leik- urinn fram í Iþróttahúsinu í Hafnarfirði. Leikir þessara liða hafa undanfarin ár verið sérlega skemmtilegir, og má fastlega gera ráð fvrir, að svo verði einnig í kvöld. Ólafur H. Jónsson leikur að líkindum ekki með Valsmönn- um í kvöld, en hann er enn ekki Of margar brotalamir jarvera Ólafs og Geirs afsakar ekki allt Fj ÞAÐ er f febrúar á næsta ári, sem úrslitakeppni HIVI f hand- knattleik hefst f A-Þýzkalandi og á þessu stigi málsins bendir allt til þess að íslenzka lands- liðið verði á meðal þátttakenda f þeirri orrahrfð. Með Islend- ingum í úrslitariðli verða Dan- ir, A-Þjóðverjar og Tékkar, þrjár þjóðir, sem telja verður sterkar á handknattleikssvið- inu. Ilverjar eru svo möguleik- ar okkar manna í keppni við þessar þjóðir? Eftir leik Svía og íslendinga í Laugardalshöllinni f fyrrakvöld er svarið einfalt, möguleikarnir eru engir. Hafa ber þó í huga, að hvorki Geir Hallsteinsson né Olafur H. Jónsson gátu tekið þátt í Svíaleiknum, og munar vissulega um minna. Framhjá hinu verður þó ekki litið, að kjarninn í íslenzka landsliðinu, sem fara mun til Austur-Þýzka lands, lék gegn Svíum, og greinilegt er, að brotalamirnar eru of margar til að hægt sé télja möguleika landsliðsins mikla. 1 leiknum við Svfa var sóknarleikurinn ósköp bágbor- inn. Axel Axelsson var sá leik- maður, sem vera átti f aðalhlut- verki, hann átti greinilega að gera mörkin. Gott og vel Axel gerði sjö mörk í leiknum, en þó ekki úr færri skottilraunum en 14, fjögur marka sinna skoraði Axel úr vítaköstum. Því miður var ekkkert gert til að hjálpa Axel í leiknum, hjálpa honum við að komast í skótfæri. „Blokkeringar" sáust varla í leiknum og var þvf ekki nema eðlilegt, að maður spyrði mann: Hvers vegna var Stefán Gunnarsson, valinn f liðið, en ekki notaður? Hefði ekki verið snjallt að láta hann „blokkera" fyrir Axel? Aðrar skyttur liðsins, Viðar, Guðjón, Hörður, brugðust að verulegu Jeyti og virðist liggja beint við í næsta leik, sem einn- ig er við Svía, að gefa mönnum eins og Agústi Svavarssyni og Gísli Blöndal tækifæri til að spreyta sig, og er virkilega ekki rúm fyrir risann Einar Magnús- son í Landsliðinu? Varnarleikur fslenzka Iiðsins, var skömminni skárri, en sókn- arleikurinn, en þar voru einnig greinilegir vankantar á. Til dæmis virtist Gunnsteinn Skúlason ekki vera f takt við leikinn, þessi leikmaður, sem verið hefur varnarmaður okkar númer eitt undanfarin ár, er ekki samur og fyrr. Annar Vals- maður, Agúst Ögmundsson, stóð sig ekki heldur eins vel og hann á vanda til, Ágúst var yfirleitt álengdar við átökin, og er það ekki hans vani. Markverðir íslenzka liðsins stóðu sig ekki illa og Ölafur Benediktsson sérstaklega vel. Eftir leikinn sagði Ölafur, að honum hefði þótt erfitt að koma svona inn í liðið án þess að hafa æft með því. Stemmningu hefði skort í varn- arleiknum og baráttukraftur- inn hefði verið í algjöru lág- marki. Axel Axelssontók ísama streng og var alls ekki ánægður, með leik íslenzka liðs- ins; sagði, aðmeiri hreyfanleiki hefði þurft að vera í vörninni og meiri harka í sókninni. Báðir voru þeir Axel og Ólafur þó sammála um, að íslenzka liðið ætti að geta unnið það sænska, það væri ekki svo sterkt. Eftir leikinn við Frakka á dögunum, þegar íslenzka liðið vann hinn sæta sigur, var þegar farið að deila á leikskipulag liðsins. Rætt var um að ein- staklingsframtakörfárraimanna hefði unnið leikinn, en ekki vel smurð vél eins og landslið- ið ætti að vera orðið, þegar svo stutt er í úrslit HM og þegar höfð er í huga sú vinna, sem lögð hefur verið í undirbúning landsliðsins. Næst á dagskrá ís- lenzka handknattleikslands- liðsins, er leikur við Svía hér heima, leikurann við Itali f IIM og svo möt í A-Þýzkalandi með þátttöku fjögurra sterkra liða og íslendinga. Þessa leiki verð- ur að nota til að velja það lið, sem farið verður með í úrslita- keppni HM, og nota Norður- landamótið, sem fram fer í Dan- mörku á milli jóla og nýárs til að „fínpússa" liðið. —áij orðinn góður af meiðslum beim. sem hann hlaut í leiknum við ÍR á dögunum. Leikur Vals og FH hefst í íþróttahúsinu í Hafnar- firði klukkan 20.15 í kvöld, en að honum loknum leika Haukar og Þór. Verður leikurinn gegn Hauk- um fyrsti leikur Þórs syðra í 1. deildinni. Telja verður mögu- leika Haukanna talsvert meiri í leiknum, en Haukarnir verða þá líka að leika betur en gegn Vík- ing síðastliðinn sunnudag. Ársþing KKI ÁRSÞING Körfuknattleikssam- bandsins verður haldið á Hótel Loftleiðum næstkomandi laugar- dag og hefst klukkan 10.00 fyrir hádegi. Flokkaglíman FLOKKAGLIMA Reykjavíkur fer fram í fimleikasal Melaskólans 16. desember n.k. Þátttökutilkynn ingar skulu hafa borizt til Sig- tryggs Sigurðssonar, Melhaga 9, eigi síðar en 9. desember n.k., ásamt þátttökugjaldi sem er kr. 200,00 í flokki fullorðinna og í. unglingaflokki, en kr. 100,00 i drengja- og sveinaflokki. Svíar æfa af krafti SÆNSKA landsliðið í knatt- spyrnu æfirþessa dagana af mikl- um krafti fyrir aukaleik Svíþjóð- ar og Austurríkis f undankeppni HM. í fyrrakvöldléku Sviarnirvið hollenzka liðið FC Haag og unnu Svíarnir 3 — 0. Mörkin skoruðu Roland Sandberg (2) og Conny Torstesson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.