Morgunblaðið - 08.12.1973, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1973
3
Urskrifstofu happdrættisins.
Happdrætti Sjálfstæðisflokksins:
Dregið
DREGIÐ verður í Happdrætti
Sjálfstæðisflokksins í kvöld og
verður drætti ekki frestað. Mikill
straumur fólks hefur verið á
skrifstofu happdrættisins að
Laufásvegi 47, undanfarna daga
eins og myndin ber með sér, en
hún var tekin þar i gær. Vinning-
arnir í happdrættinu eru: Volks-
wagen Passat LS, árgerð 1974 og
í kvöld
10 útvarpstæki með kassettu. Nú
er hver siðastur að gera skil og
verða sér úti um miða. Á morgun
verður það of seint.
Andvirði miða er sótt heim ef
óskaðer.siminn er 17100.
Takið þátt i happdrættinu og
styðjið þar með Sjálfstæðisflokk-
inn í starfi.
Ráðstefna um
fóstureyðingar
FÉLAG læknanema gengst f.vrir
ráðstefnu um fóstureyðingar
laugardaginn 8. desember kl. 14.
Verður ráðstefnan haldin f
Stúdentaheimilinu við Hring-
braut.
Ráðstefnan hefst með því, að
sjö manns flytja stutt framsögu-
erindi og þau eru: Björn Björns-
son guðfræðingur, Gerður Öskars-
dóttir kennari, Guðmundur
Jóhannesson læknir, Ilelgi Krist-
bjarnarson læknanemi, Iljördis
Hákonardóttir lögfræðingur og
Hulda Jensdóttir forstöðukona.
A eftir framsöguerindunum
verða paneumræður milliofan-
greindra manna. Urpræðustjóri
verður Þorbjörn Broddason lekt-
or.
Minni skattaálögur,
auknar rauntekjur
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt á almennum félags-
fundi Heimdallar sl. þriðjudag:
„Almennur félagsfundur í
Heimdalli S.U.S., haldinn þriðju-
daginn 4. des. að Hötel Esju, lýsir
yfir fullum stuðningi við þegar
framkomið frumvarp Sjálfstæðis-
flokksins um breytingar á núgild-
andi skattalögum. Með þessu
frumvarpi Sjálfstæðisflokksins er
stigið spor I þá réttu átt að
Guðmundur
og Weinstein
eru efstir
Chicago 7, des. Einkaskeyti
tilMbl. FráAP.
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
og Norman Weinstein frá
Boston eru efstir og jafnir á
alþjóðlega skákmótinu f Chi-
cago eftir níu umferðir með
6!4 vinning. t nfundu um-
ferðinni sem tefld var í gær,
vann Guðmundur Andrew
Karklings frá Chicago og
Weinstein sigraði Greg De-
fotis fráChicago.
I þriðja sæti er Nikolai Kara-
klajic frá Júgóslavíu, en hann
beið i níundu umferð ósigur
fyrir Larry Kaufman frá Mary-
land og er með 6 vinninga,
James Tarjan frá Kalíforníu
er í fjórða sæti, eftir sigur yfir
Zvonko Varanesic frá Kanada,
með 5'4 vinning. Stórmeistar-
inn Duncan Suttles heldur
áfram hrakförum sfnum og
tapaði fyrir Kim Commons frá
Los Angels, sem er í fimmta
sæti. Suttles er aðeins með 2
vinninga, en Cammos með 5.
Tvær umferðir eru ótefldar
á skákmótinu, en því lýkur á
sunnudag. Það er Bandaríska
skáksambandið og Skákklúbur-
inn Chicago, sem standa að
mótinu i sameiningu.
einingu.
minnka beina skattinnheimtu
ríkisins.
Núgildandi skattalög, sem ríkis-
stjórn Ólafs Jóhannessonar stóð
að, eru á margan hátt stórgölluð,
eins og almenningur hefur orðið
áþreifanlega var við. Ástandið í
dag verður að teljast óþolandi.
Skattsvik eru almenn nú, 72%
tekjuskattsgreiðenda eru í hæsta
skattstiga. Margt fólk telur það
ekki borga sig að vinna nema
hluta úr ári, því annars lendir það
í hæsta skattþrepi. Slíkt ástand
verður að teljast óeðlilegt, skatta-
lög eiga að vera þannig, að þau
virki hvetjandi á fólk, en ekki
letjandi.
Frumvarp Sjálfstæðisflokksins
miðar m.a. að því að minnka veru-
lega skattaálögur á fólki, draga úr
skattsvikum, auka sparnað í ríkis-
rekstri og auka rauntekjur fólks.'1
SJÁVARUTVEGSRÁÐUNEYT-
IÐ gaf nýlega út reglugerð um
breytingu á reglugerð nr. 189 14.
júlí 1972 um fiskveiðilandhelgi
íslands, þar sem ákveðið er, að
framvegis verði bannaðar allar
veiðar frá 20. marz til 1. maí ár
hvert á svæði þvf fyrir Suður-
landi, sem friðað hefur verið til
þessa frá 20. marz til 20. apríl.
Svæðið er ein mikilvægasta
hrygningarstöð þorksins fyrir
AÐVENTUKVÖLD Kársnessafn-
aðar verður í Kópavogskirkju á
sunnudagskvöld og hefst kl. 8.30.
Viðlagasjóð-
ur borgar
JARÐHITADEILD Orkustofnun-
ar er að kanna. hvort hugsanlega
megi nýta hitann f nýja hrauninu
í Vestmannaeyjum til húshitun-
ar, svo sem frá hefur verið skýrt f
blaðinu.
Nú hefur Viðlagasjóður sanL
þykkt að kosta þessa tilraun og
leggja til þess fjárframlag að
upphæð kr. 865.000.
Suðurlandi og afmarkast af lín-
um, sem dregnar eru milli eftir-
greindra staða:
a) 63°32'0 n.br., 21°25'0 v.lg.
b) 63°00'0 n.br.,21°25’ v.lg.
c) 63°00'0 n.br., 22°00'0 v.lg.
d) 63°32'0 n.br., 22°00'0 v.lg.
Akvæði þessi eru sett að fengn-
um tillögum Hafrannsóknarstofn-
unarinnar og Fiskifélags íslands.
Friðunartímabil lengt
„Leðurblak-
an” frumsýnd
annan jóladag
Á ANNAN dag jóla frumsýnir
Þjóðleikhúsið hina heimskunnu
óperettu Leðurblökuna eftir Jo-
hann Strauss yngri. Verkið þarf
tæpast að kynna hér á landi, þvf
að margir munu minnast þess að
Þjóðleikhúsið sýndi þessa óper-
ettu á fyrstu starfsárum sínum
eða nánar tiltekið á árunum 1952
og 1953 við miklar vinsældir. Leð-
urblakan var frumsýnd í Vfnar-
borg þann 5. apríl 1874 fyrir tæp-
um 100 árum, en sfðan er Leður-
blakan sýnd stöðugt um allan
heim við jafn miklar vinsældir. í
því sambandi má geta þess, að
Leðurblakan verður einnig sýnd á
Konunglega leikhúsinu i Kaup-
mannahöfn um þessi jól.
Leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu
er Erik Bidsted, ballettmeistari
og leikstjóri. Síðast stjórnaði
hann hér söngleiknum „Ég vil —
égvil“ fyrirÞjóðleikhúsið.
Ragnar Björnsson stjórnar
hljómsveitinni, en leikstjóri til
aðstoðar við leikstjórnina er Her-
dfs Þorvaldsdóttir. Lárus Ingólfs-
son er leikmynda- og búninga
teiknari.
Helztu hlutverkin eru leikin og
sungin af: Sigurði Björnssyni,
Guðmundi Jónssyni, Svölu Nfel-
sen, Kristni Hallsyni, Magnúsi
Jónssyni og Elinu Sigurvinsdótt-
ur og Sólveigu Björlihg. Enn-
fremur eru leikararnir Ami
Tryggvason og Lárus Pálsson f
veigamiklum hlutverkum.
Alan Carter balletmeistari æfir
og semur dansana í Leðurblök-
unni, en dansarnir eru all-margir
i sýningunni. Félagar úr Þjóðleik*
húsinu syngja auk þess með.
Jóhann Straussyngri, höfundur
tónlistarinnar, er fæddur í Vínar-
borg 25. október 1825. Faðir hans,
Jóhann Strauss, eldri var frægur
hljómsveitarstjóri og tónskáld, en
hann vildi láta son sinn taka eitt-
hvað nytsamara fyrir en tónlist-
Garðar Cortes (varmaður Sigurðar Bjömssonar f hlutverki hans), Erik Bidsted.Svala Nielsen og
Sigurður Björnsson.
ina. J. Strauss gekk þvf mennta-
veginn og tók verkfræðipróf við'
háskólann, en stundaði nám í
fiðluleik á laun, og 19 ára að aldri
stjórnaði hann f fyrsta skipti
hljómsveit, sem hann komsérupp
sjálfur. Þegar faðir hans dó, tók
hann við stjórn hans og hélt tón-1
leika í Vínarborg, Þýzkalandi og í
Póllandi viðgóðar undirtektir.
Eftir Johann Strauss yngri,
liggur mikið af tónverkum. Alls
samdi hann 16 óperettur og
þekktastar af þeim eru Leður-
blakan, Sígaunabaróninn, sýnd
i Þjóðleikhúsinu vorið 1961.
Nótt í Feneyjum, Vínar blóð og fl.
Johann Strauss hefur oft verið
nefndur „konungur Vínar-
valsins" og eftir hann liggur mik-
ið af undurfögrum völsum og tón-
verkum: Dóná svo blá, Sögur úr
Vínarskógi, Listamannalíf og fl.
Johann Strauss lést 3. júní 1899.