Morgunblaðið - 30.12.1973, Page 15

Morgunblaðið - 30.12.1973, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1973 15 GLEÐILEGT NVÁR Jóliunn G. — megi framlag þitt til listanna verða jafn ánægjulegt á næsta ári og þessu.'GLEÐILEGT NÝÁR Elizabeth og Richard Burton — megi sambúðin endast a.m.k. út næsta ár. GLEÐILEGT NVAR Magnús og Jóhann, Change, Pal Brothers og þeir allir — megi frægðin falla ykkur í skaut á næsta ári í Bretlandi og víSar. GLEÐILEGT NVAR John Lennon — megi baráttan fyrir dvalarleyfi í Bandaríkjunum verða friðsamleg. GLEÐILEGT NVÁR Osmonds — megi frægðin og vinsældirnar endast út næsta ár, þrátt fyrir fallvaltleika heimsins. GLEÐILEGT NVÁR Magnús Kjartansson (poppari) — megi tónlistarsköpunin og plötuútgáfan blómgast. GLEÐILEGT NVÁR Mogens Glistrup — megi skattarnir verða létt- bærir. GLEÐILEGT NVÁR Jónas R. Jónsson — megi Uglan hressast með hækkandi sól. GLEÐILEGT NVÁR Alice Cooper — megir þú verða prestinum föður þínum til sóma. GLEÐILEGT NVAR fslenzka æska — megi eldra fólkið verða þér til sóma. GLEÐILEGT NVÁR Sverrir Runólfsson — megi allir þínir vegir verða holulausir. GLEÐI- LEGT NVAR Heljarenglar — megi mótorhjólin ykkar sleppa við bensínleysi. GLEÐILEGT NVÁR Morgunblaðið — til hamingju með SLAGSÍÐUNA! | I Fílabrandarar og fárán- leikabrandarar!!! Hvers vegna er fíllinn með gular lappir? Til þess að það sjáist ekki, að hann labbar í smjörinu. Hvers vegna er fíllinn í rauð- um skóm? , Af því að þeir grænu eru hjá skósmið. Hvers vegna notar fíllinn græna skó? Svo að hann sjáist ekki, þegar hann er að læðast í grasinu. Hvernig komast fjórir fílar í Fólksvagn? Tveir frammi og tveir aftur í. Hvernig komast fjórir gíraff- ar í Fólksvagn? Þeir komast ekki, því að það eru fílar í honum. Þolirðu þessa fílabrandara og aðra í svipuðum dúr? Hættu þá að lesa/Haltu áfram að lesa (Strikið yfir það, sem á ekki við.) Fílabrandarar og aðrir svip- aðir brandarar sem settir eru fram í formi gátna með svörum fáránleikans, eru sérlegir brandarar ungu kynslóðarinn- ar: Unga kynslóðin fann þá upp, er sú eina sem notar þá og sú eina sem skilur þá. Fleiri en ein og fleiri en tvær vísindaleg- ar kannanir hafa verið gerðar á þessu fyrirbæri, uppruna þess og umtaki, og visindagreinar hafa verið skrifaðar um það. Við drepum hér lítillega á nokkur atriði niðurstaðna vís- indamannanna, en að öðru leyti látum við fíla- og fáránleika- brandarana tala sínu máli sjálfa — enda áramótin i nánd með Öllum sínum fáránleika. Rannsóknir sýna, að skeið fáránleikabrandaranna hófst meðal framhaldsskólanema í Bandaríkjunum 1962 og þaðan hafa brandararnir síðan breiðst út sem eldur í sinu um allar jarðir, þar sem bandarískra menningar- og siðvenjuáhrifa gætir. Innan tíðar tók fullorðna fólkið þessa brandara I sína þjónustu; skemmtikraftar sögðu þá i sjónvarpi, útvarpi og á skemmtistöðum, og útgáfufyr- irtæki gáfu út myndskreyttar bækur með fílabröndurum. Fullorðna fólkið fékk þó fljót- lega leið á þessu skemmtana- formi og eftirlét það börnum og unglingum, sem hafa haldið bröndurunum á lífi og raunar aukið kyn þeirra stórlega með nýjum útgáfum. Fílabrandararnir eru upp- runnir á meðal bandarískra há- skólastúdenta, rétt eins og hippahreyfingin síðar meir, sem var í andstöðu við þjóð- félagskerfið og giidismat þess. Þjóðfélagsgagnrýnin er ríkur þáttur í fílabröndurunum: Fílarnir lifa í þjóðfélaginu án þess að fara eftir reglum þess og lögum. Fílarnir eru friðsöm, en óróleg dýr í nýtízku íbúðum, þramma um í smjörinu og gera aðra forboðna hluti. Fáránleikagáturnar eru tald- ar andsvör við sérstæðum gát- um sjötta áratugarins um börn, sem voru saumuð föst við gólf- ið, urðu undir völturum eða pressuð undir lyftum. Þær sjúklegu gátur eru taldar and- svör ungra Bandaríkjamanna við ömurlegum veruleika, m.a. kjarnorkusprengingum Banda- ríkjamanna í Japan, kalda stríðinu, Kóreustrlðinu og ára- langri ofbeldisdýrkun. Skortur „sjúklegu" gátnanna á rök- réttri hugsun er talinn merki um uppreisn gegn vísinda- hyggjusamfélagi, þar sém hægt er að mæla allt mannlegt og setja upp í tölfræðilegar töflur og línurit. En þá skulum við að lokum líta á nokkra fíla- og fáránleika- brandara til viðbótar: il * , -n • FÍLABRANDARAR Hvers vegna synda fílarnir á bakinu niður ána? Til að strigaskórnir þeirra blotni ekki. Hvað sagði Tarsan, þegar hann sá filana koma yfir hæð- ina? Þarna koma fílarnir yfir hæð- ina. Hvað sagði Tarsan, þegar hann sá fílana koma yfir hæð- ina með dökk sólgleraugu? Ekkert. Hann þekkti þá ekki. Ilvernig þekkirðu fil frá vínberi? Vínberið er grænt. Hvað sagði Jane, þegar hún sá filana? ■ Ó, sjáið þið öll vínberin! (HUn var litblind.) Hvernig þekkirðu fil frá vín- beri, ef þú ert litblindur? Hoppaðu á þessu í smátíma og ef það kemur enginn safi úr því, þá er það fíll. Hvers vegna eru ekki fleiri fílar i menntó? Það ljUka svo fáir fílar lands- prófi. Hvernig veiztu að fill hefur verið á ferð í isskápnum? Það sést á fótsporunum í smjörinu. Hvers vegna eru fílar með hár á rófunni? Hvers vegna ekki? Hvernig veiðir maður fíl? Maður notar stóra hljóm- plötu, plötuspilara, sjónauka, flisatöng og - eldspýtustokk. Maður setur stóru plötuna á plötuspilarann, en á vitlausum hraða. Þá verður fíllinn forvit- inn og kemur nær. Þá tekur maður sjónaukann og horfir í gegnum hann öfugan, þannig að fíllinn verður pínulítill. Síð- an tekur maður fílinn upp með flisatönginni og lætur hann í eldspýtustokkinn. HVAÐ ER ÞAÐ ... Hvað er það, sem er rautt og fer upp og niður? Jarðarber í lyftu. Hvað-er það, sem er gult, situr uppi í tré og er lífshættu- legt? Brjálaður kanarífugl með vélbyssu. Hvað er það, sem segir gogogggoggogg og er grænt? Málhaltur froskur. Hvað er það, sem er grænt, liggur Uti á túni og jórtrar? Belja i grænum svefnpoka. Hvað er það, sem er svart, flýgur og hefur 236 fætur? 118 hrafnar. Hvað er það, sem er gult, flýgur og vegur 400 kíló? Tveir 200 kílóa kanarífuglar. Hvað er það, sem kemur á 70 km hraða upp úr jörðinni? Moldvarpa á mótorhjóli. Hvenær veit maður, að mold- varpan hefur eignazt unga? Þegar mótorhjólið er komið með hliðarvagn. Hvað er það, sem er guit og grænt og liggur í göturæsinu? Dauður strætó. Hvað er ilangt, gult á daginn, en grænt á nóttunni? Banani, sem vinnur sem gúrka á nóttunni. Hvað er hámark ógestrisn- innar? Að bjóða upp á þynnt vatn i gegnum stíflað rör. Hvað er það, sem er lítið, gult og skröltir? Kjúklingur á keðjum. y OG í LOKIN ... Hvers vegna flýgur storkurinn til Egyptalands? Af því að það er of langt að ganga. Hvenær " segja Indiánarnir góðan daginn? Þegar þeir hafa lært islenzku. Hvers vegna hefur fíllinn fjóra fætur? Til að geta hjólað á tveggja manna reiðhjóli. Hvað er líkt með fíl gúrku? Þau vaxa bæði í trjám. En fílar vaxa ekki í trjám! Ekki gúrkurnar heldur! Hvað er likt með fíl? Hann kann hvorki að spila á gítar. og ! I I * „SLAGSÍÐAN” MORGUNBLAÐIÐ PÓSTHÓLF 200 REYKJAVÍK Tvær hafnfirzkar skrifa: „Við erum hérna tvær úr Hafn- arfirði, sem ætlum að skemmta okkur á gamlárskvöld. Og við spyrjum: Hvar geta unglingar, sem eru ekki „alveg“ orðnir 16 ára, skemmt sér á höfuðborgar- svæðinu, eða hvaða skemmtistað- ir verða opnir, ef einhverjir verða opnir?" Svar: Tónabær heldur áramóta- dansleik á gamlárskvöld frá kl. 10 til 04. Hljómsveitin Pelikan leik- ur fyrir dansi. Aldurstakmarkið miðast við 15 ára aldur, þ.e. allir, sem fæddir eru á árinu 1958 eða fyrr. * Tvær píur úr Reykjavík Spyrja: Geturðu gefið okkur heimilis- fang David Cassidy? Svar: Þið getið skrifað á ensku í þetta heimilisfang: P.O. BOX 69800 Los Angeles 90069 U.S.A. Þar getið þið fengið áritaða mynd af kappanum og e.t.v. eitt- hvað fleira fallegt. * Tveir Kræklingar spyrja: Viltu gefa okkur dálitlar upplýsingar um Marie Osmond (alit, sem þú veizt?) Svar: Sú vitneskja er harla litil — ennþá. Olive Marie Osmond er fædd 13. október 1959. Hún hefur sungið inn á eina stóra plötu, „Paper Roses“, en er kunnust fyr- ir útgáfu sína á laginu „Paper Roses“, sem farið hefur í topp 10 í Bretlandi, Bandaríkjunum, Is- landi og e.t.v. víðar. Lagið var fyrst sungið inn á plötu árið 1960 af ungfrú Ameríku, sem einnig hafði góða rödd, Anitu Bryant.— Marie kemur nú jafnan fram á hljómleikum með bræðrum sín- um og mætti þvi fremur kalla hópin Osmond-systkinin hér eftir. — Þar sem Marie er Mormóna- trúar, eins og bræður hennar, má hún ekki þiggja boð um að fara út með strákum fyrr en hún er orðin 16 ára gömul — en hún segir að sér sé alveg sama. HUn ver mest- öllum frítíma sínum í nám: í skól- anum hefur hún mest gaman af ensku og stærðfræði og hefur einnig áhuga á að læra frönsku með tilliti til ferðalaga. Þá er hún einnig að læra hraðritun og vélrit- un, þvi að lengi vel hafði hún mestan áhuga á að gerast einka- ritari bræðra sinna, sjá um að taka niður og vélrita svör þeirra við aðdáendabréfum o.fl. þ.h. En svo fór hún að syngja og hefur hlotið svo góðar viðtökur á þvi sviði, að einkaritarastarfið verður líklega að falla annarri stúlku í skaut. Marie Osmond.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.