Morgunblaðið - 30.12.1973, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.12.1973, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1973 Kristján Ragnarsson formaður Landssambands íslenzkra útvegsmanna: Vandamál útgerðarinnar meiri en undanfarin ár EF við lítum til baka yfir árið. hefur gengið á ýmsu í iðnaðinum. Gert er ráð fyrir að auking á framleiðslumagní í iðnaðí, á liðnu ári, muni nema 8—10 prósentum, sem er meiri aukning en árið þar á undan, en það ár var aukningin 6—8 prósent. Ekki nær það þó hinni miklu aukningu, sem varð árið 1971 og nam 12—15 prósent- um. Hér er þó um myndarlega framleiðsluaukningu að ræða og má fyrst og fremst þakka hana mikilli kaupgetu almennings og þar af leiðandi mikilli eftirspurn eftir vörum. Þá er gert ráð fyrir vcrulegri aukningu á útflutningi iðnaðarvara. en þó minni en vonazt hafði verið eftir. Aukning- nt er áætluö tæp -10 prósent að magni og munar þar mest um aukningu á útflutningi á áli. Verðlagsþróunin varð iðnaðin- um á ýmsan hátt erfið á árinu. Þegar í byrjun árs fór að gæta hækkana, bæði á innlendum og erlendum hráefnum. Eftir því sem leið á árið urðu þessar hækkanir meiri og gæta fór skorts á ýmsum tegundum hráefna, svo sem plasti og efnum úr því, ýms- um kemiskum efnum, stáli, timbri, pappír og vefnaðarvörum. Nú síðustu mánuði bætist víð skortur á flestum þeim mörgu hráefnum, sem unnin eru úr olíu. Ýmis efni eru orðin eða að verða ófáanleg og þegar þau fást eru þau á tvöföldu til fjórföldu verði. Þá höfðu hinar tiðu gengisbreyt- ingar á árinu mjög afdrifarík áhrif á útflutning iðnaðarvara, og má meðal annars rekja ntinni aukningu útfiutnings til þeirra. Mjög óveruleg aukning mann- afla varð í iðnaðínum á árinu og hvergi nærri sem svarar auknu framleiðslumagni. Hefur því orð- ið um verulega framleiðniaukn- ingu að ræða. Áætlað er, að laun og launa- tengd gjöld í iðnaði á árinu hafi numið um 10 þúsund milljónum, og eru þá byggingarstarfsemi og fiskiðnaður ekki talin með. Þessi gjöld hafa hækkað um nálægt 50 prósent frá frá árinu áður, fyrst og fremst vegna hækkunar kaup- gjaldsvisitölu. Til samanburðar má geta þess, að sams konar gjöld í fiskiðnaði, á liðnu ári, eru áætluð um 2.800 milljónir pg í heildverzlun 1.130 milljónir króna. Ég held, að óhætt sé að fullyrða, að nýja árið muni færa okkur miirg vandamál, bæði af innlend- um og erlendum toga spunnin, og muni reyna á alla þá, sem að iðnaði starfa, að forða iðnaðinum frá skakkaföllum. Þar sem fleiri Iandsmenn hafa framfæri sitt af iðnaði en nokkurri annarri framleiðslu veltur mikið á, að vel takist til. Útgerðin stendur frammi fyrii meiri vandamálum í upphafi næsta árs en hún hefur gert lengi, eða frá erfiðleikaárunum 1967 og '68. Þrátt fyrir gífurlega hækkun afurðaverðs á erlendum markaði á þessu ári, sem gert hefur mögu- lega 42% hækkun almenns fisk- verðs, er útgerðin, sem þorsk- veiðar stundar, rekin með tapi. Ástæðan er minnkandi afli og stórhækkaður tilkostnaður, sem m. a. stafar af hækkun kaupgjalds- visitölu um 38 stig á árinu og spáð er allt að 15 stiga hækkun 1. marz n. k. Með slíkri verðþenslu er ýtt undir spákaupmennsku og al- menningur glatar öllu verðmæta- mati. í kjölfar þessa ástands eru gerð- ar kaupkröfur, sem ekki eru 1 neinu samræmi við greiðslugetu atvinnuveganna, og hótað er að þvinga þær fram með verkföllum, þótt öllum eigi að vera ljóst, að meiru verður ekki skipt en til skiptanna er, og stefnt er að enn einni gengisfellingu krónunnar. Allir keppast við að fordæma verðbólguna, en enginn vill raun- verulega takast á við vandann. Áhrifamiklir fjölmiðlar eins og Morgunblaðið láta ekki sitt eftir liggja við að æsa fólk upp 1 óraun- hæfum kaupkröfum. Stórfelld hækkun á oliu, veiðarfærum og viðhaldi fiskiskipaflotans er fyrir- sjáanleg, en viðhaldskostnaður- „ÁRIÐ 1973 hefur verið með beztu árum fyrir bændur á þessari öld, sagði Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri, þegar við hringdum í hann í gær. Veðráttan hafi verið svo góð sl. vetur að frost hafi ekki gengið í jörðu. Hún hafi þvi komið klakalaus undan vetrinum. Fyrsti gróður hafi komið allsnemma og hafi ver- ið farið að gróa verulega í maí. Júní hafi síðan verið óvenjukald- ur og því hafi gróið hægt þá. Sláttur hafi byrjað í síðasta lagi og víða ekki fyrr en komið var fram í júlí. Búnaðarmálastjóri sagði, að eft- ir að hlýnað hafi í júlimánuði hafi sprottið vel, þannig að grasspretta hafi orðið ágæt um allt land, nema í einstaka hálendissveit. Heyskapartíð hafi verið ágæt og heyfengur mik'U og óvenjugóður. Þá hafi veðráttan verið óvenju hagstæð í haust og fénaður með allvænsta móti, þegar hann kom af fjalli. A hinn bóginn hefðu nóvember og descmber verið óvenjukaldir og víða innistaða á fénaði samfellt þessa tvo síð- ustu mánuði ársins. Bændurværu inn hefur hækkað á þessu ári um nær 50%. Þrátt fyrir stórfellda verðhækkun á veiðarfærum er þess þegar farið að gæta, að veiðarfæri séu ekki fáanleg. Þetta vandamál er áður með öllu óþekkt og engin leið að sjá fyrir, hvaða áhrif þetta getur haft. Vegna hlutaskiptafyrirkomu- lagsins á fiskiskipunum þarf að hækka fiskverð mjög mikið til að jafna þessar kostnaðarhækkanir, en svigrúm til þess er ekki fyrir hendi. Hins vegar getur það ekki talizt eðlilegt, að sjómenn hagnist Halldór Páls- son búnaðar- málastjóri: þó vel undir veturinn búnir og tækju þeir þessum harðindakafla með jafnaðargeði. Þó væri ekki enn séð fyrir um afleiðingarnar, þar sem frost hefði gengið djúpt í jörðu. Halldór kvað kartöfluuppskeru ársins hafa verið óvenju iitla. Ástæðurnar fyrir þessu væru, að litið hafi sprottið framan af sumri og síðan hafi frostnótt í ágúst stórspillt uppskerunni að sunnan og vestan. Væri áætluð uppskera á öllu landinu ekki nema 40.000 tunnur, sem væri rúmlega 1/3 af því kartöflumagni, sem þjóðin þyrfti. A hinn bóginn hefði kjötfram- leiðsla aukizt mikið frá árinu 1972. 1 haust hefði verið slátrað um 856.000 kindum eða 87.000 fleiri en 1972. Næmi þetta 11,35% aukningu að tölu. Að magni til væri kindakjötsframleiðslan um 1475 smálestir og væri það 12,47% aukning frá fyrra ári. Hefði meðalfallþungi dilka reynzt vera 14,94 kg. Ekki lægju enn fyrir tölur um nautakjötsframleiðsluna, en sýnt væri þó, að hún væri mun meiri þannig á erfiðleikum útgerðar- innar. Verður því að fara aðrar leiðir til að tryggja, að útgerðin geti gengið hindrunarlaust á næsta ári. Okkur hafa bætzt mörg ný fiski- skip á árinu og mörg eru væntan- Ieg á næsta ári. Hafa þau sýnt yfirburði í aflabrögðum, stórbætt vinnuaðstöðu sjómanna og tryggt atvinnuöryggi i hinum ýmsu sjávarþorpum. Þrátt fyrir afla- sæld er grundvöllur fyrir rekstri þeirra ekki fyrir hendi eins og bent var á, áður en þau komu til landsins. Stjórnarvöld, sem stuðl- að hafa að kaupum þeirra, komast því ekki hjá að gera ráðstafanir, er tryggi rekstur þeirra. Þótt ég hafi hér nefnt nokkur vandamál eru sem betur fer bjart- ar hliðar einnig. Verðlagsþróun sjávarafurða hefur verið einstak- lega góð, þótt ekki sé talið, að hún geti haldið áfram á næsta ári eins og á því, sem er að kveðja. Mjög vel horfir um loðnuveiðar á næsta ári og verðlag á þeim afurð- um einstaklega gott. Likur eru á, að við getum haldið áfram síld- veiðum í Norðursjó á næsta ári, líkt og á þessu ári. Síldveiðar verða að líkindum áfram bann- aðar við Suður- og Vesturland og síldarstofninn heldur áfram að vaxa og getur væntanlega tekið við veiðiálaginu, þegar þjóðirnar við Norðursjó fara að stækka landhelgi sína. en í fyrra. Mjólkurframleiðslan hefði aukizt um 2,6% fyrstu 11 mánuði ársins og hefði numið til nóvemberloka 105.507 smálest- um. „Það er góður hugur í bænd- um,“ sagði Halldór Pálsson, „verðlag og árferði hefur verið hagstætt og afkoman hefur verið betri en árið 1972. Framkvæmdar- hugur bænda hefur verið mikill, bæði hvað varðar ræktun og byggingarframkvæmdir. Skemmdu túnin frá harðinda- timabilinu 1970 hafa nú náð sér og hafa ræktunarframkvæmdir bænda frekar miðað að þvf að betrumbæta áður ræktuð svæði en að ráðast í nýræktir. Stórhug- ur hefur verið til byggingarfram- kvæmda. Búin hafa farið stækk- andi. PTamleiðslan á meðalbúinu hefur vaxið og vinnustundum fækkað vegna aukinnar tækni- væðingar. Það sem helzt veldur bændum áhyggjum nú eru jarðamálin. Menn sækja í jarðir til annarra hluta en búskapar og hækkar því jarðaverðið. Væntí ég þess, að jarðalagafrumvarpið, sem nú ligg- urfyrir Alþingi hljóti þarjákvæð- ar undirtektir og hljóti afgreiðslu hið fyrsta." Hvað segja þeir um áramótin? Morgunblaðið sneri sér til nokkurra forustu- manna í athafnalífinu og spurði þá, hvernig ástand- ið væri f þeirra greinum og framundan. Auk þeirra, sem hér svara spurningum Morgunblaðsins, Ieitaði blaðið til Snorra Jönssonar forseta Alþýðusam- bands íslands og Eðvarðs Sigurðssonar formanns Dagsbrúnar. Þeir kváðu sig ekki geta gefið svör vegna anna og of skamms fyrirvara. Gunnar J. Friðriksson formaður Félags íslenzkra iðnrekenda: Forða verður iðnaðinum frá skakkaföllum Með beztu árumá þessariöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.