Morgunblaðið - 30.12.1973, Page 35

Morgunblaðið - 30.12.1973, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1973 35 Ólafur Briem formaður Islend- ingafélagsins í London AÐALFUNDUR félags íslend- inga í London var haldinn laugar- daginn 1. desember, 1973 í húsa- kynnum The Horse Shoe Hotel, Tottenham Court Road í London, að viðstöddum sendiherra Is- lands, Niels P. Sigurðssyni. Formaður, Ölafur Guðmunds- son, setti fundinn og stakk upp á Birni Björnssyni sem fundar- stjóra og ennfremur stakk hann upp á Olafi Briem sem fundar- ritara, sem var samþykkt. Fundarstjóri hóf fundinn með þvi að biðja fundarritara að lesa upp fundargerð síðasta aðalfund- ar sem síðan var borin undir at- kvæði og samþykkt. Fundarstjóri gaf orðið for- manni, sem skýrði frá starfsemi félagsins á liðnu ári. Sagði for- maður að á árinu hefðu verið haldnar þrjár velsóttar samkom- ur, jólastréskemmtun fyrir börn og fullorðna, þorrablót og lýð- • veldisfagnaður. Félagið gekkst fyrir Vest- mannaeyjasöfnun og söfnuðust samtals £ 2.682.76 sem voru afhent Rauða krossi íslands til ráðstöfunar. Félagið gekkst fyrir hópferð til íslands þann 21. nóvember og var komið til baka þann 25. nóvem- ber. Þátttakendur voru yfir 40 félagsmenn og var ferð þessi í alla staði vel heppnuð. Samkvæmt spjaldskrá félagsins eru yfir 200 skráðir meðlimir. Engar athugasemdir voru gerð- ar við skýrslu formanns. Síðan bað fundarstjóri gjald- kera að lesa upp reikninga félags- ins og voru þeir samþykktir. Olafur Briem Næst á dagskrá fundarins var stjórnarkosning, og hlutu þessir kosningu: Ólafur Briem, formaður Ólafur Guðmundsson, varafor- maður Sólrún Jensdóttir, gjaldkeri Sturla Már Jónsson, ritari Valgarður Egilsson, meðstjórn- andi. Eftir stjórnarkosningu var fundi slitið og setzt að matarborð- um og dans stiginn til miðnættis, en áður en fundi var slitið þakk- aði Ólafur Guðmundsson Birni Björnssyni fundarStjórn. Áður en samkomunni var slitið, tók hinn nýkosni formaður, Ólafur Briem til máls og minntist fullveldisins á viðeigandi hátt og bað samkomugesti að hrópa ís- lenzkt húrra fyrir ættjörðinni, sem var kröftuglega gert af við- stöddum. Var samkoman hin ánægjuleg- asta og til sóma fyrir félagið.. LESIfl /—' 7 IiJaefuiHuihu,,,. “ - Dnr.LEGH VIÖ framleiðum án aliáls... Grjótmulningsvélar af ýmsum stærðum og gerð- um. Kyrrstæð og færanleg kerfi. 14 ára afbragðs- reynsla hérlendis tryggir gæðin. Vélar „PREROV' verksmiðjanna eru fluttar út af Prag, Tékkóslóvakíu. Einkaumboð: ÞORSTEINN BLANDON, heildverzlun, Hafnarstræti 1 9, sími 1 3706. r Albert Guðmundsson og Olafur B. Thors: Aðstöðugjald óréttlátur skattur Við afgreiðslu fjárhagsáætlun- ar Reykjavíkurborgar gerðu tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðis- f lokksins, þeir Albert Guðmunds- son og Ólafur B. Thors, sérstaka bókun, þar sem þeir lýstu þeirri skoðun sinni, að þeir teldu að- stöðugjald óréttlátan skatt. Bók- un þeirra var svohljóðandi: „Við teljum aðstöðugjald órétt- látan skatt, þar sem hann er lagð- ur á fyrirtæki án tillits til afkomu þeirra, og teljum að stefna beri að því að leggja hann niður og því hefðum við talið æskilegra að leysa úr brýnni fjárþörf sveitar- félaga á annan hátt en að heimila hækkun þeirra gjalda. Með lögum nr. 8/1972 um tekjustofna sveitar- félaga var mörkuð sú stefna af Alþingi að draga ætti úr þessum tekjustofni og var þá m.a. haft í huga að gera þyrfti hlut íslenzkra fyrirtækja sem jafnastan fyrir- tækja frá EFTA- eða Efnahags- bandalagslöndunum. Þar sem Al- þingi hins vegar virðist hafa snú- izt frá þessari stefnu sinni og vís- ar sveitarfélögum á þessa leið til að mæta síhækkandi útgjöldum þeirra og ljóst er, að Reykjavikur- borg getur ekki án þess verið að nýta að einhverju leyti þennan tekjustofn, samþykkjum við þá tillögu, að aðstöðugjöld verði nýtt á þann hátt, að þau verði ekki hlutfallslega hærri á neina eina atvinnugrein en þau urðu á árinu 1973 að viðbættum hluta viðlaga- gjalds, enda beiti borgarstjórn sér fyrir þvi, að fundin verði réttlát- ari tekjulind sveitarfélögum til handa hið bráðasta." Utvarp landshlutasamtaka MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi ályktun, sem gerð var á fundi stjórnar SUS hinn 20. des. sl. I tilefni af framkomnu frum- varpi til laga um breytingu á útvarpslögunum sendir stjórn S.U.S. frá sér eftirfarandi ályktun: Stjórn Sambands ungra sjálf- stæðismanna fagnar framkomnu frumvarpi til laga um breytingu á útvarpslögunum, sem felur í sér, að Rfkisútvarpið geti veitt lands- hlutasamtökum og/eða einstaka sveitarfélögum heimild til að reka SIMI 16767 Höfum góSan kaupanda að 3 herbergja ibúð, austurbæ Höfum kaupanda að stóru einbýlishúsi, Laugarási Til sölu við Kársnesbraut 5 herb. íbúð, tvíbýlishúsi. allt sér Bílskúr. Við Snorrabraut rúmgóð 4 herbergja íbúð. Við Hjarðarhaga 5 herbergja úrvalsíbúð, allt sér, Bilskúr. Einar Sigurðsson, hdl. Ingólfsstræti 4, sfmi 16767, Kvöldsími 32799. Einangrun Góð plasteinangrun hefur hita- leiðnisstaðal 0,028 til 0,030 kcai/mh. °C, sem er verulega minni hitaleiðni, en flest önnur einangrunarefni hafa, þar á meðal glerull, auk þess sem plasteinangrun tekur náléga engan raka eða vatn i sig. Vatnsdrægni margra ar.narra einangrunarefna gerir þau, ef svo ber undir að mjög lélegri einangrun. Vér hófum fyrstir allra, hér á landi, framleiðslu á einangrun úr plasti (polystyrene) og framleiðum góða vöru með hagstæðu verði. Reyplast hf. Armúla 44 — sími 30978. GleÓiBegt nýtt ár Þökkum viöskiptin liÓna árinu \ FiskbúÓin GRIMSB/E við BústaÓarveg W .■i'.ewasj*. jZ.iíw&T''. «i C€Wrv.ewarrv. /,«wtv/-<^4, sjálfstæðar, en staðbundnar útvarpsstöðvar. Ljóst er, að vel framkvæman- legt er að halda uppi staðbundnu útvarpi og má í þvi sambandi benda á þá góðu reynslu, sem fengizt hefur af Eyjapistli í Ríkis- útvarpinu, sem sérstaklega er ætl- aður Vestmannaeyingum. Enginn vafi er á því, að stað- bundnar útvarpsstöðvar þjöpp- uðu fólkinu f viðkomandi byggðarlagi saman og vekti það betur til vitundar um sameigin- lega hagsmuni, jafnframt því sem möguleikar sköpuðust fyrir efl- ingu menningar og kynningu á listrænu starfi. Otvarpsrekstur á vegum landshlutasamtaka eða einstakra sveitarfélaga veitti þvi ábyrgð og skyldur, sem stuðluðu að dreifingu valdsins í þjóðfélag- inu. Með samþykkt á því frumvarpi til laga um •breytingu á útvarps- lögum, sem nú liggur fyrir Alþingi, fá alþingismenn tæki- færi til að sanna f verki raunveru- legan vilja sinn til að færa aukin áhrif og ábyrgð í hendur fólksins í landinu. Framhaid á bls. 47 BLAÐBURÐARFOLKOSKAST llpplýsingar í síma 35408 AUSTURBÆR Barónstíg. Laufásvegur 2—57, Bergstaðastræti, Bergþórugötu, Sjafnargötu, Freyjugata 28—49, Miðbær, Hraunteiq, Úthlíð, Háahlíð, Grænuhlíð, Grettisgata frá 2 — 35. Ingólfsstræti, Bragagata, Skaftahlíð, Skipholt I Laugaveg 34—80. VESTURBÆR Ásvallagata II Seltjarnarnes, Skólabraut Hávallagata, Vesturgata 2—45., Seltjarnarnes, Mið- braut. Sörlaskjól, Tómasarhaga, Nesveg frá 31 —82. ÚTHVERFI Sólheimar 1 . — Kambsvegur. Vatnsveituvegur, Snæland, Nökkvavogur. Heiðargerði, Laugarnesvegur frá 84—118. Laugarásvegur, Sæviðarsund, Háaleitisbraut 15—101, Efstasund. Kópavogur Blaðburðarfólk óskast við Hrauntungu og Digranes veg Upplýsingar i síma 40748. HAFNARFJÖRÐUR BLAÐBURÐARFÓLK ÓSKAST Blaðburðarfólk óskast í Hvaleyrarholt, (Börðin). Upplýsingar í síma 50374. GARÐUR Umboðsmaður óskast í Garði. — Uppl. hjá umboðsmanni, sími 71 64, og í síma 101 00. MOSFELLSSVEIT Umboðsmenn vantar í Teigahverfi og Markholtshverfi Upplýsingar á afgreiðslunni í sima 10100. GRINDAVÍK Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og inn- heimtu fyrir Morgunblaðið. Upplýsingar hjá umboðsmanni Onnu Bjarnadóttur og afgreiðslunni í sima 1 0100.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.