Morgunblaðið - 30.12.1973, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 30.12.1973, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1973 Kristilegt félag ungra manna 75 ára K. P. U. M. Húsið KFUM viö Amtmannssng, sem reist var 1907. ÁRTALIÐ er 1932. Klukkan tæp- lega hálf tvö á sunnudegi. Á stéttinni hjá VBK er 11 ára gam- all Vesturbæingur á heimleið. Það var uppselt I bíð, og hann veit naumast, hvað gera skal. En þarna kemur bekkjarbróðir hans, hann Siggi, niður Vesturgöt- una. Hann fregnar ástandið og segir strax: Komdu bara með í KFUM! Og þaðvarð. Fundur í yngstu deildinni. Æsi- spenandi framhaldssaga. — Siggi segir frá þessuaf nokkrum tilþrif- um á leiöinni gegnum miðbæinn. — Sveitarstjórinn í 8. sveit er kallaður Magggi. Hann er fínn. Það er verið að keppa um fallegan silfurskjöld. Strákarnir syngja mikið. Sá, sem spilar, heitir Laugi. Og svo náttúrlega séra Friðrik sjálfur — og það gætir lotningar í rödd Sigga, þegar hann nefnir nafn leiðtogans. Já, hann talar við okkur Guðs orð. Við hyllum líka fánann á hverjum fundi. Allt voru þetta nýjar frétt- ir fyrir bekkjarbróður Sigga. En allt kom saman og heim, þegar upp á Amtmannsstíg var komið, líka það, að séra Friðrik talaði betur um Guð en nokkur annar maður. Þegar út var gengið, stóð hann á stigapallinum og reiddi lófann til höggs. Hýrt bros í aug- um og „höggið“ var ljúft klapp á vangann. Þetta voru fyrstu kynni mín af KFUM. Frá þeim degi var ég KFUM-strákur. Eg hef alltaf gleymt að spyrja hann Sigurð Sig- urðsson hjá útvarpinu, hvort kynni hans sjálfs af KFUM hafi ekki byrjað eitthvað svipað. Trú- að gæti ég því. Fjölmargir Reyk- víkingar fyrr og síðar hafa sömu sögu að segja. Til skamms tíma voru þeir fáir, sem ólust upp í borginni án þess að mótast af KFUM með einhverjum hætti. Þetta félag hefur um áratugi ver- ið eitt áhrifamesta æskulýðsfélag landsins og lagt drjúgt af mörkum til heillaríkrar mótunar. Hiklaust má telja KFUM umfangsmesta æskulýðsstarf íslenzku kirkjunn- ar — og árangursríkast líka. Og nú er þetta siunga félag allt í einu orðið 75 ára. Afmælisdagur- inn er 2. janúar. Hvernig verður svona félag til? Upphaf og uppvöxtur KFUM hér á landi er eitt af ævintýrum kirkjusögunnar. Það ævintýri gerðist líka á öðrum stöðum og I ýmsum myndum. Sjálf hreyfing- in, sem er alþjóðleg, var slíkt ævintýri, allt frá fyrsta hópnum í Englandi, sem George Williams safnaði saman til biblíulestra fyr- ir miðja síðustu öld. En á Islandi er ævintýrið í órofatengslum við nafn séra Friðrik Friðrikssonar. Sjálfur skipar hann heiðurssess f íslenzkri kristnisögu. Þar er ljómi um nafn hans og minningu. Hann kynntistKFUMánámsár- um sínum í Kaupmannahöfn, rétt fyrir aldamótin síðustu. Starfið og félagsmarkmiðið gagntók hann. Háskólanám stóðst ekki þá sam- keppni. Hann varð um skeið einn ágætasti starfsmaður í unglinga- deild aðalfélagsins í Kaupmanna- höfn og mun helzt hafa haft hug á að hverfa ekki aftur til íslands frá þeim vinaflokki. I ársbyrjun 1897 barst séra Friðrik bréf að heiman. Bréfritar- inn var Þórhallur Bjarnason lekt- or og sfðar biskup. I stuttu máli sagt var stúdentinn beðinn að koma heim og stofna KFUM á íslandi. Hann gæti lokið námi í prestaskólanum og stundað kennslu lika til að lifa. . . Þetta varð Iangt og hart sálar- stríð. Hann vildi ekki fara. Seint og síðar meir lagði hann málið á vald Guðs vilja. Eftir það var hann aldrei í vafa. Og heim var haldið. Ef til vill ekki fagnandi, en með öruggri vissu um, að verið væri að gegna köllun. Annar réð ferðinni. Séra Friðrik steig á land í Reykjavík 27. ágúst 1897. Næstu vikurnar tók þessi þrftugi svart- skeggur unga menn tali á stræt- um og gatnamótum. Sumir töldu hann smáskrítinn. Hugsa sér, að hafa svona mikinn áhuga á kristindómi og halda, að ungling- ar tækju á því mark! Ráðnum huga fór hann sér hægt. En félagsstofnunin gerðist þó fyrr en hann hafði órað fyrir. I litlu húsi við Suðurgötu hélt stúdentinn drengjaskóla. Um þetta leyti settu prestaskólanem- ar á stofn sunnudagaskóla, einnig var starfandi kristilegt félag stúdenta. Séra Friðrik hóf biblíu- lestra með piltum úr Latínuskól- anum (MR) — en KFUM stofnaði hann ekki. Á útmánuðum 1898 voru um það bil 50 fermingardrengir í spurningartfma hjá séra Jóhanni Þorkelssyni. Verðandi prestur Friðrik Friðriksson fékk að vera viðstaddur. Honum var boðið að ávarpa piltana — og auðvitað sagði hann þeim frá fermingar- drengjafundi í unglingadeildinni f Kaupmannahöfn. En drengirnir vildu heyra meira um þetta. Þess vegna var þeim boðið f Suðurgöt- una. Þeir komu 45 talsins og fræddust um KFUM. „Kannski gefst ykkur síðan kostur á að vera með í slíku félagi," sagði séra Friðrik. En þeir sögðu: Getum við ekki bara byrjað strax. Og þeir byrjuðu. Þetta vor hét það ekki neitt, var aðeins fermingar- drengjafélag, sem hélt svo áfram að koma saman næsta haust. Þetta var að byrja á öfugum enda. KFUM hafði alls staðar byrjað með nokkrum eldri félögum — aðaldeild. Séra Friðrik vildi ekki gefa þessari byrjun félagsnafn. Og þó varð úr, að hann lét til skarar skríða. Á gamlársdag voru skrifuð fundarboðogborinútum kvöldið. Aðstoðarmaður leiðtog- ans við það verk var ungur skóla- piltur, Bjarni Jónsson frá Mýrar- holti. Hann átti eftir að setja svip á bæinn í nokkra áratugi. Það er önnur saga. En einhvers staðar hefur séra Bjarni sagt frá því, þegar hann var varaður við „vit- lausa stúdentinum frá Kaup- mannahöfn", en lét sér víst ekki segjast, sem betur fór. Þeir tveir áttu eftir að verða lengi samferða í þjónustu Guðsríkis hér í höfuð- borginni. Stofnfundur KFUM var haldinn 2. janúar 1899 KFUM var orðið veruleiki á Is- landi, þótt ekki vildi séra Friðrik gefa þvi nafn fyrr en ári síðar. Fyrst um sinn voru fundir haldn- ir í Framfarafélagshúsinu, en aðr- ir staðir voru líka notaðir. Einna bezt gafst það, þegar velviljaður áhrifamaður setti KFUM í tugt- húsið, því fundir voru haldnir um skeið í Borgarasalnum í því fræga steinhúsi við Skólavörðustíg. Eng- in stjórn var í félaginu framan af. Séra Friðrik hélt uppi einræði. Aðaldeild var stofnuð 1902 og það vor fékk það lög og stjórn, nánar tiltekið á 2. dag hvítasunnu, 19. maí. Þetta gerðist I sambandi við heimsókn Charles Fermand, sem var framkvæmdastjóri alþjóða- sambands KFUM. Sú heimsókn var til mikillar uppörvunar hinu unga félagi. Þetta sama vor flutt- ist starfið í eigið húsnæði. Við Lækjartorg stóð gamalt hús, nefnt Melsteðshús. Árið áður hafði séra Friðrik fest kaup á því og fékk það til fullra umráða 14. maí 1902. I Melsteðshúsi dafnaði félagið vel. Þá varð tízka að vera I KFUM. Séra Friðrik sá að mestu einn um starfið, en jafnframt var hann prestur við holdsveikraspítalann I Laugarnesi. En á þessum fyrstu árum bundu margir unglingar þá tryggð við félagið og málstað þess, sem entist ævilangt. Séra Friðrik segir frá honum Pétri, sem tók að sér húsvarðarstarf í Melsteðshúsi gegn fæði og frönskutilsögn, þvf að hann var atvinnulaus og fátækur. Á þrett- ándakvöld var fundur boðaður, en séra Friðrik i Hafnarfirði um daginn og bað Pétur nú að þvo gólf, kynda ofninn, kveikja ljós o.fl., svo að notalegt yrði á síðasta kvöldi jólanna. I Hafnarfirði fann séra Friðrik húslyklana í vasa sínum! Heldur mun hann því hafa hugsað þungt til kvöldsins á heim- leíðinni. En þegar þangað kom, var Melsteðshús uppljómað, hlýtt og hreint. Hvar fékk Pétúr lykil? Hann fékk hann alls ekki, heldur losaði hann rúðu úr glugga, bar þar inn vatn og eldivið, gekk því næst frá glerinu á nýjan leik. Húsið var tilbúið, en allt lokað og læst. Eina skýring Péturs á að- ferðinni var: þú sagðir, að ég ætti að gera þetta, og þá varð það að gerast. Þessí piltur var í áratugi þekktur heiðursmaður. Trú- mennskan brást ekki. Rosknir Reykvíkingar muna nafnið Pétur Þ.J. Gunnarsson. Gárungarnir lengdu það stundum í P.Þ.J. KFUM Gunnarsson, og segir það sína sögu, má raunar teljast heið- urstitill þess ágæta manns. En á þessum fyrstu árum KFUM munu sumir hafa látið í ljós efasemdir um það verkefni að ná venjulegum strákum undir merki kristindómsins. Séra Frið- rik var á annarri skoðun. Hann hafði á réttu að standa. ★ Veturinn 1907—’08 dvaldist séra Friðrik í Danmörku. Félagið hafði þá eignazt nýtt hús við Amt- mannsstíginn, en afturkippur var kominn í starfið, unglingadeildin var m.a. að lognast út af. Sumir voru teknir að fagna því, að KFUM væri dautt. Séra Friðrik hélt fund með trú- föstum hópi A-d-meðlima og brýndi fyrir þeim að vænta ekki viðgangs þar, fyrr en yngri með- limirnir bættust í hópinn. Og nú var yngsta deildin (G.d.) stofnuð með 16 drengjum, 10—14 ára. Næst fór fram stjórnarkjör undir einræði foringjans. Fyrst þakkaði séra Friðrik gömlu stjórninni vel unnin störf. (Hún hafði setið frá 1902) og tilkynnti, að ný yrði kjörin, stakk því næst upp á mönnum og bað alla að greiða þeim atkvæði með lófataki. Allir tóku þessum kosninga- fundi vel. En eftir þetta forðaðist séra Friðrik að grípa fram fyrir hendur aðalfundar og félags- stjórnar. Þess þurfti heldur ekki með. Þyngst var sú þrautin að endur- vekja unglingadeildina. Fundur var boðaður og allir 14—17 ára piltar velkomnir. Salurinn tilbú- inn með ræðustóli fyrir gafli, en söngbækur í hverju sæti. Stundvíslega kl. 8.30 gekk séra Friðrik upp í ræðustólinn. I klukkutíma stóð hann þar og tal- aði. Ekki var hann þó að tala um Guð við piltana, — þvf að enginn kom á fundinn. Nei, hann var að tala um drengina við Guð. Hið sama endurtók sig næstu þrjú miðvikudagskvöld. En fjórða kvöldið komu fjórir piltar. Þessir fjórir stofnuðu U.D. að nýju. Næst urðu þeir 8, þar næst 14, og um vorið voru meðlimir U.D. orðnir sjötiu. Á fundum var lítið um skemmtiefni í þá daga. Guðs orð var aðalatriðið. Það dró æskuna að. Næsta vetur gengu margir ungir menn inn í aðaldeildina. En hvað skyldi séra Friðrik annars hafa eytt miklu af starfs- degi sínum í fyrirbæn? Þetta litla dæmi frá árinu 1908 lýsir starfs- háttum æskulýðsleiðtogans vel. Hann bar æsku tslands fram fyrir Guð I bæn. Það starf bar ávöxt, sem enn er að margfaldast. Á þessum árum komst ýmislegt i starfsháttum KFUM í það horf, sem helzt enn í dag. Auk deilda- fundanna voru haldnar almennar samkomur á sunnudagskvöldum í félagi við KFUK. Samstarfsmenn urðu smátt og smátt fleiri. Segja má, að séra Friðrik hafi e'ftir þetta unnið markvisst að því að „gera sjálfan sig óþarfan“ í félagsstarfinu. Persónu- dýrkun féll honum sízt. Viturleg leiðsögn hans gerði það að verkum, að enginn tók eftir því, að hann dró sig hægt og hægt í hlé. Aðrir önnuð- ust störfin. Kristilegt félag ungra manna var ekki lengur háð sérá Friðrik Friðrikssyni, heldur orðið að samfélagi, sem lifði sjálf- stæðu lifi í islenzkri kristni. ★ Eg rek ekki samfellda sögu KFUM lengra. Læt nægja að bregða upp nokkrum myndum úr starfinu fyrr og síðar. Snemma lét félagið að sér kveða um ýmislegt í bæjarlífinu. Eitt sinn þekktust KFUM-drengir á því, að þeir tóku upp þann sið á undan öðrum að nema staðar og taka ofan, þegar þeir mættu lík- fylgd. Herferð gegn drykkjuskap En eitt fyrsta „baráttumálið" var herferð gegn drykkjuskap í Reykjavik. Einn framúrstefnu- maður í hótelrekstri kom sér upp vínbar. Og skyndilega þótti fint að fá sér einn á barnum. Enginn Félagsheimili KFUM og K við Holtaveg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.