Morgunblaðið - 06.02.1974, Síða 1
36 SIÐUR
30. tbl. 61. árg.
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRUAR 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Verður Biggs
ekki framseldur?
Myndin er tekin í Barnsley á Bretlandi, þegar atkvæðagreiðsla um allsherjar-
verkfall meðal námamanna stóð yfir.
Námumenn neita viðræðum
London 5. febr. AP.
□ FORMAÐUR Samtaka
brezkra námumanna,
Joseph Gormley, hafnaði í
dag beiðni frá ríkisstjórn
Edwards Heath um að
nýjar viðræður stjórnar-
innar og samtaka námu-
manna yrðu teknar upp, ef
vera kynni, að það gæti
komið f veg fyrir allsherj-
arverkfallið, sem mun
hefjast á miðnætti laugar-
dags. Munu þá um 280 þús-
und námumenn leggja
niður vinnu.
Gormley hitti i dag William
Whitelaw atvinnumálaráðherra
að máli, þar sem Whitelaw mun
hafa borið fram þessa beiðni og
segir AP fréttastofan, að ráðherr-
ann ætli að ítreka hana.
Gormley sagði, að aðeins eitt
gæti komið í veg fyrir að verk-
fallið skylli á, þ.e., að stjórnjn
gengi að kröfum námamanna, en
ekki er útlit fyrir það sem stend-
ur. Gormley sagðist sannfærður
um, að námumenn myndu standa
einhuga saman í verkfallinu, en
hins vegar myndu samtökin koma
upp verkfallsvörzlu við námurnar
og gæti hún verið allan sólar-
hringinn, ef þeim sýndist þörf
fyrir hana.
Stjórnmálafréttaritarar í Lon-
don eru á einu máli um, að rfkis-
Framhald á bls. 20.
London, Melbourne, 5. febr.,
AP.
SCOTLANI) Yard fór idag fram á
aðstoð brezku ríkisstjórnarinnar
við að fá framseldan brezka lest-
arræningjann Ronald Biggs, en
sendimenn Scotland Yards eru
nú á heimleið til London og tókst
þeim ekki að fá þessari kröfu
framgengt. Talsmaður Scotland
Yards sagöi, að utanrfkisráðu-
neytið hefði verið beðið að hafa
samband við rétta aðila i Brasiiiu
viðvíkjandi þessu máli. Brezkir
embættismenn sögðu síðan í dag,
að samningaviðræður um framsal
Biggs mundi að ölium líkindum
'fara fram í sendiráði Brasiliu í
London.
Eiginkona Ronald Biggs, Char-
main Brent, sem hefur búið í
Fellibylur
nálgast
Brisbane
Brisbane, Ástraliu, 5. febr.,
NTB.
MJÖG kröftugur fellibylur stefn-
ir nú með 160 km hraða ,á klukku-
stund f átt til Brisbane i Astralíu
og óttast menn, að frekari flóð og
hörmungar en þegar hafa orðið,
muni fylgja í kjölfarið.
Þetta er fellibylurinn „Pam',
sem er einn öflugasti hvirfilbylur
sem vart hefur orðið við-þessu
svæði.
Astralíu, sagði í dag, að
hún drægi í efa, að brasilísk
yfirvöld myndu sleppa
Biggs úr landi. Hún sagð-
ist enn bera hlýjan hug til
eiginmanns síns, og það hefði
ekki breytzt þótt hann hefði gefið
yfirlýsingar um það, éftir að hann
var handtekinn, að hann væri ást-
fanginn af brasilískri stúlku og
kysi ekkert fremur en fá að bua
áfram með henni í Biasilíu.
Landhelgis-
brjóturinn
frá USA
New York, 5. febr., AP.
BÚLGARSKI togarinn, sém
tekinn var í bandariskri land-
helgi fyrir nokkru, hefur nú
siglt á brott, eftir að skip-
stjórinn hafði verið dæmdur í
20 þúsund dollara sekt og eig-
andi togarans greiddi 105 þús-
und dollara i dómssátt. Skipið
hafði verið i aðalstöðvum land-
helgisgæzlunnar síðan 26. jan-
úar, að togarinn var tekinn
innan 12 mílna markanna út af
Little Neg Inlet, New Jersey.
Skipstjóri togarans sagði við
yfirheyrslur, að hann hefði
farið óvart inn fyrir mörkin.
Dómarinn kvaðst trúa fram-
burði hans, en unnt hefði verið
að dæma skipstjórann í 100
þús dollara sekt og árs fang-
elsi.
Mindszenty var sviptur kalli
Heikal:
Var
ríki
að verða
í ríkinu
Kairö 5. febr. AP.
□ MOHAMMED Heikal, rit-
stjóra egypzka blaðsins Al
Ahram, var látinn vfkja íir starfi
vegna þess, að Anwar Sadat for-
seti leit svo á, að blaðið væri að
verða „ríki i ríkinu“, höfðu heim-
ildir, sein taldar eru áreiðanleg-
ar, fyrir satt i dag. Þessar heim-
ildir sögðu, að oft hefði veriö tal-
ið, að Heikal birti skoðanir
Sadats, eins og hann gerði meðan
Nasser var við völd, en sú hefði
allsekki alltaf veriðraunin. Þessi
sami aðili taldi, að Heikal gæti
orðið ómetanlegur styrkur fyrir
Egyptalandsforseta, ef hann þægi
blaðafulltrúastarf það, sem hon-
um hefur verið boðið, vegna hinn-
ar miklu þekkingar, sein hann
byggi yfir og hinna ýmsu sam-
banda, scm hann hefði komið sér
upp i starfinu.
Haft er fyrir satt, að Heikal hafi
neitað blaðafulltrúastarfinu en
það hefur ekki fengizt formlega
staðfest. Sadat hefur skipað nýjan
ritstjóra A1 Ahram og sömuleiðis
er búizt við, að hann geri ein-
hverjar breytingar á ríkisstjórn
sinni innan tíðar, sennilega þegar
lokið er liðsflutningum og að-
skilnaði herja ísraels og Egypta-
lands.
Vatikaninu 5. febr. AP.
□ PALL páfi VI svipti i dag
Josef Mindszenty kardinála erki-
biskupsdæmi sinu i Esztergom í
Ungverjalandi, þrátt fyrir .and-
mæli hins aldurhnigna kardinála.
Mindszenty var í 30 ár f fang-
elsum, fyrst hjá nasistum og síð-
an kommúnistum og sfðar var
hann 15 ár i bandaríska sendiráð-
inu f Búdapest. Hann koin til
Rómaborgar fyrir þremur árum
og hefur búið þar sfðan.
Páll páfi lýsti dæmi hans laust
og sagði talsmaður páfa, að
Mindszenty hefði verið skrifað þó
nokkrum sinnum og reynt að
skýra sjónarmið páfa og áhyggjur
látnar i ljós vegna þess, að enginn
væri til að gegna erkibiskups-
dæmi hans og hefði ekki verið í
mörg ár. Hins vegar hefði Minds-
zenty ekki látið i ljós hug á þvf að
segja sjálfur af sér og þvi hefði
páfi orðið að taka þessa ákvörðun.
I bréfi, sem Páll páfi reit til
Mindszentys nú síðast 30. janúar,
vék hann að réttarhöldum, sem
sett voru yfir kardinálanum af
stjórn kommúnista. Sagðist hann
dást að hugrekki kardinálans og
þær þjáningar sem hann hefði
gengið f gegnum, væru á við að
bera þyrnikórónu.
Mindszenty er nú 81 árs að
aldri. Páfi skipaði Lekai nokkurn
biskup til að gegna hinu gamla
umdæmi Mindszentys til bráða-
birgða.
Fyrrverandi eiginkona Solzhenit-
syns gagnrýnir Gulag-eyjahafið
París 5. febr. NTB.
NATALYA Solzhenitsyn, fyrri
eiginkona Nóbelsverðlaunahaf-
ans Alexanders Solzhenitsyn,
sagði í dag í viðtali við Parísar
blaðið Le Figaro, að nýjast;
verk Solzhenitsyns, „Gulag-
eyjahafið" væri eins konar sam-
ansafn af frásögnum fólks og
ekki sögulegt verk. Hfin gaf
ennfremur í skyn, að verkið
væri að verulegu leyti byggt á
frásögnum og upplýsingum
fanga, og þær upplýsingar
hefðu alls ekki alltaf verið
áreiðanlegar og oft villandi.
Segir Natalya, að þessar frá-
sagnir séu meira og minna óná-
kvæmar, og verkið fjalli ekki
um sögu Sovétríkjanna og ekki
heldur um sögu fangabúðanna
á Stalfnstímanum, heldur séu
þetta eins konar þjóðsagnir,
sem hafi breiðzt út í þessum
búðum.
Hún gat þess, að fyrrverandi
eiginmaður hennar hefði byrj-
að á verkinu upp úr 1960, áður
en þau skildu. Sagða hún, að
rithöfundurinn hefði lýst bók-
inni sem tilraun i ritlist sinni.
Blaðið getur þess, að frúin sé
að skrifa endunninningar sínar
og sovézka ritskoðunarfyrir-
tækið Novosti hefur þegar lagt
blessun sína yfir, að sú bók fái
að koma út i Sovétrikjunum.