Morgunblaðið - 06.02.1974, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRUAR 1974
3
Þannig mun hinn nýi hjartabíll lita út.
Hjartabíllinn—
Fullkomnasta
sjúkrabifreið
landsins
vœntanleg eftir
3 mánuði
FYRIR allnokkru hóf Blaða-
mannafélag tslands söfnun til
kaupa á sérstökum „hjartabíl",
en þessari söfnun var hrundið
af stað til minningar um Hauk
Hauksson blaðam., og er tengd
nafni hans. Nú hefur bfll-
inn verið pantaður og er hann
væntanlegur til landsins í maf
n.k. Hjartabíllinn, sem verður
af gerðinni Mercedes Benz,
verður fullkomnasta sjúkrablf-
reið landsins.
Hjartabillinn var pantaður i
frá Noregi í samráði við Rauða
kross Islands og Sjúkraflutn-
ingadeild Reykjavíkurborgar.
Eftir talsverðar umræður og at-
huganir var ákveðið að festa
kaup á fullkominni Mercedes
Benz sjúkraflutningabifreið,
sem bezt er talin þjóna því hlut-
verki, sem „hjartabíl" er ætlað.
Bifreiðin er vel búin tækjum og
f henni er mjög góð aðstaða
fyrir lækni og sjúkraliða. Þá
kemur hún ekki aðeins að not-
um við flutninga á hjartveiku
fólki; hún getur komið að
miklu gagni við flutn-
inga á fólki, sem hefur
orðið fyrir alvarlegum slys-
um, til dæmis raflosti,
,,köfnun“ eða „drpkknun", og
við alla þá, er á skyndihjálp
þurfa að halda, þar sem hver
mínúta getur ráðið úrslitum um
líf eða dauða. í bifreiðinni verð-
ur hjartalínurit, sérstök súr-
efnistæki, og fleiri nauðsynleg
tæki. — Þetta verður fullkomn-
asta sjúkrabifreið, sem Islend-
ingar hafa eignazt og verður
hún afhent Rauða krossinum til
eignar og reksturs.
Rauði krossinn mun halda
námskeið fyrir þá menn, sem
sjá um rekstur bifreiðarinnar. í
þeim tilgangi koma til landsins
menn frá norska Rauða krossin-
um. Af^reiðslufrestur á bifreið-
inni er um þrír mánuðir og er
hún væntanleg til landsins í
maimánuði, eins og fyrr segir.
Nokkra fjárhæð skortir enn
til tækjakaupa, og væntir
Blaðamannafélagið þess, að
einhverjir verði til að leggja
þvi lið, svo búa megi bifreiðina
fullkomnustu tækjum, sem völ
er á. Framlögum má koma til
Arnar Jóhannssonar á Morgun-
blaðinu og Arna Gunnarssonar
á fréttastofu útvarps.
MJÖG mikil atvinna er nú á
Djúpavogi og til margra starfa
vantar tilfinnanlega fólk, sagði
Danssýning í
Háskólabíói
23. marz
Á AÐALFUNDI Danskennara-
sambands Islands, sem haldinn
var 3. janúar s.l., var ákveðið að
halda danssýningu í Háskólabíci
23. marz n.k. í tilefni 10 ára af-
mælis Danskennarasambandsins.
Á sýningunni koma fram nem-
endur og kennarar frá hinum
ýmsu dansskólum borgarinnar.
Þá hefur þess verið farið á leit við
íslenzka dansflokkinn að hann
komi frá á sýningunni og hefur
Alan Carter samið ballett, sem
mun verða frumsýndur á þessari
sýningu.
I skýrslu stjórnar fyrir’sl. ár
kom fram, að þrjár stúlkur, þær
Hulda Björnsdóttir, Klara Sigur-
geirsdóttir og Emelía Ölafsdóttir
luku danskennaraprófi á vegum
Danskennarasambandsins í fyrra
sem fullgildir danskennarar.
Stjórn D.S.Í. fyrir næsta kjör-
tímabil skipa: Unnur Arngrims-
dóttir formaður, Örn Guðmunds-
son, ritari, Iben Sonne, gjaldkeri,
og Guðbjörg Pálsdóttir og Edda
Pálsdóttir meðstjórnendur.
500 þús. kr.
á Siglufjörð
DREGIÐ var f 2. flokki happ-
drættis S.Í.B.S. í gær. Ut voru
dregnir 1100 vinningar að upp-
hæð kr. 6.385.000. Hæsti vinning-
urinn, kr. 500 þúsund, kom á
miða nr. 51618 (umboð Siglu-
fjörður), 200 þús. kr. vinningur
kom á miða nr. 3409 (umboð
Suðurgata 10) og 100 þús. kr.
vinningur kom á miða nr. 44803
(umboðSuðurgata 10).
Birt án ábyrgðar.
á sviði Þjóð-
Dansleikur
leikhússins
Nýtt leikrit eftir Odd Björns-
son verður frumsýnt á fjölum
Þjóðleikhússins sunnudaginn 10.
febrúar n.k. Ber leikritið nafnið
„Dansleikur“ og er í fimm þátt-
um, en leikstjóri er Sveinn
Einarsson þjóðleikhússtjóri.
Leikmyndir og búningateikning-
ar eru gerðar af Ivar Török, tón-
list er eftir Atla Heimi Sveinsson
en Alan Carter, ballettmeistari
Þjóðleikhússins hefur æft og
samið alla dansana ileiknum.
Leikurinn gerist allur á einum
heljarmiklum dansleik í páfa-
garði á endurreisnartimabilinu.
Hér er þó ekki um sögulegt verk
að ræða þótt ýmsar sögufrægar
persónur komi við sögu svo sem
Alexander páfi VI og börn hans.
Tónlistin er í stíl þessa tímabils,
söngvar og dansar settir inn í
verkið og svo að sjálfsögðu dans-
músík, sem gengur i gegn um allt
verkið.
Oddur Björnsson er sem kunn-
ugt er einn af þekktustu leikrita-
höfundum okkar og hafa átta leik-
rit eftir hann verið sýnd á leik-
sviði auk þess sem hann hefur
samið nokkra þætti fyrir útvarp
og sjónvarp. Eitthvað mun Oddur
hafa fjallað um sömu persónur er
koma fram í „Dansleik" áður i
einþáttungi en hið nýja verk er þó
á engan hátt samið upp úr honum.
Gaf Oddur það í skyn, að í hinu
nýja verki mætti merkja ádeilu á
græðgi I hvers konar mynd,
pólitiska græðgi, peningagræðgi
o.sJrv. enda var lífið í páfagarði
gegnsýrt af siðspillingu á þeim
tíma, sem verkið er látið gerast á.
Aðalhlutverkið, Alexander páfa
VI, er i höndum Róberts Arn-
finnssonar, synir hans Sesar og
Jóhann eru leiknir af Guðmundi
Magnússyni og Sigmundi Erni
Arngrfmssyni og Lúkrezíu dóttur
páfa leikur Helgi Jónsdóttir.
Salóme, huggun páfans, leikur
Sigriður Þorvaldsdóttir, Belju-
furstann Attendolo af Fernara
leikurBessi Bjarnason og furst
ana Mirandolo og Delesia leika
þeir Arni Tryggvason og Klemenz
Jónsson. Ungfrú Di Pesario er
leikin af Bryndísi Pétursdóttir,
Jón Gunnarsson fer með hlutverk
söngvarans og Randver Þorláks-
son leikur skáldið. Trúðarnir eru
leiknir af Þórhalli Sigurðssyni og
Margréti Brandsdóttur.
Þess skal getið, að mjög fáar
sýningar geta orðið á þessu verki
þar eð Róbert Arnfinnsson er á
förum til Þýzkalands í marz til að
leika i Fiðlaranum á þakinu. Er
þvi ástæða til að hvetja þá, sem á
annað borð ætla að bregða sér á
„Dansleikinn", að láta það ekki
dragast.
Dagbjartur Jónsson fréttaritari
Morgunblaðsins þegar við rædd-
um við hann í gær.
Hann sagði, að tveirbátarDjúp-
víkinga væru nú byrjaðir róðra.
Annar þeirra, Hafnarnes, er á
netum og hefur farið tvær veiði-
ferðir, í fyrri ferðinni fékk bátur-
inn 3,5 lestir, en i þeirri síðari 4,5
lestir. Hinn báturinn, Hólsnes, er
með troll og í fyrradag kom hann
með 9 lestir eftir tveggja daga
útiveru.
Byrjað er á nýju frystihúsi á
Djúpavogi og voru smiðir fengnir
að sunnan, þar sem svo mikil
vinna er hjá smiðum á staðnum.
Enn vantar tilfinnanlega verka-
menn til að vinna við bygginguna,
sagði Dagbjartur.
Á síðasta ári var byrjað á 8
nýjum einbýlishúsum á Djúpa-
vogi, og eru 6 þeirra fokheld. Þá
eru framkvæmdir að hefjast við
byggingu félagsheimilis, og er bú-
ið að ryðja fyrir grunni hússins.
Hafin er loðnufrysting á Djúpa-
vogi og hefur loðnan verið ágæt-
lega hæf til frystingar.
Gengið frá undirbúningi að „dansleikjahaidinu“ t.f.v. Ivar Török leikmyndahönnuður, Sveinn Einarsson
leikstjóri, Oddur Björnsson höfundur, Atli Heimir Sveinsson tónsláld og Alan Carter ballettmeistari.
Djúpivogur: - Fólk
vantar til starfa