Morgunblaðið - 06.02.1974, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRUAR 1974
Fa
IIII. 11.1.11. I \
AiA/tr
22-0*22-
RAUOARÁRSTÍG 31
BILALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
IHveríisgötu 18
SENDUM \£~\ 86060
I
ALFNAD ER VERK
ÞÁ HAFIÐ ER
0 SAMVINMU8ANKINN
SKODA EYÐIR MINNA.
Shooh
t£tCM
AUÐBREKKU 44-46.
SfMI 42600.
FERÐABILAR HF.
Bílaleiga. — Sími 81260.
Fimm manna Citroen G S. stat-
ion. Fimm manna Cit^oen G. S
8 — 22 manna Mercedes Benz
hópferðabílar (m bílstjórum).
Bókhaldsaöstoó
með tékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
AkureyN
Til sölu Land Rover diesel
1973 og Range Rover
árg. 1972.
Bílakaup,
Sími 92-21605
Innilega þakka ég ykkur
öllum, sem með heim-
sóknum, gjöfum og heilla-
skeytum, gjörðu mér átt-
ræðisafmælið ánægjulegt.
Gott var að finna hve
margir mundu éftir mér á
þessum tímamótum.
Kristján Guðmundsson
frá Hitarnesi..
Læknislist
heilbrigðisráðherra
Á sfðustu árum hafa orðið
örar framfarir I læknisfræði og
hefur það vakið vonir um, að
mörgum hættulegum sjúkdóm-
um, sem á mannkynið herja,
kunni að verða útrýmt.En ekki
eru þó alls staðar nýjar
kenningar og læknisaðferðir I
þeim greinum fagnaðarefni.
Þannig hafa Sovétmenn nú um
nokkurt skeið fylgt þeim
nýstárlegu kenningum, að
skoðanir, sem ekki eiga sam-
leið með lögboðnum skoðunum
þar í landi, séu merki um geð-
villu, sem lækna beri á geð-
sjúkrahúsum. Þessar nýjungar
í sovézkri læknisfræði hafa sem
betur fer ekki borizt til Vestur-
landa enn, en þó örlar á þeim í
málgagni íslenzka heilbrigðis-
ráðherrans, Þjóðviljanum. Þar
er hreinlega sagt, að Alþýðu-
bandalagið myndi aldrei líða
það, að einstakir flokksmenn
hefðu skoðun, sem f einhverju
sveigði frá flokkslfnunni á
hverjum tíma. Slfkir menn
yrðu þegar f stað reknir úr
flokknum. Allir geta f fram-
haldi af þessu reiknað út,
hvernig Alþýðubandalagið
myndi bregðast við óæskilegum
skoðunum, ef það væri eitt við
völd í landinu. Enda minnast
menn þess, að sérhver, sem
ekki fylgdi stefnu Lúðvíks
Jósepssonar f landhelgis-
málinu, var á sfnum tlma
stimplaður Iandráðamaður.
Sama hefur borið við nú, að
þeir, sem ekki eru sammála
Alþýðubandalaginu f varnar-
málum, eru „óþjóðlegir
svikarar". 1 Sovétríkjunum
heita menn hins vegar
„andsovézkir svikarar", og
sýnist enginn efnismunur á
þessu orðalagi.
Jafnvel Þórarni
blöskrar
Eins og allir vita, hefur
enginn ábyrgur framsóknar-
maður reynzt meiri tagl-
hnýtingur kommúnista á
stjórnartímabili vinstri stjórn-
arinnar en Þórarinn Þórarins-
son Tímaritstjóri. En nú er svo
komið, að jafnvel honum
blöskrar skoðanakúgunin i
Þjóðviljanum, og hafa Tfma-
menn þó nokkra reynslu f
slíku, m.a. í viðskiptum sfnum
við Möðruvellinga flokksins. t
leiðara Tímans í gær segir svo
um skoðanakúgunarviðhorf
Þjóðviljans:
„KREMLARÞRÖNGSÝNI
í forustugrein Þjóðviljans á
sunnudaginn var er ráðizt
harkalega á Framsóknarflokk-
inn fyrir þau ummæli Tfmans,
að innan flokksins rfki
skoðanafrelsi, og þvf geti menn
haft þar skoðanir á ýmsum sér-
málum, þótt þær falli ekki í
sama farveg og stefna flokksins
eða flokksstjórnarinnar. Þann-
ig hefur þetta t.d. jafnan verið i
varnarmálum. t flokknum hafa
verið menn, sem hafa verið
andvfgir aðild að Atlantshafs-
bandalaginu, þótt það hafi hins
vegar verið stefna flokksins, að
taka þátt f þvf, að óbreyttum
aðstæðum. Þar hafa einnig
verið menn, sem vilja hafa
herinn f ótiltekinn tíma, þótt
það hafi verið yfirlýst stefna
flokksins, að hann færi í áföng-
um. Það, sem hefur sameinað
menn um Framsóknarflokkinn,
er grundvallarstefna hans, þótt
ágreiningur hafi verið um ein-
stök mál.
Þetta telja Þjóðviljamenn
hina mestu ósvinnu, þeir lýsa
jafnframt beint og óbeint yfir
þvf, að enginn eigi heima f
Alþýðuhandalaginu, nema
hann fylgi flokknum f einu og
öllu.
Þetta er áreiðanlega hryggi-
leg yfirlýsing fyrir marga þá
menn, sem hafa verið að gera
sér vonir um, að Alþýðubanda-
lagið væri að breytast úr þröng-
sýnum kommúnistaflokki í við-
sýnan sósfaldemókratískan
flokk. Hér kemur nefniiega
fram sami einræðislegi
hugsunarhátturinn, sem er
að gera valdamenn Sovét-
rfkjanna að viðundri f
baráttu þeirra gegn Solsen-
itsyn. Þeir telja Solsenit-
syn óalandi og óferjandi, sök-
um þess að hann fylgir ekki
forskrift valdhafanna í stóru og
smáu. Samkvæmt áðurgreind-
um ummælum Þjóðviljans
mun hliðstæð refsing ná til sér-
hvers fylgismanns Alþýðu-
bandalagsins, sem dirfist að
vera ósammála flokks-
forustunni.
Alþýðubandalagið á bersýni-
lega enn langt f land, þangað til
það getur talizt viðsýnn
sósíalistaflokkur, er rúmi jafnt
kommúnista og sósíal-
demókrata. Þar situr enn að
völdum sama Kremlarþröng-
sýnin og sú, sem stjórnar of-
sóknum gegn Solsenitsyn í
Sovétríkjunum.“
on
Frá Bridgefélagi Kópavogs.
Þegar 20 umferðum er lokið i
barometerkeppninni er staða
efstu para þessi:
Haukur og Valdimar 279
Þorvaldur og Garðar 271
Ármann — Lárus 269
Ragnar—Sirrý 230
Guðmundur — Óli 176
Bjarni — Sævin 163
Gunnar — Björn 161
Guðjón — Ragnar 157
Sverrir — Hermann 138
Guðmundur — Sigurður 134
Arnar—Stefán 119
Helgi — Guðmundur 79
Kári—Grímur 53
Næst verður spilað á morgun,
fimmtudag.
X X X X X
Eftir 2 umferðír í Reykjavík-
urmótinu (sveitakeppninni) er
staða efstu sveita þessi:
Sveit:
Þdris Sigurðss. 65
Harðar Arnþórss. 62
Sigtryggs Sigurðss. 61
Gylfa Baldurss. 56
Hannesar Jónss. 51
Hjalta Elíass. 46
Guðmundar Péturss. 41
Gunngeirs Péturss. 32
Spilað er i Domus Mediea og
verður 5. og 6. umferðin spiluð
12. febrúar nk.
X X X X X
Lokið er að spila fjórar um-
ferðir í sveitakeppni Bridgefé-
lags Reykjavfkur og eru þessar
sveitir efstar:
Sv. Hjalta Elíass. 74
Sv. G uðmundar Péturss. 62
Sv. Braga Jónss. 57
Sv. Harðar Arnþórss. 53
Sv.Gylfa Baldurss. 50
Sv. Axels Magnúss. 45
Sv. Þóris Sigurðss. 44
Þess má geta að sveit Axels
hefur aðeins lokið þremur
leikjum, en leik hennar við
sveit Hannesar Jónssonar var
frestað.
Næsta umferð verður spiluð í
kvöld miðvikudagskvöld kl. 20 i
Domus Medica.
X X X X X
Urslit í sameiginlegri sveita-
keppni Bridgefélags Selfoss og
Bridgefélags Hveragerðis, sem
lauk 31. jan. 1974.
Sv. Sigfúsar Þórðars. 158
Sv. Kristmanns Guðmundss.118
Sv. Axels Magnúss. 114
Sv. Gunnars Þórðars. 106
Sv. SvavarsHaukss. 99
Sv. Þórðar Snæbjörnss. 83
Sv. SigmundarGuðmundss. 81
Sv. Friðriks Larsen 75
Sv. Líneyjar Kristinsd. 10
Sv. Gunnars Skúlas. 0
I sveit Sigfúsar spiluðu auk
hans, Vilhjálmur Pálsson,
Kristján Jónsson, Haraldur
Gestsson og Halldór Magnús-
son.
Tvímenningskeppni hefst
hjá Bridgefélagi Selfoss á
morgun, fimmtudaginn 7. febr-
úar. Spilaðar verða 3 umferðir.
Öllum sem spila bridge er
heimil þátttaka meðan húsrúm
leyfir. Þátttaka tilkynnist
stjórninni sem fyrst.
A.G.R.
Mega veiða 2500 1. í
Norðursjó til 15. júní
Sjávarútvegsráðuneytið setti í
janúar reglur, sem varða veiði
íslenzkra skipa: Takmörkun sfld-
veiða í Norðursjó, hann við loðnu-
veiðum við Norður- og Austur-
land og reglur um róðrartíma
fiskiháta. I frétt frá ráðuneytinu
ergetið um þessar reglur:
1. Auglýsingu, sem takmarkar
sildveiðar f Norðursjó og
Skagerak, á tímabilinu 1. febrúar
til 15. júní 1974 við 2500 smálest-
ir, sem heimilt er að veiða til
maneldis éða beitu. Veiðar á hinu
undanþegna magni eru háðar
leyfi sjávarútvegsráðuneytisins.
2. Reglugerð, sem bannar
loðnuveiðar fyrir Norður- og
Austurlandi á tímabilinu 1. marz
til 15. maí 1974, frá linu rétt-
vísindi norður frá Horni og að
linu réttvisandi suðaustur frá
Eystra-Horni, utan línu, sem
dregin er 12 sjómilur utan við
grunnlínu. Á timabilinu 15. maí
til 15. ágúst eru allar loðnuveiðar
bannaðar.
3. Reglugerð um róðrartíma
fiskibáta frá Faxaflóahöfnum,
Sandgerði og Grindavik. í henni
er landróðrabátum, sem róa með
línu, á tímabilinu 1. janúar til 31.
maí, gert óheimilt að fara í róður
frá klukkan 12,00 til þess tíma, er
tiltekinn er í reglugerðinni, og er
mismunandi eftir höfnum og
breytilegur eftir tímabiium. Enn
fremur er í reglugerðinni ákvæði
um ráspunkta og timamerki.
Þessi fallcga vetrarmynd varíekin við skíðahótel f Franconia í New
Hampshirefylki í Bandaríkjunum sl. viku en þar hefur verið gott
skfðafæri og mikil aðsókn þrátt fyrir rniklar frosthörkur, eirts og
grýlukertin sýna. • •