Morgunblaðið - 06.02.1974, Page 5
MORGUNBLÁÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRUAR 1974
Sjóræningjar
á kreiki
Dacca, 4. febr. NTB.
TÍMI sjóræningjanna er ekki Iið-
inn: um tvö þúsund farþegar urðu
fyrir þeirri sérstæðu lífsreynslu á
dögunum, að 200 sjóræningjar
réðust um borð í skip, sem þeir
voru farþegar á og stálu skart-
gripum og öðrum verðmætum
fyrir milljónir króna. Komu sjó-
ræningjarnir siglandi á fiskibát-
um og báru vopn. Allmargir far-
þegar hlupu fyrir borð þegar sjó-
ræningjarnir hófu skothrið til að
stöðva skipið.
Opið bréf til
forráðamanna
sjónvarpsins
Reykjavík 22/1 ’74.
Kæru forráðamenn.
Vér undirritaðir höfum upp á
síðkastið orðið varir við vaxandi
óánægju með íslenzka sjónvarpið.
Gagnrýnin á það virðist beinast
fyrst og fremst gegn: Afdönkuð-
um austantjaldsmyndum, brezk-
um og amerískum fyrirstrlðs
myndum, útvötnuðum, frönskum
ástarmyndum, lélegum erlendum
skemmtiþáttum, langsóttum og
leiðinlegum fræðsluþáttum,
finnskum og sænskum sálar-
flækjuleikritum, óendanlegum
brezkum framhaldsmyndaflokk-
um og síðast en ekki sízt einhæfu
efnisvali og litlu sem engu af að-
gengilegu skemmtiefni fyrir ungt
fólk. I stuttu máli, sjónvarpið er
sakað um að taka til sýningar
hvaða drasl, sem er, ef það fæst á
hagstæðum kjörum. Erlendar
sjónvarpsstöðvar gera sér far um
að henda því aumasta, sem þær
eiga, í íslendinga vitandi vits, að
allt er sýnt, sem til fellur.
Vér undirritaðir teljum, að
þessi gagnrýni sé fyllilega rétt-
mæt og erum henni innilega sam-
mála, hins vegar eru til fleiri hlið-
ar á þessu máli. Vér álftum, að
sjónvarpið hafi gífurleg áhrif og
tvímælalaust aðstöðu til þess að
verða tímaþjófur þjóðarinnar
númer eitt. En ef sjónvarpið
er fyrir neðan allar hellur,
þá hætta sæmilega viti
bornir menn að horfa á það
og snúa sér heldur að lestri
góðra bóka eða einhverju
álíka jákvæðu, jafnvel nytsömu.
Þegar húsbóndinn kemur
þreyttur heim á kvöldin og sezt
fyrir framan sjónvarpið, svona af
gömlum vana, þá á dagskrá sjón-
varpsins stærsta þáttinn I því, að
hann er sofnaður á stundinni og
vaknar hress og endurnærður í
vinnu næsta morgun.
Húsmæðurnar, sem alltaf hafa í
nógu að snúast, mega auðvitað
alls ekki vera að því að horfa á
sjónvarpið og þvf kæmi það þeim
allra verst ef eitthvað skemmti-
legt eða spennandi væri á dag-
skránni. Það liggur líka í augum
uppi, að ef þættir með frægum
pop- og rokkhljómsveitum væru
á dagskránni, þá myndu
unglingarnir hanga heima hjá
sér, foreldrum sínum og öðrum til
leiðinda, í stað þess að skemmta
sér úti í bæ við alls konar slark,
eins og nú er.
Svona mætti lengi telja, enda
augljóst, að þessi brunnur verður
varla tæmdur, en niðurstaðan
verður óhjákvæmilega sú, að þið
kæru forráðamenn eruð ekki að-
eins hugsandi og ábyrgir menn
heldur stendur allt þjóðfélagið f
þakkarskuld við ykkur.
Vér undirritaðir teljum, að ekki
aðeins beri að veita for-
ráðamönnum sjónvarpsins fálka-
orðuna heldur tryggja það með
lagasetningu, að ekki megi víkja
mönnum úr starfi sem þessu, þó
að óábyrgir menn telji þá ekki
standa sig.
Vér óskum yður síðan velfarn-
aðar.
Hilmar J. Hauksson.
Friðrik Björgvinsson.
Gunnar Mekkinósson.
Gunnar Albertsson.
Guðrún Kristjánsdóttir.
Htá?
'<l=?
Tls?
tls?
#
HELDUR ÁFRAM í DAG OG Á MORGUN
ENNÞÁ ER HÆGT M GERA ÓTRÚLEGA
HAGKVÆM VIÐSKIPTI
Takiö t.fl. eftir:
□ FÖT MEÐ VESTI ÚR 1.
FL. EFNUM Á AÐEINS
KR. 6.900 —
□ STAKIR JAKKAR ÚR
100% ULLARTWEED Á
AÐEINS KR. 3.300 —
□ SKYRTUR KR. 890,—
STAKAR TERYLENE &
ULLARBUXUR KR.
1.490.—
□ STUTTJAKKAR HERRA
MARGAR GERÐIR 50%
AFSL.
□ KVENKULDAJAKKAR.
v ■
i J*
Taklð t.fl. ettir:
' ' □ SÍÐIR KJÓLAR — SÍÐ
PILS MEÐ 50% AFSL.
F ■'fj, □ KÁPUR 100% ULL 50%
I ; AFSL.
f □ BOLIR FRÁ KR. 290.—
□ FERMINGARFÖT MEÐ
' * OG ÁN VESTIS Á
' 51 AÐEINS KR.4.900.—
DRENGJABUXUR.
DRENGJASKYRTUR.
VESTI — BINDI.
U=?
<§f
§f
§
<§f
<§f
<§f
<§>
<§f
<§>
<§f
<§f
ALLRA SÍDUSTU DAGARI
40°/o-60°/o AFSLÁTTUR
ÞETTA ER ÖRUGGLEGA ÚTSALAN
SEM SLÆR ÖLLUM ÖRRUM ÚTSÖLUM VIÐ
NÚ ER HVER SÍUASTURl
áfím. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
Ifi) KARNABÆR
lækjargotu 2 laugavegi 2úa laugavegi 66 1
§
______#
###############
§