Morgunblaðið - 06.02.1974, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1974
DAGBÓK
í dag er miðvikudagurinn 6. febrúar, sem er 37. dagur ársins 1974.
Árdegisflóð er kl. 05.51, síðdegisflóð kl. 18.15
Sólarupprás er kl. 09.56, sólarlag kl. 17.28.
En frá dögum Jóhannesar skfrara og allt til þessa verður himnarfki
fyrir ofbeldi, og ofbeldismenn taka það með valdi; því að allir
spámennirnir og lögmálið spáðu allt fram að Jóhannesi. Og ef þér
viljið veita því viðtöku, þá er hann sá Elía er koma á. Hver, sem eyru
hefir að heyra, hann heyrir. (Matteusarguðspjall 11. 12—15).
ARIMAO
HEILLA
Þann 30. desember gaf séra
Sæmundur F. Vigfdsson saman í
kapellu Sankti Jósepsspítala í
Hafnarfiði Guðrúnu U. Sigurðar-
dóttur og Donald W. Martyny.
Heimíli þeirra verður í Pitts-
burgh f Bandaríkjunum.
(Ljósmyndast. Kristjáns.)
Þann 5. janúar gaf séra Sváfnir
Sveinbjörnsson saman í hjóna-
band í Langholtskirkju Stefanfu
V. Sigurjónsdóttur hjúkrunar-
konu og Axel Eiríksson úrsmið.
Heimili þeirra er að Tangagötu 6,
ísafirði.
(Nýja myndastofan).
I KHOSSGÁTA ~| 1 BRiDBE~
Sjötugur er í dag, 6. febrúar,
Jóhann Skaptason sýslumaður á
Húsavík.
Lárétt: 1. spark 6. tóm 8. sérhlóð-
ar 10. titill 11. rispur 12. á fæti 13.
tónn 14. beita 16. raufinni.
Lóðrétt: 2. þverslá 3. veslingur 4.
2 eins 5. ávftur 7. fiskur 9. keyra
10. óðagot 14. spi 115. 2 eins.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1. vinna 6. nei 8. hinstur
11. efa 12. afi 13. ís 15. IM 16.
aur 18. látlaus.
Lóðrétt: 2. inna 3. nes 4. níta 5.
óheill 7. grimms 9. ÍFS 10. úfi 14.
gul 16. at 17. rá.
Þann 29. desember gaf séra
Jón M.Guðjónsson saman í hjóna-
band á Akranesi Gunnhildi Elías-
döttur og Kjartan Júliusson.
Heimili þeirra er í Árósum i Dan-
mörku.
(Ljósmyndast.Ólafs Árnasonar).
Mæðrafélagið heldur fund að
Hverfisgötu 21 fimmtudaginn 7.
febrúar, kl. 8.30 síðdegis.
Kvenfélagið Hringurinn heldur
fund að Ásvallagötu 1 í kvöld, kl.
20.30.
Kvenfélagið Hrönn heldur aðal-
fund að Bárugötu 11 í kvöld kl.
20.30. Þorramatur.
Kvenfélagið Hrund í Hafnar-
firði heldur aðalfund fimmtudag-
inn 7. febrúar, kl. 20.30.
Hér fer á eftir spil frá leiknum
milli Irlands og Finnlands í
Evrópumótinu 1973, en i því spila
írsku spilararnir 1 grand við bæði
borð og fengu báðir sagnhafanna
8 slagi.
Norður.
S. Á-10-7-6
H. K-G-5-4
T. 10-6
Vestur. L. D-6-3 Austur.
S. G-4-3 S. D-8-2
H. 9-8-7-6 H. Á-2
T. A-8-5 T. K-7-4-3
L. 10-7-4 L. Á-K-G-5
Suður.
S. K-9-5
H. D-10-3
T. D-G-9-2
L. 9-8-2
Við annað borðið sat írski spil-
arinn í austur og þar lét suður út
tígul drottningu. Sagnhafi átti
ekki í miklum vandræðum með að
vinna spilið, því að N-S létu út
spaða síðar í spilinu og þannig
fékk sagnhafi 4 slagi á lauf, 2 á
tígul, einn á hjarta og einn á
spaða.
Við hitt borðið var írski spilar-
inn, sem var suður, sagnhafi og
þar lét vestur út spaða 3, austur
lét drottninguna og sagnhafi drap
með kóngi. Næst var hjarta 10
látin út, austur drap með ási, lét
út tígul, vestur drap með ási, lét
aftur tígul, austur drap með kóngi
og þar með var spilið unnið, því
að sagnhafi fékk 3 slagi á spaða, 3
slagi á hjarta og 2 á tígul. 1 grand
unnið við bæði borð af írsku sveit-
inni, og fyrir það fékk sveitin 240
eða 6 stig.
Varið land
Undirskril'tasöfnun
gegn uppsögn varnar-
samningsins og brott-
vísun varnarliðsins.
Skrifstofan í Miðbæ
við Háaleitisbraut er
opin alla daga kl.
14—22. Sími 36031,
pósthólf 97.
Skrifstofan að
Strandgötu 11 í Hafn-
arfirði er opin alla
daga kl. 10—17, sími
518X8.
Skrifstofan í Kópa-
vogi er að Álfhólsvegi
9. Hún er opin milli kl.
2 og 7. Sími 40588.
Skrifstofan í Garða-
hreppi er í bókaverzl-
uninni Grímu og er op-
in á verzlunartíma.
Sími 42720.
Skrifstofan á Akur-
eyri er að Brekkugötu
4, en þar er opið alla
daga kl. 16—22.
Símar: 22317 og 11425.
Skrifstofan f Kefla-
vík er að Strandgötu
46, sími 2021.
%\GGA V/6GA & 'ÍILVERAN
m £« im
IKOSTutt
VI9 w...
.. VINA/Ai
\ L0dW~
m/ÍQSL-
JJNKII
ást er. .
6'"°
... þegar hann
sgngur fgrir
hana ngjasta
lagið „O Gunna
TM Recj. U S Pot Ofl. All rlghls reserved
1973 by Los Angeles Tlmes
Leiðrétting
í trúlofunarfrétt í blaðinu í gær
misritaðist nafn Jóhönnu Hlífar
Hilmarsdóttur, en unnusti henn-
ar er Ulf Aggebrandt.
SA NÆSTBESTI
Um helgina var sagt frá því hér í blaðinu, að Gísli
Sigurbjörnsson forstjóri Elliheimilisins Grundar
hefði fest kaup á lóð við Brávallagötu, þar sem hann
hyggst reisa viðbyggingu við húseign sína á horni
Blómvallagötu og Brávallagötu. Fyrirætlun Gísla
hefur orðið tilefni nokkurra deilna, eins og fram
kom í fréttinni, en hér sjást staðhættir á þessu
svæði.
(Ljósm. Ól. K. Mag.).