Morgunblaðið - 06.02.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐ VIKUDAGUR 6. FEBRUAR 1974
EFTIR ING VA HRAFN JÓNSSON
ÞAÐ var búsældarlegt hjá
Skúla Pálssyni á Laxalóni,
er við brugðum okkur i
heimsókn til hans á laugar-
daginn t glampandi sólkini.
Það var eins og manni
fyndist vorið liggja í loftinu
þrátt fyrir, að aðeins væru
tveir dagar liðnir af febrúar-
mánuði og enn talsvert
langt í það, að lax fari að
ganga í árnar.
Skúli var við störf á svæðinu
fyrir neðan eldishúsið, en þar
geymir hann í fjölda kerja laxa- og
silungsseiði, sem i sumar verður
sleppt í hinar ýmsu ár landsins, en
þau skipta liklega milljónum iaxa-
seiðin. sem Skúli hefur alið og selt
á sl. aldarfjórðungi. Það var árið
1951 að Skúli setti upp laxeldis-
„Hef alltaf
lagt áherzlu
á að ala
aðeins upp
beztu
stofnana”
Komió viÓ hjá Skúla á Laxalóni
Séð yfir útisvæðið á Laxalóni.Ljósm. Br. H.
stöðina á Laxalóni, sama árið og
hann fékk til landsins regnbogasil-
ungshrognin, sem styrr hefur
staðið um frá upphafi. Skúli var
ómyrkur i máli um samskipti sln
við íslenzk yfirvöld i þessu máli.
Hann gekk með okkur niður að
tjörnunum, þar sem hann geymir
gífurlegt magn af þessum fiski og
leikmaður, sem sér þessa fallegu
fiska, á næsta erfitt með að
ímynda sér, að i þeim leynist ein-
hverjir sjúkdómar, sem hindri það,
að hægt sé að selja hrognin til
útlanda eða fiskinn til manneldis,
en það er annnarra að dæma um
það.
Skúli segir okkur að hann þurfi
nú brátt að yfirgefa Laxalón þar eð
framkvæmdir sem fyrirhugaðar
eru, þrengi nú að stöðinni og hafi
hann keypt hluta af jörð austur í
Árnessýslu og þangað ætli hann
að flytja stöðina. Lagði Skúli á-
herzlu á. að samskipti sin við
Reykjavikurborg hefðu alltaf verið
með ágætum. Skúli segir okkur
lika. að nú fari að liða að þvi, að
hrognin verði tekin úr regnboga-
silungnum og segir. að fái hann
ekki leyfi til að flytja þau austur í
hina nýju stöð, verði allur stofninn
drepinn niður og það yrði mikill
harmleikur því að hér sé um að
ræða eina heilbrigða stofninn i
Evrópu og kaupendur um allan
heim vilji fá hrogn eða seiði.
Við spyrjum Skúla hvenærhann
hafi fyrst fengið áhuga á fiskeldi.
— Það var í kringum 1940, þá
byrjaði ég með tilraunir i kjallara
niðri á Klapparstig. Ég las fyrst um
þetta i dönsku blaði og fór þá að
hugsa um hvilikir gifurlegir mögu-
leikar væru á þessu sviði hér á
landi með allar okkar ár. Þá var
maður ungur og bjartsýnn og sið-
an hefur þetta þróazt smátt og
smátt. Ég hef allt lagt á það á-
herzlu að ala upp beztu stofnana
og undaneldisfiskinn fæ ég úr Lax-
á i Þing., Blöndu, Þverá og ánum
i Árnessýslu. Ég hef sjaldnast get-
að annað eftirspurn eftir seiðum
og nú þegar ég seldi 70 þúsund
seiði til Spánar á dögunum fékk
ég pantanir nokkrum dögum
seinna i 100 þúsund seiðum i
viðbót, en ég á þau bara ekki til.
Og það megið þið hafa eftir mér.
að árnar, sem ræktaðar hafa verið
upp með seiðum frá Laxalóni, hafa
ætíð verið með mestu veiðiám
landsins, eins og t.d. allar Borgar-
fjarðarárnar. Laxá i Þing.. svo að
eitthvað sé talið. Við spyrjum
Skúla hvað hann sé með mörg
laxaseiði i eldi núna, en hann seg-
ir, að það sé ekki gott að segja.
,,100 þúsund"? spyrjum við, en
Skúli segist verða hissa ef þau séu
ekki fleiri, en ekki komi i Ijós fyrr
en i sumar hversu mikið verði
eftir, þvi að alltaf sé um einhver
afföll að ræða. Það vekur athygli
okkar hve falleg og kröftugleg
seiðin eru og eðlið leynir sér ekki
þvi þau stökkva i sifellu upp i
vatnsbununa, sem rennur í kerin,
eins og þau eiga eftir að stökkva
fossana siðar meir. Áður en við
kveðjum, leiðir Skúli okkur að
stóru keri utan eldishússins og
sýnir okkur þar tveggja ára laxa,
sem hann er að gera tilraunir með.
Það var hreint ævintýralog sjón að
sjá svo unga laxa allt upp i hálft
kg. á þyngd. Skúli segir okkur. að
þetta sé i sambandi við eldi laxa i
sjó, hann sé að kanna hvort ekki
sé hægt að ala fiskinn það langt
með sérstakri fóðrun, að hann
þurfi ekki nema 1 ár í sjónum til
að ná markaðsstærð. Miðað við
þann árangursem við sáum þarna.
erum við ekki i vafa um, að þarna
er Laxalónsbóndinn með stór-
merka tilraun i gangi, sem gaman
verður að fygijast með.
7
BRONCO ÁRGERÐ 1 966 í góðu lagi til sölu. Upplýsingar í síma 22630 frá kl. 4—6 í dag BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði Staðgreiðsla. Nóatún 27. simi 2 5891
STÚLKA ÓSKAST STRAX til eldhússtarfa. Vaktavinna. Uppl. i sima 1 7758 Veitingahúsið Naust. ÍBÚÐ ÓSKAST í 2—3 mánuði. Há leiga. Fyrirf ramgreiðsla. Sími 25890
ÓSKA EFTIR AÐ KAUPA LÍNUÚTHALD Sími (96)21 853. FRÍMERKJASAFNARAR Sel íslenzk frimerki og FCD-útgáfur á lágu verði. Einnig erlend frímerki og heil söfn. Jón H. Magnússon pósthólf337, Reykjavík.
BÍLAVIÐGERÐIR. Tökum að okkur allar almennar viðgerðir BMaverkstæðið Bjarg, Bjargi við Sundlaugaveg Sími 38060. KEFLAVlK Vanan mann við bilamálun o.fl. vantar nú þegar. Bliasprautun Suðurnesja. Vatnenesvegi, Keflavík.
KEFLAVIK Til sölu nýlegt einbýlishús. 2 stofur, 4 svefnherb. Bilskúr í smiðum. Eigna- og verðbréfasalan, Hringbraur 90, simi 1 234 TIL SÖLU vegna flutnings nýleg hjónarúm með springdýnum Til sýnis milli kl 1 5—20 í dag, og á morgun að Barónsstíg 61 II . h.
GRINDAVÍ K Til sölu gott 5 herb. einbýlishús. Eigna og verbréfasalan, Hringbraut 90, sími 1 234 KEFLAVÍK Lítil ibúð eða herbergi með aðgangi að eldhúsi óskastá leigu Upplýsingar i síma 2924 eða 2556
TIL SÖLU sambyggð trésmiðavél, afréttari og þykktarhefill af ameriskri gerð Upplýsingar í sima 41227 KEFLAVÍK Laghentur maður óskast til starfa á trésmiðave rkstæði Trésmiðja Einars Gunnarssonar.
MIR HUHfl
fSSKÁPUR ÓSKAST uiflSKiPTin scm
Lítill isskápur óskast til kaups. Simi 38720. fí nUCLVSR 1 j\ ÍHorömitílöííinu
Fullkomið philíps verkstæói
Fagmenn sem hafa sérhæft sig í umsjá
og eftirliti með Philips-tækjum
sjá um altar viðgerðir.
Breytum sjónvarpstækjum fyrir Keflavík
heimilistæki sf
SÆTÚIMI 8. SÍM1:1 3869.
Hl Sérfræðingur
Staða sérfræðings í röntgengreiningu við Röntgendeild
Borgarspítalans er laus frá 1. apríl eða síðar eftir sam-
komulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavík-
ur.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf,
sendist Heilbrigðismálaráði Re.ykjavíkurborgar fyrir 7.
marz n .k
Frekari upplýsingar veitir yfirlæknirinn.
Reykjavík, 4. febrúar 1974.
Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar.
Næturvðrður
Óskum eftir að ráða næturvörð nú beqar.
Umsóknir ásamt meðmælum sendist okkur eða leggist
inn á Mbl. merkt: „31 97", fyrir 1 2. febrúar.
Heild h.f.
11 Sundaborg
Sími 38720.