Morgunblaðið - 06.02.1974, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRUAR 1974
Eigum við að taka
tillit til Norðmanna?
Styrmir
Gunnarsson:
Óumdeilanlegt er, að lífshags-
munum norsku þjóðarinnar er
stofnað í hættu, ef varnarstöðinni
í Keflavík verður lokað. I fyrri
greinum mínum tveimur hafa
verið færð að því bæði herfræði-
leg og pólitísk rök og hið sama
kom glögglega fram á ráðstefn-
unni, sem haldin var um síðustu
helgi um öryggismál tslands og
Noregs. Til upprifjunar er rétt að
endurtaka á hverju það byggist,
að Norðmenn eiga hér svo ríkra
hagsmuna að gæta:
□ Varnir Noregs byggjast á því,
að liðsstyrkur berist frá öðr-
um þjóðum, ef árás er gerð á
Noreg.
Q Þessi liðsstyrkur kemur fyrst
og fremst frá Kanada og
Bandaríkjunum.
□ Til þess að hann eigi greiðfæra
leið til Noregs yfir NAtlants-
hafið þurfa NATO-ríkin að
Varnir
Islands
og
Noregs
hafa yfirhöndina á hafsvæð-
inu milli Grænlands, Islands
og Noregs.
□ Til þess að tryggja að þessi
samgönguæð sé opin er m.a.
nauðsynlegt að halda uppi
víðtæku eftirliti frá tslandi,
sem ómögulegt er að inna af
hendi annars staðar frá.
□ Yrði varnarstöðinni i Keflavík
lokað og þetta eftirlit, sér-
staklega kafbátaeftirlit, lagt
niður, mundi þýðingarmikill
hluti N-Atlantshafsins vera
eftirlitslaus.
□ Og samgönguæðin milli
Noregs og Vesturheims ekki
lengur opin.
Þá stöndum við tslendingar
frammi fyrir þeirri spurningu,
hvort við eigum að taka eitthvert
tillit til lífshagsmuna Norð-
manna, þegar við tökum ákvarð-
anir um okkar varnarmál. Við
Þetta athyglisverða kort sýnir norðurhvel jarðar eins og
það lítur út, ef horft er beint ofan á Norðurpólinn. Kortið
er birt hér vegna þess, að það gefur afar glögga mynd af
hernaðarlegri þýðingu tslands. Á Kola-skaga, sem sérstak-
lega er merktur á kortinu, eru aðalbækistöðvar hins mikla
Norðurflota Sovétríkjanna, sem hefur það meginmarkmið
að rjúfa samgönguleiðina yfir Atlantshaf milli Bandaríkj-
anna og Evrópu. Til þess, að Norðurflotinn nái þessu
markmiði þurfa kafbátar hans og önnur skip að komast út í
Atlantshafið, en í miðju sundinu milli Grænlands og
Noregs liggur Island. Yfirráð yfir íslandi munu augsýni-
lega tryggja sovézka flotanum greiðfæra leið suður á
bóginn. Með sama hætti er ísland sem NATO-ríki hindrun
fyrir sovézka flotann. Þótt vegalengdir séu ekki merktar
inn á þetta kort kæmi það í ljós, ef siíkt væri gert, hvers
vegna ekki er hægt að annast eftirlitsflugið, sem fram fer
frá Keflavík, frá Skotlandi eða Noregi. Ástæðan er sú, að
bæði frá Skotlandi og Noregi eru vegalengdirnar meiri en
flugþoli flugvélanna nemur. Hins vegar ekki frá íslandi.