Morgunblaðið - 06.02.1974, Blaðsíða 15
MORGÚNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRUAR 1974
15
Steinblóm
! | Þorsteinn Þorsteinsson, söngv
ari, áður I Trix og Jeremfas.
í | Skúli Björnsson, gftarleikari,
áður í Jeremfas.
i | Olafur Kolbeinsson, trommu-
leikari, áður í Námfúsu
Fjólu.
| | Arni Möller, pfanóleikari, áð-
ur hér og þar.
j~~| Agúst Birgisson, bassaleikari,
áður í Námfúsu Fjólu.
Steinblóm hefur fyrir nokkru
fengið þrjú ný blöð í stað
þeirra, sem hurfu, Hrólfs,
Finnboga og Ólafs. Steinblóm er
því greinilega fjölær planta og
þeir Þorsteinn og Skúli hljóta að
teljast rót plöntunnar, samkvæmt
skilgreiningum grasafræðinnar.
Hljómsveitin kom fyrst fram í
Tónabæ fyrir rúmri viku, eftir
uppstokkunina, og gekk mjög vel,
að sögn liðsmanna hennar. „Við
fengum frábærar viðtökur og
dóma,“ sögðu þelr i viðtali við
SLAGSÍÐUNA. Hljómsveitin var
búin að æfa i um þrjár vikur, er
hún kom fram í Tónabæ, en liðs-
menn hennar telja hljómsveitina
eiga eftir að batna verulega með
meiri samæfingu.
Á hvaða tónlist hyggst Stein-
blóm leggja áherzlu? •
„Meiri frumsamda tónlist en áð-
ur en að öðru leyti fyrst og fremst
létt og skemmtilegt rokk, en þó
þróað (progressive).“
Þess má geta, að Árni Möller,
pianóleikari, á í pöntun hljóðfæri,
sem synthesizer nefnist, elektrón-
ískt galdratæki, og mun það án
efa setja sinn svip á tónlistina hjá
Steinblómi. Einnig - á fjárhag
Árna, þvi að tækið kostar um 200
þús. kr.!
Mánar
byrja
aflur
Það kom mörgum á óvart, er
liðsmenn hljómsveitarinnar
MÁNA ákváðu að stokka upp í
haust er leið. Mánar höfðu þá um
langt skeið verið ókrýndir kon-
ungar i popplífi Suðurlandsundir-
lendisins og gjörsamlega óvinn-
andi vegur fyrir aðrar hljómsveit-
ir að keppa við þá á þeim mark-
aði. En svo fór að halla undan
fæti, og sl. haust var svo komið, að
li ðsmö n n um h 1 jóm s vei t a ri n na r
þótti tími til kominn að stokka
upp. Sumir fóru, aðrir komu, og
meðan á þessum hræringum stóð,
og þar til nægileg samæfing var
fengin, kölluðu þeirsig Blóðberg.
En nú er dagur upprisunnar
runninn upp, Mánar byrja á fullu
n.k. laugardagskvöld f Selfoss-
bíói, á sinum heimaslóðum með
pomp og pragt, aðdáendum þeirra
að sjálfsögðu til mikillar gleði og
fagnaðar.
Af Slafle
MARGIR hafa haft
samband við Slagsíðuna
símleiðis og bréfleiðis til
þess að spyrjast fyrir um
væntanlegt hljómleika-
hald Slade, sem upphaf-
lega var gert ráð fvrir í
janúar. Því er til að
svara, að enn er ekki orð
ið Ijóst um tímasetningu
hljómleikanna. Ámundi
umbi er kominn heim frá
London þar sem hann
kannaði stöðuna, og er
alveg á hreinu, að Slade
hafa sjálfir mikinn
áhuga á að koma til ts-
lands fljótlega. Fvrir þá,
sem eru í spreng, lítur
dæmið út svona: Slade
eru núna í Bandarfkja-
ferð sinni en halda síðan
til Englands. Þar munu
þeir verða uppteknir við
gerð sjónvarpsþátta o.fl.
vegna útkomu nýrrar,
stórrar plötu, þangað til
þeir halda í ferð til
Ástralíu. Frá Ástralíu
koma þeir höfðingjar í
marz, og þá eiga þeir
tvær vikur óráðstafaðar.
Annaðhvort verður tíma
þeirra þá varið til gerðar
á nýrri tveggja laga
plötu, eða til íslandsferð-
ar (a.m.k. að hluta).
Verði hins vegar ekki af
íslandsferð í marz, eiga
þeir aftur lausan tíma í
júní. Svoddan er nú það.
Söngflokkurinn Tríöla
Birgir, Þóra, FriSþjófur, og Gunnar. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
ÍBUAR i Hafnarfirði hafa að
undanförnu veitt athygli tor-
kennilegum hljóðum, sem virðast
koma út úr öðru kvikmyndahúsi
bæjarins á hinum óliklegustu tím-
um. Þegar farið var að athuga
málið, kom í ljós, að hér voru á
ferðinni fjögur ungmenni, sem
æfðu af kappi söng og hljóðfæra-
slátt með það fyrir augum að
hasla sér völl í íslenzkum
skemmtanaiðnaði. Og þar sem
slíkt er alltaf forvitnilegt, ákvað
tíðindamaður Slagsiðunnar að
bregða sér á æfingu hjá hópnum
eitt 4<völdið i fyrri viku. SÖNG
FLOKKURINN TRÍÓLA nefna
þau sig og eftir stutt spjall yfir
kaffibolla kom í Ijós, að þau telja
sig hafa farið út í þetta vegna
meðfæddrar réttlætiskenndar og
mannúðarhugsjóna. Þau hefðu
nefnilega komizt að þvi, að allir
gömlu söngflokkarnir væru hætt-
ir og þar sem islenzkri menningu
stafaði mikil hætta af skorti á
skemmtikröftum af þessu tagi
hefðu þau ákveðið að fórna sér
fyrir þjóðina. Lögin eru flest
frumsamin og textar ýmist eftir
þau sjálf, Örn Arnarson eða
kunningja og vini.
Efnisvalið er blandað og flétt-
ast þar saman gaman og alvara,
alvarlegar hugleiðingar um
vandamál mannkynsins og
gamanvísum með tilheyrandi
bröndurum. Söngflokkurinn
Tríóla leggur á það áherzlu að
hafa á efnisskrá sinni eitthvað
fyrir alla, og eftir að hafa hlýtt á
þau um stund gat tiðindamaður
siðunnar ekki heyrt betur en það
hefði tekizt bærilega og að það,
sem þar kom fram, lofaði góðu.
Þóra Lovfsa Friðteifsdóttir er
nú þegar orðin vel þekkt leik-
kona. Hún var ein af aðalhvata-
mönnum þess, að Leikfélag
Hafnarfjarðar var endurreist og
leikur nú i barnaleikriti i Firðin-
um og í Klúfckustrengjum Jökuls
Jakobssonar í Þjóðleikhúsinu.
Markmið hennar um þessar
mundir er að geta lifað af leiklist
og söng, en hún stundar söngnám
í tónlistarskóla Kópavogs.
Birgir Grfmur Jónasson er
sennilega eini Islendingurinn,
sem stundað hefur nám við
amerískan menntaskóla á Spáni,
en þar bjó hann i þrjú ár. Hann
leikur á gítar, banjó og munn-
hörpu og er einn afkastamesti
lagasmiður hópsins. Birgir hefur
komið fram með frumsamin lög á
þjóðlagakvöldum í Tónabæ svo og
í skólanum á Spáni, en texta við
lög sín semur hann flesta sjálfur.
Gunnar Friðþjófsson leikur á
gítar og hefur samið lög i þrjú ár.
Hann er ekki með öllu ókunnugur
I bransanum, þvi að hann hefur
sungið dúett með kunningja sin-
um um nokkurt skeið, og komu
þeir m.a. fram i Kvöldstundinni í
sjónvarpinu i fyrra. Örn
Arnarson á mikil ítök i Gunnari,
enda semur hann mörg laga sinna
við ljóð hans. Gunnar er í 2. bekk
menntadeildar Flensborgar-
skólans.
Friðþjófur Helgason leikur á
kontrabassa og starfar sem ljós-
myndari við Alþýðublaðið. Þetta
er frumraun hans i þessari gerð
tónlistar, en áður hefur hann leik-
ið á bassa og gitar með bítlahljóm-
sveitum uppi áSkaga.