Morgunblaðið - 06.02.1974, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRUAR 1974
— Oskert vísitala
Framhald af bls. 36
starfshópa. Um innihald samn-
inganna er það að segja, að þeir
skila nokkuð misjafnlega til
starfshópanna, en þó sýnu mest
til þeirra er lægst voru launaðir.
Það hlýtur alltaf að vera mats-
atriði þegar staðið er í samninga-
gerð hvenær komið er að lokum
samningsgerðarinnar, það var
mat samninganefndar verkalýðs-
félaganna nú, að hver krafa hafi
verið þrautreynd og að ekki hafi,
verið unnt að ná lengra, án þess |
að til alvarlegra aðgerða drægi.
Eftir atvikum hlýtur þessi samn-
ingur að teljast hagstæður samn-
ingur, þegar á heildina er litið.
Hafa skal það í huga þegar þessi
samningur er metinn, að í kröfum
A.S.Í., er farað fram á 35.000,- kr.
lágmarkslaun, en lægsta útborgað
kaup hjá ISAL verður yfir
40.000,- kr. Samningarnir voru
undirritaðir með venjulegum
fyrirvara um samþykki félags-
funda.“
Helztu atriði samninganna
nýju, sem nú fengust fram, eru:
1. Dagvinna er felld niður á
föstudögum.
2. Tryggð er 8 klukkustunda
lágmarkshvíld á sólarhring.
3. Yfirvinna er takmörkuð
þannig, að ekki má vinna meir en
24 klukkustundir I yfirvinnu á
viku eða 36 kl ukkustundir á
tveimur vikum. Undantekning er
við súrálslöndun og ef sérstakar
aðstæður eru fyrir hendi.
4. Vaktaálag hækkar og verður
36,2% á þrískiptum vöktum.
5. Greiðsla fyrir fasta eftir-
vinnu eykst um 15 mínútur.
6. Vinnutimi starfsmanna á
vöktum, sem ganga alla daga árs-
ins, styttist um 40 mínútur á viku
og lengjast frí sem því nemur.
7. A samningstímabflinu, sem
er 2 ár, hækka.laun samtals um
22,22% þannig að frá 1. janúar
1974 hækka laun um 13%, 1.
september 1974 hækka þáverandi
Iaun um 4% og 1. april 1975 aftur
umönnur4%.
8. Tryggt er óbreytt hlutfall
milli launaflokka þó samið verði
um breytingar á vísitölu.
9. Verði breytingar á almennum
samningum verkalýðsfélaganna
umfram þær hækkanir, sem sam-
ið verður um í yfirstandandí
samningum A.S.Í. og V.ST. skal
samið um hliðstæðar breytingar
sérstaklega.
10. Næturvaktarmönnum á
súrálsvakt er tryggð 3ja klukku-
stunda greiðsla í næturvinnu, ef
súrálsvöktum er slitið með minna
en 12 klukkustunda fyrirvara.
11. Ef unnið er á jóladag, nýárs-
dag, páskadag og aðfangadag jóla
frá kl. 18, ergreitt 120% álag.
12. Lausráðnir starfsmenn, sem
unnið hafa 600 klukkustundir eða
meir, njóta nú sömu réttinda og
fastráðnir starfsmenn i veikinda-
og slysatilfellum.
13. Endurgreiðsla orlofskostn-
aðar hækkar úr kr. 6.000.- í kr.
9.000- fvrir næsta orlofstímabil
og umreiknast síðan í samræmi
við kaupbreytingar af völdum
vísitölu
14. Breytt er ákvæðum varð-
andi greiðslur í veikindatilfellum
þannig, að eftir:
Eitt starfsár greiðast allt að 84
almanaksdagar
5 starfsár greiðast allt að 120
almanaksdagar
10 starfsár greiðast allt að 180
almanaksdagar
Þetta sé geitt á hverjum 12
mánuðum.
15. 1 slysa- og atvinnusjúkdóms-
tilfellum greiðast nú fyrstu 2
mánuðir á fullum launum og
næstu 10 mánuði 80% af launum.
Þessar tölur voru áður 2 mánuðir
á fullum launum og 6 mánuðir á
80% Iaunum.
16. Kona, sem unnið hefur hjá
ÍSAL í eitt ár, heldur launum í 6
vikur, er hún er fjarverandi
vegna barnsburðar.
17. Starfsmenn hafa rétt til
aukalæknisskoðunar.
18. Tryggð er 6 mánaða óbreytt
greiðsla vegna tilfærslu í starfi,
sem rekja má til vinnuaðstæðna.
19. Slysatrygging er miðuð við
framfærslu, og við 100% örorku
hækkar tryggingin úr 1.250.000,-
krónum i 1.625.000.-krónur.
20. ÍSAL getur tilkvnnt
rekstrarstöðvun vegna hráefnis-
skorts með VA mánaðar fyrirvara
og gilda þá ekki uppsagnar-
ákvæði. Standi rekstrarstöðvun
skemmri tíma en 12 mánuði, er
ÍSAL skylt að endurráða alla þá
starfsmenn, sem þess óska, og
halda þeir þá öllum áunnum rétt-
indum.
21. Fyrsti mánudagur í ágúst
verður frídagur án frádráttar á
launum.
22. Aðaltrúnaðarmaður fær 'A
dag til viðbötar til að sinna
trúnaðarstörfum og hefur hann
nú lHdagí hverri viku tilslíks.
23. 85 starfsmenn hækka um
einn launaflokk, þannig að eng-
inn verður I 1. launaflokki.
24. Sérstök hækkun kemur á
laun iðnnema.
25. Kaupaukar hækka og greið-
ast í fleiri tilfellum.
26. Ef starfsmenn veikjast í or-
lofi og geta af þeim sökum ekki
notið orlofs fá þeir viðbótarorlof
jafnlangt og veikindum nemur.
Skilyrði er, að slik veikindi séu
strax 1 upphafi tilkynnt tilstarfs-
mannadeildar.
Hjá ÍSAL vinna nú um 500
starfsmenn, en stærsti viðsemj-
andinn er Verkamannafélagið
Hlíf I Hafnarfirði, en það semur
fyrir tæplega 300 manns.
- Veruleg
vanefnd
Framhald af bls. 2
eins og annars staðar á landrnu.
Vafalaust yrði þarna að vera um
að ræða sérþjálfaða löggæzlu-
menn hliðstætt við landhelgis-
gæzluna, en löggæzlan yrði i einu
og öllu að vera undir íslenzkri
stjórn og löggæzlumennirnir
íslenzkir.“
Rekstur ratarstöðva
Ráðherrann er spurður um
Andvígir fataskipta-
lausn Einars
31. jan. sl. gekkst þjóðmálasvið
Menntaskólans við Tjörnina fyrir
almennum fundi nemenda um
herstöðvarmálið. I lok hans var
samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða eftirfarandi
ályktun:
„Fundurinn krefst þess, að her
inn hverfi af landi brott og Island
verði sagt úr NATO. Auk þess
lýsir fundurinn sig andvígan öll-
um gervilausnum á hernáminu,
svo sem fataskiptalausn Einars
Ágústssonar
hvaða „vissar kvaðir“ átt sé við í
samþykkt miðstjórnar komm-
únista um varnarmálin, og hann
segir: „Þær kvaðir, sem á okkur
hvíla gagnvart NATO, eru tak-
markaðar af fyrirvörunum frá
1949, sem kveða svo á, að hér
skuli hvorki vera erlendur her né
herstöðvar á friðartímum. Hitt
kann svo að vera álitamál, hverjar
skuldbindingar við verðum á okk-
ur að taka meðan við erum í þess-
um hernaðarsamtökum. Eg tel, að
í því sambandi gæti ísland t.d.
tekið að sér rekstur ratsjárstöðv-
anna á Suðurnesjum og I Horna-
firði eins og við höfum þegar gert
varðandi slíkar stöðvar 1 Vík í
Mýrdal og á Gufuskálum á
Snæfellsnesi. Varla verður undan
því komizt að fallast á, að ein-
hverjar flugvélar NATO hafi
lendingarleyfi á Keflavíkurflug-
velli I viðlögum, en þó þannig, að
ekki verði um neina fasta bæki-
stöð að ræða. i sambandi við slík-
ar lendingar kynni að verða óhjá-
kvæmilegt að heimila þar ein-
hverjar varahlutageymslur og
veita mjög fámennum hópi flug-
vélavirkja og slikra tæknimanna
vinnuaðstöðu, þar sem búnaður
þessara flugvéla er með þeim
hætti, að sérhæfða ménn þarf til
að þjónusta þær.“
Næst samkomulag?
Um það, hvort samkomulag tak-
ist í ríkisstjórninni segir Magnús
Kjartansson: , JN áist ekki sam-
komulag um það (þ.e. brottför
varnarliðsins) getur það ekki
stafað af neinu öðru en þvi, að
einhverjir aðrir aðilar í samstarf-
inu vilja ekki standa við þetta
sameiginlega fyrirheit eða telja
sig ekki geta það. Af okkar hálfu
hefur því margsinnis verið lýst
yfir, að framkvæmd þessa fyrir-
heits sé forsenda þess að stjórn
arsamstarfið geti haldið áfram
og sú afstaða hefur i engu
breytzt. Framkvæmd á fyrirheiti
stjórnarsáttmálans þýðir að sjálf-
sögðu það, að herstöðin verði Iögð
niður í raun en ekki, að þeim
störfum, sem þar fara nú fram,
verði haldið þar áfram með einum
eða öðrum hætti af öðru vísi
klæddum mönnum.“
„Tilefnislausar áhyggjur“
Ráðherrann er spurður, hvort
áhyggjur herstöðvarandstæðinga
Kútmagakvöld á Akranesi
Akranesi, 4. febrúar.
KIWANISKLUBBURINN Þyrill
gengst fyrir árlegri herraskemmt-
un — kútmagakvöldi — á Hótel
Akranesi, föstudaginn 8. febrúar
n.k. Að vanda verður á borðum
sjávarfang og ýmislegt annað gert
herrunum til hæfis.
Kiwanismenn hafa ákveðið að
<
Frá kútmagakvöldi á Akranesi.
verja öllum ágóða af þessu kút-
magakvöldi til „kútter Sigur-
fara“, sem þeir gangast fyrir að
kaupa frá Færeyjum. Verður
hann sóttur þangað á komandi
sumri og ætlunin er að varðveita
skipið tilminja um skútuöldina.
Þar sem takmarkaður fjöldi
kemst að, en aðsókn hefur jafnan
verið mjög mikil, er mönnum
bent á að tryggja sér miða í tíma,
en þá má fá hjá öllum félögum í
Kiwanisklúbbnum.
Júlfus.
176 íbúðir í smíðum í
Keflavik um áramótin
Keflavík 4. febrúar. upphæð um 16.5 millj. kr. og eru
ÞAÐ eru víðar byggð hús en á
Stór-Reykjavíkursvæðinu, þetta
gerist einnig á útkjálkum eins og
Keflavík. A síðasta ári voru þar
fullgerðar 115 íbúðir af hinum
ýmsu gerðum einbýlis-, tvíbýlis-,
og fjölbýlishúsum, — sem eru
samtals að flatarmáli 21.500 fer-
metrar eða 67 þúsund tenings-
metrar.
1 smíðum um áramót voru
176 ibúðir á móti 87 ibúðum
um næstu áramót á undan. Þá
hefur nokkuð verið' byggt af
timburhúsum eða alls 56, en
’ það eru Viðlagasjóðshús
Vestmannaeyinga. Þá hefur
á árinu verið byggt skóla-,
verzlunar-, skrifstofu-, og iðnaðar-
húsnæði, svo og bílskúrar og
geymslur að flatarmáli um 21.500
fermetrar.
Meðalstærð á einbýlishúsum
var um 135 fermetrar, en í sam-
býlishúsum um 65 fermetrar. Af
öllu þessu voru greidd til hins
opinbera ýmiss konar gjöld að
af undanhaldi Alþýðubandalags-
ins séu réttmætar og hann segir:
„Ég tel slíkar áhyggjur vera al-
gjörlega tilefnislausar. Alþýðu-
bandalagið hefur ævinlega talið
baráttuna fyrir brottför hersins
meginatriði í stefnu sinni og svo
er enn.“ Þá er ráðherrann spurð-
ur, hvað gerast muni, ef tillaga
um uppsögn varnarsamningsins
nær ekki fram að ganga á Alþingi,
og hann svarar: „Fari svo ólíklega
mót von minni, að slík tillaga um
uppsögn samningsins frá 1951 nái
ekki fram að ganga á Alþingi, þá
lítur Alþýðubandalagið svo á, að
ríkisstjórninni beri að rjúfa þing
þegar í stað og efna til nýrra
kosning.“
— Kremlar-
þröngsýnin
Framhald af bls. 36
sósíalistaflokkur, er rúmi jafnt
kommúnista og sósíaldemókrata.
Þar situr enn að völdum sama
Kremlar-þröngsýnin og sú, sem
stjórnar ofsóknum gegn Solzhen-
itsyn í Sovétrfkjunum."
— Yarið land
Framhald af bls. 2
öllu óvfst, að samband yrði haft
við fólk að fyrra bragði, og væri
t.d. ekki um skipulagða göngu í
hús að ræða. Er fólk því hvatt til
að gera sjálft ráðstafanir og hafa
samband við skrifstofur samtak-
anna vilji það skrá nöfn sfn á
listann.
Undirskriftasöfnuninni lýkur
20. febrúar, og sagði talsmaður
Varins lands, að mjög mikilvægt
væri, að listar bærust skrifstofun-
um sem allra fyrst, en þeir, sem
safna vilja fleiri listum, geta
jafnframt tekið nýja lista. Einnig
væru fjárframlög vel þegin, og
væri hentugast, að þau bærust
skrifstofunni í Miðbæ við Háa-
leitisbraut. Utgjöld vegna undir-
skriftasöfnunar sem þessarar eru
margvísleg eins og gefur að
skilja, enda þótt sjálfboðaliðar
hafi unnið drjúgt starf og vel
metið.
Skrá yfir skrifstofur og sfma-
númer Varins lands er f Dagbók á
bls»6 hér í blaðinu.
gatnagerðargjöld stærsti liðurinn.
Eins og að ofan segir, stækkar
Keflavíkurbær ört, enda er þetta
góður staður. Sjávarútvegurinn
er undirstaðan, en ýmislegt annað
hjálpar til.Verzlunin er að mestu
hér i bænum og margt, sem er til
hagkvæmni og yndisauka, stuðlar
að því, að allir verði ánægðir í
sinni Keflavík. — hsj.
Bréfsprengja
Lima, Perú, 5. febr., AP.
SPRENGJA, sem var send í
bréfi frá Mexico til kúbanska
sendiráðsins í Lima, sprakk i dag,
er viðtakandi var að opna bréfið
og slasaðist starfsmaðurinn
nokkuð, en þó ekki alvarlega.
Þetta er fyrsta bréfsprengjan,
sem vitað er til að hafi verið send
til Perú.
— Víkingur-Þór
Framhald af bls. 34
Magnússon, Vikingi, skaut yfir á
11. mínútu og Sigtryggur Guð-
laugsson gerði ógilt á 12. mínútu.
Dómarar: Leikinn dæmdu
Magnús V. Pétursson og Valur
Benediktsson og höfðu þeir engin
tök á leiknum, auk þess sem
margir dómar þeirra orkuðu tvi-
mælis — svo ekki sé meira sagt.
há há.
— Námamenn
Framhald af bls. 1
stjórn Heaths eigi nú engra kosta
völ. Þar sem hún sjái sér ekki
fært að ganga að kröfum náma-
manna, sem njóti mikillar
samúðar almennings, þá hljóti
hún að efna til nýrra kosninga og
þaðmjög bráðlega.
— Góð þátttaka
Framhald af bls. 35
sýndu upp til hópa ágætan bar-
áttuhug og sýndist mönnum að
þangað mætti leita að efnivið í
unglingalandsliðið. Vissulega
skortir þá enn kunnáttu, en úr því
bæta þeir með þvi að sækja vel
æfingar, einnig ber að athuga
möguleika á því, að þeir fái til-
sögn hjá landsliðsþjálfaranum
Michal Vachun, við og við.
Sigurvegarar í þyngsta flokki
unglinga eru synir júdómeistara
Islands, Svavars Carlsens. Þeir
höfðu nokkra yfirburði i kunn-
áttu og eru einnig harðir af sér og
sókndjarfir. Aðrir, sem vöktu sér-
staka athygli voru t.d. Pétur Páls-
son, UMFG, Þorgeir Sigurðsson,
Gerplu, Bjarni Bjarnason, UMFK
og reyndar ýmsir fleiri, sem
sýndu ágæta hæfileika.
Meðal nýliða í flokki fullorð-
inna voru það einkum tveir, sem
vöktu sérstaka athygli, en það
voru þeir Halldór Guðnason, sem
er óvenjulega efnilegur júdómað-
ur og Örn Ömar Ulfarsson, sem er
mjög kröftugur og skæður
keppnismaður.
I heild fór mótið vel fram og
ánægjulegt að sjá svo mikla þátt-
töku, Það lofar góðu um framtið
júdó hérlendis og þátttöku i mót-
um erlendis.