Morgunblaðið - 06.02.1974, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRUAR 1974
34
I IHllimilil fTll! MORGmVBLAÐSIMS
NAUMUR SIGUR
ÁRMANNSSTÚLKNA
MINNSTU munaði, að mjög
óvænl úrslit yrðu í leik Þórs og
Ármanns í 1. deild kvenna f
íþróttaskemmunni á Akureyri í
f.vrrakvöld. Eftir mikinn barning
tókst Ármannsstúlkunum að
komast vfir á lokamínútunum og
sigra 10:9.
Mikil taugaspenna var ríkjandi
hjá flestum leikmanna í upphafi
leiksins. Eftir 12 mínútna leik var
staðan jöfn, 2:2, en þá skoraði
Guðrún Sigurþórsdóttír 4 mörk í
röð fyrir Ármann. Fyrir hlé hafði
Þor minnkað muninn niður í tvö
mörk, 4:6.
Hafði sóknarleikur beggja líða
verið skipulagslítíll og litt ógn-
andi í fyrri hálfleiknum, en átti
þó eftir að versna í þeim siðari.
Fyrstu 10 mínútur hálfleiksins
var markalaust þóf, en þá skoraði
Anna Gréta úr vítakasti fyrir f>or
og skömmu síðar jafnaði hún með
glæsilegu marki. Var nú komin
mikil spenna í leikinn og að sama
skapi færðist fjör í áhorfendur,
sem létu óspart i sér heyra. Þór
komst yfir og leiddi 8:7, þegar 5
mínútur voru eftir, en Erla jafn-
aði og Guðrún skoraði tvö mörk
fyrir Ármann þannig að staðan
var 10:8. Lokaorðið átti Þdr og
Jeikurinn endaði því 10:9.
Ekki sýndu liðin góðan leik að
þessu sinni, en baráttan var mikil
og þá sérstaklega hjá Þórsliðinu.
Ármannsliðið olli vonbrigðum f
þessum leik, liðið skortir til-
finnanlega breidd svo sem sjá má
af því, að aðeins tvær stúlkur
skoruðu mörk liðsins í leiknum,
Erla og Guðrún. Þær áttu báðar
ágætan dag — Erla þrátt fyrir að
hún væri elt allan leikinn. Alf-
heiður Emi lsdóttir varði mark
Ármanns af stakri prýði og má
segja, að munurinn á liðunum í
þessum leik hafí fyrst og fremst
legið í markvörzlunni.
Sundmót KR
SUNDMÓT KR fer fram í Sund-
höll Revkjavíkur þriðjudaginn
12. febrúar og hefst það kl. 20.30.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum:
400 rijetra skriðsund karla (Bikar-
sund)
100 metra skriðsund kvenna
(Bikarsund)
100 metra bringusund karla
100 metra bringusund kvenna
200 metra fjórsund karla
100 metra baksund kvenna
4x100 metra skriðsund karla
4x100 metra skriðsund kvenna.
Afreksbikar SSÍ veittur fyrir
bezta afrek mótsins, samkvæmt
stigatöflu.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast til Erlings Þ. jlóhanns-
sonar, c/o Sundlaug Vesturbæjar
fyrir laugardag 9. febr.
Öllum þátttökutilkynningum á
aðskila á tímavarðarkortum.
Anna Gréta var bezt Þórs-
stúlkna i leiknum og einnig komst
Aðalbjörg Ólafsdóttir vel frá hon-
um.
Mörk Þórs: Anna Gréta Hall-
dórsdóttir 5, Aðalbjörg 2, Hanna
ogHarpa 1 hvor.
Mörk Ármanns: Guðrún 6 og
Erla 4.
Magnús V. Pétursson og Valur
Benediktsson dæmdu leikinn,
stóðu þeir sig ekki vel, voru
dæmigerðir heimadómarar.
háhá.
Reykjavíkurmót
1 borðtennis
Reykjavíkurmótið í borðtennis
fer fram i Laugardalshöllinni
helgina 16. og 17. febrúar næst-
komandi. Þátttaka tilkynnist
skrifstofu ÍBR i síma 35850 eða
34085 fyrir þriðjudaginn 12.
febrúar nk.
Mark
Víkingur vann
Þór með þriggja
marka mun,
30:27
Mörg falleg mörk voru skoruð 1
Íþróttaskemmunni á Akureyri á
mánudagskvöldið, þegar Víking-
ur heimsótti Þór. Frámunalega
slakur varnarleikur og léleg
markvar/la lengst af gerðu það að
verkum, að mark var skorað á
næstum hverri mínútu. Lið V'fk-
ings sigraði með þriggja marka
mun, 30:27, og þó að munurinn
yrði ekki nema þrjú mörk í lokin
var sigurinn nokkuð öruggur all-
an tímann.
Frá byrjun var mikill hraði í
leiknum og að sama skapi mikil
harka. Ekki voru liðnar nema
þrjár mínútur, þegar tveimur
leikmönnum var samtímis vikið
af leikvelli og fyrir leikhlá höfðu
dómararnir sent 7 leikmenn út af
KÚLUVARPS-
HEIMSMET
BANDARÍKJAMAÐURINN
George Woods setti nýtt heims-
met í kúluvarpi innanhússá móti,
sem fram fór i San Francisco um
helgina. Kastaði hann 21,45
metra.
Leikið í Njarðvík
I KVÖLD fara fram tveir leikir í
1. deild Islandsmótsins í körfu-
knattleik, og verður leikið í
Njárðvík.
í þessum leikjum eigast við KR
og HSK annars vegar og ÍR og ÍS
hins vegar. Samkvæmt mótaskrá
áttu þessir leikir að fara fram á
Seltjarnarnesi 11. nóv. s.l., en
vegna rafmagnsleysis varð að af-
lýsa þeim. Þar sem ekki reyndist
unnt að fá inni með leikina á
Seltjarnarnesinu I miðri viku, var
það ráð tekið að leika þá i
Njarðvlk.
Fyrri leikurinn hefst kl. 20, og
er milli KR og HSK. KR-ingar líta
vissulega mun sigurstranglegar
út fyrirfram, en þó er ekki hægt
að ganga framhjá þeirri stað-
reynd að HSK á oftast sína bestu
leiki einmitt gegn KR. HSK átti
mjög góðan leik gegn ÍR á dögun-
um, og gæti allt eins velgt KR
undir uggum í kvöld. — Sfðari
leikurinn milli ÍR og ÍS ætti ekki
siður að verða spennandi. Miðað
við síðustu leiki líðanna eiga
stúdentar talsverða sigurmögu-
leika í leiknum, eh ÍR-ingar, sem
hafa betri einstaklingum á að
skipa, ættu að geta unníð, ef I ðið
íeikur sem meiri heild en að
undanförnu.
Einar Magnússon skorar þrátt fyrir góða tilburði Tryggva
á hverri mínútu
til kælingar i 2 mfnútur hvern.
Leikurinn var þó ekki svo grófur,
að tilefni væri til slíkra brottvís-
ana, en dómararnir höfðu lítil tök
á leiknum og gripu því til þessa
örþrifaráðs.
Þórsarar skoruðu fyrsta mark
leiksins og var það í eina skiptið,
sem þeir höfðu forystu. Stórskota-
lið Víkings var í miklum ham og
tók leikinn fljótlega í sínar
hendur. Guðjón var óstöðvandi
fyrsta stundarfjórðunginn og
skoraði þá fimm mörk með sinum
geysiföstu skotum. Hann gekk þó
ekki heill til skógar og var lftið
með eftir þessa glæsilegu byrjun.
Það sakaði lítið, því að aðrir tóku
til við að skora, munurinn jókst
jafnt og þétt og var orðinn sex
mörk í leikhléi, 17:11.
Auðveldur Víkingssigur blasti
við, en Þórsarar virtust ekki alls
kostar ánægðir með það og byrj-
uðu síðari hálfleikinn af miklum
krafti. Tókst þeim á 5 mfnútum að
minnka muninn niður í 3 möxk,
18:15, og allan síðari hálfleikinn
veittu þeir andstæðingum sínum
mikla keppni. Þeir náðu þó aldrei
að jafna, en voru oftast 2:3 mörk-
um undir. Lauk leiknum með
sigri Vfkings, 30:27, minni mun
en gera hefði mátt ráð fyrir.
Þessi mikla markasúpa á að
sjálfsögðu rætur að rekja til op-
inna varna og lélegrar mark-
vörzlu. Hinir sífelldu brottrekstr-
ar dómaranna höfðu það í för með
sér, að þriðjurig leiktimans voru
liðin ekki fullskipuð og höfðu
sóknarleikmenn því gjarnan
meira rúm til að athafna sig.
Víkingsliðið sýndi það sama í
þessum leik og svo oft áður —
góðan sóknarleik og slakan varn-
arleik markvarzlan hefur oft ver
ið betri en að þessu sinni. Þá
voru innáskiptingar liðsstjóra
vafasamar á köflum, t.d. mátti sjá
4 línumenn inni á í einu í síðari
hálfleik, meðan Einar, Páll og
Stefán hvíldu sig. Þetta var
örugglega ekki fyrirfram ákveðin
leikaðferð, til þess varð sóknar-
leikurinn allt of fálmkenndur.
Guðjón átti sem fyrr segir stór-
kostlegan leik í fyrri hálfleik og
er nú búinn að ná sér vel á strik
eftir daufa frammistöðu i upphafi
keppnistimabilsins. Bezti maður
liðsins var samt Páll Björgvins-
son, sem var stöðugt ógnandi og
átti nú sinn langbezta leik á vetr-
inum. Einar Magnússon skoraði
að venju flest mörk Víkinga, en
var þó tekinn úr umferð mest
allan leikinn. Auk þessaraþriggja
átti Skarphéðinn Öskarsson mjög
góðan leik, bæði í sókn og vörn.
Þar er á ferðinni leikmaður, sem
Víkingur má vænta mikils af i
framtiðinni.
Lið Þórs sýndi það i siðari hálf-
leik þessa leiks, að það stendur
öðrum 1. deildarliðum ekki langt
að baki, þegar baráttan og kraft-
urinn eru með. Ef þetta vantar er
liðið hins vegar ekki nema sem
miðlungs 2. deildar lið. Sigtrygg-
ur og Þorbjörn fengu í þessum
leik ekki það tóm til athafna, sem
þeir þurfa, og skoruðu því minna
en oft áður. í stað þeirra voru nú
Aðalsteinn, Benedikt og Árni
markahæstir og lögðu grunninn
að góðum sóknarleik Þórs í síðari
hálfleik. Þeir voru langbeztir
Þórsara og eru þessir þrír leik-
menn sérlega snöggir og liprir.
Það er því leiðinlegt að vita til
þess, að Árni skuli draga úr ágæt-
um sfnum með leiðinlegri fram-
komu og skapofsa á leikvelli.
Annars mátti segja það um fleiri í
þessum leik, því að sum brotanna,
sem sáust voru ruddaleg um leið
og þau voru algjörlega tilgangs-
laus.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild
íþróttaskemman Akureyri, 4.
febrúar.
Þór —Víkingur27:30 (11:17).
Gangur leiksins:
mln. Þór Vlkingur
2. Slgtryggur (v) 1:0
2. 1:1 (. uð jón
4. 1:2 Einar
4. Sigtryggur 2:2
5. 2:3 Stefán
5. 2:4 Guðjón
6. Arni 3:4
7. 3:5 Einar (v)
8. Þorbjörn 4:5
8. 4:6 Guðjón
9. 4:7 Guðjón
15. 4:8 Einar (v)
15. Arni 5:8
16. Arni 6:8
6:9 (i uð jón
6:1« Fáll
6:11 E inar (v)
6:12 Páll
7:12
7:13 Viggó
8:13
8:14 Páll
8:15 Sigfús
8:16 Skarphóðinn
9:16
10:16
10:17 Skarphóðinn
HÁLFLEIKUR:
31. 11:18 Páll
32. Þorbjörn 12:18
34. Bcnedikt 13:18
34. Benedikt 14:18
35. Árn i 15:18
3& 15:19 Páll
:m». Aða Isteinn 16:19
37. 16:20 Páll
39. Aðalsteirui (v) 17:20
40. 17:21 Einar(v)
42. Arni 18:21
44. 18:22 Eina r (v)
44. Aðalstcinn 19:22
46. Aðalsteinn 20:22
47. 20:23 Skarphóðinn
47. Aðalste inn (v) 21:23
48. 21:24 Einar
48. Benedikt 22:24
50. 22:25 Skarphóðinn
52. Benedikt 23:25
53. 23:26 Páll
53. 23:27 Einar
55. 23:28 Viggó
56. Aðalsteinn 24:28
57. 24:29 Einar
57. Aðalsteinn (v) 25:29
59. Aðalsteinn (v) 26:29
59. 26:30 Einar
60. Þorbjörn 27:30
Mörk Víkings: Einar 10, Páll 7,
Guðjón 5, Skarphéðinn 4, Viggó 2,
Sigfus og Stefán 1 hvor.
Mörk Þórs: Aðalsteinn 8, Árni
6, Benedikt 5, Þorbjörn 4, Ólafur
2, Sigtryggur 2.
Brottvfsanir af leikvelli: Þor-.
björn Jensson, Árni Gunnarsson,
Ólafur Sverrisson og Benedikt
Guðmundsson allir f Þór í 2 mfn.
hver. Jón Sigurðsson, Skarphéð-
inn Óskarsson, Páll Björgvinsson,
Viggó Sigurðsson og Björn
Bjarnason allir í Vikingi í 2 mín-
útur hver.
Misheppnuð vftaköst: Einar
Framhald á bls.20
Lið Þórs: Tryggvi Gunnarsson 2, Aðalsteinn Sigurgeirsson 3,
Gunnar Gunnarsson 1, Ólafur Sverrisson 2, Árni Gunnarsson 3,
Þorbjörn Jensson 2, Benedikt Guðmundsson 3, Sigtryggur Guð-
laugsson 2, Rögnvaldur Jónsson 1, Ragnar Þorvaldsson 1.
Lið Vfkings: Sigurgeir Sigurðsson 1, Guðjón Magnússon 3, Jón
Sigurðsson 1, Einar Magnússon 3, Skarphéðinn Óskarsson 3,
Sigfús Guðmundsson 2, Páll Björgvinsson 3, Björn Bjarnason 1,
Viðar Jónasson 1, Stefán Halldórsson 2, Viggó Sigurðsson 2,
Rósmundur Jónsson 1.
17.
18.
20.
21.
22. Ólafur
23.
23. Olafur
25.
26.
27.
28. Bcnedikt
29. Þorbjörn
29.
%