Morgunblaðið - 28.02.1974, Page 27

Morgunblaðið - 28.02.1974, Page 27
IVÍORGUNBLAÐEÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRUAR 1974 27 Um afnám Rök stafsetningarnefndar Undanfarnar vikur hefur tölu- vert verið rætt opinberlega um afnám bókstafsins z úr íslensku ritmáli samkvæmt auglýsingu út- gefinni af Menntamálaráðuneyt- inu 4. september s.l. Allmikill til- finningahiti hefur einkennt um- ræður þessar af hálfu andstæð- inga þessarar ákvörðunar, og hef- ur þá viljað fara sem oftar, að stórt hefur verið tekið til orða, en málefnaleg rök lent utangarðs. Að athuguðu máli teljum við undirritaðir, sem áttum sæti i Stafsetningarnefnd, því nauðsyn- legt, að almenningur kynnist nánar þeim rökum, sem lágu til þess, að nefndin lagði til, að bók- stafur þessi yrði niður felldur úr íslenskri stafsetningu. HLUTVERK NEFNDAR- INNAR í erindisbréfi nefndarinnar er lögð áhersla á, að tillögur hennar um breytingar á stafsetningar- reglum skuli vera til einföldunar á stafsetningunni. Ljóst er, að breytingin: eitt tákn (bókstafur) f stað tveggja um sama hljóð felur í sér einföldun. Ef slík ein- földun er framkvæmanleg án um- talsverðrar skerðingar á gagnsæi hins ritaða máls, þ.e. þeim ein- kennum þess, sem auðvelda mönnum að átta sig á skyldleika orða eða orðmynda, virðist hún í fyllsta máta eðlileg og æskileg. Er afnám z réttlætanlegt sam- kvæmt þessum forsendum? Við teljum hiklaust, að svo sé. Bók- stafurinn z hefur lengi táknað sama hljóð og s. Athugun leiðir í ljós, að ritun s í stað z dregur litið sem ekki úr gagnsæi málsins; í langsamlega flestum tilvikum eru tengsl fyrrverandi z-orða við skyld orð og orðmyndir jafnljós eftir sem áður. Hér breytir engu um, þótt t.d. einstöku sagnir falli saman í rithætti í lh. þt. við slíka breytingu, svo sem i „draumurinn hefur ræst“ og „hann hefur ræst bilinn“. Samhengið gerir augljóst, að í fyrri setningunni er um að ræða so. að rætast og í hinni síðari so. að ræsa. Ljóst er, að samruni þessara sagnmynda veldur ekki heldur misskilningi i tali og að það er að sjálfsögðu merkingarlegt samhengi orð- anna, sem einnig þar sker úr. Um orð, sem áður voru rituð með z í stofni, er svipað að segja; gagnsæi þeirra skerðist sjaldan, þótt s sé ritað í stað z. Flestum mun fljót- lega ljóst af merkingarlegum or- sökum, að t.d. gæsla hlýtur að vera skyltgæta.neysla skyltneyta o.s.frv., þótt ekki sé þar rituð z. Má fullyrða, að þau orð munu vandfundin, þar sem z-an ein hef- ur verið það leiðarljós, sem eitt tengdi þau við önnur skyld orð. UM SÖGU Z Rittáknið z hefur alltaf verið óþarft í íslensku. Það táknaði i elsta ritmáli, að fram væri borið tannhljóð + s (ts), en vitanlega var ekkert auðveldara en tákna hljóðasambandið með tákni tann- hljóðsins og s, og I elstu handrit- um er ýmist ritað ts eðaz. Elsti og frægasti málfræðingur íslend- inga, höfundur fyrstu málfræði- ritgerðar Snorra Eddu, vildi hafa þennan hátt á og var þvi andvígur z. I ýmsum fornum handritum er z notuð á allt annan hátt en tíðk ast eftir regium frá 1929, t.d. er algengt, þegar kemur fram á 13. öld, að rita z til að tákna miðmynd sagna og efsta stig lýsingarorða, ef ekki fór beygingarending á eft- ir stigsendingunni. Og jafnvel í elstu skinnbókum er z rituð i eignarföllum nafnorðs og lýs- ingarorðs, ekki aðeins ef rót endar á tannhljóði, heldur einnig á nn eða 11. Málfræðinga greinir á um það, hvað þessi ritháttur tákn- ar. Síðar verður fullkominn rugl- ingur á notkun z, t.d. i Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar og Guðbrandsbiblíu. Sérstakar reglur um notkun z koma ekki fram fyrr en í bók Rasmusar Kr. Rasks Lestrarkveri handa heldri manna börnum snemma á 19. öld. Allmiklar um- ræður urðu seint á öldinni um stafsetningu eftir framburði og bar þar hæst dr. Björn M. Ólsen, sem vildi afnema z. Um aldamótin kom svo fram ,,blaðamannastafsetningin“ svo nefnda, en þar var mjög dregið úr notkun z, og 1918 var hún alveg felld niður með auglýsingu frá ráðherra (Jóni Magnússyni). Af þessu yfirliti má sjá, að lengi höfðu menn ekki verið á eitt sáttir um þennan staf, og hélst það ósætti áfram. Fór svo, að z- regla Rasks var aftur tekin upp 1929 með Auglýsingu um fslenska stafsetningu f Lögbirtingablaðinu 28. febrúar þ.ár. Var reglum um ritun z síðan fylgt í kennslu í skólum þar til á þessu skólaári, nema hvað barnaskólar fengu undanþágu frá því að kenna þær 1934, svo sem nánar verður að vi kið. Fullyrða má, að reglurnar frá 1929 styðjast engan veginn við forna ritvenju og bera sumar hverjar vitni um sprenglærðan af- káraskap og skjánalæti. Það væri t.d. gaman, að færðar yrðu sönnur á, að borið hafi verið fram mæðtst, en rithátturinn mæðzt er talinn eiga rætur i þessu formi, og fleiri dæmi mætti nefna um endurgerðar orðmyndir, sem enga stoð eiga f heimildum eða heilbrigðri skynsemi. Og fullyrða má, að reglurnar frá 1929 eiga enga forna hefð á bak við sig. Ef skrifa ætti z i samræmi við fornan rithátt á sama hátt og y, ý, ey — og ef menn vilja tvenns konar æ — þyrfti að gera betri bæn og gerbreyta reglunum frá 1929. En hver yrði bættari með því? ÁRANGUR Z- KENNSLU 45 ár eru liðin frá því z var formlega innleidd í fs- Ienska stafsetningu. Öll þessi ár hefur gífurlegum tima ver- ið varið árlega i efstu bekkj- um skyldunámsstigs og þó einkum í 3. og 4. bekk gagnfræða- stigs, svo og í menntaskólum og öðrum framhaldsskólum, til kennslu í notkun þessa bókstafs. Um árangurinn geta kennarar í þessum skólum best vitnað. Meginþorri nemenda hefur aldrei náð verulegum tökum á notkun z-reglna, og jafnvel þeir, sem tal- ist hafa góðir stafsetjendur, hafa þar iðulega gert villur, annað- hvort vegna ónógrar þekkingar eða í fljótfærni. Alkunnugt er, að allstór hópur manna, sem að öðru leyti hefur kappkostað að vanda stafsetningu sina sem best, hefur viljandi ekki notað z. i raun hefur mátt skipta mönnum í tvo flokka eftir þvf, hvort þeir hafa kunnað eða viljað nota z eða ekki. Þessi staðreynd hefur svo leitt til þess, að almennt hefur verið litið á z sem eins konar „lærdómsstaf", sem aðeins örfáir hafa kunnað að nota rétt. Dagblöð, tímarit, sjón- varpstextar fyrir breytingu og jafnvel prófarkalesnar bækur hafa sýnt og sýna í ríkum mæli handahófskennda notkun z, sem vitnar ótvírætt um vanþekkingu og óvissu manna um notkun henn- ar. Stafsetningarnefnd taldi því miklu betra að fella z niður með öllu. BARNASKÓLARNIR OG Z-AN Því hefur verið haldið fram, að z „hafi aldrei notið sin“ til jafns við aðra stafi, af því að barna- skólarnir hafi brugðist þeirri skyldu sinni að kenna reglur um þennan staf; að allt hefði fallið í ljúfa löð, ef z hefði notið þar „jafnréttis" við aðra stafi. Kennarar barnaskólanna tóku snemma þá stefnu að færast und- an að kenna um z i þeim skólum og sóttu það mál svo fast, að menntamálaráðherra veitti undanþágu frá þeirri kennslu z þegar árið 1934. Rök barnakenn- ara voru m.a. þau, að ærið nóg verkefni í barnaskóla væri að kenna um önnur atriði stafsetn- ingar en z, þar sem stafsetningar- kennsla yrði aldrei unnin nema að nokkru leyti í þeim skólum, enda bæði nauðsynlegt og skyn- samlegt að sinna þar fremur öðrum þáttum móðurmálsins. í annan stað sýndist mönnum, að hin þyngri fræði um z væru ekki við hæfi barna, þar sem nám þeirra krefðist meiri kunnáttu í málfræði en raunhæf væri á barnaskólastigi. Þegar þessi undanþága frá kennslu z var veitt, tóku börnin fullnaðarpróf 13 ára, en nú ljúka þau barna- prófi við 12 ára aldur. Ekki er vitað, að kennarar hafi skipt um skoðun á þessu efni. Má í því sambandi geta þess, að á fjöl- mennu kennaranámsskeiði á veg- um Menntamálaráðuneytisins í júni 1972 kom fram eindreginn vilji kennara, að skrefið yrði stig- ið til fulls um algera niðurfell- ingu z. UNGLINGASKÖLARNIR OG Z-AN 1 unglingaskólum var svo tekið til við z-námið og varið til þess miklum tíma, en árangur varð minni en skyldi. Ekki var það mikill hluti nemenda, sem lærði að skrifa z til hlitar, meiri hlutinn kunni meira eðaminna hrafl, sem i rauninni var oftast litils um vert og stundum fremur til að rugla nemendur. Að síðustu var svo ævinlega nokkur hópur nemenda, sem ekki var reynt að kenna z, af því að þeim nemendum veitti ekki af að verja öllum sínum námstíma til annars, sem talið var nauðsynlegra, enda með öllu óvist um árangur af z-kennslu. Þessi umræddi bókstafur varð því til þess öllum bókstöfum fremur, að nemendur skiptust í flokka, og getur slikt komið illa við tilfinn- ingar unglinga. ORÐABÆKUR ogz-nAm Margir kennarar eru þeirrar skoðunar, að heldur eigi að draga úr stafsetningarkennslu í skyldu- námsskólum, en leggja þeim mun meiri áherslu á aðraþætti móður- málsins. Mikið hefur verið rætt og ritað um stafsetningarstagl og ekki með öllu að ástæðulausu. Kennslu í stafsetningu hættir oft til að verða leiðigjörn og á eflaust sinn þátt í margnefndum náms- leiða. Þess í stað vilja kennarar, að nemendur noti orðabækur meira en áður og haldi þeim sið, eftir að skóla lýkur. Nú fer það saman, að stafsetn- ingarkennslan minnkar til mikilla muna við brottfall z og einnig hitt, að z var „slæmur orða- bókarstafur“. Til að mynda er auðvelt að ganga úr skugga um það í orðabók, hvort rita skuli y í orði eða ekki. Alltöðru máli gegn- ir um z, því að hún var langoftast rituð i beygingarendingum sagna, en þær endingar eru ekki sýndar í almennum orðabókum. ER Z AUÐLÆRÐ? Sumir halda því fram, að auð- velt hafi verið að læra að skrifa z rétt, jafnvel mjög auðvelt, en fáir munu þeir nemendur og kennar- ar í unglinga- og gagnfræðaskól- um, sem aðhyllast þá skoðun. Og margur stúdentinn hefur kvatt menntaskólann ekki sterkur i þessum fræðum og þó átt langa glimu að baki. Að vísu er oftast auðvelt að rita z rétt i stofni orða, og gat þó oft að líta z í orðunum reynsla, brennsla og fleiri slikum orðum. í endingum sagna reyndi hins vegar allviða til muna á kunnáttu málfræði. Tvær orð- myndir voru oft samhljóða, önnur rituð með s, hin með z, til að mynda lýsingarorð (eða atviks- orð) og sagnorð: vænst — vænzt, gerst — gerzt, grennst — grennzt. Þá var sama sagnorðið ýmist með s eða z, eftir því hvaða hátt var um að ræða — og þó samhljóða: annast — annazt, kallast — kallazt, ætlast — ætlazt, eða t greindi að samhljóða orðmyndir: lézt — létzt, sezt — setzt, ázt — átzt. Einnig hefur margur nem- andinn velkst í vafa um, hvar z skyldi standa í boðhætti mið- myndar: minnstu, keppstu, skjóztu, seztu o.s.frv. Þessi örfáu dæmi nægja til að gefa í skyn, að álitamál getur verið hvort auð- veldara var að læra reglur um z en önnur þau atriði í islenskri stafsetningu, sem helst valda erf iðleikum. Það liggur f augum uppi, hversu skynsamlegt hefði verið að halda þessum fræðum fast að 12 ára börnum eða enn yngri nemendum. Framhald á bls. 35 SJÁVARFRÉTTIR, SÉRRIT SJÁVARÚTVEGSINS Sjávarfréttir er nýtt sérrit um sjávarútveg, fiskiðnað og þjónustugrein- ar sjávarútvegsins. Sjávarfréttir fjalla um útgerð, fiskiðnað, markaðsmál, skipasmíðar, rannsóknir og vísindi, tækni og nýjungar. Lesið Sjávarf réttir. Fylgist með sjávarútveginum. Sjávarfréttir koma út annan hvern mánuð, og kostar eintakið 165. — og ársáskrift 990.- Sjávarfréttir er eingöngu selt í áskrift. Sjávarfréttir býður yður velkomin í hóp fastra áskrifenda. I Til Sjávarfrétta, Laugavegi 178 I Óska eftir áskrift að Sjávarfréttum, pósthólf 1193 Utgelandl: i ^ Frlálst Framtak ti.f. 1 Laugavegi 178. Simar 1 Nafn 1 1 82300 og 82302. I Heimilisfang sími

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.