Morgunblaðið - 22.03.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1974
11
Oskar Ingimarsson f hlutverki Jóns gamla f Nýju hlutverki.
/MIÐMIKUDhGUR
27. mars 1974
18.00 Skippf
Ástralskur myndaflokkur
fyrir börn og unglinga.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.25 Gluggar
Breskur fræðslumynda-
flokkur.
Þýðandi og þulur Gylfi
Gröndal.
18.50 Gátarskólinn
Gítarkennsla fyrir byrj-
endur.
8. þáttur.
Kennari Eyþór Þorláksson.
19.20 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Konan mfn f næsta húsi
Breskur gamanmynda-
flokkur.
Uppáhaldsfrændinn
Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
21.00 Nýjasta tækni og vfsindi
Umsjónarmaður Örnólfur
Thorlacius.
21.30 Nýtt hlutverk
Kvikmynd eftir Öskar Gísla-
son, gerð árið 1954 eftir sam-
, nefndri smásögu Vilhjálms
S. Vilhjálmssonar.
Leikstjóri Ævar R. Kvaran.
Leikendur Óskar Ingimars-
son, Gerður H. Hjörleifs-
dóttir, Guðmundur Pálsson,
Einar Eggertsson, Emelía
Jónasar, Aróra Halldórs-
dóttir, Helgi Skúlason og
fleiri.
Sagan gerist í Reykjavík á
strfðsárunum. Aðalpersónan
er aldraður verkamaður, sem
ekki hefur lengur þrek og
heilsu til erfiðisvinnu, en
reynir þó af fremsta megni
að verða fjölskyldu sonar
sfns að liði á erfiðum tímum.
23.00 Dagskrárlok
FÖSTUDKGUR
29. mars 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Að Heiðargarði
Bandariskur kúrekamynda-
flokkur.
Dæmalaus doktor
Þýðaridi Kristmann Eiðsson.
21.25 Landshorn
Fréttaskýringaþáttur um
innlend málefni.
Umsjónarmaður Eiður
Guðnason.
22.05 Söngvar frá Bretlandi
Sænskur músikþáttur, þar
sem þrír breskir tónlistar-
menn flytja létt lög af ýmsu
tagi og leika með á gítara,
flautur og fleiri hljóðfæri.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
22.25 Islenski handboltinn
Umsjónarmaður Omar
Ragnarsson.
22.55 Dagskrárlok
L4UG4RD4GUR
30. mars 1974
16.30 Jóga til heilsubótar
Bandarískur myndaflokkur
með kennslu í jógaæfingum.
Þýðandi og þulur Jón O.
Edwald.
17.00 Þingvikan
Þáttur um störf Alþingis.
Umsjónarmenn Björn
Teitsson og Björn Þorsteins-
son.
17.30 Iþróttir
Meðal efnis verður umræðu-
þáttur, mynd frá Evrópumóti
í frjálsum fþróttum innan-
húss og mynd úr ensku knatt-
spyrnunni.
Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson.
Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Ugla sat á kvisti
1 þættinum koma fram „þjóð-
lagasöngvarar“ ýmist einir
sér, eða fleiri saman, og rifja
upp sitthvað, sem sungið
hefur verið á síðustu tíu ár-
um.
Meðal gesta eru Rió trióið,
Fiðrildi, Heimir og Jónas,
Þrjú á palli og margir fleiri.
Auk þess var fjöldi áhorf-
enda viðstaddur upptökuna í
sjónvarpssal.
Umsjónarmaður Jónas R.
Jónsson.
21.35 Á tölti um
Tóbaksveginn
Heimildamynd um banda-
ríska rithöfundinn Erskine
Caldwell og verk hans. I
myndinni er meðal annars
viðtal við rithöfundinn
sjálfan.
(Nordvision — Danska sjón-
varpið)
Þýðandi og þulur Óskar Ingi-
marsson.
22.05 Safnarinn
(The Collector)
Bandarísk bíómynd frá árinu
1965, byggð á sögu eftir John
Fowles.
Leikstjóri William Wyler.
Aðalhlutverk Terence
Stamp, Samantha Eggar og
Mona Washbourne.
Þýðandi Ellert Sigurbjörns-
son.
Ungur fiðrildasafnari býr
einn f afskekktu húsi. Hon-
um leiðist einveran, og dag
nokkurn rænir hann ungri
stúlki, sem hann heldur f ang-
inni í húsi sinu.
24.00 Dagskrárlok
Arni Gunnarsson
verið starfsmaður Upplýsinga-
þjónustu Bandaríkjanna og
kynnt sögu verkalýðshreyfing-
ar Bandaríkjanna á ferðum sin-
um um 50 lönd. Er hann talinn
með fróðustu mönnum um sögu
verkalýðshreyfingarinnar i
Bandaríkjunum.
Meðal kunnra söngva, sem
Joe hefur sungið, má nefna lag
hans The Ballad of Bobby
Fischer, sem hann samdi á sin-
um tíma um skákeinvígið á Is-
landi. Þá má nefna Songs of
Work and freedom, Songs of
Joe Hill, plötuna Coal og marg-
ar aðrar plötur. Þá gerir Joe
gjarnan texta i léttum stíl um
vandamál Iíðandi stundar.
Hann gerði t.d. texta um það
hvernig einn lítill borðtennis-
bolti gat brotið niður Kínverska
múrinn miðað við stjórnmála-
leg samskipti.
Á mánudaginn talar Jón Sig-
urðsson bankamaður um Dag-
inn og veginn, en á mánudags-
kvöld kl. 22,15 verður siðasti
Eyjapistillinn í umsjá Arnþórs
og Gísla Helgasona. Þeir bræð-
ur hafa nú annazt rúmlega 260
þætti síðan eldgosið í Eyjum
hófst og hafa þeir fjallað um
flesta þætti Eyjamála siðan
ósköpin dundu yfir. I þáttunum
hefur verið talað við hundruð
manna, en sennilega hafa um
500 manns komið fram f þættin-
rm allt i allt. Við röbbuðum
við Gísla Helgason um þennan
)átt og spurðum hann hvernig
honum hefSi orðið við, þegar
hann var beðinn um að sjá um
þennan þátt ásamt Arnþóri
bróður sínum. „Mér fannst
þetta eins og kjaftshögg," sagði
Gísli, „en síðan hef ég reynt að
taka á móti höggunum og um-
bera allt, sem ég hef orðið að
þola.“
Gísli sagði, að þátturinn hefði
upphaflega verið settur upp til
Joe Glazer
þess, að fólk gæti haft samband
hvert við annað og allar til-
kynningar og fréttir frá bæjar-
stjórn Vestmannaeyja áttu að
birtast i þættinum. Viðlagasjóð-
ur hefur notfært sér þáttinn frá
þvi í september og birt allar
fréttir og tilkynningar til Vest-
mannaeyinga í Eyjapistli. „En
óhætt er að fullyrða," sagði
Gísli, „að bæjarstjórnin hefur
ekki troðið Eyjapistli um tær
með tilkynningum eða frétt-
um.“
Flestir eru sammála úm, að
þeir bræður hafi leyst verk sitt
mjög vel af hendi og aldrei hik-
að við að láta hinar mörgu skoð-
anir sjá dagsins ljós. Enda hef-
ur ekki veitt af og veitir ekki af
að ýta við opinberum aðilum í
því, er lýtur að viðreisn Vest-
mannaeyja og er þá sama hvort
átt er við ríkisstjórn Islands,
eða bæjarstjórnarmeirihluta
Vestmannaeyja.
GLEFS
Gfsli og Arnþór Hetgasynir.
Undarlegt var að heyra
Andra Isaksson prófessor ræða
um það f þættinum Um daginn
og veginn, að það mætti alls
ekki gagnrýna fslenzku rikis-
stjórnina, þeir, sem það gerðu
eins og t.d. Morgunblaðið, væru
að spilla samstöðunni og ráðast
að ófyrirsynju á löglega kjörna
rfkisstjórn.
Gott er, að Andri skuli ekki
hafa verið ritstjóri Washington
Post, þegar blaðið upplýsti
Watergatemálið og réðst ásamt
allri bandarfsku pressunni á
löglega kjörna rfkisstjórn
Bandarfkjanna. Það var nú
meiri goðgáin.
Fyrir nokkrum árum hélt
maður, að Andri væri baráttu-
maður fyrir breytingum f kerf-
inu, en nú er hann kerfið holdi
klætt.
-á.j.
GLUGG
Þáttur danska sjónvarpsins um
fall þriðja ríkisins, var mjög vand-
lega unnin og gaf góða mynd af
stjórnmálahliðinni á þessum sögu-
lega viðburði. Viðtölin við fyrrver-
andi forsvarsmenn Þjóðverja og
fanga komu mjög vel saman i
söguþræðinum og samt sem áður
var myndin látin tala sinu máli á
mjög sterkan hátt.
Á laugardagskvöld flutti kór
Verzlunarskólans söngleikinn
Tommy undir stjórn Sigurðar Rún-
ars Jónssonar. Kolbeinn Kristins-
son söng aðalhlutverkið. Þáttur-
inn var mjög skemmtilega tekinn
upp og Ijósaskiptingarnar voru frá-
bærlega skemmtilega notaðar af
Agli Eðvarðssyni stjórnanda upp-
tökunnar. Um 50 nemendur úr
Verzlunarskólanum sungu þarna
og komu fram margir mjög góðir
söngvarar, m.a. Helga Möller. Fór
kórinn mjög vel með þennan söng-
leik, sem hefur verið sýndur i
mörgum löndum. En hefði ekki
verið skemmtilegra að snara text-
anum yfir á islenzku? Éfl tel það,
það er ekki mikið mál i slikri
framkvæmd að þýða textann yfir á
islenzku og okkur ber að leggja
rækt við islenzkuna númer eitt,
tvö, þrjú o.sv.frv.
Á laugardagskvöldið var einnig
á dagskrá forvitnilegur þáttur um
grænlenzka haförninn. Danska
sjónvarpið lét gera þáttinn og gaf
hann skemmtilega mynd af þess-
um stórbrotna fugli. Vonandi liður
ekki á löngu þar til islenzka sjón-
varpið geti farið að taka fræðslu
og heimildarmyndir um ýmsa sér-
þætti i náttúru fslands. Það verður
þó varla hægt fyrr en ráðamenn
gera sér grein fyrir þvi, að til þess
þarf sjónvarpið meira fjármagn i
inntenda þáttagerð, en hingað til
hefur verið skammtað. Leggjum
meiri áherzlu á islenzkt efni og
dekrum minna við það útienzka,
þótt þetta sé ugglaust gott i
bland. En göngum ekki of langt i
vitlausa átt.
— á.j.
HVAÐ EB AÐ HEYBA?
A SUNNUDAGSKVÖLD kl.
20,15 verður Arni Gunnarsson
með þátt um bandaríska visna-
og þjóðlagasöngvarann Joe
Glazer. Hann kom hingað
il lands fyrir skömmu
jg hélt tónleika á vegum
Upplýsingaþjónustu Banda-
•íkjanna. Joe er frægast-
ur fyrir verkalýðssöngva sina,
en hann var í 17 ár fræðslu-
itjóri hjá bandarísku verka-
ýðshreyfingunni. Hann hefur
■agt kapp á að kynna og útskýra
sögu bandarísku verkalýðs-
hreyfingarinnar og í textum
sínum fjallar hann mikið um
vandamálin á hverjum tíma.
Joe er um fimmtugt og leikur
sjálfur á gitar með söngnum.
Árni Gunnarsson tók viðtalið
við Joe þegar hann var hér í
heimsókn. Síðan 1961 hefur Joe