Morgunblaðið - 19.05.1974, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 19.05.1974, Qupperneq 4
■ STYRKIO GEÐVERNDARMÁUN ■ 4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. MAl 1974 Fa jj «//. ! i.r.u. x v 'AiAjm 22*0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 LOFTLEIÐIR BÍLALEIGA CAR REIMTAL 21190 21188 LOFTLEIÐIR 1TEL 14444*25555 mmim BÍLALEIGA CAR REIMTAL Hverfisgötu 1 8 27060 (g BÍLALEIGAN 51EYSIR CAR RENTAL V24460 í HVERJUM BÍL PIONEER ÚTVARP OG STEREO KASSETTUTÆKI SAFNAST ÞEGAR SAMAN ^ SAMVINNUBANKINN Dömustólar og sófar Bólstrun Guðm. H. Þor- björnssonar, Laugarnes- vegi 82, sími 33240. ANDLEG HREYSTI-ALLRA HBLLB /Sj ^GEÐVERND|p< Nr I 3EOVERNDARFÉLAG ISLANDSB Föðurumhyggja Hafið þið veitt því athygli, að orðið föðurumhyggja er eitt af fegurstu orðum málsins. Það hefur máttuga merkingu. Það er sjaldgæfari perla í veru- leikanum en margur hyggur. Það er ein • æðsta hugsjón kristins dóms. Það er raunveru- lega eitt af því marga eða fáa eftir álitum, sem telja mætti sérkenni kristinna trúarbragða. Kristur máði brott hinn grimma einvalda Gyðingatrúar og ýmissa austrænna trúar- bragða og setti ástrfkan, um- hyggjusaman föður, sem allt gat umborið og allt kunni að fyrirgefa í staðinn. Segja má, að kirkjan hafi varla skilið þessa hugsjón enn til fulls. Hún setti því Maríu guðsmóður í stað föðurum- hyggjunnar, sem Kristur ætl- aðist til að væri nóg. Og kirkjan afmáði ekki heldur þann hryll- ing í grimmd og veldi einvald- ans, sem var til í það að murka börn sín og þegna niður í fjöldamorðum, til þess að full- nægja valdi sínu og ímynduðu réttlæti — grimmd. En sleppum þessu. Það var mannleg föðurumhyggja, sem mjög skortir víða nú á dögum, sem ég ætlaði að vekja athygli á með þessum línum. Reyndar gerir Kristur það einnig með sinni ævarandi snilli í sögunni um týnda son- inn. Og þar sýnir hann einnig, að föðurumhyggjan má oft líða sára harma og mikil vonbrigði, en er þó söm við sig. Annar drengurinn hans — yngri sonurinn — frekur og tilætl- unarsamur fer burt og eyðir eignum, heiðri og andlegri feg- urð í óhófsömum lifnaði — vægast sagt — og hafnar meðal svínanna. En er þó fyrirgefið. Hinn, sá eldri — verður ein- rænn — eigingjarn og hroka- fullur — en fær samt hrós fyrir ræktarsemi og sonarlega tryggð. Samt eygir maður birt- una af sigrum hinnar alltum- faðmandi föðurumhyggju og mildi að lokum í svip beggja og vali. Annar snýr baki við óhófi og löstum, hinn snýr auðmjúk- ur og þögull frá offorsi sínu og fordómum. En hvernig birtist þá föður- umhyggja bezt? Og hvers vegna má hana ekki vanta við upp- eldið, hversu góð, sem mamma gæti verið? Af hverju verður heimili aðeins hálft án föður? Faðirinn er orkan, krafturinn í augum og vitund barns. Það þráir að fela sig krafti til vernd- ar og öryggis. Það hefur eðlis- læga löngun til að lúta krafti — aga. Það litur umfram allt upp til föður síns, en telur móður fremur jafningja. Faðirinn er fyrsti Guð hvers barns, sem kynnist föður — það mótar jafnvel ósjálfrátt guðshugsjón sína eftir föðurmynd sinni ævi- langt. Þess vegna er ábyrgð föður jafnvel enn meiri en móður i byrjun. Þar verður mildi og kraftur, ástúð og agi að fylgjast að. En þetta fernt eru aðalþættir þess, sem nefnt er föðurum- hyggja ásamt fyrirhyggju og vernd. Þessi huglæga aðstaða föður er jafnvel enn meira virði en auður og peningagjafir. Til eru feður, sem kasta í börn sin pen- ingum í örlæti og afskiptaleysi. Stundum eru slíkar gjafir veitt- ar af skammsýnum hug, kæru- lausri hönd og köldu hjarta. Þá geta þær orðið verri en engar. Föðurumhyggjan gefur alltaf lifandi gjafir. Þeim fylgir til- finning, hugsun, alúð, óskir um gæfu og gleði, sem ekki er aðeins hjóm og umbúðir, heldur gull og kjarni gæfunnar. Einn ógleymanlegasti faðir á mínum vegi varð mér samferða í flugvél i fyrra. Hann var um- sýslumaður mikill, allt að því miðaldra þá, oft á ferðalög- um, en þó heima í huganum, geðþekkur, einlægur, broshýr. Hann var með gjafir til barna sinna, sem voru tvö að mig minnir, á fermingaraldrí eða rúmlega það, tvítugsaldri. — Hér kemur í örstuttu máli það, sem sýndi svo vel föðurum- hyggju hans: ,,Ég læt þau ekki verða fyrir vonbrigðum, þegar pabbi kem- ur heim. Ekki dýrar gjafir, en valdar með þeirra smekk og þeirra áhugamál fyrir augum. I hverri einustu viku, þegar ég er heima, tek ég þau með mér, annað hvort þeirra nú, áður alltaf ' bæði, í sundhöll, leikhús, safn, bió, gönguferðir — einkum gönguferðir eða smáferðalög. Við tölum um þessar ferðir bæði áður og eftir að þær eru farnar og undirbú- um þær. Nær þvf á hverju kvöldi les ég með þeim í einhverri góðri bók — einkum ljóðum eða list- rænum bókmenntum og stund- um tölum við um trúmál. Bænir og helgisiði annast móðir þeirra meira og segja má, að uppeldið sé hennar. En ég tel mína skyldu að veita þeim einhverja stund og eitthvað af sjálfum mér hvern einasta dag. Og satt að segja kvíði ég dálit- ið fyrir því, að nú séu þau að verða svo stór, að þau verði eins og feimin við mína föðurhönd. Það bólar nú þegar á feimninni og fjarlægðinni. En ég hugga mig við, að áhrifin vari og veiti mér þau aftur seinna." Þetta er í fáum orðum vitnis- burður þessa unga föður, samandregið úr löngu en ógleymanlegu samtali okkar. Enginn faðir þyrfti að iðrast slíkrar umhyggju, þótt ekki yrðu öllum sigrar jafnsætir og þeir, sem þessi afburðabörn veita sínum foreldrum. Föðurumhyggja er fögur dyggð. Og vissulega mundi mik- ið af okkar heimilisböli á ís- landi dvína, ef margir hugsuðu og framkvæmdu eins og faðir- inn, sem varð mér samferða í flugvélinni. Samt er gott þeim umhyggju- sömu að hafa í huga, þegar allt virðist auðn og hríðarbylur á heiðinni að — „Þeir, sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng.“ Sú er oft aðstaða fleiri feðra en þess, sem átti týnda soninn forðum. Lokasamkoma í Færeyska sjómanna- heimilinu Nú lýkur starfsemi færeyska sjómannaheimilisins við Skúla- götu að þessu sinni, en forstöðu- maður þess, Jóhann Ólsen og kona hans eru á förum heim. Verður sfðasta samkoman í heimilinu nú f dag klukkan 5 síðdegis. Að vanda hefur heimilið staðið opið öllum þeim Færeyingum, sem hingað koma á vetrarvertfð, svo og þeim, sem hér hafa búsetu. Haga kristilegar samkomur verið haldnar á sunnudögum og opið hús hefur verið á fimmtudags- kvöldum f sjómannaheimilinu. Hefur oft verið gestkvæmt þar nú í vetur, sagði Jóhann. Þá hefur bygginganefnd hins nýja sjómannaheimilis við Sjó- mannaskólann efnt til happ- drættis, vinningar eru skattfrjáls- ir, en aðalvinningurinn er Cor- tina — fólksbifreið og aðrir vinn- ingar ferðir til Færeyja. Munu fslenzkfr og færeyskir vinir heimilisins bjóða miðana til sölu sagði Jóhann, sem kvaðst vilja nú er starfi heimilisins lyki að þessu sinni, færa fslenzkum og færeysk- um vinum og velunnurum þess innilegar þakkir fyrir margvís- lega hjálp og stuðning. LEIÐRÉTTING TALA misprentaðist í frétt um tómstundaheimili aldraðra. Þar átti að standa, að tómstundastarf fyrir aldraða hefði hafizt f borg- inni fyrir 5 árum. Lofsamleg umsögn um sýningu Lovísu Matthíasdóttur 1 New York HSTAKONAN Lovfsa Matthfas- dóttir, sem hefur verið búsett í Bandarfkjunum um langt skeið og unnið sér þar sess sem þekktur og metinn listmálari, hélt sýn- ingu f Robert Shoelkopf Gallery f New York fyrr f vetur ásamt tveimur öðrum málurum og hef- ur Mbl. borizt umsögn úr stór- blaðinu New York Times, þar sem fjallað er um þessa sýningu. I fyrirsögn er tekið fram, að þessir þrfr listamenn séu allir ólíkir í myndsköpun sinni og síð- an segir í umsögninni um Lovísu, að hún sé mikils metinn málari í New York og máli hún kyrralífs- myndir og kröftugar og ljóðrænar landslagsmyndir en áhrif f þær sæki hún til Islands, ættjarðar sinnar. Enda þótt hún máli fígúratívt, þá séu myndir hennar og aðferðir við myndsköpun langt frá þeim nákvæmnislega realisma, sem einkenni t.d. Allan o.fl., sem hafi komið á eftir abstrakt tímabilinu. Myndir hennar á sýningunni spanni ekki beinlínis yfir allan heiminn — hún máli einstök dýr, hesta, kýr og litla hópa af verum f einhvers konar samspili, verur á tali sam- an, við vinnu, i skemmtiferð... Síðar í greininni segir, að það, sem eftirtektarverðast sé við verk Lovfsu, sé auðsæ gleði hennar að fara með liti, sjálfkrafa ummynd- un nokkuira pensilstrika — ein lína, sem verður til dæmis nasir á hesti. Listgagnrýnandi blaðsins Grace Glueck segir, að bezta verk- ið á þessari sýningu og það mest sannfærandi sé mynd, sem kölluð sé „Salt Farm Workers" þar sem sýndar séu tvær mannverur við fjallsrætur og halda á milli sín börum fullum af fiski. Þessar ver- ur sýni mikla tilfinningu fyrir hreyfingu og séu þvi lífi gæddar í málverki, sem virðist vera kjarninn í viðleitni listamanns hverju sinni. Auglýsing um sýningu Lovísu Matthfasdóttur f Robert Schoelkopf Gallery f New York.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.