Morgunblaðið - 19.05.1974, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. MAI 1974
23
bílastæði verða á svæOinu. þar
al' 300 undir þaki. og or þegar
hafin bygging þeirra."
Vrestari hlutinn bíó-
ur
.Pramkvajnuiir i austur
hluta nýja miðbæjarsvæOisins
eru komnar i fullan gang. og er
búið að samþykkja og franv
kvæmdir hafnar viö 80 þtisund
rúmmetra húsnæðis. Er þetta
verk upp á minnst 1000 milljón-
ir. Má segja. að fleiri verktakar
komistekki að ásvæðinuennú
eru þar. og því ekki hægt að
úthluta fleirum þar í bili.
Skipulag svæöisins vestan gjár
hefur enn ekki veriö samþykkt.
en þar er möguleiki á aöstööu
fyrir sérstarfsemi. svo sein leik-
hús. lista- og bókasafn og ýmsa
félagslega þjónustu. Einnig er
þar gert ráð fyrir starfsemi.
sem siöar meir kann aö þykja
nauösynleg. og ekki er séö fyrir
i dag."
Greiðari strætis-
vagnaleiöir
..Þá er stefnt aö þvi. aö miö-
stöð a 1 me n ni ngsvag naþj ón ust u
verði i nýja miðbænum. Eiga
vagnar aö geta komið þar úr
öllum áttum. bæði vagnar. sem
koma frá öðrum byggðarlögum
og vagnar. sem ganga endanna
á milli i Kópavogi. í sumar
verður tekið i notkun nýtt
leiðakerfi strætisvagna Kópa-
vogs. sem byggist á hugmynd-
unt um miðbæinn. Þar er gert
ráö fyrir fjölgun vagna og þá
jafnframt ferða til og frá Kópa-
vogi. auk þess sem feröir end-
anna á milli i sjálfum Kópa-
vogskaupstað verðateknar upp.
en slikar ferðir hefur skort.
Xýja leiðakerfið verður væntan
lega tekið upp i júli í sumar. og
verður þá jafnfrantt aukiö sanv
starf viö nágrannasveitarfélög-
in ".
Xý tækni í vallar-
geró
• Að siðustu íangar mig aö
minnast á hin nýja ogglæsilega
iþróttaleikvang. sem nú rís i
Kópavogi. Hann er þaö langt
kominn. aö hægt verður aö
heyja knattspyrnukappleiki á
honum í sumar. Viö vallargerð-
ina er notuö ný tækni. áöur
óþekkt hér á landt. en hún er í
því fölgin aö leiða heitt vatn i
pipur undir grassvöröinn. og
margfalda þannig endingu valt
arins miöað við aðra grasvelli
hérlendis. Kerfi þetta er sett
upp af sænskum aðtlum. og
byggt á athugunum þeirra. Píp-
urnar eru lagöar nokkuö þétt.
og síðan er leitt i þær 35 gráðu
heitt afrennslisvatn frá heita-
veitunni. sem siöan kóinar niö-
ur í 20 gráöur i pipunum og
gefur þvi frá sér um 15 gráöu
varma. Vatnsgjöfinni er stjörn-
að meö sérstakri stjórnstöð.
•Jafnfram þessu er hægt aó
breiða plastdúk yfir völlinn
meó sérstakri tækni á 10 minút-
um og þannig hægt aó vernda
hann fyrtr rigningu og of mikl-
um þurrTsi."
Margföltl nýting
..Með þessum útbúnaði er
hægt aó halda sjö gráðu hita-
stigi i grassverðinum. þannig
að grasið tekúr vtð sér 2—3
mánuóum fyrr en við náttúru-
legar aðstæður. Hægt er að nota
völlinn frá april til október ár
hvert. i 150—200 klukkuktund-
ir. en meðalnýting venjulegra
grasvalla er um 40—50 klukku-
stundir á sumri. Auk þess verö-
ur spretta <>11 öruggari og vió-
hald minna. Þessi útbúnaður
mun kosta 6—7 miltjónir
króna. en það telst ekki mikiö
þegar þess er gætt. aö fullbúinn
mun iþróttaleikvangurinn
kosta á annað hundraö ntilljón-
ir króna. í sumar verður knatt-
sp\rnuvöllurinn tilbúinn.
sömuleiðis stökk- og hlaupa-
brautir. En það er ennþá mikil
vinna eftir við völlinn, t.d. bún-
ingsherbergi og áhorfenda-
stæði, en væntanlega kemur
það smám saman á næstu ár-
um."
Hinn glæsilegi Þinghólaskóli við Kópavogsbraut. Ljósm. Mbl. Sv.Þorm.
Hitaveitan mun spara Kópavogsbúum
tugi milljóna á hverju ári
— segir Sigurður Helgason, sem skipar efsta
sætið á lista sjálfstæðismanna í Kópavogi
„Málefnum Kópavogs hefur
almennt miðað mjög vel á kjör-
tfmabilinu, og f þremur mála-
flokkum hafa stórsigrar unnizt.
Samið var um hitaveitu f Kópa-
vog, samið um að rfkið tæki að
sér byggingu Hafnarfjarðar-
vegar í gegnum Kópavog og
menntaskóli var settur á stofn f
bænum.“ Þannig mælti Sigurð-
ur Helgason, hæstaréttarlög-
maður, efsti maður á lista
S jálfstæðisf lokksins í bæjar-
stjórnarkosningunum f vor,
þegar Mbl. bað hann að rifja
upp það markverðasta, sem
áunnizt hefur í bæjarmálum
Kópavogs á kjörtímabilinu.
Sigurður er 42 ára, lög-
fræðingur og viðskiptafræðing-
ur að mennt, og hefur verið
aðalfulltrúi f bæjarstjórn s.l. 12
ár.
Gott samstarf
„Eftir síðustu bæjarstjórnar-
kosningar mynduðu fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins meirihluta i
bæjarstjórn, og siðar gengu
Frjálslyndir og vinstrimenn
inn í samstarfið. Segja má, að
samstarfið hafi verið mjög gott
allt frá upphafi. Við völdum
Björgvin Sæmundsson sem
bæjarstjóra, og var það val að
okkar dómi hárrétt. Hann
hefur staðió sig mjög vel og
reynzt dugandi, enda með
mikla reynzlu sem bæjarstjóri á
Akranesi. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur ákveðið að styðja
hann sem bæjarstjóra næsta
kjörtimabil.“
Þrír stórsigrar
„Málefnum Kópavogs hefur
almennt miðað mjög vel á kjör-
tímabilinu, og í þremur mála-
flokkum hafa unnizt stórsigrar.
1 fyrsta lagi var samið um hita-
veitu í Kópavog og var Kópa-
vogsbær brautryðjandi annarra
sveitarfélaga i nágrenninu í
þessum efnum. Samningarnir
við Reykjavíkurborg reyndust
hagstæðari en hjá öðrum
sveitarfélögum, til dæmis erum
við þeir einu, sem fengum
eignaraðild að Hitaveitu
Reykjavíkur. Það þarf ekki að
lýsa þvi fyrir fólki í dag, hvílík-
ur sparnaður verður af þessu
fyrir íbúa Kópavogs. Má reikna
með því, að hér sé um helmings
sparnað að ræða, og hann skipt-
ir tugum ef ekki hundruðum
milljóna á ári. Hitaveituna á að
leggja í austurbæ Kópavogs á
þessu ári og í vesturbæinn á
næsta ári. Nú þegar er hitaveita
komin f um 15% húsa i bænum.
Annar stórsigurinn vannst
fyrir síðustu áramót, þegar
samið var við ríkisvaldið um að
Hafnarfjarðarvegurinn gegn-
Sigurður Helgason
um Kópavog skyldi frá áramót-
um algerlega vera á vegum
rikisins, þ.e. rikið mun sjá um
lagningu hans og vióhald.
Kópavogsbær fær í þéttbýlisfé
um 11 milljónir á þessu ári. Þá
mun rikið taka að sér að reisa
brú yfir Alfhólsveg, göngubrú
á þessu svæði, kosta göng undir
Digranesbrú og margt fleira.
Kópavogsbúar þurfa því ekki
að hafa áhyggjur af þvi, að
framkvæmdafé þeirra renni í
þessar framkvæmdir.
Þriðji stórsigurinn var svo sá,
að menntaskóli var settur á
stofn i Kópavogi 1973, og var
það mikill gleðiatburður fyrir
okkur Kópavogsbúa. Mennta-
skólinn mun örva menningarlif
bæjarins og hann verður æsku
Kópavogs vonandi til mikilla
heilla. Sérhvert bæjarfélag sem
hefur menntaskóla, hefur tæki-
færi til fjölbreyttara menn-
ingarlifs en ella.“
Önnur mál
„í flestöllum málefnum
Kópavogs hafa orðið verulegar
breytingar til hins betra, og í
sumum tilfellum má segja, að
um algjöra stefnubreytingu sé
að ræða, og mun ég hér gera
grein fyrir því helzta.
I fræðslu- og menningarmál-
um skal það helzt nefnt af
mörgum málum, að reistar hafa
verið 26 kennslustofur við
skóla bæjarins. Skólarnir eru
nú aðeins tvísetnir, og Þing-
holtsskólinn verður væntanlega
einsettur á næsta skólaári.
Skólaframkvæmdum hefur
yfirleitt lokið á áætluðum og
umsömdum tíma. enda hefur
verið lögð á það áherzla, að
verktakar standi við gerða
verksamninga. Hefur það verið
hægt vegna þess, að áætlanir
hafa verið vandaðar og kapp
lagt á, að fjármagn væri til
reiðu.
1 skipulags- og lóðamálum er
helzt að nefna, að kapp hefur
verið lagt á skipulag nýrra
íbúða- og iðnaðarhverfa. Fleiri
lóðum hefur verið úthlutað til
einstaklinga og fyrirtækja en
nokkru sinni fyrr i sögu Kópa-
vogs. Búið er að ganga frá
skipulagi nýs ibúðahverfis á
landi Ástúns og Grænuhlíðar
og tilbúið er skipulag nýs
iðnaðarhverfis við Reykjanes-
braut.
í stjórnun og fjármálum skal
það helzt nefnt, að allt stjórn-
kerfi bæjarins hefur verið
endurskipulagt. Aukinn hefur
verið tæknilegur undir-
búningur og eftirlit með fram-
kvæmdum m.a. með deilda-
skiptingu og skýrri verk-
skiptingu og rammasamningum
við ráðgjafarverkfræðinga.
Tekin hefur verið upp sam-
vinna við nágrannasveitar-
félögin, m.a. á sviði hitaveitu,
rafmagnsveitu, strætisvagna-
þjónustu og nú siðast um undir-
búning að fullkomnu holræsa-
kerfi með tilheyrandi
mengunarvörnum. Nú liggja
fyrir drög að fjármögnunar- og
framkvæmdaáætlun sex ár
fram í tímann. Greiðslustaða
bæjarsjóðs hefur gjörbreytzt til
batnaðar, lausaskuldir hafa
lækkað og langtimalán aukist.
Fyrri greiðsluerfiðleikar eru
nú óþekktir.
í félags- og íþróttamálum
skal það helzt nefnt, að stofnuð
hafa verið félagsmálaráð og
tómstundaráð er fara með þessi
mál, og mynda saman Félags-
málastofnun Kópavogs. Nýir
leikvellir hafa verið gerðir og
miklar endurbætur unnar á
þeim, sem fyrir voru. Iþrótta-
völlurinn við Vallargerði hefur
verið breikkaður og flóðlýstur,
að nokkru leyti fyrir tilstuðlan
Lionsklúbbs Kópavogs. Stór-
framkvæmdir hafa staðið yfir
við iþróttaleikvang Kópavogs,
m.a. með upphitun vallarins,
sem er algjör nýjung hér á
landi og tryggir þrefalda árlega
nýtingu miðað við aðra gras-
velli hér á landi.
í götu-. holræsa- og vatns-
veitumálum má nefna, að lögð
hefur verið olíumöl á fleiri kíló-
metra gatna en á öllum undan-
farandi kjörtimabilum til
samans. Varanlegt slitlag hefur
verið lagt á 13 kilómetra, en í
upphafi kjörtímans var slitlag
samtals 11 kílómetrar. Af þess-
um 11 kílómetrum hefur auk
þess um helmingur verið
endurbyggður algjörlega.
Byggð hafa verið þrjú safnhol-
ræsi, sem tengd eru við Foss-
vogsræsið, til þess að unnt sé að
leggja niður „yfirborðsræsi“.
Hafizt hefur verið handa um
byggingu íbúðahverfa í Foss-
vogsdal, enda Fossvogsræsið
forsenda þess. Mörg ný ræsi
hafa verið byggð og gömul
endurnýjuð. Vatnsveitukerfið
hefur verið endurbætt, þannig
að vatnsleysi, sem nánffst var
daglegt brauð áður fyrr í
sumum hverfum, tilheyrir nú
liðinni tíð. Framkvæmdir við
nýja aðfærsluæð eru hafnar, en
hún mun liggja úr Blesugróf og
eftir Nýbýlavegi endilöngum.
Þegar er tilbúinn sá hluti æðar-
innar, sem liggur i gegnum
Efstalandshverfi."
Uppbygging
midbæjarins
„Að lokum vil ég benda á, að
nú stendur til uppbygging mið-
bæjar Kópavogs, en þar er um
algjöra nýjung i skipulagsmál-
um að ræða, sem mun vekja
mikla athygli. Þrir áfangar eru
nú i byggingu, og á fram-
kvæmdum að ljúka árið 1976.
Mun miðbærinn þá hafa fengið
á sig nokkra framtíðarmynd.
Þar er gert ráð fyrir ibúðar-
hverfum, verzlunarmiðstöðvum
og ýmislegri félagsmálastarf-
semi, bæði fyrir unga og aldna.
Kostnaður við miðbæinn
greiðist af byggjendum, en
Kópavogskaupstaður mun ekki
bera kostnað af.
Það eri von min, að á næsta
kjörtimabili muni Kópavogs-
búar sjá þær fjölmörgu fram-
kvæmdir, sem unnið verður að,
verða að veruleika, og að okkur
muni takast að gera bæjarfélag
okkar fallegra og byggilegra,
eins og reyndin hefur verið á
siðasta kjörtimabili."