Morgunblaðið - 22.05.1974, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUÐAGUR 22. MÁt 1974
STAKSTEINAR
® 22*0*22*
RAUOARÁRSTÍG 31
V_____—I------
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
LOFTLEIÐIR
TEL. 14444 • 25555
Sama gamla
samstaðan
Fyrir réttum fjórum árum
sátu frambjóðendur vinstri
flokkanna til borgarstjórnar
Reykjavíkur fyrir framan sjón-
varpsvélarnar, rétt eins og sl.
sunnudag. Þá kepptust þeir við
að gefa yfirlýsingar um, að ekk-
ert yrði þeim auðveldara en að
vinna sem ein heild að kosning-
um loknum, nákvæmlega eins
og sl. sunnudag. Þeir reyna af
ofurkappi nú eins og þá að telja
kjósendum ( Reykjavfk trú um,
að þeir geti unnið saman að
málefnum borgarinnar.
Hver er svo reynslan af sam-
vinnu þessara flokka? Ekki
þarf að f jölyrða um, hvernig til
hefur tekizt á sviði landsmál-
anna. Það vita allir. I borgar-
stjórninni hefur reynslan ekki
orðið betri. Eitt af fyrstu verk-
efnum nýkjörinnar borgar-
stjórnar á sfðasta kjörtfmabili
var að kjósa f nefndir og ráð á
vegum borgarinnar. Þá kom
fVrst í ljós, hver samstaðan var,
nokkrum dögum eftir að hinar
fögru yfirlýsingar höfðu verið
gefnar á sjónvarpsskerminum.
Er skemmst frá þvf að segja, að
ekki náðist nein samstaða.
Bókanir og brigzlyrði gengu á
vfxl við það tækifæri, eins og
Birgir Isleifur Gunnarsson
borgarstjóri rakti f sjónvarps-
þættinum sl. sunnudag.
Og þannig hefur samvinnan
gengið áfram á umliðnu kjör-
tfmabili. Þegar menn fóru að
hugsa til þeirra kosninga, sem
nú standa fyrir dyrum, datt
vinstri mönnunum f hug, að
vert væri að reyna sameiginlegt
framboð. Hefði þetta átt að
reynast auðvelt, ef samstaðan
var sifk, sem lýst var. Engin
samstaða náðist.
Næst varð það fyrir að reyna
að sameinast um borgarstjóra-
efni. Engin samstaða náðist. t
kosningablaði, sem jafnaðar-
menn gáfu út nú fyrir
skemmstu, var harðlega mót-
mælt skoðun, sem fram hefur
komið meðal framsóknar-
manna um, að Guðmundur G.
Þörarinsson væri borgarstjóra-
efni vinstri flokkanna. Var
sagt, að slfkt gæti alls ekki orð-
ið, þvf að allir minnihluta-
flokkarnir hefðu staðið að til-
lögu f borgarstjórn 2. maf sl.
um, að ráðinn skyldi maður f
stöðu borgarstjóra, sem ekki
væri borgarfulitrúi. Klykkt var
út með þvf, að sá maður myndi
alls ekki verða Guðmundur G.
Þórarinsson, þó að hann næði
ekki kjöri.
Þá minnast menn þess, sem
horfðu á framboðsfund f sjón-
varpssal sl. sunnudag, að Fram-
sókn hældi sér af að hafa verið
forystuffokkur vinstri sam-
vinnunnar f borgarstjórn sfð-
asta kjörtfmabil. Hvatti hún
kjósendur tii að tryggja, að svo
yrði áfram.
Talsmenn Alþýðubandalags-
ins töldu f þessum sama þætti,
að þeir væru útvaldir til að
veita hjörðinni forystu og
frambjóðendur jafnaðarmanna
töldu einsýnt, að nú þyrfti
kjósendur að efla hið nýja sam-
einaða framboð hinna einu
sönnu krata til forystunnar á
vinstri vængnum. Loks komu
kappar Bjarna Guðnasonar upp
og voru drjúgir með sig. Vör-
uðu þeir kjósendur við að kjósa
gömfu vinstri flokkana, sem
væru staðnaðir og vondir
ffokkar, sem ekki væri
treystandi til góðra verka.
„Gerum
ekkert stórt”
Allir geta séð, hvert myndi
stefna, ef sú ógæfa dyndi yfir
Reykjavfk, að allir þessir
miklu forystuflokkar fengju
aðstöðu til að halda um stjórn-
völ borgarinnar. Hreint æði
hrossakaupa myndi grfpa um
sig. Reykvfskir kjósendur
munu sjá um, að slfkt gerist
ekki. Þeir munu sjá svo um, að
hið nýja kosningaslagorð
vinstri manna, sem hraut af
vörum Steingrfms Hermanns-
sonar ritara Framsóknarflokks-
ins f útvarpsviðtali f fyrra-
kvöld, verði að veruleika:
„Ætli að við gerum nokkuð
stórt.“ Vinstri flokkarnir munu
ekki gera neitt stórt f þeim
borgarstjórnarkosningum, sem
fram undan eru. Kjósendur eru
orðnir langeygir eftir tækifær-
inu til að veita þeim þá ráðn-
ingu, sem þeir munu muna
eftir.
BlLALEIGA CAR RENTAL
SENDUM
18
27060
ÁLfNAÐ ER VERK
ÞÁ HAFIÐ ER
^ SAMVINNUBANKINN
SKOZK KONA
með margþætta reynslu sem
einkaritari, við sjálfstæðar enskar
bréfaskriftir og einnig skýrsluvélar,
óskar eftir skrifstofustarfi. Uppl. í
síma 52892.
2JA HERB. RISÍBÚÐ
á góðum stað i Austurbænum til
leigu frá 1. júnl n.k. Fyrirfram-
greiðsla óskast. Tilboð sendist á
afgr. Mbl. fyrir 29. þ.m. merkt:
„Risíbúð —- 1291"
KEFLAVÍK
Til sölu nýtt raðhús ásamt bílskúr.
Uppl. i sima 2979 eftir kl. 5.
CITROEN GS ' 71
til sölu og sýnis i dag.
Glóbus h/f
Lágmúla 5
Sími 81555
SUMARBÚSTAOARLÓO
við Þrastarlund i Grímsnesi til
sölu. Teikning fylgir.
Eignaþjónustan,
Njálsgötu 23,
sími 26650.
VERZLUN VIÐ LAUGA-
VEG
til sölu.
Eignaþjónustan,
Njálsgötu 23,
simi 26650.
Sandgerði
Til sölu litið vel með farið einbýlis-
hús. Hagstætt verð og greiðslu-
skilm.
FASTEIGNASALAN
Hafnargötu 27,
Keflavik. Sími 1420.
SUMARBÚSTAÐALAND
VIÐ KRÓKATJÖRN
í Mosfellssveit til sölu. Teikning
fýlgir.
Eignaþjónustan,
Njálsgötu 23,
sími 26650.
Borgarstjóri svarar...
Til kjördags svarar
borgarstjórinn í
Reykjavík fyrirspurn-
um borgarbúa um mál-
efni Reykjavíkur.
Lesendur Mbl. eru
hvattir til að hringja í
síma 10100 kl. 10-11
fyrir hádegi.
Opið svæði
Frfða Gísladóttir, Bakkagerði
19, spyr:
„1. Hvenær verður opna svæðið
á gatnamótum Grensásvegar og
Hæðargarðs tekið til ræktunar og
snyrtingar eins og svo víða hefur
verið gert hér í borginni.
Önnur spurning fjallar um
nauðsyn gangstíganna og er þar
fyrst að nefna gangstíg — með
barnavagnabreidd að sjáifsögðu
— milli Bakkagerðis og Steina-
gerðis. — 2. Ár eftir ár hefur
okkur verið lofað, að gangstígar,
sem nú liggja milli Teigagerðis og
hitaveitustokksins og Bakkagerð-
is og Stokksins, verði malbikaðir.
Þurfum við enn að bíða í mörg ár
spyr ég að lokum?“
Svar borgarstjóra:
„1. Umrætt svæði hefir ekki
verið ræktað vegna athugana
skipulagsins um hagnýtingu
svæðisins sem byggingareits.
Fljótlega mun verða tekin ákvörð-
un um nýtingu svæðisins og verð-
ur því frágangur þess að bíða
þeirrar ákvörðunar.
2. Umræddir gangstfgar eru á
framkvæmdaáætlun í sumar.“
Skjólveggur
Guðrún Þórðardóttir, Hraun-
bæ 114, spyr:
„Hvernig stendur á því, að
ekki hefur verið hægt að fá
skjólvegg við efri gæzluvöllinn
í Rofabæ?“
Borgarstjóri svarar:
„Skjólveggir voru settir við
gæzluvöllinn strax er hann var
í byggingu, en voru fjarlægðir
vegna kröfu frá íbúum í nær-
liggjandi íbúðum, er töldu þá
skyggja á útsýni."
Tengibygging
Rigmor Magnússon, Austur-
brún 35, spyr:
„Teiknuð var upphaflega
tengibygging milli húsa í
Laugalækjarskóla. Enn hefur
þessi tengibygging ekki verið
reist. Hvenær er útlit fyrir, að
það verði?“
Borgarstjóri, svarar:
„Vegna samþykktar hinna
nýju fræðslulaga um skiptingu
skólastiga milli grunnskóla og
framhaldsskóla verður að taka
til endurskoðunar hvernig skól-
ar í eldri borgarhverfum verða
nýttir. Þetta mun leiða til þess
að endurskoða verður einnig
hugmyndir um stækkun skóla
og teikningar að viðbyggingum
út frá því, hvoru þessu hlut-
verki þeir eigi að þjóna og
hvernig. Þetta snertir einnig
Laugalækjarskólann og hefur
því ekki ennþá verið tekin
ákvörðun um, hvenær ráðist
verði í þær byggingarfram-
kvæmdir sem um er spurt.“
Uthlutun lóða
Óiafur Thoroddsen, Arnar-
hrauni 20, Hafnarfirði:
„Hverjar reglur gilda um út-
hlutun lóða og byggingarleyfa,
einbýlishús, raðhús og fjöl-
býlishús að hluta?
Nú eru jafnan birt nöfn
þeirra manna, sem hlotið hafa
lóðir o.s.frv. Mælti nokkuð á
móti því að birta nöfn allra
umsækjenda?
Skattskrá, þingiýsingabækur
og jafnvel skuldir opinberra
gjaida eru opinber gögn. Væri
nokkur goðgá að birta helztu
upplýsingar um umsækjendur,
svo sem opinber gjöld, fjöl-
skyldustærð o.s.frv.
Gæti ekki þetta fyrirkomulag
kveðið niður alls konar sögu-
sagnir?"
Borgarstjóri svarar:
„í stuttu máli eru viðmið-
unarreglur þær, að umsækj-
andi þarf að hafa átt samfellda
búsetu í 5 ár fyrir úthlutun og
að öðru jöfnu ganga þeir fyrir,
sem ekki hafa fengið úthlutun
á lóð áður, eða a.m.k. 5 ár, að
því er varðar úthlutun á aðild
að fjölbýlislóó, en 10 ár að því
er varðar úthlutun á raðhúsi
eða einbýlishúsi. Þá er gerð sú
krafa, að umsækjandi sé skuld-
laus við borgarsjóð (Gjald-
heimtuna) og umsækjandi þarf
að sýna fram á, að hann geti
fjármagnað bygginguna. Að
sjálfsögðu er einnig litið til ým-
issa annarra atriða, s.s. fjöl-
skyldustærðar og húsnæðis-
mála umsækjanda.
Nöfn þeirra, sem fá úthlutun
á lóðum, eru ekki birt á vegum
Reykjavíkurborgar, en hins
vegar skráð f fundargerð borg-
arráðs, sem send er f jölmiðlum.
Ég tel ekki, að Reykjavíkur-
borg eigi að hafa frumkvæðí að
þvi að birta þær upplýsingar
um umsækjendur, sem fyrir-
spyrjandi nefnir. Þar sem þetta
eru hins vegar opinber gögn
geta þeir, sem áhuga hafa,
kynnt sér þau, og fjölmiðlar
gætu eflaust birt þau, ef þeir
teldu það hafa fréttagildi."
Gamall húshjall
Erna Sigurjónsdóttir, Sörla-
skjóli 82, R.
„Við Sörlaskjól, á svæðinu
sunnan megin götunnar, hafa
til skamms tíma staðið tveir
gamlir húshjallar. Nú hefur
annar þeirra verið fjarlægður,
en hinn stendur eftir. Hvenær
verður hann f jarlægður?"
Borgarstjóri svarar:
„Nú er verið að ganga frá
samningum við eigendur og
leigutaka skúrsins, sem eftir
stendur, um að rýma allt það,
sem f honum er. Verður skúr-
inn að því loknu tafarlaust rif-
inn.“
Laugarnessóknar
Kaffisala
Kaffisala Kvenfélags Laugar-
nessóknar verður á uppstign-
ingardag, og eins og um mörg
undanfarin ár í Veitingahúsinu
við Borgartún 32, sem áður hét
Klúbburinn. Hún hefst klukk-
an 3 að' lokinni guðsþjónustu f
Laugarneskirkju, þar sem séra
Guðjón Guðjónsson æskulýðs-
fulltrúi þjóðkirkjunnar mun
predika.
Eitt það dýrmætasta, sem
nokkur kynslóð á, eru óeigin-
gjarnar hugsjónir, og einbeitni
og festa til að koma þeim fram.
í þeim anda hefur Kvenfélag
Laugarnessóknar unnið í 33 ár,
eða frá þvf það var stofnað. Það
ásamt hinum safnaðarfélög-
unum á við mjög óf ullnægjandi
Kvenfélags
og takmarkað húsnæði að búa í
kjalíara kirkjunnar. Allur
ágóði kaffisölunnar í ár rennur,
eins og undanfarin ár, í
safnaðarheimilissjóð. Það er
erfitt að koma þessu máli fram.
Ymsir erfiðleikar.
Mér dettur í því sambandi f
hug mynd úr bæjarlífinu hér
frá bernskuárum mínum. Þá
gekk Hjálpræðisherinn hér
stundum um göturnar með
lúðrablæstri og söng, jafnvel
upp Bakarabrekkuna, eins og
við kölluðum Bankastræti. Þá
stóðum við strákarnir á gang-
stéttinni og hlógum að því,
hvað fólkið átti erfitt með að
syngja á göngunni upp í móti
vegna andþrengsla.
Ég hefi blygðast mín fyrir
þann hlátur síðar, þvf hvað
sungu þau? Þau sungu:
„Aldrei gefast upp, nei, nei
gefast upp nei nei.“
Þetta er ein mesta speki, sem
er til.
Það er í þessum anda, sem
Kvenfélag Laugarnessóknar
vinnur að sínum óeigingjörnu
hugsjónum, bæði til að líkna og
til að lyfta á þeirri þjóðlífs-
braut, sem á að liggja upp á við.
Ég hvet alla til að styrkja
konurnar í óeigingjörnu starfi
þeirra með því að líta inn í
Veitingahúsið við Borgartún
einhvern tfma milli 3 og 6 á
uppstigningardag. Þar bíður
fagurt og lokkandi hlaðborð og
ilmandi kaffi. Þar verður líka
eitthvað fyrir börnin, sem
koma með foreldrum sfnum,
svolítið leikfangahappdrætti,
þar sem allir fá eitthvað — eng-
in núll. Þar verður lágvær
hljómlist eins og fjarlægur
undirdraumur og kvenfélags-
konur ganga um beina og reyna
að láta öllum líða vel. tJtsýnið
yfir sundin, viðmótið, „stemn-
ingin“. Allt á þetta að hjálpast
að til að gera gestunum stund-
ina sem ánægjulegasta.
Velkomin öll í Veitingahúsið
við Borgartún á uppstigningar-
dag.
Garðar Svavarsson.
mmmB:
ft li •►ÍMI1 ■ *■+
♦ «<* **