Morgunblaðið - 22.05.1974, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.05.1974, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAl 1974 21 Nú er spurt um Þórð Breið- fjörð á mannkynssöguprófi SLAGURINN stendur um að Davið nái inn, segja bjartsýnismennirnir. Davíð Oddsson vill aftur á móti meina, að meginmarkmiðið í borgar stjórnarkosningunum um næstu helgi sé, að Sjálfstæðisflokkurinn fái átta menn kjörna og meirihluti hans haldi velli. Allt annað sér óvarleg bjartsýni, en ekki þar fyrir — það væri sætur sigur, ef hann sem níundi maður næði kjöri, þar eð slíkt væri ótviræð traustsyfirlýsing á forustu Sjálfstæðisflokksins i borgarmálefn- um. Með Davíð Oddssyni i borgar- stjórn eignaðist unga kynslóðin vissulega sérstæðan fulltrúa, sem sett gæti svip sinn á þá samkundu, fulltrúa, er þekkir þarfir og óskir ungs fólks betur en hinir, nú eiga einhverja möguleika á því að ná kjöri til borgarstjórnar — aðeins 26 ára að aldri. j fari hans má finna ýmis sérkenni, sem telja má samnefnara fyrir ungt fólk á okkar dögum, þvi að þó hann hafi brennandi áhuga á alvörumálunum, tekur hann á þeim af hæfulegu alvöruleysi. Hann er orðlagður imbabrandarasmiður og ber ábyrgð á ýmsum furðulegum uppvakningum og persónugerving- um, sem siglt hafa Ijósum logum á öldum Ijóvakans ( eins og útvarp heitir á finu máli) undanfarin miss- eri. Það er litil hætta á lognmollu þar sem Dvaið Oddsson fer. Fæddur er frambjóðandinn i Reykja- vik árið 1948 og eru foreldrar hans Ingibjörg Lúðviksdóttir og Oddur Ólafsson. Aftur á móti hafði hann tæp- ast barið umheiminn augum i fyrsta smn, en hann var borinn út i bifreið og ekið til Selfoss, þar sem hann ólst upp i húsi afa sins til 5 ára aldurs. Þá hafði hann búsetuskipti á ný og hélt til höfuðstaðarins. Hér hefur hann búið á ýmsum stöðum, aðallega þó i vestur- bænum hin siðari ár. Leið hans lá um menntaveginn; hann settist í Mennta- skólann i Reykjavik og fékk hvíta húfu 19 70 en síðan tók lagadeild Háskóla islands við. „Laganámið verður vist að teljast mitt aðalstarf um þessar mundir, en með námi og inn á milli hef ég fengizt við störf af ýmsu tagi," segir Davíð. Hann býr nú að Lynghaga 20 i Reykja- vík ásamt eiginkonu sinni, Ástríði Thorarensen, og 2ja og 'h árs syni þeirra. Þorsteini Davíð hóf afskipti af félagsmálum i menntaskólanum, fyrst var hann for- maður Herranætur og siðasta árið i skólanum var hann kjörinn Inspector Scolae. í formannstið Daviðs varð Bubbi kóngur fyrir valinu sem verkefni Herranætur, viðfrægur franskur fram- úrstefnuleikur, og vakti sýning mennt- skælinga töluverða athygli. Þeir nutu þar leikstjórnar Sveins Einarssonar og varð það upphafið að frekari samskipt- um Sveins og Daviðs. í þessari sýn- ingu fór Davið sjálfur með hlutverk Bubba og allt síðan hefur búið heilmik- ill „bubbi" i honum, þvi að aldrei hefur hann alveg losnað við kimni fáránleik- ans, eins og hún birtist í þessum leik. Leiklistin hefur líka grafið um sig i huga Daviðs „Ég hef ætlðverið dálltið veikur fyrir leikhúsi," segir hann. „Til að mynda var ég um tveggja ára skeið i leikskóla Ævars Kvaran og önnur tvö ár að loknu stúdentsprófi var ég leikhús- ritari hjá Leikfélagi Reykjavikur — hinn fyrstí og eini, sem þvi starfi hefur gegnt." Tildrögin voru þau, að Sveinn Einarsson, þáverandi leikhússtjóri, þurfti að dveljast langdvölum erlendis og var Davið ráðinn til að leysa af hendi hluta af störfum Sveins „í leikhúsritarastarfinu fólgst allt frá þvi að vera dálitill partur af leikhús- stjóra niður i sendilstörf Á þessum tíma átti ég lika sæti i leikhúsráði LR sem áheyrnarfulltrúi og kynntist þar vel hvernig leikhúsrekstur fer fram. Á tímabili hafði ég lika töluverðan hug á að önnur vikan entist okkur fyrir Matthildarskrifin og þar sem við vild- um nota timann, fórum við að skri.fa niður ýmislegt hina vikuna líka og þannig varð „Ég vil auðga mitt land" til. Markmið okkar var að semja gamanleikit, nú og ég hef sjálfur orðið var við það á sýningum Þjóðleikhúss- ins, að fólkið veltist um af hlátri, þann- ig að takmarkinu er náð, hvað svo sem menn kunna að segja um vöntun á boðskap." Þórður Breiðfjörð er auðvitað einnig höfuðpaurinn i leikritinu Hann kom fyrir strax í fyrsta þætti Matthildar en hefur siðan allur verið að færast i aukana. svo að undir lokin hefur hann að mestu þokað þeim þremenningum til hliðar. Margt er þó á huldu um þennan ágæta mann, Hann borgar enga skatta, hefur raunar engan fastan aðseturstað, þannig að allar greiðslur STERS til hans eru enn þann dag í dag sendar til Daviðs. Davið upplýsir hins vegar, að menn viti hvernig hann liti út „Hann lét nefnilega eitt sinn birta mynd af sér i Eimreiðinni ásamt nokkr- um frumsömdum Ijóðum," segir Davið. „Raunar skrifaði hann þá undir dul- nefninu Gunnlaugur Sveinsson og var anzi afkastamikið Ijóðskáld á siðum bókmenntablaða fyrir um sex árum. begar Ijóð hans voru tekin til birtingar i Eimreiðinni, var farið fram á að fá mynd af höfundi með Við vinir hans lentum sannast sagna i töluverðum vandræðum með að útvega þessa mynd, þvi að Þórður Breiðfjörð alias Gunnlaugur Sveinsson var á þessum tima við nám i Paris. En myndin kom um siðir og þetta reyndist hinn myndarlegasti maður." En verður framhald af Matthildi? Rabbað við Davíð Oddsson, níunda mann á lista Sjálfstæðisflokksins að leggja leiklistina eða leikhúsfræði fyrir mig, en ég var samt ekki viss um, að ég hefði stórkostlega hæfileika i þá átt og þorði þess vegna ekki að slá til." Um þetta leyti var Davið kominn í samband við Útvarp Matthildi. Að- standendur hennar — Davíð, Hrafn Gunnlaugsson og Þórarinn Eldjárn — voru gamlir kunningjar, leiðir þeirra höfðu legið saman þegar i Hagaskóla og vínáttan eflzt i menntaskóla, ekki sizt vegna afskipta þeirra allra af Bubba kóngi Þar sameinuðust kraftar þeirra Davíð var í aðalhlutverkinu, Hrafn lagði til og flutti Skraparótsprédikun en Þór- arinn samdi söngtexta Af þeim skal frægan telja Guðjón bak við tjöldin, sem von bráðar varð eins konar and- legur likamningur innan veggja menntaskólans og reið þar húsum lengi á eftir Má kannski líta á hann sem fyrirrennara Þórðar Breiðfjörð. „Guðjón náði þó aldrei sömu frægð og Þórður," segir Davið „Ég hef nefni- lega haft nýlegar fregnir af þvi, að nafn Þórðar sé komið á spjöld mannkyns- sögunnar, alltént var spurt um það á landsprófi i Borgarnesi hver væri Þórð- ur Breiðfjörð Á þessu sama prófi var spurt um ýmsa aðra merkismenn, eins og Sigurð Lindal og Gunnar Guðbjarts- son en langflestir vissu einhver deili á Þórði. Að vísu taldi einn, að Þórður væri rektor og annar staðhæfði, að hann væri merkur stjórnmálamaður, en engu að siður var útkoman mjög hagstæð fyrir Þórð." Annars hóf Utvarp Matthildur göngu sina árið 1970 Þeir Davið og Hrafn höfðu þá nokkrum árum áður verið með þátt i útvarpinu — i gamni og alvöru — og nefndist fyrsti þáttur- inn Drykklöng stund. Vakti sá þáttur hneykslan margra hlustenda, svo að ekki linnti tilskrifum i lesendadálka dagblaðanna. Umsjónarmenn voru undantekningarlitið taldir klepptækir „Uppátækin i þessum þætti voru þó meinlaus móts við það, sem siðar varð í Matthildi, fólkið var hins vegar öllu óvanara slikum útursnúningum," segir Davið Davið segir, að formúlan að Matt- hildi hafi verið einföld Þátturinn var byggður upp sem annáll hálfs mánað- ar, skreyttur með fréttalestri, fréttaauk- um, viðtölum og dagskrárbútum „Fyrst i stað unnum við þessa þætti saman heima hjá einhverjum okkar," segir Davíð, „en siðar fengum við inni í Þrúðvangi hjá Guðna Guðmundssym, rektor Við vildum þá taka upp skipu- leg vinnubrögð, enda var þá farið að borga okkur betur fyrir Matthildi held- ur en i fyrstu. Þarna mættum við kl 9 á morgnana og vorum við þetta öllum stundum Hins vegar fór fljótlega svo, „Nei, ég er hálfhræddur um að hún verði ekki vakin upp. okkur finnst kom- ið nóg af henni i bili. En strákarnir, Hrafn og Þórarinn, koma báðir heim i sumar að utan frá námi og þá getur vel farið svo, að við tökum okkur eitthvað annað fyrir hendur," segir Davið Davið hefur einnig verið viðriðinn þriðja ieikhúsið hér i höfuðborginni, eins og einn varaþingmaðurinn kallaði Alþingi íslendinga á dög- unum. „Já, ég hef um skeið verið þing- fréttaritari fyrir Morgunblaðið, jú og það er býsna stórt stökk frá hinum leikhúsunum fyir i hið háa Alþingi. Þingfréttamennskan getur oft verið erfið; ég hef einkum verið við þetta á vorin, þegar allt er þar á fleygiferð og menn keppast um að afgreiða mál fyrir þinglok. Á ýmsan hátt er þá erfiðara að vera þmgfréttarit- ari Morgunblaðsins heldur en annarra blaða vegna þeirrar stefnu, að sagt skuli frá ræðum annarra þingmanna en aðeins Sjálfstæðisflokksins, einkum þegar merkileg mál eru til afgreiðslu i deildunum báðum. Annars er mjög fróðlegt að fylgjast með störfum Al- þingis, og sá háttur er hafður á, að þingfréttaritari Morgunblaðsins situr einnig þingflokksfundi Sjálfstæðis- flokksins, þannig að'hann sér hvernig málin verða til frá byrjun og hvernig afstaða til einstakra mála þróast Það sem maður sér frá þmgpöllunum, er aðeins yzta hlið á störfum Alþingis. þvi að margar helztu ákvarðanirnar e:u teknar á þingflokksfundunum og i hlið- arherbergjum þingsins Nú. ég hef einnig átt þess kost að fylgjast með Alþingi sem hlutlaus aðili, þvi að um tima annaðist ég Þingsjá útvarpsins. og þá setti maður sig i töluvert aðrar stellingar heldur en sem pólitiskur fréttaritari." Davið segist vera þeirrar skoðunar, að útvarp og þó kannski enn frekar sjónvarp eigi að geta flutt mun liflegri fréttir af störfum þingsins. „Slikt gæti jafnvel orðið til þess að aga þingmenn- ina enn frekar," segir Davið. „Menn sáu það bezt, þegar sjónvarpað var frá þingrofsmálinu og sjónvarpsmenn höfðu kveikt á Ijóskösturum sinum, þá þustu þingmenn í salinn og voru önn- um kafnir við skriftir allan tímann sem sjónvarpað var. jafnvel þótt smámál væru rædd mn á milli. Alla jafnan eru þingsalir nánast auðir við slík tækifæri. Þingmenn kynnu þá lika að flytja mál sitt betur, þvi að sannast sagna flytja sumir þeirra mjög óvandaðar ræður bæði hvað orðfar og efni snertir." Annars er ekki ýkja langt siðan Davið fór að láta stjórnmál eitthvað til sin taka Hann fór þó senmma að starfa með Vöku — félagi lýðræðissinna i Háskólanum — og telur. að stjórn- málaátökin þar hafi orðið til þess að ýta honum út i stjórnmálaþátttöku innan Sjálfstæðisflokksins. „Ég hef að visu alltaf verið tengdur sjálfstæðisstefn- unni og fundið sjálfan mig i henni, en það eru varla nema tvö ár frá þvi að ég fór að blanda mér i starf samtaka ungra sjálfstæðismanna Áhugamál mín voru framan af allt önnur," segir hann. Metnaðardraumar Daviðs á stjórn- málasviðinu eru hógværir. „Enn er mjög fjarri mér löngunin að gera pólitik að ævistarfi," segir hann. „Ég held, að maðurhljótiað fara á mis við mjög margt annað ef maður leggur hana fyrir sig Mér virðist, að þeir, sem fara út i pólitik, hafi tilhneigingu til að einangrast dálitið, verði allt aðrir menn en þeir eru i raun og veru vegna þess, að þeir þurfa stöðugt að vera að skapa sér enhverja persónuimynd út á við Mér finnst stundum sem þeir tapi á einhvern hátt af sjálfum sér. og fólk er stöðugt á varðbergi gagnvart þeim Til eru þó ýmsir mætir menn, sem komizt hafa klakklaust i gegnum þetta og tekizt að halda sinum sérkennum " Davið hefur þó sín hugsjónamál hvað borgina áhrærir. Hann kveðst t.d hafa mikinn áhuga á menningarmálum, sem hann telur að borgin hafi rækt vel á liðnum misserum. Að sjálfsögðu er Davið einlægur stuðningsmaður borgarleikhúss en telur þó, að allur rekstur þess eigi eftir sem áður að vera sem mest i höndum Leikfélags Roykja- vikur, einkanlega þó hvað alla listræna mótun leikhússins varðar. Fulltrúar til- nefndir af borginni eigi þar að hafa sem minnsta beina ihlutun Þá gælir hann einnig við þá hugmynd, að gamla Grjótaþorpið verið byggt upp og þar sköpuð aðstaða til ýmiss konar listarstarfsemi og reynt verði að lifga upp á starfserru Árbæjarsafnsins með höggmyndasýningum utan húss eða tilraunaleiksýningum undir beru lofti. Þá telur hann ekki óeðlilegt, að nágrannasveitarfélögin taki á sig ein- hvern kostnað vegna menningarstarf- semi í Reykjavik. þar eð ibúar þeirra njóti hennar engu síður en Reykviking- ar Þá segist Davið þeirrar skoðunar, að ungt fólk eigi að geta valið hvar það kýs að búa i borginni, þ.e.a.s.. að lánsfjárfyrirgreiðslu sé ekkiallri beint til nýbygginga í nýjum hverfum heldur eigi það þess kost að fá sömu fyrir- greiðslu til kaupa á ibúðum i eldri borgarhverfum, eins og t d vestur- bænum Kveðst hann vita til þess, að fjöldi ungs fólks hafi mikinn hug á að eignast þar bústað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.