Morgunblaðið - 22.05.1974, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAl 1974
19
Margrét Einarsdóttir:
Heilsugæzlustöðvar 1 úthverfum
EFTIR að ég gaf kost á mér til
framboðs á lista Sjálfstæðis-
flokksins nú fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar sem fram fara n.k.
sunnudag, hefur ekki farið hjá
því að ýmsir hafa komið að máli
við mig og innt mig eftir því
hvaða málaflokki ég myndi nú
helst vilja beita mér fyrir, fengi
til þess nægilega aðstöðu.
Það fer fyrir mér eins og
sjálfsagt mörgu öðru ungu
fólki sem er að hefja
sinn stjórnmálaferil að við
slíkum spurningum reynist
stundum erfitt að gefa viðhlítandi
svör því af mörgu er að taka. Einn
af þeim málaflokkum sem mér er
þó all ofarlega í huga eru heil-
brigðismál. Sem ung móðir í einu
af úthverfum Reykjavíkur hef ég
á undanförnum árum gert mér í
auknum mæli grein fyrir nauðsyn
þess að auka þarf heimilislækna-
þjónustu borgarinnar og um leið
skapa þá aðstöðu sem laðað getur
heimilislækna til starfa. Sjálf-
stæðismenn hafa sýnt þessum
málum mikinn skilning og nú er í
uppsiglingu heilsugæzlustöð í
Breiðholti og fyrirhugaðar eru
slíkar læknamiðstöðvar viðs
Það væri vissulega unnt að
nefna mörg fleiri dæmi því til
sönnunar að nauðsynlegt er að
hraða uppbyggingu heilsugæzlu-
stöðva víðs vegar um borgina, en
ég mun láta þetta nægja að sinni.
Undir forustu sjálfstæðis-
manna hefur margt áunnist á
sviði heilbrigðismála hér í
Reykjavík á undanförnum árum
og vil ég þar m.a. benda á það
mikla átak sem gert hefur verið á
sviði heilbrigðiseftirlits, en þar
hefur fræðsla og áróðursstarf-
semi verið stórbætt og aukin.
Starf skólatannlækna hefur
verið aukið þannig að tann-
læknum hefur verið fjölgað og
aðstöðu verið komið fyrir í fleiri
skólum en áður. Þessi þjónusta er
afar mikilvæg þegar tekið er tillit
til þess hve tannviðgerðir barna
hafa i mörgum tilvikum reynst
þungur baggi barnmörgum fjöl-
skyldum.
Sjálfstæðismenn hafa ávallt
beitt sér fyrir framförum og
framgangi allra þeirra mála er
varða mannleg samskipti. Eini
liðurinn í þeirri stefnu sjálf-
stæðismanna til að auka á vel-
líðan borgaranna er hin margum
rædda „græna bylting". Sú við-
leitni sem þar kemur fram til þess
að bæta og græða hin ýmsu auðu
svæði í borgarlandinu er ekki ein-
göngu umhverfisvernd heldur að
vissu leyti framlag til heilbrigðis-
mála, því víða eru sár sem þarf að
græða og hver vill ekki vinna að
ryklausri borg. Auk þess sem hin
fyrirhuguðu útivistarsvæði skapa
aðstöðu til hollra tómstunda-
iðkana í fögru umhverfi. Frum-
kvæði borgarstjóra, Birgis ísl.
Gunnarssonar, í þessu máli sem
og mörgum öðrum er til sóma.
Fyrir tilstuðlan hans liggur nú
fyrir vandlega unnin áætlun um
umhverfi og útivist. Þessi áætlun
miðar að því að græða útivistar-
svæðin og gera þau aðgengileg og
aðlaðandi fyrir fólk á öllum aldri.
Reykvíkingar munu sýna það
í borgarstjórnarkosningunum
næstkomandi sunnudag að þeir
kunna að meta stefnu sjálfstæðis-
flokksins í borgarmálum þar sem
velferð og öryggi íbúanna frá
vöggu til grafar hefur ávallt setið
i fyrirrúmi.
Margrét S. Einarsdóttir.
vegar um borgina. Tilkoma slíkra
læknamiðstöðva sem væntanlega
yrðu hannaðar í fullu samráði við
heimilislækna myndi bæta veru-
lega aðstöðu þeirra sem að heil-
brigðismálum starfa og það sem
ekki er minna um vert auka á
öryggi og þjónustu við borgarana.
I slíkum heilsugæzlustöðvum sem
staðsettar yrðu í hinum ýmsu
hverfum borgarinnar væri unnt
að sjá viðkomandi hverfi fyrir
heilsugæzlu allan sólarhringinn.
Einnig má gera ráð fyrir að innan
veggja slíkra stofnana myndi
skapast aðstaða fyrir ítök hverfis-
búa með félagslega samhjálp I
huga. Frá þessum stofnunum
mætti skipuleggja í samráði við
heimilislækna aðstoð við aldraða
sem dvelja í heimahúsum, en
þurfa aðhlynningu á ýmsan hátt,
einnig aðstoð við drykkjusjúka,
svo nokkuð sé nefnt. Þá mætti
einnig skipuleggja og starfrækja
fræðslu í heilbrigðismálum fyrir
ungt fólk. Heilsuverndarstarf-
semi, svo sem varnir gegn sjúk-
dómum og ýmsar leiðbeiningar i
þeim efnum, þarf að auka til
muna þó mikið hafi áunnist í
þæim málum. Slík fyrirbyggjandi
starfsemi innan veggja vel starf-
ræktra heilsugæzlustöðva sam-
fara skipulögðum rannsóknum
gæti bætt verulega aðstöðu
sjúkrahúsanna.
Guðmundur Hallvarðsson:
Kjósum festu og ör-
yggi í borgarstjórn
Þess vegna kýs ég D-listann
Vegna komandi borgarstjórnar-
kosninga, þegar þú, kjósandi góð-
ur, gengur að kjörborðinu þann
26. maí n.k., er rétt að Iáta hugann
reika aftur til liðins tima. Sjáðu
þá festu og einurð sem rikt hefur
i stjórn borgarmála Reykjavikur
undir forystu sjálfstæðismanna i
áraraðir. Þar hefur ríkt víðsýni og
forsjá. Má i þvi sambandi t.d.
nefna hitaveitumál Reykvíkinga.
Olíukreppan fyrr á þessu ári og
verðhækkun á olíu til húsahit-
unar, varð til þess að mikill áhugi
varð hjá landsmönnum um hita-
veitumál. Þá kom bezt i ljós hve
víðsýni og forsjá sjálfstæðis-
manna í stjórn Reykjavíkurborg-
ar hefur verið mikil. I hita-
veitunni er fólgin undirstaða okk-
ar hreinlegu borgar, án spúandi
reykjarstrompa, með tilheyrandi
mengun og ólofti. Margur far-
maðurinn hefur líka haft orð á
því, hvílikur munur væri á hinu
hreina og ferska loftslagi hér eða
i borgum erlendis og myndu
Reykvíkingar seint gera sér þessa
staðreynd fyllilega ljósa.
Ég get ekki látið hjá liða, að
minnast á æskulýðsmálin. Margir
tala um dekur vfð æskuna, það sé
alltof miklu fjármagni varið af
skattfé hins almenna borgara. En
þarna sem í öðru sjá sjálfstæðis-
menn lengra fram á við. Tíminn
liður, æskan þroskast og eldist, og
kemur inn á vinnumarkaðinn, þar
sem lögleidd er 40 stunda vinnu-
vika, og við skulum vona að tann-
hjól óðaverðbólgu vinstri stjórnar
sé senn stöðvað, svo að hinn vinn-
andi maður geti átt tima aflögu
fyrir sín áhuga- og tómstundamál
og þá jafnvel þau, sem hann
kynntist og fékk þekkingu á i
þroskandi félags- og tómstunda-
starfi á unglingsárunum.
I hinni ört vaxandi borg eru
verkefni borgarstjórnar óþrjót-
andi. Geysilegt átak er framund-
an, vegna útivistarsvæða, hvort
sem menn hafa áhuga á útivist og
tómstundagamni til lands eða
sjávar, en að þeim málum hefur
okkar dugmikli borgarstjóri unn-
ið af mikilli kostgæfni. Verður þá
væntanlega öllum aldursflokkum
búin slík aðstaða, að það verði
almenningi hvatning til ástund-
unar holls útilifs.
Sjálfstæðisflokkurinn er flokk-
ur allra stétta. I borgarmálefnum
eru hagsmunir einstaklinganna í
fyrirrúmi og í borgarstjórnar-
flokki sjálfstæðismanna er þeirra
hagsmuna gætt i hvívetna. Enn
skírskota ég til þín, kjósandi, hvar
í stétt sem þú ert. Höfum heill
Reykjavikur í huga, þegar við
göngum að kjörborðinu í borgar-
stjórnarkosningunum. Kjósum
festu og öryggi í borgarstjórn.
Kjósum Sjálfstæðisflokkinn, en
ekki reikula og rótlausa vinstri
flokka.
Guðjón Bjarnason:
— Ég kýs hiklaust D-listann
vegna þess að listinn er skip-
aður hæfum og öruggum mönn-
um, — mönnum sem reynslan
hefur sýnt að hægt er að treysta
fyrir málefnum borgarinnar.
Að mínum dómi er sigur Sjálf-
stæðisflokksins eina tryggingin
fyrir áframhaldandi sókn og
framförum hér í Reykjavik og
ég treysti þvi, að ungir kjós-
endur láti sitt ekki eftir liggja
til að tryggja að sá sigur verði
sem mestur og stærstur.
Sigfús Viggósson:
— Ástæðan fyrir þvi að ég
styð D-listann 26. maí n.k. er
fyrst og fremst sú, að ég tréysti
Birgi Isleifi Gunnarssyni
manna bezt til að halda um
stjórnvölinn í málefnum Reyk-
vikinga. Birgir er maður ungur
og ferskur og hann hefur sann-
að hæfni sina sem borgarstjóra
svo ekki verður um villst auk
þess sem ég tel hann verðugan
fulltrúa yngri kynslóðarinnar í
íslenzkum stjórnmálum. Af öðr-
um fulltrúum unga fólksins á
lista Sjálfstæðisflokksins bind
ég miklar vonir við Markús örn
Antonsson borgarfulltrúa sem
skipar 4. sæti listans og Davíð
Oddsson 9. mann á listanum og
ég vona að unga fólkið í borg-
inni tryggi honum sæti í borg-
arstjórn með öflugum stuðningi
við Sjálfstæðisflokkinn í þess-
um kosningum. Ég er það bjart-
sýnn að ég tel 9. sætið vera
baráttusætið og kjörorðið er
því: Davið Oddsson i borgar-
stjórn.