Morgunblaðið - 22.05.1974, Síða 7

Morgunblaðið - 22.05.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAl 1974 7 Sverrir Þóroddsson fyrirframan Cessnu 310 Hagkvœmni leiguflugs hefur ekki verið kynnt nœgilega NÚ fyrir skömmu var stofn- að hér í Reykjavík nýtt flug- félag, sem heitir „Sverrir Þóroddsson, leiguflug". Eins og nafnið ber með sér, er eigandi fyrirtækisins Sverrir Þóroddsson. Sverrir er lesendum Mbl. að góðu kunnur, frá þvi er hann lagði stund á kappakstur erlendis fyrir nokkrum árum. En flugið er raunar miklu eldri þáttur í lífi Sverris, því að hann var aðeins 12 ára, er hann lærði að fljúga svifflugu og 17 ára tók hann flugpróf. Sverrir var m.a. íslands- meistari i svifflugi. Sverrir hætti keppni í kappakstri árið 1970 og hafði þá um tveggja ára skeið rekið hér innflutnings- verzlun, sem einkum verzlar með hluti tengda bílum og rekstri bíla. Við hittum Sverri að máli nú í vikunni og spurðum hann um nýja flug- félagið og þróun fyrirtækisins hans, Sverrir Þóroddsson og Co. Ástæðan fyrir því að ég réðst í það að stofna fyrirtæk- ið upphaflega var, að ég kynntist ýmsum aðilum i bilabransanum, er ég var við keppni erlendis. Ég vildi einnig tryggja mér afkomu hér heima, þvi að ég gerði mér grein fyrir, að árafjöld- inn, sem ég gæti verið i kappakstrinum væri tak- Eftir Ingva Hrafn Jónsson markaður. Upphafið var- raunar það, að ýmsir menn buðu mér umboð fyrir sínar vörur á íslandi. Ég byrjaði auðvitað smátt, en síðan hef- ur þetta aukizt ár frá ári og vörutegundunum fjölgað jafnt og þétt. — Hvað kom til, að þú fórst út í þessa flugfélags- stofnun, nú gæti manni virzt, að það væri nægilegt fram- boð á litlum flugvélum til leiguflugs? Rætt við Sverri Þóroddsson um nýtt flugfélag hans — Ég eignaðist mína fyrstu flugvél fyrir rúmum 3 árum siðan og það er Cessna 205, 6 sæta einshreyfilsvél. Ég notaði þá vél i leiguflug, m.a. i segulmælingaflug fyrir Raunvísindastofnun hásköl- ans. Nú, ég fann, að það var grundvöllur fyrir rekstri slíkr- ar vélar og þó fleiri hefðu verið. Ég hef sl. ár velt því talsvert fyrir mér að stofna mitt eigið félag og kaupa þá aðra vél og í haust bauðst mér tveggja hreyfla 6 sæta vél af gerðinni Cessna 310, sem er mjög fullkomin og hraðfleyg flugvél. Þegar ég var kominn með tvær vélar, gerði ég mér það Ijóst, að til þess að reka þær yrði að stofna fyrirtæki á skipulögð- um grundvelli Ég er þvi algerlega ósammála, að það sé nægilegt framboð af flug- vélum til leiguflugs, þvi að ég tel, að hægt sé að selja miklu fleiri útsýnisflugferðir til útlendinga, en nú er gert. — Hvernig skipuleggur þú rekstur fyrirtækisins? — Við verðum til húsa með okkar skrifstofur í gamla flugturninum, sem að vísu er ekki það bezta sem hugs- azt getur, en það eina, sem fáanlegt er á flugvellinum. Við komum til með að bjóða upp á alhlíða leiguflug og verðum auk þess með skipu- lagðar útsýnisflugferðir og einnig hef ég það í huga að reyna að komast inn á mark- aðinn í ferjuflugi á milli Bandarikjanna og Evrópu, en það hefur eingöngu verið í höndum erlendra aðila, en sem kunnugt er, færist það mjög í vöxt, að þessar vélar hafi viðkomu hér á íslandi. Má segja, að hér séu nú á hverjum degi margar slikar vélar. — Hvernig geta íslending- ar komizt inn á slíkan mark- að? — Það er auðvitað fyrst að komast í samband við þá erlendu aðila, sem þurfa að láta ferja vélar fyrir sig og benda þeim síðan á, að við höfum upp á að bjóða flug- menn, sem eru mjög kunn- ugir flugi og flugskilyrðum á N-Atlantshafi, en það er ein- mitt erfiðasti kaflinn á leið- inni. Þetta myndi geta skap- að mörgum islenzkum flug- mönnum atvinnu, en hér er talsverður hópur manna, með atvinnuflugmannsrétt- indi, sem ekki getur fengið starfa við flugið. — Er ekki talsverð sam- keppni í leigufluginu? — Jú, það er það að vísu, en ég tel, að hagkvæmni leiguflugs hafi ekki verið nægilega kynnt, og að möguleikar séu á að stækka markaðinn til muna. Hins vegar þarf að fara að öllu með gát, því að við íslend- ingar erum svo mjög háðir veðri, það geta komið langir kaflar, þar sem aldrei er hægt að ná flugvél á loft. Það þarf þvi að sýna aðgæzlu í skipulagningu og rekstri og umfram allt að forðast að láta fyrirtækið vaxa yfir höfuð sér. — Ætlar þú þá að láta þessar tvær vélar nægja? — í bili allavega. Auðvitað stefnir maður að þvi að eign- ast fleiri vélar, en túrista- bransinn er óviss hér á landi og þvi bezt að fara að öllu með gát. Ég tel mig geta fengið næg verkefni fyrir þessar tvær vélar og siðan verður framtíðin að leiða i Ijós, hvort grundvöllur er fyrir stækkun. Svalahandrið og önnur létt járnjmiði. Kantlim- ingarpressur kr. aðeins 11.195- STÁLTÆKI s.f. sími 42717. Innri-Njarðvík Til sölu 5 herb. efri hæð í nýlegu steinhúsi, útihús m.a. heppileg fyrir hestarækt getur fylgt. FASTEIGNASALA VILHJÁLMS OG GUÐFINNS Símar 1 263 og 2890. Sandgerði Til sölu 5 herb. efri hæð. Skipti á 2ja—3ja herb. ibúð i Keflavik eða á Reykjavíkursvæðinu möguleg. FASTEIGNASALA VILHJÁLMS OG GUÐFINNS, símar 1 263 og 2890. Garður til sölu einbýlishús ásamt góðu túni, góð aðstaða fyrir hestarækt. FASTEIGNASALA VILHJÁLMS OG GUÐFINNS Simar 1 263 og 2890. BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. Nóatúni 27, simi 2589 T. Sandgerði til sölu gott einbýlishús. sam- liggjandi stofur 6 herbergi, ræktuð lóð bilskúr fylgir. FASTEIGNASALA VILHJÁLMS OG GUÐFINNS. Simar 1 263 og 2890. GERUM VIÐ kaldavatnskrana og WC-kassa. Vatnsveita Reykjavikur, S. 27522. Grindavík Til sölu einbýlishús við Arnarhraun 3 herb. og eldhús á neðri hæð, eitt herb. og eldhús í risi, bílskúr fylgir. FASTEIGNASALA VILHJÁLMS OG GUÐFINNS Símar 1 263 og 2890. 4ra—6 HtERBERGJA leiguíbúð óskast í Reykjavík. Upplýsingar í sima 53731 eftir kl. 7 á kvöldin. Gjafavörur i úrvali Vorum að taka upp glæsilega vindlingakassa, borðkveikjara og öskubakka úr onyxsteini. VERZLUNIN VÍVA, Skólavörðustíg 2. TILSÖLU Borðstofuhúsgögn úr teak, skápur, sporöskjulagað borð, sem má stækka, og 6 stólar, vel með farið. Uppl. i simá-4T'467. Jakobsdalsgarn ORLON GARN VICKEVIRE BABYGARN TUMME TOTT. VERZL. HOF, Þingholtsstræti 1. Til sölu nýr ca 36 fm. sumarbústaður við Þingvallavatn (Miðfellslandi). Uppl. i sima 81436. 2herb. íbúð til sölu i Árbæjarhverfi. Laus strax. Lysthafendur leggi nöfn sin og simanúmer inná afgreiðslu blaðs- ins fyrir nk. föstudagskvöld merkt „Góð útborgun — 1060". Sveit 13 ára telpa óskar eftir sveita- pláSSÍ. Upplýsingar i sima 81 643. Til sölu Fiat sport coupe 850 1971. Keyrður 19. þús km. Skemmdur eftir árekstur. Til sýms að Sporða- grunn 1 0 eftir kl. 5. S. 32558. Efnaverkfræðingur óskar eftir starfi á StórReykjavikur- svæðinu. Hálfsdagsstarf kemur einnig til greina. Tilboð sendist Mbl. merkt 1061. Túnþökur Vélskornar túnþökur til sölu. Uppl. i sima 71464 og 41896. Óskum eftir að taka á leigu 2ja—3ja herb. ibúð. Upplýsingarásima 40276. Tökum að okkur smiði á eldhúsinnréttingum, klæðaskápum og fl. TRÉSMtÐAVERKSTÆÐI ÞORVALDARBJÖRNSSONAR. simi 86940. Kvöldsimi 71118. Kúasmali Drengur á 12. ári óskar eftir að komast í sveit. Uppl. í síma 51767. Óska eftir 12 til 13 ára telpu til að gæta 2 ára drengs allan daginn i sumar i Austurb. Kóp. Á sama stað til sölu skermkerra, telefunken 4 rása segulband. S. 43683. Til leigu ný 2ja herbergja íbúð i blokk. Laus strax. Hálfsárs fyrirframgreiðsla. Tilboð sendist Mbl. merkt. ..1467". Einhleypur iðnnemi óskar eftir RÚMGÓÐU HERBERGI með aðgangi að baði, eða liiilli ibúð. Uppl. i sima 17195 eða 43646. Hárgreiðslustofan SÓLIN Laufásvegi 12 óskar eftir hár- greiðslusveini. Upplýsingar i simum: 22645, 50486, 86361. Til sölu Benz 280, sjálfskiptur, vökvastýri '71. Upplýsingar í sima 20652. Háskólanemi með fimm manna fjölskyldu óskar eftir ibúð til leigu nú þegar eða sem fyrst. Upplýsingar i síma 37567. Einstaklingsíbúð eða stórt herb. með aðgang að baði og eldhúsi óskast á leigu nú þegar. Uppl. i sima 21 050. Lagtækur maður óskar eftir góðu starfi. Má vera vakta- eða næturvinna. Sími 34766. Spil Til sölu er spil á jeppa. Uppl. i síma 2 1050. Ný uppgerð Trader diesel vél til sölu. Simi 86040. ^ z-rr—- rr-ra'F r ’ ;rr- —jti í >, Sjá smáugl. bls.4.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.