Morgunblaðið - 22.05.1974, Page 16

Morgunblaðið - 22.05.1974, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAl 1974 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Eyjólfur KonráS Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasöiu 35,00 kr eintakið. Andstæðingar Sjálf- stæðisflokksins halda því tíðum fram, að flokkur- inn hafi í undangengnum kosningum unnið meiri- hluta vegna kenningarinn- ar um upplausn og sundr- ungu, sem ríkja mundi, ef vinstri flokkarnir ættu að fara með völdin, glund- roðakenningarinnar, sem þeir svo nefna. Ef það er rétt, að reykvískir kjós- endur hafi svo mjög óttazt glundroðann áður fyrr, að þeir hafa komið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn, þá er ljóst, að margföld ástæða er til að þeir geri það nú. Áður hefði glundroði ríkt, en nú mundi meiri glund- roði ríkja. Framhjá þeirri stað- reynd geta vinstri menn ekki komizt, að algjört öng- þveiti og upplausnarástand ríkir í röðum þeirra, og það viðurkenna þeir raunar. Umbyltingarnar og svipt- ingarnar á vinstri armi stjórnmálanna eru raunar svo miklar, að vart er hægt að átta sig á þeim frá degi til dags, því að ein klíkan vegur að annarri, og þeir, sem eru bandamenn í dag,- eru orðnir höfuðfjendur á morgun. Nokkrir megin- þættir eru þó ljósir og skulu þeir hér raktir. Framsóknarflokkurinn er endanlega klofinn og hefur misst fjölda mestu áhrifamanna úr röðum sínum, manna, sem ýmist nefna sig vinstri framsókn- armenn eða þátttakendur í Möðruvallahreyfingunni. Þessi armur Framsóknar- flokksins hyggur á fram- boð með Samtökum frjáls- lyndra og vinstri manna eða hluta þeirra. Samtök frjálslyndra og vinstri manna eru þríklof- in a.m.k., og djúpstæður skoðanaágreiningur ríkir um það, hvort samtökin eigi að hafa samvinnu við Alþýðuflokkinn í þingkosn- ingunum eða ekki. Helztu forustumenn samtakanna benda á, að kjördæmisráð í hinum einstöku kjördæm- um eigi að skera úr um það, hvernig framboðum verði háttað. Og þennan sólarhringinn er helzt við því búizt, að samtökin bjóði sums staðar fram með vinstri framsóknarmönn- um og Möðruvallahreyf- ingu, en annars staðar með Alþýðuflokknum. Enginn veit, hvernig hugsanleg uppbótasæti kynnu að skiptast, þannig að enginn af kjósendum eins flokks- brotsins getur gert sér grein fyrir því, hvort hann er að velja þann mann eða þá menn, sem hann helzt kysi eða höfuðfjendur þeirra, þá menn, sem hann sízt vildi efla til áhrifa í íslenzkum stjórnmálum. Þá er unnið að stofnun svonefndra Samtaka vinstri jafnaðarmanna undir forustu Njarðar P. Njarðvfk og hafa þau sam- tök hug á að bjóða fram í einhverri samvinnu við arm Magnúsar Torfa í Samtökum frjálslyndra og vinstri manna og Möðru- vellinga, en gæti auðvitað allt eins verið að koma á þing einhverjum „hægri kratanum“, ef samvinna verður milli Alþýðuflokks og annars arms samtak- anna! Þegar flokksbrot vinstri manna nú eru talin saman eru þau a.m.k. 10 talsins og gætu þó verið orðin 11, 12 eða 13, þegar lesendur Morgunblaðsins fá þessa ritstjórnargrein í hendur. Árum saman hafa vinstri menn í öllum flokkum skeggrætt um það, hve áhugasamir þeir séu um sameiningu vinstri afl- anna. Allir hafa þeir þótzt vinna að sameiningarmál- unum, en þegar upp er staðið, er ljóst, að það eina, sem þeir eru sammála um, er að sundrast sem allra mest. Ömurlegast er þó ástandið í Samtökum frjálslyndra og vinstri manna, þar sem Magnús Torfi Ólafsson hefur unnið það þrekvirki að láta 10 manna fund afhenda sér yfirráðin í samtökunum, og segi menn svo, að hann hafi ekkert afrekað á þriggja ára stjórnmálaferli sínum. Þegar Ólafur Jóhannes- son forsætisráðherra ákvað að rjúfa þing í of- boðslegasta reiðikasti, sem stjórnað hefur gerðum ís- lenzks stjórnmálamanns fram að þessu, var það auð- vitað gert til þess að reyna að bjarga Framsóknar- flokknum frá algjörum klofningi. Hann hugðist þrýsta flokknum fast upp að kommúnistum og friða þannig Möðruvellinga og vinstri framsóknarmenn. Hann gaf út boðskap um það, að í alþingiskosn- ingunum yrði keppt að því að halda áfram samstjórn Framsóknarflokksins og Alþýðubandalagsins og bjóst við, að það mundi nægja til að friða uppreisn- arseggina í Framsóknar- flokknum. Nú er hins veg- ar komið á daginn, að einn- ig þetta hefur mistekizt, og þess vegna er Framsóknar- flokkurinn í flakandi sár- um og engar líkur til þess, að hann geti orðið ábyrgt stjórnmálaafl í íslenzku þjóðlífi fyrr en algjört upp- gjör hefur farið þar fram, fyrr en hann hefur beðið svo mikinn ósigur í kosn- ingum, að kjarni flokksins gerir sér grein fyrir því, að vinstri stefnan muni ríða honum að fullu og þess vegna hverfi hann af þeirri óheillabraut, sem hann hefur leiðzt út á. Þegar þessi mynd er skoðuð í heild, ætti hver einasti borgari að geta gert sér grein fyrir þeirri miklu ábyrgð, sem á herðum kjós- enda hvílir, þeirri skyldu að reyna að tryggja trausta stjórn borgarmálefna og traust stjórnarfar með því að efla Sjálfstæðisflokkinn, þar til vinstri glundroðinn hefur gengið sér til húðar. MEIRI GLUNDROÐI O Hrafn Gunnlaugsson skrifar frá Stokkhólmi: Fréttapunktar frá Svíþjóð SPARNAÐURINN, SEM VARÐ NEYZLUAUKNING Nú liggur fyrir endanlegt uppgjör vegna besinskömmt- unarinnar hér í vetur. Kostn- aður er rúmlega 30 milljónir sænskra króna árangurinn enginn — eða verri en enginn: Svíar hafa aldrei notað jafn mikið eldsneyti og á skömmt- unartímanum. Besínskömmt- unin er því dýrasta sápukúla, sem sprungið hefur i Sviþjóð. Þegar skömmtuninni var aflétt, höfðu fæstir byrjað að nota skömmtunarseðla sina og fólk sat uppi með birgðir af elds- neyti, sem það hafði hamstrað. Dýrasti liður sápukúlunnar var rekstur fjölmargra skrifstofa, er sáu um dreifingu skömmt- unarseðlanna og prentun b^ekl- inga í milljónatali. Rannsókn, sem sænska sjón- varpið hefur gert, sýnir, að sparnaðarfrumhlaupið hefur dregið mjög úr trausti almenn- ings á stjórnmálamönnum. ÞJÓÐFÉLAGSFRÆÐ- INGARSENN ÞJÓÐFÉLAGSLEGT vandamAl Fjöldi atvinnulausra þjóð- félagsfræðinga og þjóðfélags- fræðingar, sem hafa búið til atvinnubótarannsóknir fyrir sjálfa sig, eru senn að verða þjóðfélagslegt vandamál I Sví- þjóð, og líður ábyggilega ekki á löngu þar til þjóðfélagsfræðing- ar byrja þjóðfélagslegar rann- sóknir á þessu vandamáli I stór- um stil. Kvartanir berast nú daglega til blaða og stofnana vegna ágengni þessarar ágætu stéttar, sem leitar með logandi Ijósi i hvers manns koppi að öllum hugsanlegum vandamálum.sem þeir, sem I vandamálinu eiga, hafa iðulega ekki tekið eftir. Fátt kemur dagsfarsprúðum smáborgurum jafnt á óvart og að fá skyndilega vitneskju um, að þeir eigi í óteljandi vanda- málum, sem hafa farið alger- lega framhjá þeim — og það í gegnum þjóðfélagsfræðing. Því miður virðist óðaverð- bólga rikja i þessari ágætu fræðigrein. Offramboð á fólki með þjóðfélagsfræðimenntun hefur orðið til þess, að þjóð- félagsfræðingar rembast nú eins og rjúpan við staurinn við að skapa sjálfum sér atvinnu með þvi að pilla upp smávanda- mál með stækkunargleri og blása þau svo út með básúnu- drunum og bumbuslætti í blöðum og fjölmiðlum. En nú virðist almenningur loksins búinn að fá nóg. Utvötnuð MENNTUN Minnkandi kröfur til skóla- fólks og afnám prófa hefur einfaldlega þær afleiðingar, að menntun fer hrakandi og þeir, sem hefja háskólanám, eru verr undir það búnir en áður. Allar rannsóknir benda í þessa átt. Þeim háskóladeildum fjölgar því stöðugt, er krefjast vissra lágmarkseinkunna af stúdent- um, er hyggja á nám við þær. Ef þessi þróun heldur áfram, er hætt við, að svo til allar deildir háskólans geri aukakröfur til stúdenta. Niðurstaðan verður loks sú, að menn geta orðið stúdentar án þess að eiga kost að hefja nám við háskóla. — Erum við þá ekki komin hringinn? spyrja æ fleiri, og: Hefur allt þetta þras um próf og ekki próf farið út í algera öfga? STÚDENTAR og VINSTRI HÖNDIN Enn einu sinni hafa samtök borgaralegra stúdenta sigrað I kosningum við alla helztu há- skóla I Sviþjóð. Borgaralegir hafa ekki aðeins meirihluta sínum, heldur aukið fylgi sitt víðast hvar svo nokkru munar. Fylgi jafnaðarmanna I röðum stúd- enta virðist minnka jafnt og þétt. I rannsókn, sem gerð hefur verið á fylgi flokkanna innan ólíkra stétta, kemur í ljós, að jafnaðarmenn njóta ótrúlega lítils fylgis meðal menntastéttanna. Stefna jafnaðarmanna í kjaramálum háskólamanna mótast eflaust nokkuð af þessu, enda litlu að tapa. Kommiín- istar eiga hins vegar auknu fylgi að fagna, auk Hægriflokksins (Modera- tarna). Andstæðurnar virðast því aukast meðal þessarar stéttar, frekar en hitt. — At- hyglisvert er, að framsókn borgaraflokkanna er einna mest innan atvinnugreina, er byggja á tæknilegum og raun- vísindalegUm grundvelli. stúdentar haldið Mauraþúfa eða mannfélag Stefna sænskra jafnaðar- manna I húsnæðis- og skipu- lagsmálum síðustu tvo áratugi hefur leitt til þess, að þúsundir nýrra íbúða og heil borgar- hverfi standa nú auð og enginn vill þar búa. Hugmyndin um að deila borgum upp í svefnhverfi, iðnaðarhverfi, verzlunarhverfi o.s.frv. hefur beðið algert gjald- þrot, bæði skipulagslega séð og ekkí hvað sízt félagslega. Geti sænskir jafnaðarmenn kennt einhverju einu um fylgistap sitt I síðustu kosningum er það húsnæðispólitíkinni. Hin „stórsnjöllu" svefnhverfi hafa reynzt á allan hátt and- félagleg og óeðlileg sem jarð- vegur fyrir vaxandi æsku. Hús- mæðurnar verða einar eftir I þessum afgirtu einingum með börnin, sem alast upp*án þess að komast i minnstu snertingu við atvinnulífið og hafa fátt annað af föður sínum að segja, en fá hann þreyttan heim úr „vinnunni" á kvöldin, — orðið vinna verður hvergi jafn absúrd og i hugum svefnher- bergisæskunnar. Mæðurnar eiga enga von um aukavinnu eða íhlaupastarf I nágrenninu, því smáiðnaður var forboðið fyrirbrigði við byggingu og skipulag þessara hverfa. Mann- lífið hefur verið staðlað til hins ýtrasta og reglustrikan látin ráða í einu og öllu. Þær borgir, sem við þekkjum úr sögunni og erlendis „sem hinar glöðu borgir“ eru alger andstæða stöðlunarstefnu síðustu ára. Þar iðaði mannlífið I öllum litum og fyrirbrigðum, en var ekki uppstokkað eins og mauraþúfa. Smáiðnaður, verzlun, kaffihús, söfn o.s.frv. voru hvert innan um annað, og börnin ólust upp í nánari tengslum við lífið. Háhýsi, stórblokkir og svefn- herbergi dagsins I dag þjóna aðeins einni stétt: reynt er ráða félagsráðgjafa og þjóðfélags- fræðinga í hópum, en vandinn verður samt ekki leystur. Meinið liggur I skipulaginu og húsnæði fólksins. Það er engin tilviljun hve börn hænast að öldruðu fólki, og hve æskan og ellin eiga oft margt sameiginlegt. Þetta er eitt af fagnaðarundrum náttúr- Framhald á bls. 35

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.