Morgunblaðið - 22.05.1974, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAl 1974
25
Jóhanna Gunnbjörns-
dóttir — Minningarorð
F. 4.11.1938. D. 24.4.1974.
ÞANN 3. maí var jarðsungin frá
Fossvogskapellu Jóhanna Gunn-
björnsdóttir. Hún var fædd á
Akureyri, dóttir hjónanna Odd-
rúnar Jóhannsdóttur og Gunn-
björns Egilssonar. Ölst upp hjá
foreldrum sínum og lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 15. júni 1958.
Hinn 17. júni giftist Jóhanna
eftirlifandi manni sínum Jakob
Jabobssyni fiskifræðing og
bjuggu þau alla tíð að Nökkvavogi
41, þar sem fyrir voru foreldrar
Jóhönnu. Börn þeirra eru: Sól-
veig 15 ára, Oddur Siguróur 13
ára og Auðbjörg 7 ára.
Allir dagar eiga kvöld, það
verður ekki umflúið. En helfregn-
inni um Jóhönnu var næsta erfitt
að trúa. Þegar vinir og ástvinir
eru kallaðir burt í blóma lífsins,
— þá erum við sjaldnast viðbúin.
Við efumst um réttlætið en
verðum samt að lúta þeim dómi,
sem upp er kveðinn. Við hin eldri
erum lengi að sætta okkur við
þann dóm, hvað þá blessuð
börnin. Þeirra harmur, eigin-
mannsins og hinna öldnu for-
eldra, er sár. Móðirin, eiginkonan,
allt I einu tekin burt og gömlu
hjónin sjá á bak seinna barni
sfnu, sem var þvf einkar hjart-
fólgið. Samhjálpin milli dóttur og
foreldra var mjög til fyrirmyndar.
Jafnframt heimilisstörfum og
ágætri umönnun barna sinna
stundaði Jóhanna nám við Há-
skóla Islands. Jóhanna tók nám
sitt alvarlega enda sóttist það með
eindæmum vel. Hún hafði lokið
B.A. prófi f tungumálum og bjó
sig undir kennslustörf. Enga slíka
hæfileika hef ég þekkt fyrr. Af-
burða námsgáfur en jafnframt
ótrúleg lægni og þolinmæði við
kennslu. Þessa nutu hennar eigin
börn sem annarra, enda var gleði
hennar mikil, er börnin komu
heim við ágæta vitnisburði. Já,
það er mikið, sem eiginmaðurinn
og börnin hafa nú misst og erfitt
að skilja hversvegna mamma dó
svo ung. Hún hafði búið börnin
sin sem bezt hún mátti undir lífið
og stutt eiginmann sinn dyggilega
f ábyrgðarmiklu starfi hans. Nú
kemur það sér vel. öll störf Jó-
hönnu voru markviss. Umhyggja
og næmur skilningur varð til
þess, að börnin sýndu henni ein-
stakt trúnaðartraust.
Jóhanna var fögur kona. Fyrir
eiginmanninn var hún ekki
aðeins vel menntaður lífsföru-
nautur, heldur hin glæsilegasta
kona, ætfð vel klædd og svo
tignarleg í framkomu og á velli,
að flestir tóku eftir, hvar sem hún
fór. Ferðir þeirra hjóna lágu víða
um heim. Aldrei lét Jóhanna á þvf
bera, sem hún hlaut að vita, hvað
hún hafði fram yfir marga aðra.
Það var alltaf jafn ánægjulegt
að eiga tal við Jóhönnu. Það skipti
engu hvort rætt var um alvarleg
efni eða gamanmál. Henni var
það enginn vandi að finna hugs-
unum sínum búning, hvort sem
notuð var fslenzka eða erlend
tunga, — með hinu ágætasta mál-
fari. Kostir þessarar indælu konu
verða seint taldir, — hún vildi
öllum gott gera.
Við höfðum rætt um það að eiga
saman næstu jól með fjölskyldum
okkar. Þar verður nú skarð fyrir
skildi. Tengslin og kynnin milli
fjölskyldnanna hafa verið okkur
hjónum ómetanleg.
Þeir, sem guðirnir elska, deyja
ungir. — Bjartari tímar eru nú
aftur í hönd farandi. Við vitum,
að Jóhönnu lfður nú vel. Hún átti
enga heitari ósk en að börnum
sfnum mætti vegna vel. Eftir
bestu getu munt þú uppfylla þá
ósk Jakob minn. Við ættingjar
þínir og vinir, sem viljum sýna
samúð okkar og veita aðstoð, finn-
um svo átakanlega til vanmáttar-
ins.
Blessuð sé minning Jóhönnu
G unnbjörnsdóttur.
Jóhann Klausen.
loeir.sem eru í fötum
komast upp meo
ýmislegt!
o4ndersen íSb Lauth hf.
Alfheimum 74,VesturgöIu 17. Laugavegi 39
Nýkomið
tweed efni
riflað flauel
slétt flauel
denim efni
bómullarteppi
Glæsilegt og mikið úrval
Cgill lacobsen
Austurstræti 9
María Guðmunds-
dóttir — Mmningarorð
Það er torráðin gata og lítt skilj-
anleg, hvers vegna kona i blóma
lífsins er svo snöggt kölluð á
braut. Það hefur jafnan verið svo,
að sviptibyljir mannlegrar tilveru
eru utan þess sjónmáls, er þekk-
ing okkar nær til. Oft gleymist
manni hversu lífið er stutt og
bilið tæpt milli fjörs og feigðar,
þessar óræðu leikfléttur lffs og
dauða leita sterkt á huga manns.
María Guðmundsdóttir fæddist
2. desember 1931 að Egilsstöðum,
ölvesi, Arnessýslu, dóttir hjón-
anna Markúsinu Jónsdóttur og
Guðmundar Steindórssonar, er
þar bjuggu og þar ólst hún upp i
fríðum systkinahópi með 2 systr-
um og bróður. Guðmundur faðir
hennar er látinn fyrir nokkrum
árum, en Markúsfna móðir henn-
ar býr enn á Egilsstöðum, ásamt
Steindóri syni sínum.
I apríl 1958 giftist María Helga
Danfelssyni vélstjóra og var þeim
4ra barna auðið, tveir drengir og
tvær stúlkur, það elsta 14 ára, en
það yngsta 8 ára.
Kynni okkar Maríu hófust fyrir
um það bil 12 árum, þegar ég átti
því láni að fagna að vera i sambýli
við þau í Safamýri 63. Ég hefði
vart getað hugsað mér betra sam-
býlisfólk en þau hjón og þegar
María birtist í fbúðinni hjá okkur,
svo glöð og svo kát að vanda, þá
var eins og birta og hlýr ylur
kæmu með henni og verður sú
hugljúfa mynd um hana geymd í
hugum okkar.
María var frábær móðir og hús-
móðir, börnin vel uppalin, prúð
og elskuleg f allri framkomu, sem
vænta mátti af slíkri ágætiskonu,
sem hún var.
María var alltaf boðin og búin
að rétta öðrum hjálparhönd, ef á
þurfti að halda og fæ ég seint
þakkað henni alla þá hjálp og
aðstoð er hún veitti mér við frá-
fall eiginkonu minnar fyrir þrem
árum síðan.
Ég kveð hana með söknuði, en
sárastur verður söknuðurinn hjá
eiginmanni hennar og börnum
svo og aldraðri móður og systkin-
um og bið ég þeim öllum Guðs
blessunar.
Blessuð sé minning hennar.
Emil Helgason.
Málun á sambýlishúsi
Ráðgert er að mála sambýlishúsið að Álfaskeiði
74—76 í Hafnarfirði í sumar.
Málarar eða málaraverktakar er áhuga hafa á
verkinu, hafi vinsamlegast samband við hús-
stjórn í símum 5291 6 eða 50724 sem fyrst.