Morgunblaðið - 08.06.1974, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JUNI 1974
| íhRIITTAFHÍIIIH MOREUMBLAflSIMS
UÆTT er viö því, aö mei«)sli þau,
sem enn hrjá Keflvíkinga veru-
lega, revnist þeim erfið í dag.
Keflvíkingar leika gegn Akurnes-
ingum á Skipaskaga í dag og um
þessar mundir eru Skagamenn-
irnir þekktir fvrir allt annaö en
a«) láta í minni pokann. Líklegt
verður aó telja, að hið væng-
brotna Keflavíkurlid eigi í erfi<)-
leikum í dag og ekki bætir þaó úr
skák fvrir þá, a<) hinn enski þjálf-
ari þeirra, George Smith, er á
þjálfaranámskeiöi í Bretlandi <>g
verður þar fram yfir helgi. Leik-
ur lA og IBK hefst klukkan 16.00
á Akranesi.
Framarar mæta Vestmann-
evingum á Laugardalsvellinum í
dag og verður þar án efa um
harða baráttu að ræða. Framarar
hafa þegar tapað fimm stigum í
deildinni, svo að nú er allt að
vinna fvrir þá, en litlu að tapa.
Vestmannaevingarnir hafa tapaö
þremur stigum og að þeirra dómi
er það þremur stigum of mikið.
Þeir ætla sér Islandsmeistaratitil
og því verða þeir að sigra Fram-
ara í dag. Flautað verður til leiks
Fram og ÍBV klukkan 14.00.
Á Akurevri hefst á sama tíma
leikur Víkings og IBA. Er það
fvrsti leikurinn I 1. deild, sem
fer fram f.vrir norðan í sumar, og
leikmenn IBA eru þekktir fvrir
íþróttanámskeið HSK
að Laugarvatni í sumar
SUMARBUÐIR Héraðssambands-
ins Skarphéðins verða starfrækt-
ar á þessu ári eins og undanfarin
átta ár. I sutnar fara fram 5 nám-
skeið og verða þau sem hér segir.
1. námskeið: 22. júni — 29. júní
2. námskeið: 29. júní — 6. júlí
3. námskeið: 6. júli — 13. júlí
4. námskeið: 13. júli — 20. júli
5. námskeið: 29. júlí — 27. júli
Námskeiðin eru ætiuð börnum
og unglingum á aldrinum 9—14
ára. Öll námskeiðin eru fyrir bæði
kynin samtimis, en námskeið nr. 1
er einkum ætlað þeim yngri og
þriðja námskeiðið þeim eldri.
Námskeið nr. 2. 4. og 5. eru f.vrir
alla aldursflokka, en þátttakend-
um verður skipt í hópa eftir aldri.
Lögð verður áherzla á íþróttir
og útiveru, t.d. blak, frjálsar
iþróttir, handknattleik, knatt-
spyrnu, sund gönguferðir, gufu-
böð,, útileiki, róður o.fl. Á kvöldin
sjá þátttakendur um kvöldvökur
og fást auk þess við leiki og spil
að eigin vild.
Þátttakendur dvelja í barna-
skólanum á Laugarvatni og þar
verður einnigstarfrækt mötuneyti
fyrir sumarbúðirnar. Gert er ráð
fyrir, aö þátttakendur komi síðari
hluta laugardags og fari að loknu
námskeiði um hádegisbil á laug-
ardag viku síðar. Þátttökugjald
verður 5000 krónur fyrir nám-
skeið. Anton Bjarnason og Páll
Ólafsson kennarar á Laugarvatni
veita búðunum forstöðu og sjá um
kennslu. Innritun veita eftirtaldir
aðilar, sem einnig veita allar nán-
ari upplýsingar:
Skrifstofa HSK, Eyrarvegi 15,
Selfossi, s. 99-1189.
Skrifstofa UMFl, Klapparstíg 16,
Reykjavík, s. 12546.
Anton Bjarnason, Laugarvatni. s.
99-6153.
Páll Öiafsson, Laugarvatni, s. 99-
6177.
að hala inn stig á hoimavelli sín-
um. Víkingar hafa þó leikið betur
en Norðmenn að undanförnu og
ættu að sigra. En þeir hafa líka
átt lélega leiki eins og gegn KR
fyrir viku síðan, þannig að eng-
inn skyldi bóka Víkingum sigur
fvrir fram.
Einnig verður barizt í 2. deild i
dag. Klukkan 14.00 hefst á Húsa-
vík Ieikur Völsunga og Selfoss og
kl. 16.00 hefst í Kópavogi leikur
heimamanna við Ísfirðinga. 1 3.
deild fara fram 8 leikir og eru
þeir þessir:
Reynir — Afturelding,
Sandgerðisvelli, kl. 16.00
Stjarnan — Grótta,
Stjörnuvelli, kl. 14.00
Víkingur — Snæfell,
Ólafsvíkurvelli, kl. 16.00
UMSB — Grundarfjörður,
Borgarnesvelli, kl. 16.00
Einherji — Huginn,
Vopnafjarðarvelli, kl. 16.00
Höttur — Austri,
Héraðsvelli, kl. 16.00
Sindri — Leiknir,
Hornafirði, kl. 16.00
Þróttur, N — Valur. .
Neskaupstað, kl. 16.00.
Á mánudag fer svo fram siðasti
leikurinn í fjórðu umferð keppn-
innar í 1. deild, þá mæta Vals-
menn KR-ingum á Laugardals-
velli. Hefst leikurinn klukkan
Gisli Torfason og Steinar Jóhannsson fagna marki þess síðar-
nefnda í leik IBK gegn IBA síðastliðinn laugardag. Hætt er við,
að bæði Keflvíkingar og Akurevringar eigi í erfiðleikum í
leikjum sínum um helgina.
20.00 og verður fróðlegt að sjá,
hver úrslit verða í þeirri viður-
eign. Á mánudagskvöldið mætast
einnig á sama tíma Hafnar-
fjarðarliðin í 2. deild, Haukar og
FH. 1 þriðju deild leika þá Fylkir-
ÍR á Árbæjarvelli og Leiknir-
Grindavík á Háskólavelli.
BÚLGARIR sigruðu v-þýzka atvinnumannaliðið Wuppertal með 3
mörkum gegn engu í fyrrakvöld. Búlgarir réðu lögum og lofum á
miðjunni, en framlína liðsins var ekki sannfærandi þrátt fyrir mörkin
þrjú. I leikhléi var staðan 1—0.
— 0 —
Ástralska HM-liðið lék við svissneska 1. deildarliðið Young Boys í
fyrrakvöld og sigruðu Ástralirnir 2:0. Fjögur þúsund áhorfendur
fvlgdust með leiknum, sem fram fór í Brugge í Belgíu.
— 0 —
Austur-þýzka HM-liðið æfði í fyrrakvöld í 90 mínútur á Ólympíuleik-
vanginum í Berlín. A-Þýzkaland mætir Chile á þessum leikvangi 18.
júní, en V-Þjóðverjar og Ástralía eru með þessum Iiðum i riðli.
Lögreglan gætti þess vendilega, að enginn óviðkomandi kæmist að
vellinum til að fylgjast með æfingu Þjóðverjanna.
— 0 —
Takist V-Þjóðverjum að sigra í heimsmeistarakeppninni knattspyrnu
fá leikmenn liðsins ríflegar fjárfúlgur í sinn hlut. Fyrir gullverðlaun
og heimsmeistaratign fær hver leikmaður 60 þúsund v-þýzk mörk, 50
þúsund fyrir silfur og 40 þúsund fvrir brons. Fyrir bronsverðlaun í
Mexieo fyrir fjórum árum fengu Þjóðverjarnir 20 þúsund mörk í sinn
Júrgen Grab-
owski, einn af
hinum sterku
leikmönnum V-
Þjóðverja fær dá-
laglega peninga-
upphæð í sinn
hlut takizt honum
og félögum að
sigra í Heims-
meistarakeppn-
inni.
HM-fréttir
Að duga eða drepast fyrir Framara
— IBV mætir þeim á Laugardalsvelli
Solveig Ternström og
Margaretha B.vström í hlut-
verkum sínum.
Sýning, sem hlotið
hefur mikið lof...
Sænskir gagnrýnendur voru
ósparir á lofsyrði, þegar Drama-
ten (Konunglega leikhúsið í
Stokkhólmí) frumsýndi Vanja
frænda eftir rússneska skáldið
Anton Tjeehov í byrjun apríl.
Síðan hefur leikurínn gengið
fvrir fullu húsi og notið mikilla
vinsælda meðai áhorfenda.
Leikstjóri er Gunnel Lind-
blom, en áður en hún sneri sér
að leikstjórn hafði hún getið
sér mjög gott orð sem leikkona
og þá einkum un<lir stjórn Ing-
mars Bergman. I vetur leik-
stýrði hún einnig Ijóðrænum
heimildarleik um listaskáldið
Gustaf Fröding, en ljóð hans
eru öllum Islendingum kunn í
frábærum þýðingum Magnúsar
Asgeirssonar.
Dramaten tjaldar mörgum af
sínum ágætustu leikurum i
þessari sýníngu og má þar
nefna Ulf Johansson, sem lék
Fröding í áður nefndu verki og
vann þar einn stærsta leiksigur
ársins í sænsku leikhúsi og
kvikmvndaleikkonuna Solveig
Ternström, sem hefur ekki
sýnt síðri leik á sviði en sj<in-
varpsskerminum. Auk þeirra
má nefna ágætis leikara eins og
Margaretha Byström, Bengt
Vírdestam og Frank Sund-
st röm.
Sá í hópnum, sem er Islend-
ingum hvað kunnastur úr sjón-
varpsmyndaflökknum Svip-
mvndir úr hjönabandi, er Er-
land Josephson, en hann lék
aðal karlhlutverk þessara
þátta. En. Josephson er ekki
bara leikari, heldur leikhús-
stjóri Dramaten og hefur gegnt
því starfi siðustu átta ár. Auk
þess hefur hann skrifað fjölda
leíkrita og leikstýrt.
Undir stjórn Josephson hefur
leikhúsið lagt mikla áherzlu á
samstarf ungra leikskálda við
leikstjóra og leikara og veitt
höfundunum tækifæri tii að
vinna verk sín á leiksviðinu i
samvinnu við leikarana.
Dirfska í verkefnavali hefur
einkennt starf hans.
Ég ræddi lítillega við Berit
Gullberg ballettmeistara og
blaðafulltrúa Dramaten áður
en ég hélt frá Stokkhólmi.
Sagðist hún álíta þessa sýningu
eitt bezta efni, sem húsið hefði
haft upp á að bjóða í langan
tíma. Uppsetningin væri ein-
föld og aðgengileg og þvi tilval-
in til leikferðalags. Eg hafði
því miður ekki tíma til að sjá
sýninguna í Stokkhólmi, en
ætla alls ekki að missa af henni
nú
Hrafn Gunnlaugsson skrifar: