Morgunblaðið - 08.06.1974, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JUNÍ 1974
31
Fjögur verk sett upp í Þjóðleikhúsinu á listahátíð:
Vanya frændi, Þrymskviða,
ballett og Litla flugan
□ FJÓRAR sýningar verða settar
upp í Þjóðleikhúsinu f tilefni af
listahátfð 1974. 1 kvöld verður
frumsýning á gestaleik Dramaten
frá Stokkhólmi, „Vanya frænda“
eftir Anton Chekhov. 14. júnf
verður frumsýning á hinni nýju
fslenzku óperu „Þrymskviðu" eft-
ir Jón Asgeirsson. 19. júní verður
frumsýning á ballettsýningu ts-
lenzka dansf lokksins ásamt gesta-
dönsurunum Sveinbjörgu
Alexanders og Wolfgang Kegler,
og 11. júní verður frum-
Jón Asgeirsson á æfingu á óperu
sinni „Þrymskviðu".
sýning f Þjóðleikhúskjallaranum
á „Litlu flugunni", — róman-
tfskri kabarettdagskrá úr verkum
Sigfúsar Halldórssonar.
Á blaðamannafundi með Sveini
Einarssyni þjóðleikhússtjóra kom
m.a. fram, að sýning hins virta
sænska þjóðleikhúss, Dramaten á
„Vanya frænda'* er ný af nálinni,
var frumsýnd I Stokkhólmi í apríl
sl. og hlaut afar lofsamlega dóma
þar í landi. Kemur þar að veru-
legu leyti fram ný túlkun á þessu
verki Chekhovs. Með hlutverkin
fara margir af fremstu leikurum
Svia, en leikstjórinn er Gunnel
Lindblom, kunn Bergman-leik-
kona. Þá verður einnig með i leik-
ferð Dramaten til íslands Erland
Josephson leikhússtjóri, og verð-
ur það sennilega hans síðasta
verk i því embætti, því að í upp-
hafi næsta leikárs verður skipt
um leikhússtjóra. Þetta er I fyrsta
sinn í 22 ár, sem við fáum heim-
sókn frá þjóðleikhúsi einhverra
hinna Norðurlandanna.
Þrymskviða
Uppfærslan á „Þrymskviðu"
verður eitt af stærstu og viða-
mestu sýningum Þjóðleikhússins.
Þetta er I fyrsta skipti, sem svo
stór íslenzk ópera er sett á svið
hjá Þjóðleikhúsinu og eins og
fram hefur komið, er það margra
álit, sem á hafa hlýtt, að verkið sé
afar vel heppnað. Sagði þjóðleik-
hússtjóri, að feikileg vinna hefði
verið lögð I sviðsetninguna og
mætti gera ráð fyrir, að hún kost-
aði I heild nokkrar milljónir kr.
Alls taka um 90 manns þátt í
„Þrymskviðu“.
Leikstjórar verksins eru Þor-
steinn Hannesson og Þórhallur
Sigurðsson, höfundurinn Jón As-
geirsson stjórnar leik Sinfóníu-
hljómsveitar íslands og Þjóðleik-
húskórnum, en kórinn þjónar
stóru hlutverki I sýningunni.
Leikmyndir og búningateikning-
ar eru eftir Harald Guðbergsson,
en I stærstu hlutverkunum eru
Guðmundur Jónsson (Þór), Jón
Sigurbjörnsson (Þrymur), Guð-
rún Á. Símonar (Freyja), Ölafur
Þ. Jónssón (Loki), Magnús Jóns-
son (Heimdallur) og Rut Magnús-
son (systir Þryms). Þá er í sýn-
ingunni ballett, sem Alan Carter
hefur samið og dansaður er af
íslenzka dansflokknum. Sýningar
á „Þrymskviðu" verða þrjár á
listahátið og þrjár eftir hana, en
síðan fer það eftir aðsókn hvort
verkið verður tekið upp að nýju i
haust. Þjóðleikhússtjóri gat þess,
að talsverður áhugi virtist á hinni
nýju óperu erlendis og væru
a.m.k. tveir erlendir óperu- og
leikhúsmenn væntanlegir til
landsins gagngert til að sjá sýn-
inguna.
Ballettinn
Ballettsýning Islenzka dans-
flokksins á listahátið verður
stærsta verkefni dansflokksins til
þessa. Verða þar sýndir tveir
ballettar eftir Alan Carter, annar
þeirra „Höfuðskepnurnar", er við
tónlist eftir Áskel Másson, hinn
er tilbrigði við tónlist eftir
Brahms og Paganini. Þá dansar
Sveinbjörg Alexanders sem gest-
ur á sýningunni, en hún hefur
skapað sér nafn sem ballettdans-
mær I V-Þýzkalandi og víðar I
Evrópu. Með henni dansar Wolf-
gang Kegler, en þau eru bæði
dansarar í kunnum dansflokki I
Þýzkalandi, er nefnist Tanz
Forum. Dansa þau tvo dansa eftir
eiginmann Sveinbjargar, Gray
Veredon, annan við stef úr Rómeó
og Júlíu eftir Berlioz og hinn við
tónlist eftir Brahms.
Litla flugan
Kabarettsýningin í Þjóðleik-
hússkjallaranum er sett saman úr
verkum Sigfúsar Halldórssonar
og hefur hlotið nafnið „Litla flug-
an“ eftir einu af vinsælustu lög-
um tónskáldsins og þúsundþjala-
smiðsins. Umsjón með uppfærsl-
unni hefur Sveinn Einarsson, en
Carl Billich sér um tónlistina.
Flytjendur auk Carls eru Anna
Kristin Arngrimsdóttir, Edda
Þórarinsdóttir, Erlingur Gíslason
og Halldór Kristinsson. Upphaf-
lega var gert ráð fyrir tveimur
sýningum, en þar eð uppselt varð
mjög fljótlega á þær báðar, hefur
nú verið bætt við einni sýningu
til.
Steindór Hjörleifsson og Guðmundur Pálsson í hlutverkum sínum í
„Selurinn hefur mannsaugu".
Tvær frumsýningar hjá Leikfélagi Reykjavíkur á listahátíð:
„Seltirinn hefur mannsaugu”
— eftir Birgi Sigurðsson
Og verk um Sæmund fróða
• „í ÞESSU verki er ég að fást
við það, sem mér finnst grund-
vallaratriði I mannlegu Iffi. Það
má segja, að maður sé að tefla
saman höfuðskepnunum f
mannssálinni og þjóðfélagsgerð-
inni — maður má ekki segja
„þjöðfélagssálinni". því að þetta
er svo gjörsamlega sálarlaust. Og
maður gerir þetta til að revna að
hafa áhrif á þann veruleika, sem
maður lifir f. í því felst sú trú, að
það skipti máli, að maður sé til og
það skipti máli, hvernig maður sé
til.“
0 Þetta sagði Birgir Sigurðsson
höfundur leikritsins „Selurinn
hefur mannsaugu" á hlaðamanna-
fundi í fvrradag, en leikritið
verður frumsýnt hjá Leikfélagi
Revkjavíkur í kvöld. Þetta verk
verður annað framlag Leikfélags-
ins til listahátfðar f Re.vkjavfk
1974. Hitt, — nýstárleg sýning
um Sæntund fróða — verður
frumsýnt í næstu viku. Aður hef-
Hin nýju salarkvnni Stjörnubíós.
Stjömubíó opnar aftur
ÞEIR. sem sóttu Stjörnubíó á sfn-
um tíma, munu ekki þekkja það
aftur. Kvikmyndahúsið opnar aft-
ur á morgun og áhorfendur halda
vafalaust að þeir séu staddir f
öðru kvikmyndahúsi en fyrir um
5 mánuðum. er bfóið brann. iVIörg-
um mun þvkja Stjörnubfó b.vrja
starfsemina bærilega á nýjan leik
— á boðstólum verður Frjáls sem
fiðrildi (Butterflies are free)
með Goldie Hawn og Eleen Hec-
kart — mvnd, er fékk góða dóma
erlendis og sótti síðarnefndu leik-
konunni Oskarsverðlaun.
Allri innri skipan Stjörnubíós
hefur nú verið gjorbylt. Anddyri
kvikmyndahússins hefur verið
stækkað um 100 fermetra, þannig
að kvikmyndahúsgestir hafa þar
nægilegt svigrúm; salnum hefur
verið gjörbreytt, þannig að hann
er nú einn geimur, stighækkandi
og tekur um 470 manns í sæti í
stað 512 áður. Svalirnar fornu
eru horfnar.
Forráðamenn Stjörnubíós hafa
unnið þrekvirki við að koma sal-
arkynnum kvikmyndahússins i
lag á svo skömmum tíma. Öll
framkvæmdin hefur kostað þá
um 35 mílljónir króna, en trygg-
ingarfjárhæð hússins nam sam-
tals um 25 milljónum króna. Upp-
haflegur arkitekt hússins, Aðal-
steinn Richter, annaðist endur-
teikningu þess, en Jón Benedikts-
son myndhöggvari sá um hönnun
innréttinga. Þannig er gengið frá
kvikmyndahúsinu að þessu sinni,
að brunavarna er gætt til hins
ftrasta og óhöpp á borð við elds-
voðann í desember eiga ekki að
geta endurtekið sig.
Stjörnubíó hefur um langt ára-
bil haft umboð fvrir Columbia
Pictures. og á þess vegum verður
boðið upp á margs konar góðgæti
á næstunni. Næsta mynd á eftir
Butterflies are free er XY & Z
með Elísabetu Ta.vlor, Michael
Caine og Susan York i aðalhlut-
verkum. en siðan eru væntanleg-
ar Fat Cit.v eftir John Huston.
Young Winston um æskuár Win-
ston Churchill, Investigation of
an Citizen — ftölsk verðlauna-
mvnd, Gumshoe með Albert
Finney. J.W. COOP með Cliff Ro-
bertson og síðast en ekki sízt Last
Pieture Show. viðfræg bandarfsk
verðlaunakvikm.vnd. sem hvað
mesta athygli hefur vakið vestan
hafs hin síðari ár.
ur Leikfélag Reykjavíkur fært
upp verðlaunaleikritið „Pétur og
Rúnu" eftir Birgi Sigurðsson, og
sagði Vigdís Finnbogadöttir leik-
hússtjóri að þegar er bvrjað var
að sýna „Pétur og Rúnu" hefði
verið farið að ræða um áfram-
haldandi viðskipti Leikfélagsins
og Birgis. Og þegar hann afhenti
handritið að „Selurinn helur
inannsaugu" sl. haust var strax
afráðið, að það yrði fært upp f
tilefni listahátíðar í ár.
Þau Vigdís og Birgir voru sam-
mála um. að „Pétur og Rúna" og
„Selurinn hefur mannsaugu"
væru að verulegu le.vti ólík verk.
en hefðu þó sama grunntóninn
væru bæði úttekt á „þjóðfélagi
lifsgæðakapphlaupsins og verð-
mætamati þess". eins og Vigdis
komst að orði. „Og verk þetta er
að formi til raunsæislegt," sagði
Birgir. „þó að ég sprengi mig i og
með út úr því. En verkið er ekki
framúrstefnuverk. Eg held það sé
rétt. að taka það skýrt fram. Þó að
nafnið sé svona dularfuílt. þá
held ég að það sé mjög aðgengi-
legt. Það er ekkert dularfyllra en
veruleikinn sjálfur."
Leikstjóri þessa nýja verks er
Eyvindur Erlendsson. en hann
færði einnig upp „Pétur og
Rúnu". „Þeir Birgir og Evvindur
búa báðir í Flóanum og þar er vel
jeppafært á milli þeirra. enda
hafa þeir verið að spjalla mikið
saman um leikritið í vetur." sagði
Vigdis. „Síðan kom Evvindur í
bæinn i april og hóf æfingar. og
Birgir hefur einnig komið til að
fvlgjast með þeim um helgar.”
Leikmvndin er eftir Jón Þóris-
son, en tónlist eftir Askel Másson.
Hlutverkin i „Selurinn hefur
mannsaugu" eru 12 alis. og niu
þeirra eru stór. Leikendur eru
Guðrún Asmundsdóttir, Guð-
mundur Pálsson, Þóra Borg. Val-
gerður Dan, Kjartan Ragnarsson.
Helgi Skúlason. Pétur Einarsson,
Steindór Hjörleifsson. Sigurður
Karlsson. Karl Guðmundsson. Jón
Hjartarson og Harald G. Haralds-
son.
Eins og áður segir verður leik-
ritið frumsýnt í kvöld. og verða
tvær sýningar i viðbót i tilefni af
listahátíð. en síðan mun leikfélag-
ið halda sýninguin eitthvað áfram
í sumar.
A fimmtudag í næstu viku verð-
ur svo frumsýning á öðru fram-
lagi Leikfélagsins til listahátiðar.
Nefnist verkið „Af Sæmundi
fróða", — samanstendur af söngv-
um. sögnum og brúðuleik og er
byggt á þjóðsögunum um Sæ-
mund fróða. Verður þetta sýning í
övenjulegu og skemmtilegu
formi. t.d. er brúðuleikurinn leik-
inn með sérstökum stangarbrúð-
um. sem aldrei hafa verið notaðar
í leikhúsum hér á landi áður. Þá
verða t.d. fluttir frumsamdir
söngvar af Böðvari Guðmunds-
svni svo og vfsur þjóðskáldanna
um þessa merkilegu sagnaper-
sómu. Er verk þetta samið i hóp-
vinnu af Leikfélagi Reykjavíkur
og Leikbrúðulandi.