Morgunblaðið - 23.06.1974, Page 1

Morgunblaðið - 23.06.1974, Page 1
44 SIÐUR OG LESBOK 105. tbl. 61. árg. SUNNUDAGUR 23. JÚNl 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Geir Hallgrímsson í viðtali við Morgunblaðið: Afdráttarlaus sigur ins getur einn hindrað vinstri stjórn VIÐ EIGUM SAMLEIÐ I LANDSMAL- UM EKKI SÍÐUR EN BYGGÐAMÁLUM ALÞINGISKOSNINGAR fara fram eftir viku — á sunnudaginn kemur. Morgunblað- ið hefur átt samtal við Geir Hallgrfmsson, formann Sjálfstæðisflokksins, um þau málefni, sem helzt er barizt um f þessum kosningum, ástand og horfur f efnahags- málum landsmanna og viðhorfið á vettvangi stjórnmálanna. 1 viðtalinu við Geir Hallgrfmsson kemur þetta m.a. fram: # Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki standa að neinum þeim aðgerðum f varnarmál- um, sem veikja öryggi landsins. 0 Atvinnuleysi og hallarrekstur atvinnuvega blasir við vegna verðbólgustefnu vinstri stjórnar. 0 Markmið allra efnahagsaðgerða, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið að, hefur verið að tryggja fulla atvinnu og lífskjör fólksins. Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki taka þátt f neinum efnahagsaðgerðum, sem ekki eru f samræmi við þau markmið. 0 Fordæmi Reykjavfkur undir stjórn Sjálfstæðisflokksins sýnir, að Sjálfstæðis- flokkurinn er ekki sfðri öðrum stjórnmálaflokkum f félagslegum umbótamálum. £ Skilyrði fyrir útfærslu fiskveiðilögsögunnar f 200 sjómflur eru betri nú en voru fyrir útfærslu í 50 mflur fyrir tveimur árum. # Endurskoðun kjördæmaskipunar og kosningalaga er komin á dagskrá. # Landsmenn verða að gera sér grein fyrir þvf, að það er möguleiki á þvf, að ný vinstri stjórn verði mynduð eftir kosningar. Eina leiðin til þess að koma f veg fyrir það er afgerandi og ákveðinn sigur Sjálfstæðisflokksins f þingkosningunum. Viðtalið við Geir Hallgrímsson fer hér á eftir: — Hver eru þau málefni, sem Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrst og fremst fyrir f þessum kosning- um? — Frá mínu sjónarmiði er ljóst, að höfuðmál kosninganna eru varnar- og öryggismál, efnahags- mál og landhelgismál, en auk þeirra eru önnur mál, sem kjós- endur láta sig skipta og geta ráðið atkvæði þeirra á kjördegi. — Er Sjálfstæðisflokkurinn reiðubúinn til þess að hvika í ein- hverju frá þeirri stefnu, sem flokkurinn hefur markað í varn- armálum til þess að ná samning- um við annan flokk eða aðra flokka um stjórnarmyndun að kosningum loknum? — Nei, Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki standa að neinum þeim aðgerðum í varnarmálum, sem veikja öryggi landsins. Við telj- um, að umræðugrundvöllur sá, er utanríkisráðherra lagði fram og ríkisstjórnin samþykkti, sé með öllu ófullnægjandi. — Hver eru helztu rök Sjálf- stæðisflokksins fyrir því, að varn- arlið verði að vera hér? — Við höfum lagt áherzlu á það, að varnarviðbúnaður sé til staðar i landi til þess að veita viðnám, fyrstu varnir, ef á okkur er ráðizt, en jafnframt í þeim til- gangi að koma í veg fyrir, að til slíkrar árásar verði nokkurn tfma efnt, þannig að þeim, er í hlut eiga, megi vera ljóst með veru varnarliðs hér á landi, að úr yrðu allsherjarátök, ef hár yrði skert á höfði okkar. Þá teljum við nauðsynlegt, að varnarviðbúnaði sé þannig hátt- að, að unnt sé á grundvelli þátt- töku okkar í Atlantshafsbanda- laginu að hafa eftirlit með sigling- um í og á hafinu kringum landið og fylgjazt verði með flugferðum ókunnugra flugvéla um íslenzkt flugstjórnarsvæði. Við teljum það nauðsyn sjálfstæðri þjóð að vita, hverjir fara um næsta nágrenni hennar og geta komið í veg fyrir, að slíkri umferð sé beitt sem þrýstingi til að hafa áhrif á gerðir okkar. Á sama hátt er slíkt eftirlit nauðsynlegt nágrannaþjóðum okkar og bandalagsþjóðum í Atlantshafsbandalaginu og þáttur í því friðargæzluhlutverki, sem það hefur innt af höndum í okkar hluta heims sl. aldarfjórðung. Varið land - sigur Sjálfstæðisflokks — Er Sjálfstæðisflokkurinn þá ekki reiðubúinn til þess að fallast á neinar breytingar frá núverandi fyrirkomulagi varnanna? — Við teljum sjálfsagt, að varn- arstöðin sjálf verði aðskilin frá annarri starfsemi á Keflavíkur- flugvelli, eins og ráð var fyrir gert í áætlunum fyrrverandi ríkisstjórnar og allir varnarliðs- Framhald á bls. 14. Viðsjár á Caracas-ráðstefnu: Arabar vilja að- ild skæruliða Caracas 22. júnf. NTB. AP. MIKLAR viðsjár eru í upp- siglingu á hafréttarráð- stefnu S.Þ. í Caracas, þvi að fulltrúar Arabaland- anna hafa byrjað áróður fyrir því, að Þjóðfrelsis- hreyfing Palestínu fái að senda áheyrnarfulltrúa til ráðstefnunnar. Mikil reiði varð meðal ísraelsku sendinefndarinnar er frétt af þessu barst meðal ráðstefnu- manna, og sagði talsmaður hennar, að fráleitt væri að hópur hryðjuverkamanna, sem stundaði fátt annað en morð og skemmdar- verk, fái að taka þátt í ráðstefn- unni. Öttazt menn, að miklar deilur komi upp, og er talið, að Banda- ríkin muni styðja sjónarmið ísra- ela, en Sovétrfkin og Kína lýsi stuðningi við Arabalöndin í þess- ari kröfu. Telja sumir, að þetta nýja deilumál geti orðið til að tefja um óákveðinn tíma störf ráðstefnunnar. Fundir eru ekki á ráðstefnunni f dag og á morgun, en sendinefndir margar munu hittast og ræða málið og línur skýrast e.t.v. í þvf á mánudaginn. Um þær mundir, sem Nixon Bandarfkjaforseti var á Miðaustur- landa ferðalagi sfnu, birti blaðið A1 Diyar f Beirut þessa tilbúnu mynd af Nixon Bandarfkjaforseta með hinn hefðbundna arabiska höfuðbúnað, sem heitir á máli þarlendra „kaffieh". „DuIin”ritskoð- un í Portúgal Lissabon 22. júni AP. STJÓRN Spinola forseta Portúgals er að undirbúa sér- stök lög, þar sem allróttækar ráðstafanir eru gerðar til að tryggja, að ekki gangi á þrykk út neitt það, sem að nokkru ráði er gagnrýni á núverandi stjórnvöld landsins. Nær þessi reglugerð til blaða, útvarps, Framhaid á bls. 43 IATA hækk- ar fargjöld Fórd Lauderdale, Florida 22. júniNTB. AP. ALÞJÖÐASAMTÖK flugféiaga, IATA, samþykktu í gærkvöldi að hækka farmiðaverð á ieiðinni yfir Atlantshaf um 3—5%. Þau 40 fé- lög, sem eiga aðiid að IATA og áttu fulltrúa á fundinum, sam- þykktu einróma þessa hækkun. Hún er sögð ákveðin vegna mik- illar hækkunar á eldsneytis- kostnaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.