Morgunblaðið - 23.06.1974, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 23.06.1974, Qupperneq 4
4 MORGJUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JUNÍ 1974 Fa /7 HÍ ÍÁhKÍfmA .V ALURl' LOFTLEIÐIR BÍLALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 LOFTLEIÐIR tel. 14444*25555 hst BlLALEIGA CAR RENTAlÍ f Hverf isgötu 18 SENDUM Tð 27060 /p BÍUMEIGAN felEYSIR CAR RENTAL V24460 I' HVERJUM BÍL PIOIMŒR ÚTVARP OG STEREO KASSETTUTÆKI SAFNAST ÞEGAR SANIAN ^ SAMVINNUBANKINN Bílaleiga CAB BENTAL Sendum 41660 - 42902 Lager — Innréttingar Til sölu ! stóru verslunarhverfi. Vörubirgðir. Lager af tilbúnum fatnaði, leikf. snyrtivörum, garni og fl. lonréttingar, kassar og fleira. Góðir greiðsluskilmálar. Tilboð merkt: Glæsilegt söluhverfi 1445. LESIfl .^vsn —— ^"ronnblnbis, k<ða eru euHNna- ■ - “■?T.SÍ DRGLEGn Listahátíð ÖLLUM sem eiga kost á ein- hverjum samanburði við aðrar þjóðir, hlýtur að finnast algjört undur — já, ótrúlegt krafta- verk, að þessi litla, dreifða og fámenna þjóð skuli geta efnt til listahátíðar dögum og vikum saman. Og þeir, sem sérþekkingu hafa á listum og listflutningi telja þetta allt ekki einungis frambærilegt, heldur framar- lega að snilli, hvar sem flutt væri í menningarlöndum heims, meira að segja hinum mestu þeirra. Fólkið, sem býr á öllu íslandi er nefnilega aðeins brot af þeim fjölda, sem býr í einni borg — meðalstjórri borg erlendis. Og meira en helming- ur þjóðarinnar á þessari úthafs- eyju er að sjálfsögðu börn, námsfólk og aldnir. Það leynir sér því varla, að Islendingar eru listhneigð og listgáfuð þjóð. Listahátíðir þurfa nefnilega meira en list- flytjendur, þar þarf líka list- unnendur, fjölda, sem vill koma, hlusta, horfa nema og njóta. Og til þess þarf einnig bæði fjármuni og fórnarlund. Án listunnenda væri listflytj- endum leitt að stunda list og snilli og mundu sjálfsagt gefast upp eða guggna innan stundar. En hvað veldur því, að þetta er mögulegt og hefur verið mögu- legt í listsköpun og listtjáningu íslendinga í fæð og smæð þjóð- arinnar? Það er annars vegar listagleðin. Fögnuðurinn, starfsgleðin að skapa eitthvað fagurt eða njóta þess. En hins vegar er það fórnfýs- in, sú kennd, sem knúði skáld og listamenn liðinna ára og alda til að kveða, syngja og skapa, þótt ekkert væri í aðra hönd annað en sköpunargleðin ein. „Siguröur Breiðfjörð var sveltur í hel,“ segir einhver. En þeir voru margir, ekki aðeins skáld og snillingar hér úti við úthafsskaut, sem „kváðu í heljarnauðum heilaga glóð í freðnar þjóðir" og hnigu alls- lausir og einskis virtir f óþekkta gröf. Þar má nefna nöfn eins og Mozart og Bach, svo að á eitthvað sé bent, sem nú gnæfir hæst á dagskrá list- hátíðar. Nú er öldin önnur að ýmsu leyti, sem betur fer, og nýlega var einhver íslenzk-amerlskur snillingur kynntur, sem sagður var hafa hundrað þúsund á viku og vel það. Listafólk þarf líka að lifa. En hafið þið veitt því athygli samt, hve mikið við höfum að þakka, meðan enn er eitthvað eftir af fórnandi mætti og fórnarþætti listamanna og listunnenda? Eitt mesta listaundur árlega hér, er flutningur Pólýfónkórs- ins á passium Bachs og HSndels um páskaleyti hvert vor. Upphafsmaður sllkra afreka var snillingurinn og göfug- mennið Páll Isólfsson meðan hann enn varð að vinna fyrir sér með því að kenna almenn- ingi á orgel. Nú fetar Ingólfur Guðbrands- son I fótspor hans, meðan hann gegnir forstjórastörfum á ferðaskrifstofu. Báðir þessir menn eru „geni“, af Guði sendir sinnar þjóðar til. Hjá milljónaþjóðum hefðu þeir unnið fyrir milljón- um á mánuði. Hér leggja þeir og lögðu þetta á altari lista og Guðs dýrðar I hjörtum sem trúa. En það eru fleiri en þeir, sem eiga gull á altari listanna. Hvað ætli hver flytjandi Jóhannesar- passlu I Pólýfónkórnum beri margar milljónir út býtum fyrir erfiði sitt og snilli? Ætli þær krónur yrðu ekki taldar I hundruðum fremur en þúsund- um og milljónum. Það er á slíkum fórnum, sem listahátlðir lifa á Islandi ennþá. Enginn skilji þó orð mfn svo, að þannig ætti það að vera. „Verð- viö giuggann eftir sr. Árelíus Níelsson ur er verkamaðurinn laun- anna,“ sagði Kristur og vissu- lega á það ekki sfður við á verk- sviði lista og snilli. En Meistarinn sagði líka: Að hvaða gagni yrði það, að eignast allan heiminn og bíða tjón á sálu sinni? Heill þeirri sál, sem lifir og þroskast, skapar og fórnar, jafnvel þótt hún ætti ekki mál- ungi matar né yfir höfuðið þak. Heill þeirri þjóð, sem á fórn- andi mátt barna sinna, sem meta auðlegð andans ofar gulli og seimi. Það vill llka svo vel til, að það er heitasti heiður og bjartasti á þessu þjóðhátlðarári, með allar sínar listahátlðir, að íslenzka þjóðin á enn vinnandi og skap- andi hendur, sem fá tækifæri til starfa, og starfið ber ávöxt, sem skapar auðuga þjóð I landi hrjósturs og harðfengis. Brauð og leikir — veizlur og listahátfðir væru merki sálar- tjóns — eitt út af fyrir sig. En á grunni erfiðis og fórna er það lífið — gullnar gjafir Guðs and- ans til gáfaðrar, starfsamrar þjóðar, sem þarf nú að líta I kringum sig, svo að hún varð- veiti höfuðstól sinn — gull fórna og dáða I sinni eigin sál — hjartslátt lífsins. „Án vegabréfs vors hjarta er leiðin glötuð." Árn fórna og dáða er sálartjón á næsta leiti. Því mega hvorki listflytjendur né listunnendur listahátiða gleyma. Gengisf all gjaldmiðils er galli og minnkun, sem minnir á hóf og aukinn sparnað. En gengis- fall gefandi og skapandi anda er óbætanlegt. Heill listahátlð- um snilldar og fórnar, þótt verður sé listamaður launa. Ur Austur-Skagafirði Bæ, Höfðaströnd, 12. júní. ELZTU núlifandi menn muna ekki hagstæðara tíðarfar frá marzbyrjun. Þótt kuldadagar hafi komið, þá hefir það ekki staðið lengi. Frostnætur komu nokkrar I slðasta mánuði, sem náðu jafnvel 7 gráðum fram til dala, og fraus þá jafnvel rabbarbari, sem þá var kominn vel á veg með sprettu. Nú nýlega snjóaði I fjöll. Þrátt fyrir þetta er gróður talinn mánuði fyrr á ferð en undan- farin ár. 1941 byrjaði slátur hér upp úr miðjum júnl og er það lík- lega annað bezta árferði fram að þessum tíma sem ég man. Janúar og febrúar voru það harðir að klakahjúpur var yfir öllu, af því leiðir að nú er tölu- vert vfða kal I túnum, þó að ekki sé það eins stórfellt og sum undanfarin ár. Sauðburður hefir víðast hvar gengið mjög vel og fjöldi af tvílembum Ilklega óvenju mikill. Á einstaka bæ drápust þó vel stálpuð lömb, svo að tölu- verður skaði varð af. Einnig hefir vargur, svartbakur, hrafn, minkur og tófa gert sitt til að angra bændur og eigend- ur veiðivatna. Nýlega drap svartbakur á með tveim lömb- um nýbornum, einnig hefir dýr- bítur eitthvaó drepið lömb. 1 Málmey þar sem ekki er búið er svartbakur eins og stærstu fjár- hópar uppi á eynni. Allur þessi vargur er orðinn of margur og gerir mörgum búsifjar. Búið er nú að drepa tvö dýr I Þórðar- höfða, og nokkur greni hafa unnizt á þessu svæði, enda sjást tófur sofa við túnjaðra og hafa verið skotnar þar. Nokkuð er fyrirhugað af byggingum. Verið að vinna t.d. við viðbótarskólabyggingu á Hofsósi, og byrjað er á nokkrum íbúðarhúsum á Hófs- ósi, en aðallega útihúsum I sveitinni. Smiði og verkamenn vantar nokkuð, svo a$ byggingar verða tafsamari. Á þessu vori keypti Stefán Steingrímsson, sem var bóndi á Hofi Kýrholti I Viðvíkursveit með vélum og áhöfn. Reynir Gíslason hóf einnig búskap á Bæ og keypti þar bústofn og vélar. Fell I Sléttuhllð og Mýrar I sömu sveit fóru úr ábúð. Hrognkelsaveiði er talin a.m.k. helmingi minni en síðast liðið ár. Trillur frá Hofsósi eru byrjaðar handfæraveiðar en ennþá er frekar tregt fiskirí og langsótt. Skuttogarar Skagfirð- inga hafa aflað vel, en eitthvað farið á Grænlandsmið og komið þaðan með smáan karfa, sem talinn er slæmur fiskur til vinnslu. Heilsufar hefir verið mjög kvillasamt I héraðinu. Inflú- ensa hefir hertekið heil heimili og jafnvel hefir fólk lagzt oftar en einu sinni, enda þá ekki getað hlíft sér eins vel og lækn- ar hafa ráðlagt. Dauðsföll hafa þó ekki orðið af þessu, svo vitað sé. Umferð um vegi héraðsins er mjög mikil, og bílslys næstum vikulega. Vegirnir eru þó taldir I góðu ástandi hér I héraðinu en hraðaakstur er orðinn ískyggi- lega mikill, og kann það ekki góðri lukku að stýra, og oft slempilukka hvernig úr rætist. Björn. Kammertónleikar LISTAHATIÐ 1974 Á þriðju og síðustu kammer- tónleikunum á Listahátíð, sem haldnir voru að Kjarvalsstöð- um, var ýmislegt forvitnilegt á boðstólnum. Frumflutt voru tvö íslenzk verk, „Mánasilfur“ eftir Skúla Halldórsson og „Poem“ eftir Sigurð Egil Garðarsson. Verk Skúla er fyrir flautu, celló og planó og ber þess merki, að Skúli hefur ver- ið einn afkastamesti sönglaga- höfundur síðari ára. I tríóinu hefur pfanóið mest megnis und- irleikshlutverk, en hin hljóð- færin tvö taka að sér hlutverk söngvarans. I efnisskrá gat höf- undur þess, að efniviður hafi verið sóttur I þulur Theódóru Thoroddsen, og gætti því þjóð- legra áhrifa I tónsmíðinni, og víst er, að það er „hómófónískt" hugsað með nokkrum glitrandi augnablikum I píanóinu, og I stefjunum bregður fyrir módöl- um tónasamstæðum. Flytjend- ur vóru Jón H. Sigurbjörnsson, Pétur Þorvaldsson og Rögn- valdur Sigurjónsson. Robert Jennings og höfundur léku verk Sigurðar Egils. Það hefst á langri lagllnu fiðlunnar með „kommusetningu" I stutt- um, hvellum hljómum I píanó- inu. Ljóðræna hugsunin er síð- an þróuð og leidd til sannfær- andi lykta, en rytmíska tillegg- ið, „kommusetningin", þróast ekki á sjálfstæðan hátt, heldur Tónllst eftir ÞORKEL SIGURBJÖRNSSON ummyndast I falleg hljómbrot, sem taka á sig ljóðrænan tón fiðlunnar. Konsert de Falla fyrir sembal, flautu, óbó, klarínett, fiðlu og planó heyrðist nú I fyrsta sinn á íslandi. Flytjend- ur voru Helga Ingólfsdóttir, Jón H. Sigurbjörnsson, Kristján Þ. Stephensen, Einar Jóhannesson, Rut Ingólfsdóttir og Pétur Þorvaldsson. Þetta er bráðskemmtilegt verk, sem krefst mikillar snerpu hljóð- fallsins, en jafnvægi milli hljóðfæranna er alveg sérstakt vandamál. Gegn veikróma sembalnum teflir de Falla raddmiklum hljóðfærum. Þeg- ar ég hef áður heyrt þetta verk, hefur semballinn verið stað- settur næst áheyrendum með hin hljóðfærin á bak við, og stundum hefur hann verið magnaður upp. Hér var semballinn hins vegarof mikið I bakgrunni. Ég hefði llka viljað heyra betra áframhald I hæga þættinum — hann er I raun „prósessfusöngur" líkt og hægi þáttur ítölsku sinfónlu Mendel- sohns — en hér hætti honum til að gliðna svolítið I sundur. Þriðji fiðluleikarinn kom svo fram I seinasta verkinu, Guðný Guðmundsdóttir, sem ásamt þeim Pétri Þorvaldssyni og Rögnvaldi Sigurjónssyni, lék H- dúr tríó Brahms. Þetta er eitt fegursta tríó, sem völ er á, og verðugt niðurlag á röð kammer- tónleika þessarar Listahátíðar. Þarna áttu flytjendur líka við jafnvægisvanda að etja, flygill- inn fékk sérstakan stuðning af pöllunum, sem hann stóð á og hætti til að yfirgnæfa hin hljóð- færin tvö. Tríóið var leikið af miklum hug og sannfæringu — t.d. minnist ég þess ekki, að hérlendir menn hafi oft áður haldið svo leiftrandi fjöri af öryggi eins og I „scherzando" þættinum. Að öllum öðrum ólöstuðum vildi ég hrósa Pétri sérstaklega fyrir karlmannlega meðferð cellóraddarinnar I þessu kjarngóða tríói.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.