Morgunblaðið - 23.06.1974, Síða 28

Morgunblaðið - 23.06.1974, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNÚDAGUR 23. JUNl 1974 Er verið að reyna að vængstýfa Kissinger? Henry Kissinger á blaðamanna- fundinum f Salzburg, þegar hann hótaði að segja af sér vegná sfma- hierunarmálsins. HANN var sár og reiður sá Henry Kissinger, sem blaðamenn hittu fyrir f Salzburg á dögunum, þar sem hann hótaði að segja af sér embætti utanrfkisráðherra Bandarfkjanna, ef hann yrði ekki þegar f stað hreinsaður af ákær- um um að hafa gefið öldunga- deildinni bandarfsku villandi upplýsingar um hlutdeild sfna f sfmahlerunum, sem stjórnin lét framkvæma, eftir að uppvfst varð um fréttaleka, er Kissinger taldi stefna samningaviðræðunum um Vietnam f hættu. Rödd hans brast og tár blikuðu f augum hans að baki þykkum gleraugunum, þeg- ar hann sagðist þeirrar skoðunar, að óhugsandi væri fyrir sig að reka virka utanrfkispólitfk fyrir hönd Bandarfkjanna, ef heiðar- leiki hans og trúverðugleiki væru dregnir f efna heima fyrir. Þessi viðbrögð Kissingers komu blaðamönnum mjög á óvart og hafa orðið tilefni umfangsmikilla blaðaskrifa. Margir þeirra fóru beinlfnis hjá sér við að sjá þessa hlið á manninum, sem þeir voru vanir að geta hakkað f sig á blaða- mannafundum, þar sem ráðherr- ann lék jafnan við hvern sinn fingur og smeygði sér alla jafna með gamansemi undan þeim spurningum, sem hann viidi ekki svara — svo sem þeir minnast, sem sátu fundinn með honum á Hótel Loftleiðum f fyrrasumar og hittu hann á Kjarvalsstöðum, þar sem hann lffgaði sannarlega upp stirða og gráklædda embættis- mannasamkunduna f fylgdarliði forsetanna Nixons og Pompidous. Margir hafa gagnrýnt hótun Kissingers um afsögn, og að hann skyldi láta tilfinningarnar hlaupa með sig f gönur. „Washington Post“ sagði t.d., að uppnámið f Salzburg hefði verið heimskulegt og vanhugsað og framkoman ekki samboðin utanrfkisráðherra Bandarfkjanna á 20. öld. James Reston hjá „The New York Tim- es“ sagði, að Hótun Kissingers um afsögn hefði verið heimskuleg. Aðrir höfðu við orð, að hann hlyti að gera sér ljóst, að gagnrýni fylgdi starfi hans, hann væri eng- in heillög kýr, hvaða afrek sem hann hefði unnið á alþjóðavett- vangi. Þær raddir heyrðust, að hann hefði nú fengið að starfa í friði f fimm ár, fyrst sem ráðu- nautur Nixons og síðan sem utan- ríkisráðherra, án umtalsverðrar gagnrýni — nú væri kominn tími til að hann sýndi, að diplómatinn og háskólamaðurinn gæti staðizt hina hrjúfu hversdagslegu bar- áttu bandarfskra stjórnmála. Mörgum fannst hann gera allt of mikið veður út af blaðaskrifunum heima fyrir, töldu enga ástæðu til að takamáliðsvona alvarlega; aðr- ir töldu viðbrögðin einmitt merki um heiðarleika Kissingers og hreinan skjöld. Gjarnan voru tár ráðherrans skrifuð á reikning þreytu og streitu hans eftir fimm vikna erf- iðar sáttatilraunir milli ísraels og Sýrlendinga, þar sem hann þótti „gera hið ómögulega" og sýndi ótrúlega þolinmæði, þrautseigju og hugmyndaflug. Þessi tfmi gekk svo nærri fréttamönnunum, sem með honum fylgdust, að þeir voru nærri örmagna á eftir, og drógu þeir þess vegna þá ályktun, að Kissinger hlyti að vera orðinn þreyttur líka, hann væri þó ekki nema maður. HVERS VEGNA? Sfmahleranamálið og fjaðrafok- ið út af aðild Kissingers nú, vekur margvfslegar spurningar. Hvaða gögn fékk dómsmálanefnd full- trúadeildar Bandarfkjaþings, sem benda svo ótvírætt til meiri hlut- deildar Kissingers f hlerununum en hann sjálfur hafði gefið upp? Liggja pólitfskar orsakir að baki því, að fréttir um þessi gögn lak til fjölmiðla einmitt nú? Er ein- hverjum ímun að vængstýfa utan- ríkisráðherrann? Hversvegna brást Kissinger við þessum fréttt- um með þeim hætti, sem raun bar vitni? Var hótun hans um afsögn alvara eða leikaraskapur? Hver er hlutur hvers? Þegar þetta er skrifað hafa fjölmiðlar skýrt frá eftirfarandi atriðum, sem komið hafa fram f gögnum dómsmála- nefndar fulltrúadeildar Banda- ríkjaþings: 1. Nefndin á að hafa hlustað á segulbandsupptöku af samtali milli Nixons forseta og Johns Deans, þáverandi ráðunautar hans, þar sem Nixon hefur við orð, að Kissinger hafi óskað eft- ir því, að sfmar starfsmanna hans yrðu hleraðir. 2. Nefndin hefur fengið í hendur athugasenjd eða skýrslu frá starfsmanni FBI, skrifaða 12. maí 1973, þar sem segir, að frá því um vorið 1969 ög fram á sumar 1971 hafi FBI hlerað sfma að beiðni Hvíta hússins. Tilmæli þar um hafi annað- hvort komið frá Kissinger eða Haig, og tekið cr fram, að sér- staklega hafi verið farið fram á það við J. Edgar Hoover, sem 1969 var enn yfirmaður FBI, að hann léti sjá um þessar hleran- ir. 3. Nefndin hefur fengið skýrslu, þar sem Hoover sjálfur segir, að Kissinger hafi hringt til sín 9. maí 1969 og beðið sig að beita öllum tiltækum ráðum til þess að komast fyrir fréttaleka úr stjórnarbúðunum. Sömuleiðis orðsendingu frá Hoover til þá- verandi dómsmálaráðherra, Johns Mitchells.þar sem tiltekið er, að Kissinger hafi átt frum- kvæði að sfmahlerunum hjá tveimur starfsmönnum sfnum og a.m.k. einum fréttamanni, sem talið var, að hefði fengið leynilegar upplýsingar. Gögn hjá Hoover benda einnig til þess, að Nixon forseti hafi fyr- irskipað sfmahleranir hjá fréttamanni einum og starfs- manni Hvfta hússins, sem einn- ig varsetturundir eftirlit leyni- lögreglumanns. 4. Gögn frá FBI stangast á við þær fullyrðingar Kissings, að hann hafi aðeins séð fáeinar skýrslur um sfmahleranirnar og hætt að fá þær árið 1970, því að eftir það hafi þær allar ferið til Haldemanns, starfsmanna- stjóra f Hvíta húsinu. Af gögn- um FBI er ráðið, að 37 bréf, þar sem teknar voru saman f stuttu máli niðurstöður símahleran- anna hafi farið til Kissingers á tfmabilinu maf 1969 til maf 1970, og vísbendingar eru um, að Kissinger hafi fengið slfk bréf allt fram til desemberloka það ár. TVEIR KOSTIR — BÁÐIR ILLIR Samkvæmt þeim upplýsingum, sem fram hafa komið, m.a. frá Kissinger sjálfum, á sfmahlerun- armál þetta upptök sfn f frétt bandarfska dagblaðsins „The New York Times“ 9. maí 1969, um að Bandarfkjastjórn hefði án heimildar þingsins látið gera loft- árásir á Cambodiu. Fréttin varð tilefni fundar þeirra Nixons, Kiss- ingers, Hoovers og Mitchells, þar sem rætt var um upptök hennar og hvað gera skyldi til að koma f veg fyrir slíka fréttaleka. Kom þá til tals að beita símahlerunum, sem oft hafði verið gert áður í Washington, þegar þjóðaröryggi þótti í húfi. Kemur það m.a. fram f grein, sem brezki blaðamaður- inn Henry Brandon skrifaði á dögunum f „The Times“ um mál þetta að Charles Bohlen geti þess í æfiminningum, að Roosevelt for- seti hafi látið hlera sfma hans um hríð, af þvf að hann hafði vitn- eskju um meiriháttar ríkisleynd- armál. Kissinger hefur löngu viður- kennt að hafa látið uppi nöfn þeirra starfsmanna sinna, sem höfðu ofangreindar upplýsingar með höndum og komið hefur fram, að FBI hafi fengið fyrir- skipanir um það frá Hvíta húsinu að hefja símahleranir hjá 13 starfsmönnum stjórnarinnar og fjórum blaðamönnum; þeim Henry Brandon, fréttaritara „The Times“ f Washington, Hedrick Smith hjá „The New York Tim- es,“ William Beecher, sem var hjá „The Times“, og Marvin Kalb hjá CBS. Kissinger hefur frá upphafi varið nauðsyn sfmahlerana þjóð- aröryggis vegna og bent á, að hann hafi átt völ tveggja kosta, er báðir voru slæmir: annaðhvort að sætta sig við áframhaldandi leka mikilvægra og viðkvæmra upplýs- inga „sem ég hafði megnustu fyr- irlitningu á“, eða kyngja sfma- hlerunum „sem ég einnig hafði megnustu fyrirlitningu á“, er haft eftir Kissinger. 1 yfirheyrslunum hjá öldunga- deildarnefndinni fullyrti Kissing- er að hann hefði hvorki skipulagt hleranirnar né farið fram á þær í einstökum tilvikum; hann hafi sætt sig við þær aðferðir, sem hlutaðeigandi ráðamenn töldu lík- legastar til að koma f veg fyrir fréttalekana. ÞJÓÐARÖRYGGI EÐA PÖLITÍK? Eitt af því, sem gert hefur sfma- hlerunarmálið svo viðkvæmt og umdeilt er sú staðhæfing, að títt- nefnt þjóðaröryggi hafi alls ekki verið í húfi í öllum tilvikum. Er sérstaklega rætt um tvo menn f starfsliði Kissingers, Mort Halperin og Tony Lake, sem báðir hættu þar 1969. Sími beggja var hleraður fram á árið 1971, og ekki byrjað að hlera hjá Lake fyrr en hann hætti að vinna fyrir Kissing- er. Þeir gerðust báðir ráðgjafar Edmunds Muskies, einum af hættulegustu andstæðingum Nix- ons fyrir forsetakosningarnar 1972, en sem kunnugt er, hefur komizt upp um ýmsar miður þokkalegar aðgerðir stuðnings- manna Nixons f baráttu þeirra fyrir því að koma í veg fyrir, að demókratar útnefndu Muskie frambjóðanda sinn í kosningun- um. Henry Brandon segist í grein sinni, sem fyrr var getið, hafa spurt William Rtickelshaus — sem gegndi störfum yfirmanns FBI um hríð 1973 — hvernig hann skýri þverstæðurnar í fram- burði Kissingers og gögnum FBI. Þar kemur fram, að Ruckelshaus hafi farið vandlega yfir gögn FBI og komizt að þeirri niðurstöðu, að ekki væri sanngjarnt að tala um, að Kissinger hafi óskað eftir síma- hlerunum. Hann bendir á, að skýrslur Hoovers hafi oft verið skrifaðar þannig að þær yrðu hon- um sjálfum vörn I vafasömum að- gerðum og þvf geti þær ekki taiizt áreiðanleg málsskjöl. Þá leggur Ruckelshaus áherzlu á samábyrgð þeirra, sem sátu fundinn í Hvíta húsinu 9. maí 1969. „Allir voru þeir (Nixon, Kissinger, Mitchell og Hoover) á einu máli um, að fréttalekar væru slæmir og þá yrði að stöðva, og það var Hoover sem mælti með sfmahlerunum. Enginn einn átti frumkvæðið beinlfnis, enda þótt Kissinger léti nafnalistann af hendi. Þetta var sameiginleg ákvörðun og alls ekki sanngjarnt að lýsa ábyrgð á hend- ur Kissingers“, sagði Rtickelshaus í samtali við Henry Brandon. RUckelshaus sagði einnig f sjón- varpsviðtali sl. laugardag, að hann teldi hlutdeild Kissingers f þessu máli hafa verið mjög á þann veg, sem hann sjálfur hefði haldið fram við öldungardeildarþing- mennina. LIÐUR I VALDABARATTU? Eðlilegt er, að menn velti því fyrir sér, hvort pólitfskar ástæður liggi fyrir því, að svo mikið er gert úr meintri hlutdeild Kissing- ers f sfmahlerunum ogTiann sak- aður um meinsæri, eða allt að því. Staða Kissingers innan Banda- ríkjanna er nú slík, að enginn þarlendur stjórnmálamaður kemst þar með tærnar sem hann hefur hælana. Allir virðast sam- mála um það innan sem utan Bandaríkjanna, að í honum yrði mikill missir, ef hann færi frá — eða eins og einhver sagði: „Nixon telur sig e.t.v. geta verið án Kiss- ingers, Bandaríkjamenn telja sig e.t.v. geta komizt af án hans, — en mannkynið má alls ekki missa hann núna“. Þótt Kissinger eigi sína gagn- rýnendur heima fyrir, er hann þó yfirleitt virtur og dáður fyrir það meðal almennings að hafa haldið uppi heiðri Bandarfkjamanna á alþjóðavettvangi meðan skuggi Watergateflækjunnar og sá sið- ferðisbrestur, sem hún hefur leitt í ljós á æðstu valdastöðum, þrúg- ar þá heima fyrir. Hvað sem segja má um friðarsamningana um Vietnam — og eftirköstin þar er ljóst, að Kissinger tókst að losa Bandaríkin úr sjálfheldu tapaðr- ar styrjaldar með þeim hætti, að þeir máttu vel við una úr því sem komið var — og hefði tæpast öðr- um tekizt betur. Honum hefur tekizt að marka þáttaskil í sam- skiptum vesturveldanna og Kína — og friðarumleitanir hans milli Araba og ísraela hafa almennt verið taldar meiriháttar afreks- verk, enda þótt varanleg lausn deilnanna þar um slóðir sé eflaust langt undan. En gagnrýnendur Kissingers draga enga dul á, að þeimfinnst hann hafa veitt N-Viet- nömum of mikla eftirgjöf í Viet- samsamningum, að þeir líta með tortryggni viðleitni hans til að bæta og efla samskiptin við Sovét- ríkin, aðþeir teljahann of einráð- an um mótun og framkvæmd ut- anríkisstefnu Bandarfkjanna. Þeir gagnrýna pragmatfskan hugsunarhátt hans og þá afstöðu, sem mörgum finnst ómannúðleg og kaldrifjuð, að Bandarfkin eigi ekki að setja Sovétríkjunum sið- ferðileg eða stjórnarfarsleg skil- yrði fyrir viðskiptasamningum og lánakjörum — á borð við, að þeir hleypi úr landi þeim Gyðingum og menntamönnum, sem brott vilja fara. Helzti málsvari slfkra sjón- armiða er þingmaðurinn Henry Jackson, sem nýtur sfvaxandi vin- sælda og stuðnings heima fyrir. Þær skoðanir hafa komið fram, að afdráttarlaus viðbrögð Kissing- ers og hótun hans um afsögn hafi ekki komið til af hreinleika hug- ans einum saman, heldur hafi hann beinlfnis sett hvorttveggja á sviðmeð það fyrir augum að draga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.