Morgunblaðið - 23.06.1974, Page 40

Morgunblaðið - 23.06.1974, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1974 Smásaga eftir Líneyju Jóhannesdóttur Lyngið var tekið að roðna og berin orðin stór og safarík. Slættinum var lokið og kýrnar komnar á túnið. Á kvöldin stóðu þær jórtrandi við fjósdyrnar og bauluðu lágt við mjaltakonunni. Við systir mín tókum ekki eftir því, að sumarið var liðið, fyrr en einn morgun, þegar við komum út. Hafdrunur heyrðust I loftinu og vesturfjöllin voru orðin hvít. En snjórinn náði engum tökum á okkur, hann var enn þá svo fjarskalega langt í burtu, og brimhljóðin vöndust eins og fosshljóðin, og haustið gleymdist. Það var ekki fyrr en kindur fóru að kroppa niður á bökkunum, að það kom fyrir alvöru. Lömbin, sem við fundum um vorið, hálf króknuð úr kulda hlutu að vera þarna líka, meira að segja þau, sem lifnuðu við inní bakaraofninum hjá Fíu. Við gátum enn þá séð þau fyrir okkur, hvernig þau drukku mjólk í gegnum f jöðurstaf og svo þegar þau fóru að hoppa og stökkva upp í loftið. Þarna voru þau komin aftur, stór og falleg, og bráðum átti að reka þau í kaupstaðinn. Annríki haustsins hófst með jarmi og hói. Ókunnir menn komu og fóru, Fía stóð við eldavélina allan liðlangan daginn, en gaf sér þó tíma til að rexa og reka okkur burt, því að við flæktumst fyrir eins og Það er gaman hjá krökkunum og upplagt að lita þessa teikningu, en áður en þú byrjar á því áttu að finna þrjár felumyndir af skopparakringlum. vant var. Alltaf vorum við ýmist of lítil eða of stór. Á sumrin gátum við ekki verið með í skógarferð, af því við vorum of litil, og þegar við lékum okkur, sögðu vinnukonurnar, að það væri hrein skömm að sjá þessa stóru krakka ólmast allan guðslangan daginn. Svona væri eftirlætið. I þeirra ungdæmi þurftu börn að vinna og höfðu ekki haft verra af. Og svo klemmdu þær saman varirnar yfir frelsi okkar. Enginn minntist þess, hver færði matinn á engjarnar, eða hver flutti heim heyið. Að þræta þýddi ekkert, allra sízt við Fíu gömlu. Við reyndum því að láta sem minnst bera á, þegar við skruppum í búið okkar og gættum þess vandlega, að enginn sæi þegar við hlustuðum á sönginn í símastaurunum, þvi þá voru þær vísar til að hlæja. Fénu niður á bökkunum var smalað saman í réttina. Ókunnugu mennirnir ráku burt sína hópa, samt vorum við systir mín stolt yfir öllum fjöldanum sem eftir var, — það voru okkar kindur. Féð var talið um leið og því var sleppt aftur úr réttinni; gamlar ær og sum lömbin fengu á sig tjörublett. Við hlógum að einum lambhrútnum, hann var með svartar rendur á hornunum og brauzt um í höndum fjármannsins. Það hvítmataði í augun þegar hann fann tjörulyktina. „Bíddu við“ sagði pabbi, „hann er undan henni Hvít minnni, ég set hann á.“ Við systir mín hættum að hlæja, hópurinn með svörtu tjörublettunum var sá dauðadæmdi. Fáeinar kindur voru með marki frá Hálsi. Þaðan kom enginn svo þeim var stungið inn í lambakofann og pabbi leit snöggvast til okkar systur minnar um leið. Mig grunaði einhvern veginn strax, að eitthvað óvenjulegt stæði til, enda sagði mamma um kvöldið: „nú eigið þið að fara með rekstur.“ „ Ó já,“ sagði pabbi og dró seiminn, „einu sinni verður allt fyrst.“ Morguninn eftir vorum við vakin. Ég heyrði hvíslið í gegnum svefninn, það vakti mig ekki alveg, heldur tók á sig draummynd sem ég vildi ekki sleppa. En vitundin um reksturinn togaði í mig og varð sterkari draumnum, svo ég opnaði augun. Þá sá ég skugga móður minnar, hún laut yfir stelpurúmið. Ég lokaði augunum á ný, þar til brast á eyranu undan kossi. „Vaknaðu nú vinur, þetta er langt að fara,“ hvíslaði mamma. £JVonni ogcTVlanni Jón Sveinsson hellismunnann, svo að enginn kæmist óboðinn inn að okkur sofandi. Því næst tók hann byssu sína, en við fylgdum hon- um gegnum göngin út úr hellinum. Hann tók hestinn, steig á bak og þeysti af stað. Við horfðum lengi á eftir honum niður brekkurnar. Hann reið hart, og loks hvarf hann úr augsýn inn á milli kletta. Og þá vorum við aftur orðnir einsamlir uppi í fjalla- kyrrðinni, eins og tröllin í hellunum. Sól var nú mjög lágt á lofti í norðvestri. Það hlaut að vera mjög framorðið. „En hvað það er fallegt hérna uppi á fjöllunum“. sagði ég. „Það væri nógu gaman að vera útilegumaður hérna“. Manni hló að þessu og sagði, að ef hún mamma væri ekki, þá mundi hann ekki hafa neitt á móti því. Við fórum nú til hestsins okkar, sem var kyrr að bíta á sama stað, og strukum honum og klöppuðum. Freysteinn Gunnarsson þýddi Síðan lögðumst við í grasið og mösuðum saman stund- arkom. En brátt fór okkur að syfja. Þá risum við á fætur og gengum inn í hellinn aftur. Hellismunnann byrgðum við eins og Haraldur sagði okkur. Síðan féllxun við á kné fyrir framan bólið okkar og báðum kvöldbæn. Sérstaklega þökkuðum við guði, að hann hafði bjargað okkur úr margvíslegri hættu. Síðan byrgðum við okkur niður í mjúkan mosann og ilmandi grösin og hjöluðum ennþá góða stund um allt, sem við hafði borið um daginn. Tryggur lagðist niður á gólfið fyrir framan okkur. Það var ekki hætt við, að hann skildi við okkur. Eftir litla stund var hann farinn að hrjóta. Við buðum nú hvor öðrum góða nótt og sofnuðum báðir jafnsnemma. v, flteÖÍmorgunlKiffinu — Sérð þú það sem ég sé... eða höfum við kannski verið hér of lengi??? — Af hverju getur hann ekki hangið út um bflgluggann eins og aðrir hundar.... — Nei minn kæri læknir... það er ekki þarna sem mig verkjar... — Ég hringdi í pfpulagningar- manninn, en hann sagði, að hann kæmi ekki nema við borguðum gamla reikninginn — svo að ég sagði að hann gæti átt sig....

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.