Morgunblaðið - 23.06.1974, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.06.1974, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JUNl 1974 □ AKUR 59746248 — Frl. Minningarkort Félags einstæðra foreldra fást í bókabúð Blöndal, Vesturveri, i skrifstofunni, Traðarkotssundi 6, í bókabúð Olivers, Hafnarfirði og hjá stjórnarmönnum FEF: Jóhönnu s. 14017, Þöru s. 17052, Bergþóru s. 71009, Hafsteini s. 42741, Páli s. 81510, Ingibjörgu s. 27441 og Margréti s. 42724. Hörgshlíð 12 Almenn samkoma — boðun fagrv aðarerindisins í kvöld sunnudag kl. 8. Skrifstofa Félags einstæðra foreldra að Traðarkotssundi 6 er opin mánudag og fimmtudag kl. 3—7, þriðjudag, miðvikudag og föstu- dag kl. 1 —5. Sími 1 1 822. Garðhreppingar Kvenfélag Garðahrepps býður eldri hreppsbúum í skemmtiferð miðvikudaginn 26. júní n.k. Farið verður frá Pósthúsinu kl. 1 e.h. Þátttaka tilkynnist i sima 42967 og 42947. Hjálpræðisherinn. Sunnudag kl. 11 helgunarsam- koma. Kl. 15.30 hátið. Kl. 20.30 kveðjusamkoma fyrir kapteinana Fred og Marit Solli. Brigader Ingibjörg Jónsdóttir. Húsmæður Mosfellssveit Munið orlofið i Gufudal. Upplýs- ingar og pantanir i sima 66189. Félagsstarf eldri borgara Mánudaginn 24. júni verður „opið hús" að Hallveigarstöðum frá kl. 1.30 e.h. í síðasta sinn á þessu sumri. Þriðjudag 25. júní verður farin skoðunarferð i Landsbóka- safnið: Fögur handrit. Lagt af stað frá Austurvelli kl. 1.30 e.h. Kristinboðsfélag karla Fundur verður í Kristinboðshúsinu Betania, Laufásvegi 13 mánudags- kvöldið 24. júní kl. 8:30. Séra Lárus Halldórsson hefur biblíulest- ur. Allir karlmenn velkomnir. Stjórnin. Kvenfélag Kópavogs Munið ferðalagið sunnudaginn 23. júni. Miðarseldir upp á herbergi 22. júni kl. 2—4. Uppl. i simum 40981 — 41084 — 40315 —41644. Ferðanefndin. Húsmæður Kjósarsýslu. Munið húsmæðraorlofið i orlofs- heimili húsmæðra i Gufudal, Ölfusi. Upplýsingar í sima 99- 4250 og hjá orlofsnefndarkonum. Fíladetfia. Söngkór krosskirkjunnar Adólfs- berg, Svikþjóð heimsækir Reykjavik 22.—27. júni. Kórinn syngur í samkomum laugardag kl. 20.30. sunnudag kl. 10 f.h. og kl. 20. Forstöðumaður krosskirkjunnar Gösta Tunehag prédikar. (|| Röntgentæknar Stöður nokkurra röntgentækna við Röntgen- deild Borgarspítalans eru lausartil umsóknar. Stöðurnar veitast frá 15. ágúst eða síðar eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefur yfirlæknir deildar- innar. Umsóknir sendist framkvæmdastjórn spítalans, fyrir 1 5. júlí n.k. Reykjavík, 21. júní 1 974. BORGARSPÍTALINN. óskar eftir starfsfólki i eftirtalin störf: Hvammstangi Umboðsmaður óskast strax. Upplýsingar hjá Karli Sigurgeirssyni í síma 1 350 og hjá afgreiðslunni í síma 1 01 00. Innri-Njarðvík Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og inn- heimtu fyrir Mbl. Uppl. hjá umboðsmanni. Sími 6057 og hjá afgreiðslumanni í Reykjavík. Sími 10100. i VIÐEIGUM SAMLEIÐ Skipzt á skoðunum VIÐ FRAMBJOÐENDUR D -LISTANS Frambjóðendur D-listans við Alþingiskosningarnar í Reykjavík eru þeirrar skoðunar að opið stjórnmálastarf og aukin tengsl kjósenda og kjörinna fulltrúa þeirra sé mikil- vægur þáttur í árangursríku og uppbyggjandi starfi í þágu velferðar borgaranna. Því er vakin athygli á að frambjóðendur eru reiðubúnir, sé þess óskað, til að: — KOMA í HEIMSÓNNIR í HEIMAHÚS TIL AÐ HITTA SMÆRRI HÓPA AO MÁLI. — EIGA RABBFUNDI MEÐ HÓPUM AF VINNUSTÖÐUM. — TAKA ÞÁTT í FUNDARDAGSRÁM FÉLAGA OG KLÚBBA. — EIGA VIÐTÖL VIÐ EINSTAKLINGA. Frambjóðendur D-listans vona að þannig geti fólk m.a. kynnzt skoðunum þeirra og viðhorfum til þjóðmála og komið á framfæri ábencTngum og athugasemdum um þjóðmál. Þeir, sem áhuga hefðu á að notfæra sér framang aint, hringi vinsamlega í sima 82605. Lárósmálið: Skaut á Targfugl en ekki menn Jón Kristjánsson fiski- fræðingur og starfsmaður Veiði- málastofnunarinnar kom að máli við blaðið í gær vegna frásagnar blaðsins af „riffilskoti og slags- málum við Lárós“. Hann sagðist vilja taka það fram, að starfsmenn Veiðimála- stofnunarinnar væru ekkert við- riðnir þetta mál. I fréttinni væri talað um tvær haglabyssur og riffil og væri það rétt. Stað- reyndin væri sú, að 3 starfsmenn Veiðimálastofnunarinnar hefðu verið að vinna fyrir vestan. Tveir þeirra hefðu farið inn í hús, en einn ekið einum eigenda stöðvarinnar niður á bakka, þvf að hann ætlaði að stugga við varg- fugli, sem þar var. Hann skaut einu skoti í átt að fuglinum. Hins vegar voru menn á báti í þveröfugri átt að vitja um net. Um leið og mennirnir tveir héldu heim í hús á ný komu bátsverjar í Meistarapróf í alþjóða- stjórnmálum EINN íslendingur, Baldur Guð- laugsson lögfræðingur, sem lauk nú í vor meistaraprófi f alþjóða- stjórnmálum frá The Fletcher School of Law and Diplomacy í Massachusetts í Bandaríkjunum, var meðal þeirra, er hlutu fræði- mannastyrki Atlantshafsbanda- lagsins við úthlutun fyrir háskóla- árið 1974—’75. Hlaut hann styrk til að fjalla um helztu viðfangs- efni og valkosti í utanríkisstefnu Islands í nútíð og framtíð. Styrktímabilið er að jafnaði 2—4 mánuðir og er upphæð hvers styrks 23.000 belgískir frankar á mánuði, eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í gjaldeyri annars aðildarríkis, auk ferðakostnaðar. Styrkirnir eru veittir í því skyni að stuðla að námi og rannsóknum á ýmsum tilgreindum sviðum, er varða aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins sérstaklega. land og kærðu málið án þess að hinir vissu. Síðar um daginn óku þeir félagar inn í Grundarfjörð til að verzla og þar stöðvaði lögreglan þá og tók úr bílnum riffil, sem Jón á og hefur alltaf* í bflnum. Ræddi lögreglan við þá um málið og sagði, að ennfremur yrðu tvær byssur, sem voru I húsinu við Lárós, gerðar upptækar. Hafði það verið gert, þegar þeir komu heim aftur. Er hið sanna kom fram í málinu fékk Jón byssu sína aftur, en ekki vissi hann, hvort búið var að afhenda hinar tvær I gær. Fundu úti- göngukindur Bæjum 12. júnl — ÞAÐ BAR við, er Jón Guðiónsson bóndi á Laugabóli í Nauteyrar- hreppi var að smala saman fé sínu, er átti að fara að bera, að hann varð var tveggja ljónstyggra kinda, sem ekki vildu samlagast fénu. Voru kindur þessar skjær- bjartar á lagðinn með flaksandi ull frá vöngum og orðnar björn- fyldnar. Eftir mikla eltinga náðust þó kindur þessar, og kom í ljós að þarna voru á ferð tvær tvævetlur, sem höfðu ekki húsvistar notið í vetur. Þykir nokkur furða, aó svo vel framgengnar kæmu þær ljós- lifandi eftir þau miklu harðindi og jarðbönn, sem voru um fjög- urra mánaða skeið eða frá nóvem- berbyrjun til febrúarloka. Báðar voru kindurnar geldar, en eigand- inn reyndist vera Ástþór I Múla og sýnir þetta, að mörg er matar- holan innan hinna gróskumiklu dala Inn-Djúpsins. Sigurjón á Dynjandi o.fl. fóru nýlega í refa og minkaleit norður í Grunnavlkurhrepp hinn forna. Fundu þeir lítið af refagrenjum, en aftur á móti bönuðu þeir 12 minkum og töldu að meira væri um mink á þessum slóðum. Þeir leita nú grenja hér um slóðir. — Fréttaritari. Grindvíkingar stjórnmálafundur Lýðræðisflokksins á Reykja- nesi verður haldinn í litla sal félagsheimilisins Festi í dag sunnudaginn 23. júní kl. 14 þá mun Freysteinn Þorbergsson m.a. fjalla um eftirfar- andi efni: Sjávarútvegsmál Voru Kleifarvatnstæki notuð við morð? Brú yfir Hvalfjörð. Allir velkomnir. Tilboð óskast í neðangreindar bifreiðar, skemmdar eftir tjón, Willys Wagoneer árg. 1973, Austin Mini árg. 1 973, Peugeot 504 árg. 1971, Peugeot 404 diesel árg. 1 969, Einnig óskast tilboð í hjólhýsi. Bifreiðarnar og hjólhýsið verða til sýnis að Dugguvogi 9 — 1 1 Kænuvogsmegin, á mánu- dag. Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora eigi síðar en þriðjudag 25. júní. | SJÚVATRYGGINGflRFÉLAG iSIANDSI Bifreiðadeild, Suðurlandsbraut 4, sími 82500 |S|ElS|EJEjE]E}E|E|B|E|E]E|ElE|ElEnE]E]ElEl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.