Morgunblaðið - 21.07.1974, Page 10

Morgunblaðið - 21.07.1974, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JULl 1974 Landsmót ... skáta 1974 „HOPPOG HÍ” „A Olfljötsvatni er hopp og hí — öll við komum aftur á ný,“ segir f einum skátasöngnum. Ekki tókst að ná mynd af lifinu, en hér er ein mynd af hoppinu; það eru skátar f Skátafélagi Akur- eyrar, sem taka nokkrar leik- fimisæfingar á meðan beðið er þess, að varðeldur hef jist. Vinnuálag háir skátastarfinu Búðir ísfirzku skátanna á lands- mötinu hafa vakið athygli fyrir vandaðar skreytingar, mann- virkjagerð og góða umgengni, enda hafa tjaldbúðaverðlaun fallið báðum hópunum í skaut, kvenskátafélagið Valkyrjunni og drengjaskátafélaginu Einherjum. Alls eru um 200 skátar starfandi í félögunum tveimur, en á mótinu eru 26 stúlkur úr Valkyrjunni og 30 piltar frá Einherjum. Einn fararstjóri piltanna, Halldór Jóns- son, segir blaðamanninum frá undirbúningi undir mótið: „Mikill áhugi hefur verið hjá skátunum fyrir að undirbúa vel þátttöku sína í mótinu, en það hafa bara allir svo lítinn tíma. Það er svakalega mikil vinna á ísafirði fyrir unglingana og ég veit, að margir unglingar úr Reykjavík, sem hafa komið I heimsókn vestur, hafa verið stein- hissa á þessu. — Við tókum að okkur að gera hliðið að fjöl- skyldubúðunum og var mikið verk að teikna það og mála. Svo höfum við sérstaka æfingu á upp- setningu þessara tjaldbúða helgina áður en við komum hingað. Við höfum alltaf verið með turnbyggingu á hverju lands- móti, en slepptum turninum núna og vildum vera með fleiri byggingar f staðinn. Hér eru fjórir flokkar og tók hver flokkur að sér eitt verk, einn gekk frá bekkjunum á varðeldasvæðinu, annar sá um hliðið, sem er brú, sá þriðji gerði uppþvottagrind og sá fjórði borðið, sem vió mötumst við. Við fararstjórarnir sáum síðan um girðinguna utan um búðirnar okkar." Á myndinni sjást bekkirnir utan um varðeldastæðið, en skátarnir, sem unnu að gerð bekkjanna, höfðu, þegar hún var tekin, gert hlé á starfinu til að taka þátt í kynningarleiknum á mótinu. ■ ■ SJÓSKÁTUN Niðri við Ulfljótsvatn eru sjó- skátar úr Hafnarfirði og Garða- hreppi með búðir sfnar og báta og þar hefur þátttakendum I lands- mótinu gefizt kostur á að fá léða báta til siglinga út á vatnið. Hefur jafnan verið margt um manninn þar og mikið Iff í tuskunum. Foringjar sjóskátanna veita blaðamanninum nokkrar upp- lýsingar um starfið f Garðahreppi og Hafnarfirði, en sjóskátun mun ekki vera stunduð að ráði annars staðar á landinu. 1 Hafnarfirði er sjóskátastarfið hluti af almenna starfinu og stendur öllum skátum félagsins opið. Þó er það einkum ákveðinn kjarni, sem heldur starfseminni gangandi og skapar aðstöðu fyrir félagið. Er hug- myndin að hafa þessa aðstöðu alltaf til reiðu, þannig að hún verði nýjum skátum hvati til að leggja stund á sjóskátun. Skátarnir hafa samvinnu um þessi mál við siglingaklúbb á vegum æskulýðsráðs Hafnar- fjarðar. 1 Garðahreppi er sjóskáta- starfið aðgreint frá almenna starfinu og sérstök sveit starfar eingöngu að sjóskátun. Auk siglinganna er unnið að smfðum, ýmiss konar sjóvinnu, s.s. neta- hnýtingum, splæsingum o.fl. og kenndar öryggisreglur o.fl. Að sögn foringjanna tveggja stefnir þróunin að samstarfi milli Garða- hrepps og Hafnarfjarðar f mál- efnum sjóskáta. Skátabúningurinn kom í góðar þarfir Meðal erlendra skáta á lands- mótinu eru fimm stúlkur frá Sviss og tveir þýzkir piltar. Stúlkurnar komu hingað gagn- gert til að taka þátt í mótinu og höfðu undirbúið ferðina um nokkurt skeið, en piltarnir fréttu hins vegar ekki af mótinu fyrr en þremur dögum áður en það hófst. Þeir höfðu komið til Islands til að kynnast landi og lýð, en fréttu þá af mótinu, og þar sem þeir skilja skátabúninginn aldrei eftir á ferðalögum fannst þeim tilvalið að skella sér á mótið. — Fyrirliði svissnesku stúlknanna, Ursula Koller, kvaðst lengi hafa haft áhuga á íslandsferð og þegar hún heyrði um landsmótið lét hún strax skrá sig til farar. Hún ætlar að dveljast hér áfram eftir mótið til septemberloka og hefur fengið vinnu á sveitabæ þann tíma. — Með Ursulu á myndinni er annar þýzku piltanna, Toni Weber.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.