Morgunblaðið - 21.07.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JULl 1974
11
Unnu fyrir ferða-
styrknum
Færeyski skátahópurinn á landsmótinu er fjöl-
mennasti skátahópur frá Færeyjum, sem heimsótt
hefur Island, alls 33 skátar. Foringi þeirra, Lars
Jespersen, sagði blaðamanni Mbl., að ástæðan fyrir
þessari fjölmennu heimsókn væri sú, að fær-
eyskum skátum, sem hefðu verið á landsmótinu að
Hreðavatni 1970, hefði líkað mjög vel. Hefði hann
því notað tækifærið, er hann var á íslandi í fyrra-
sumar, og talað við Bandalag ísl. skáta um að koma
með skátahóp frá Færeyjum á þetta landsmót.
I Færeyjum eru nú starfandi 5-600 skátar. Árið
1976 eru liðin 50 ár frá upphafi skátastarfs f
Færeyjum og verður af því tilefni efnt til lands-
móts. Kvaðst Lars vonast eftir fslenzkum skátum á
það mót.
Skátarnir, sem hingað komu, eru allir frá Þórs-
höfn. Þar sem þetta ferðalag var þeim dýrt sóttu
þeir um styrk til landsstjórnarinnar í Færeyjum og
fengu hann og einnig til bæjarstjórnarinnar í Þórs-
höfn. Bæjarstjórnin var fús til að veita styrkinn, ef
skátarnir vildu gera henni greiða í staðinn og
samdist svo um, að skátarnir tóku að sér ýmiss
konar hreinsun í Þórshöfn til að endurgjalda ferða-
styrkinn.
Hér sést Lars vera að skrifa nafnið sitt í handbók
annars þátttakanda á mótinu, en skátarnir hafa
haft mjög gaman af að safna undirskriftum sem
flestra skáta frá mismunandi félögum og þjóðum.
FÁNAHYLLING
A hverjum morgni er fána-
hylling á svæðum skátafélaganna
og sjást hér stúlkur úr kvenskáta-
félaginu Valkyrjunni á Akureyri.
Skátarnir frá Akureyri hafa
vakið athygli á mótinu, bæði fyrir
skemmtilegar tjaldbúðir og góða
umgengni og ekki sfður fyrir bún-
inga sfna. Eru Akureyrar-
skátarnir allir komnir með nýja
skátabúninginn og klæðast
honum við hátfðleg tækifæri. Eru
fylkingar þeirra mjög samstæðar
að þessu leyti. Hins vegar hefur
borið nokkuð á ósamstæðum
búningum hjá öðrum félögum,
sem skiljanlegt er, þvf að nú er
verið að fella niður gamla
búninginn og taka upp nýjan og
sú breyting tekur sinn tíma.
Með 130 manns
í vinnu
Sagt hefur verið um f gamni (og
kannski alvöru), að tjaldbúða-
nefndir landsmótanna hafi nóg að
gera fyrir mótin, en slappi svo
bara af á mótunum, en aftur á
móti hafi dagskrárnefndirnar
ekkert að gera fyrir mótin, en nóg
að gera á mótunum. Hins vegar
hefur dagskrárstjórn þess lands-
móts, sem nú stendur yfir, unnið
að undirbúningi í tæpt ár, þannig
að fyrrgreind verklýsing virðist
ekki eiga við rök að styðjast.
Fyrirliði dagskrárstjórnar, öðru
nafni dagskrárstjóri, er Sigurjón
Mýrdal og hann er spurður eftir
hverju dagskrárstjórnin hafi
farið, þegar hún undirbjó dag-
skrána. „Við höfum tekið mið af
þeirri óskráðu reglu, að fólkið
velji alla liðina sjálft og sé ekki
skyldað til þátttöku. Og þar sem
þátttakendur eru um tvö þúsund,
þá urðum við að sjá til þess, að
valkostirnir væru nægilega
margir. Dagskráin er þó aðeins að
litlu leyti frábrugðin dagskrám
fyrri móta, helzt má telja til
nýjunga þær kynningar á sér-
skátun, sem efnt hefur verið til,
m.a. á sjóskátum, radíóskátum og
JÁRNHA USINN
Hliðið hjá Akranesskátunum hefur vakið mikla
athygli, enda óvenjulegt f meira lagi: I miðju
hliðinu trónar rúmlega tveggja metra há stytta af
vfkingi einum miklum f fullum skrúða með spjót
og skjöld. Guðjóna Kristjánsdóttir, einn af farar-
stjórum skátanna frá Skipaskaga, segir blaðamann-
inum, að styttan sé fengin úr leikritinu „Járn-
hausnum", sem sýnt var á Akranesi fyrir skömmu.
„Við urðum bara að lofa að passa upp á hausinn
dýrmæta,“ segir hún og hlær.
55 skátar frá Akranesi eru á mótinu, en f Skáta-
félagi Akraness eru um 300 félagar. Stúlkur eru f
meirihluta, en þar vegur þó eitthvað upp á móti, að
strákarnir eru heldur duglegri. „Þeir eru færri og
samstilltari," segir Guðjóna.
Skátarnir hafa jafnan tekið þátt f almennum
hátfðahöldum á Akranesi og á nýliðinni þjóðhátfð
stóðu þeir m.a. fyrir „sirkus** eitt kvöldið f nýja
fþróttahúsinu. Raunar er húsið ekki tilbúið til
notkunar, en skátarnir löguðu þar heilmikið til
fyrir sirkushaldið. Og þar var boðið upp á trúða,
brúðuleikhús, hjólaflokk, danssýningar, leikrit,
þjóðhátfðarsöngleik o.fl. Og þar sem enginn sirkus
getur án dýrasýningar verið, sýndu skátarnir hug-
kvæmni og buðu upp á dýratemjara með heimatil-
búna hesta! Skemmtunin var geysivel sótt; alls
komu um 1100 manns til að horfa á og vafalftið
verður sú aðsókn skátunum á Akranesi hvatning til
frekari dáða á þessu sviði og öðrum.
A myndinni er Guðjóna við Járnhausinn.
starfi hjálparsveita, og einnig
landnámið svonefnda, sem er
landgræðslu- og uppbyggingar-
starf á staðnum. Við höfum
einnig haft skátarama fjölbreytt-
ara en fyrr og höfum það sem eins
konar öryggisventil: Ef þátttakan
f öðrum greinum er að verða of
mikil, er hægt að bæta við grein-
um í skátarama eftir þörfurn."
Skátarama er eins konar skáta-
skóli og byggist upp á stuttum
námskeiðum í ýmsum greinum
skátaíþrótta, m.a. þjóðdönsum,
kortalestri og notkun áttavita,
hjálp f viðlögum, hnýtingum, líf-
lfnukasti o.fl.
En hvað gerist nú, ef veðrið er
vont? Fellur dagskráin þá niður?
„Nei“, segir Sigurjón, „dagskráin
stendur af sér öll veður. Vissu-
lega gæti óveður dregið úr þátt-
tökunni, en við getum líka fært
ýmsa liði inn í stór tjöld og skála.“
Að lokum er Sigurjón spurður,
hvað margir skátar starfi að fram-
kvæmd dagskrárinnar. „Það er
mjög stór hópur,“ segir hann.
„Sumir vinná eingöngu við dag-
skrána, en aðrir leggja okkur lið
við einstök verkefni. Ég er með
skrá yfir þetta fólk, sem kemur
við sögu á einn eða annan hátt, og
mér telst til, að það séu um 130
manns.“
Og á myndinni sjáum við Sigur-
jón við biðröðina, sem myndazt
hefur við skúr dagskrárstjórnar-
innar. Skátarnir eru að skrá sig í
hinar ýmsu greinar og fá léð leik-
tæki og afnot af leiksvæðum.
Meðal kennslugreina f hinu
svonefnda skátarama er hjálp f
viðlögum. Hér sjást nokkrir
erlendir skátar æfa blástursað-
ferðina og nota til þess sérstakt
tæki.
Mótssöngurinn
Fyrir hvert landsmót skáta er
jafnan saminn sérstakur móts-
söngur. Að þessu sinni er
höfundur textans Henrý Þór
Henrýsson, en lagið er gamalt
skátalag, „It’s a small world“.
Höldum skátahátið á skátagrund,
skátar hópumst saman á vináttufund,
hefjum merki vort hátt,
hyllum samtakamátt,
nemum land við leik og störf.
Viðlag: Skemmtum oss á skátahátt.
skapið ljómar, brestur fátt.
Höldum enn við Úlfljótsvatn,
öflugt skátamót.
Nú er Jandnámshátíð og lítil Þjóð,
leitast við að hlúa’ að feðranna 9lóð.
Eflum ættjarðar hag,
íslendingar í dag,
þökkum ellefu’ alda dvöl.
Þessi æskuhátíð við Úlfljótsfljót,
eykur skátaandann hjá dreng og snót.
Látum bræðralagsbönd,
bindast vitt yfir lönd,
liljan tengir langan veg.