Morgunblaðið - 21.07.1974, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1974
25
fclk f
fréttum
□ Paola
skemmtir sér.
Vart getur ólikari persónur
en Fabiólu Belgiudrottningu og
svilkonu hennar Paólu
prinsessu, sem gift er Albert
prins, bróöur Baudouins kon-
ungs. Konungur og drottning
hafa mjög hægt um sig og sagt
er, að þau lifi hálfgerðu
klausturslífi innan veggja kon-
ungshallarinnar.
En það á ekki aldeilis við
Paölu, sem er ítölsk að upp-
runa. Hún er mjög glaðlynd og
vill hafa líf í kringum sig. Á
það jafnvel til að dansa upp á
borðum með kampavinsglas í
hendi, en slikt getur hún
skiljanlega mjög sjaldan leyft
sér.
Albert og Pola eiga búgarð i
Ardenna-fjöllunum og þangað
leitar Paola oft, eða eins oft og
hún getur. Fer hún þangað
gjarnan ein með börnin, ef Al-
bert hefur öðrum hnöppum að
hneppa.
Paóla nýtur lifsins þarna.
Hún er mjög alþýðleg, gengur
um meðal nágranna, verzlar i
sveitaverzluninni og svo fram-
vegis. Vinsældir hennar eru
þarna miklar, bændurnir fást
ekki til þess að segja neitt mis-
jafnt um hana og forvitnir að-
komumenn fara jafnnær, þegar
þeir reyna að komast að þvi,
hvað fram fér innan upplýstra
glugga búgarðsins. Hvað prins-
essan þeirra hefst að heima,
kemur þeim ekkert við — og
allra sízt ókunnugum.
Stundum kemur fyrir, að
jagúar með öll ljóst slökkt ekur
upp að sveitasetrinu. Allir i ná-
grenninu vita, hver gesturinn
er, en það segir það enginn.
Haft er þó fyrir satt, að það sé
Albert de Mun greifi, sem nú er
fráskilinn, en fyrir nokkrum
árum var mjög haft á orði, að
kært væri með honum og
Paólu. Hvort þau hafa nú
endurnýjað þau kynni, skal
ósagt látið, — en hjá orðrómi
um það verður ekki lengur
komizt.
□ Hvad tekur við?
Franco einvaldur á
Spáni gerist nú
gamall og við og við
kemur upp sá kvitt-
ur, að hann sé alvar-
lega sjúkur. Eftir at-
burðina í Portúgal
velta menn því enn
meira fyrir sér en áð-
ur, hvað taki við á
Spáni, þegar hann
fellur frá. Verður
þar áfram einræði í
einni eða annarri
mynd — eða tekst að
koma þar á lýðræði?
— Hér á myndinni er
Franco á leið úr
sjúkrahúsi, þar sem
hann dvaldi um tíma.
□ Geimferðir
Sem kunnugt er hafa Banda-
ríkjamenn og Rússar komizt að
samkomulagi um samvinnu um
geimferðir. — Hér á myndinni
sést bandarfski geimfarinn
Thomas Stafford (t.v.) í stjórn-
klefa Sojus-geimfars ásamt
rússneska geimfaranna Alexei
Leonov. Eru þeir að æfingum
vegna Apollo-Sojus áætlunar-
innar, en gert er ráð fyrir, að
þessi tvö geimskip verði tengd
saman úti í geimnum á næsta
ári.
— Ekki verður annað séð
en vel fari á með þeim félögum.
0
Utvarp Rcvkjavík ★
SUNNUDAGUR
21. júlf
8.00 Morgunandakt
Séra Pétur Sigurgeirsson vfgslubiskup
flytur ritningarorðog bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög
Lindquist-bræður leika sænsk lög og
lúðrasveit lögreglunnar f Bayern leik-
ur þýzk lög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustugrein-
um dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veður-
fregnir)
11.00 Messa á Hólahátfð (hl jóðr. 23.f.m.)
Séra Arni Sigurðsson á Blönduósi for-
maður Hólafélagsins prédikar.
Séra Agúst Sigurðsson á Mælifelli,
séra Sigfús J. Arnason á Miklabæ og
séra Pétur Sigurgeirsson vfgslubiskup
á Akureyri þjóna fyrir altari. Kirkju-
kór Sauðárkróks syngur undir stjórn
organistans, Jóns Björnssonar.
12.15 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.25 Mérdatt þaðf hug
Jónas Guðmundsson rabbar við hlust-
endur.
13.45 tslenzk einsöngslög
Eiður A. Gunnarsson syngur.
Guðrún Kristinsdóttir leikur á pfanó.
14.00 Flóra
Gylfi Gfslason ræðir við Hrein
Friðfinnsson myndlistarmann og Þór-
bergur Þórðarson les úr „tslenzkum
aðli"
15.00 Miðdegistónleikar: „Heimshljóm-
urinn“
a. Sigrfður E. Magnúsdóttir söngkona
flytur útdrátt úr erindinu „Tölur og
tónar“ eftir austurrfska tónvfsinda-
manninn dr. Rudolf Haase.
b. „Die Harmonie der M'elt" (Heims-
hljómurinn), sinfónfa eftir Paul
Hindemith. Fflharmónfusveitin í
Berlfn leikur; höfundur stj. Arni
Kristjánsson tónlistarstjóri kynnir.
16.00 Tfu á toppnum
örn Petersen sér um dægurlagaþátt.
16.55 Veðurfregnir. Fréttir.
17.00 Barnatfmi: Gunnar Valdimarsson
stjórnar
a. Saga um kærleika
Hugfötluð börn úr Höfðaskóla syngja
og leika undir stjórn Guðrúnar Birnu
Hannesdóttur söngkennara, og Guðrún
les úr Sölku Völku eftir Halldór
Laxness.
„Söngur vindsins", kynnt hljómplata
hug- og fjölfatlaðra barna f Finnlandi.
Stjórnandi: Ero Vuorinen.
Kynningarlög eftir Tómas Ponzi.
b. Utvarpssaga barnanna: „Stroku-
drcngirnir" eftir Bernhard Stokke
Sigurður Gunnarsson les þýðingu sftia
(3).
18.00 Stundarkorn með pólsku söngkon-
unni Bognu Sokorsku
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Eftir fréttir
Jökull Jakobsson við hljóðnemann f
þrjátfu mánútur.
19.55 Frá þjóðhátfð Suðurnesjamanna
Arni Þór Þorgrfmsson setur hátfðina,
Guðlaugur Þorvaldsson háskólarektor
flytur hátfðarræðu, Haukur Þórðarson
syngur einsöng við undirleik Siguróla
Geirssonar, Kristinn Reyr flytur frum-
samið hátfðarljóð, Karlakór Kefla-
vfkur syngur undir stjórn Geirharðs
Valtýssonar og Helgi Skúlason leikari
les kafla úr Heimsljósi eftir Halldór
Laxness.
Helgi Hólm kynnir dagskráratriðin.
Dagskráin var hljóðrituð á Svartsengi
viðGrindavfk 7. þ.m.
20.50 Vfsnalög eftir Sigfús Einarsson
Hljómsveit Rfkisútvarpsins leikur;
Bohdan Wodiezko st j.
21.00 Viðdvöl f Borgarnesi
Jónas Jónasson ræðir við heimamenn f
þriðja og sfðasta sinn.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Danslög
Heiðar Astvaldsson velur og kvnnir
lögin.
23.25 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok.
MANUDAGUR
22. JULI
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnar kl. 7.00, 8.15, og 10.10.
Morgunbæn kl. 7.55, Séra Þorsteinn L.
Jónsson flytur.
Morgunstund barnanna kl. 8.45:
Steinunn Jóhannesdóttir heldur áfram
að lesa „Söguna af Jóni Oddi og Jóni
Bjarna" (5)
Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli
liða.
Morgunpopp kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00.
Theo Altmeyer og Collegium Aureum
kammerhljómsveitin flytja „Lofgjörð
um tónlistina" verk fyrir tenórrödd og
kammersveit eftir Hándel/Les Solistes
de Bruxelles og I Solistidi di Milano
leika Konsert fyrir tvær hljómsveitar
og fiðlurödd eftir Vivaldí/Amor Artis
kórinn syngur með kammersveit
„Sabat mater" eftir Scarlatti.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.25. Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Sfðdegissagan: Endurminningar
Mannerheims
Þýðandinn Sveinn Asgeirsson, les.
15.00 Miðdegistónleikar
Osian Ellis og Sinfónfuhljómsveit
Lundúna leika Konsert fyrir hörpu og
hljómsveit op. 74 eftir Gliére. Richard
Bonynge stjórnar.
Konunglega fflharmónfuhljómsveitin f
Lundúnum leikur „Le Coq d'or“ —
Gullna hanann — ballettsvftu eftir
Rimský-Korsakoff, Sir Thomas Beee-
ham stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15.
Veðurfregnir)
16.25 Popphomið
17.10 Tónleikar.
17.40 Sagan: „Fólkið mitt og fleiri dýr“
eftir Gerald Durrell.
Sigrfður Thorlacius les þýðingu sfna
(15).
18.00 Tónleikar. Tilkvnninear.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
ins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál
Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn
Hilmar Jónsson bókavörður talar.
20.00 Mánudagslögin
20.30 Vesturheimsferð frá Islandi 1888
Frásögn Jóns Einarssonar. Jón Þór Jó-
hannsson flytur.
20.45 Tónleikar: Frá brezka útvarpinu.
Brezk hljómsveit leikur.
Einleikari: Mustislav Rostropovitsj.
Stjórnendur: Edward Downes og
Pjerre Boulez.
a. „Tamara" sinfónfskt Ijóð eftir Bala-
kireff.
b. Konsert fyrir selló og hljómsveit
eftir Lutoslawski.
21.30 Utvarpssagan: „Arminningar"
eftir Sven Delblanc
Heimir Páisson fslenzkaði. Þorleifur
Hauksson les (6)
22.00 Fréttir.
22.15 Iþróttir
Umsjón: Jón Asgeirsson.
?2.40 Hljómplötusafnið
f umsjá Gunnars Guðmundssonar.
23.35 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok.
Landsmálafélagið Vörður
Viðtalstími
Ragnar Júliusson, formaður
Varðar, verður til viðtals á skrif-
stofu félagsins á Laufásvegi 46,
þriðjudaginn 23. júli kl. 5—7
síðdegis.
Frá Almannatryggingum í
Grindavík og Gullbringusýslu
Útborgun bóta í júlí verður sem hér segir.
í Vatnsleysustrandarhreppi
mánudaginn 22. juli kl. 11 —12.
í Grindavík
mánudaginn 22. júlí kl. 14—16.
I Gerðahreppi
þriðjudaginn 23. júli kl. 10—1 2.
í Miðneshreppi
þriðjudaginn 23. júlí kl. 14—16.
Bæjarfógetinn í Grindavík,
Sýslumaður Gul/bringusýslu.