Morgunblaðið - 21.07.1974, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JULl 1974
Minjagripir
Þjóðhátíðarnefndar
1974
Undirbúningur fyrir þjóðhátlðina á Þingvöllum hinn 28. júlf
næstkomandi er I fullum gangi þessa dagana og miðar vei áfram. 1
tilefni 1100 ára afmælis Islandsbyggðar hefur þjóðhátfðarnefnd 1974
gefið út nokkra minjagripi, sem tveimur fyrirtækjum hefur verið
falið að dreifa I verzlanir um land allt, en þau eru O. Johnson og
Kaaber h.f. og Samband fsl. samvinnufélaga.
Á undanförnum vikum hefur
salan á þjóðhátíðarminjagripum
aukizt jafnt og þétt og nú er svo
komið, að ýmsir munir eru um
það bil að seljast upp. Fréttamað-
ur blaðsins leit á dögunum inn á
skrifstofu O. Johnson og Kaaber
h.f. og ræddi við Gunnar Stein-
grfmsson fulltrúa um minjagrip-
ina.
— Hvernig stóð á þvf, að Kaab-
er var falið að sjá um dreifingu
minjagripanna ásamt Samband-
inu?
— Þjóðhátíðarnefnd ákvað að
biðja þessi tvö fyrirtæki að sjá um
heildsöluna á þeim grundvelli, að
Sambandið dreifði minjagripun-
um í allar samvinnuverzlanir
landsins og að við sæjum um
flestallar aðrar verzlanir, sem
verzla með gjafavörur, en við urð-
um fyrir valinu, vegna þess, að O.
Johnson og Kaaber er með heild-
söluleyfi númer eitt. Fyrirtækið
er stofnsett árið 1906, en fyrst í
stað hafði það ekki númerað leyfi,
en þegar þau voru gefin út þótti
rétt, að það fengi leyfi númer eitt
vegna þess, hve lengi það hefur
starfað. Við erum mjög ánægðir
með að sjá um þessa sölu fyrir
þjóðhátíðarnefndina.
— Hvernig gengur salan á
minjagripum þjóðhátíðarnefnd-
ar?
— Hún gengur vel og er að
aukast mikið þessa dagana, enda
nálgast Þingvallahátíðin og fólk
er komið í hátíðarskap. I upphafi
ákváðum við að dreifa minjagrip-
unum eingöngu í gjafabúðir, eins
og t.d. blómabúðir og minjagripa-
verzlanir. I flestum stærri bæjum
eru tvær verzlanir með þessar
vörur, en hér í Reykjavík eru
allmargar verzlanir með minja-
gripina og auk þess fást þeír í
flestum ef ekki öllum samvinnu-
verzlunum landsins. Þá eru
minjagripirnir einnig til sölu I
flugstöðinni á Keflavíkurflug-
velli.
— Hvaða hlutir seljast mest?
— Postulínsplattaserían henn-
ar Sigrúnar Guðjónsdóttur list-
málara, sem hlaut fyrstu verðlaun
þjóðhátíðarnefndar 1974, en hún
er framleidd hjá hinu heims-
fræga postulínsfyrirtæki Bing og
Gröndahl í Kaupmannahöfn.
Þetta eru þrír veggskildir f litum,
sem á táknrænan hátt sýna land-
r.ámið fyrir 1100 árum. Plattarnir
hafa selzt mjög vel og er talsvert
farið að ganga á upplagið, sem er
takmarkað. Plattasería Einars Há-
konarsonar listmálara, sem fram-
leidd er hér á landi hjá Gleri og
postulfni f Kópavogi, hefur einnig
selzt mikið. Hún er minni en
postulínsplattar Sigrúnar og er f
afar heppilegum umbúðum til að
senda í pósti um víða veröld. Það
má kannski taka það fram, að
plattarnir frá Bing og Gröndahl
eru í litum, en plattarnir frá Gleri
og postulíni h.f. eru svart-hvítir.
— En hvernig gengur sala
minni hlutanna?
— Þjóðhátíðarnefnd lét gera
tvær gerðir af postulínsöskubökk-
um hjá Bing og Gröndahl, sem
eru bæði fallegir og ódýrir miðað
við slíka gæðavöru. Annar, sá
stærri, er ferkantaður og á honum
er 1100 ára merki þjóðhátíðarárs-
ins f litum. Þessi bakki er að
verða búinn, en svo er til minni
bakki í póstöskju, sem senda má
hvert sem er ef menn vilja senda
vinum og kunningjum erlendis
minjagrip um 1100 ára búsetuna.
Á bakkann er letrað á íslenzku:
„Ellefu hundrað ára afmæli Is-
landsbyggðar 874—1974“. Bakk-
inn er blár og hvítur, en askjan er
afar litrfk og skemmtileg og hefur
vakið verðskuldaða athygli. Við
höfum einnig á boðstólum vegg-
dagatöl, sem prentuð eru á dúk,
Einar Hákonarson listmálari fékk sérstaka viðurkenningu þjóðhátíðarnefnd-
ar fyrir þriggja platta serfu, sem sýnir landnámið. Hér er mynd af einum
plattanna. en á bakhlið hans er ritað: „Flóki sigldi þaðan til Færeyja og gifti
þar dóttur sfna; frá henni var Þrándur f Götu. Þaðan sigldi hann út á haf
með hrafna þá þrjá, er hann hafði blótað í Noregi. Og er hann lét lausan
hinn fyrsta, fló sá aftur um stafn; annar fló f loft upp og aftur til skips; þriðji
fló fram um stafn f þá átt, er þeir fundu landið". (Hauksbók Landnámabók-
ar).
og er sala þeirra stöðugt að aukast
jafnvel þótt árið sé rétt hálfnað.
— Ég sé hér á borðinu hjá þér
borðfána í tilefni þjóðhátíðarinn-
ar.
— Þessi skemmtilegi hlutur er
nýkominn á markaðinn. Hann er
Hér getur að Ifta postulfnsplattaserfuna eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur. sem hlaut fyrstu verðlaun þjóðhátfðarnefnd-
ar 1974. Plattarnir eru framleiddir hjá danska postulfnsfyrirtækinu Bing og Gröndahl í Kaupmannahöfn.
Þjóðhátfðarnefnd hefur látið gera tvær gerðir af litlum postulfnsöskubökk-
um hjá Bing og Gröndahl f Kaupmannahöfn. Efri bakkinn á myndinni er
með merki 1100 ára afmæiis fslandsbyggðar, en neðri bakkinn er f fallegri
póstöskju. sem senda má f almennum bréfapósti um allan heim.
afar vandaður og á eflaust eftir að
seljast vel meðan birgðir endast,
en þær eru einnig takmarkaðar.
— Þjóðhátfðarnefnd hefur látið
gera ýmis fleiri merki?
— Það er rétt, við höfum dreift
tveimur gerðum af límmerkjum
með 1100 ára merkinu, en þau
eru ætluð fyrir bíla. Annað má
líma innan á rúðu og hitt utan á
bíla. Þessi merki fást nú f öllum
bensínsölustöðvum olfufélaganna
f landinu. Þá er að koma barm-
merki í lit með 1100 ára merkinu,
en við gerðum samning við skát-
ana um að selja það og fara þeir f
hús þessa dagana og bjóða merk-
ið.
— Er einhver einn hópur, sem
kaupir meira af minjagripum en
aðrir?
— Nei, alls ekki. Hitt má taka
fram, að fyrirtæki hafa keypt
nokkuð mikið af hinum fallegu og
smekklegu veggskjöldum, sem ég
minntist á áðan, til þess að senda
viðskiptavinum sfnum erlendis.
Mikið er um að fólk sendi þessa
hluti til ættingja og vina víða um
lönd, auk þess eru flestir grip-
anna keyptir og notaðir til afmæl-
is- og fermingjargjafa. Þótt sumir
hlutanna séu nokkuð dýrir þá eru
þetta sérlega vandaðir safngripir,
sem eiga eftir að margfaldast í
verði, þegar frá líður eins og aðrir
sambærilegir hlutir hafa gert
hingað til.
— Hvað með söluna á Keflavík-
urflugvelli?
— Hún er að aukast, en nýlega
kom út fallegur lítill pöntunar-
pési hjá ICEMART á Keflavíkur-
velli í samvinnu við þjóðhátíðar-
nefnd, þar sem allir minjagripir
þjóðhátíðarnefndar eru sýndir í
litum. Ferðamenn hafa tekið pés-
ann með sér heim og nú eru pant-
anir að byrja að berast og vonandi
eiga þær eftir að verða margar,
þvf að hér er um gjaldeyrisöflun
að ræða.
— Eru skýringar á mununum á
erlendum tungumálum?
— Já, á plattaseríunni, sem Ein-
ar Hákonarson gerði, eru mjög
góðar skýringar bæði á ensku og
íslenzku.
— Hvernig ætlið þið að haga
sölunni á þjóðhátíðardaginn 28.
júlí n.k. á Þingvöllum?
— Það hefur verið ákveðið, að
þjóðhátíðarnefnd hafi sölutjald
rétt við pósthúsið á hátíðarsvæð-
inu. Þar ætlum við að hafa sölu-
fólk og alla munina, sem ég hef
rætt um. Söludeildin verður
skammt frá pósthúsinu til þess að
auðvelda fólki að pósta hluti eins
og t.d. öskubakkana í póstöskj-
unni. Rétt er að hvetja menn til
að tryggja sér minjagripina áður
en þeir fara til Þingvalla, bæði til
þess að vera vissir um að fá um-
rædda minjagripi og komast hjá
ös í sölutjaldinu þar eð vitað er,
að menn komast í þjóðhátfðar-
skap á Þingvöllum og kaupa sér
minjagripi um staðinn og stund-
ina.