Morgunblaðið - 15.08.1974, Side 16

Morgunblaðið - 15.08.1974, Side 16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. AGtJST 1974 16 — Raforka Framhald af bls. 2 magn hæstu verði, greiða hæsta verðjöfnunargjaldið. Frumvarpið gerði og ráð fyrir því að standa þyrfti skil á verðjöfnunargjaldinu á sama hátt og söluskatti mánað- arlega. Til að framfylgja þessu ákvæði þyrftu þær rafveitur, sem innheimtu raforkugjöld ársfjórð- ungslega, að bæta á sig veruleg- um kostnaði við örari aflestur og innheimtu. Verðjöfnunargjald gæti eins verið hér eftir sem hing- að til bundið við ákveðna árlega upphæð, enda væri hún endur- skoðuð með hæfilegu millibili. — Kýpur Framhald af bls. 1 kaupa fyrir Tyrki og 71 milljón fyrir Grikki. Auk þessa áttu Tyrk- ir að fá 80 milljón dollara í bein- um styrkjum til hermála. Gerald Ford, hinn nýi forseti Bandarikjanna, tók þegar virkan þátt í friðarumleitunum, en þetta er fyrsta meiri háttar alþjóða- deilan, sem kemur til kasta hans sem forseta. Strax í gærkvöldi ræddi hann við Henry Kissinger, utanríkisráðherra, simleiðis um horfurnar, og þegar friðarvið- ræðurnar í Genf rofnuðu og Tyrk- ir hófu stórsókn sína í morgun heldu þeir með sér annan fund. Síðar í dag talaði Ford símleiðis við bæði James Callaghan, utan- ríkisráðherra Bretlands, og Harold Wilson, forsætisráðherra. Ljóst var að ráðamenn í Evrópu og Bandaríkjunum höfðu þungar áhyggjur af þróun mála á Kýpur, og vegna úrsagnar Grikklands úr Atlantshafsbandalaginu. Ekkert var þó látið uppi um hvað þeim Ford og Wilson fór i milli, en einnig ræddust þeir Callaghan og Wilson við. Callaghan sagði í við- tali við brezka útvarpið, að hann væri mjög vonsvikinn vegna þess, að Tyrkir hefðu ekki viljað sam- þykkja 36 klukkustunda frestun viðræðnanna i Genf, því sá frest- ur hefði veitt tækifæri til að jafna ágreininginn áður en til strfðs kæmi. „Núhefuröllu verið kastað fyrir róða ... og ég held, að til- raunirnar til að ná frambúðar samkomulagi um skipan mála á Kýpur hafi færzt afturábak sem nemur nokkrum árum.“ Hann deildi hart á Tyrki fyrir óábyrga málsmeðferð og sagði, að hann sæi enga friðsamlega lausn deil- unnar í bráð. „Auðvitað munu Tyrkir vinna hernaðarlegan sigur á eynni, en það mun aðeins hafa í för með sér skæruhernað áfram.“ Callaghan ræddi einnig í dag við Kurt Waldheim, framkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna. Sovétríkin fóru varlega í að gefa út yfirlýsingar vegna síðustu atburða á Kýpur og innan At- lantshafsbandalagsins. Aðeins var skýrt frá úrsögn Grikklands í 7 línum hjá Tass-fréttastofunni, en sú frétt kom með óvenjumikl- um hraða miðað við frétta- þjónustu Tass yfirleitt, og þykir margt benda til, að Rússar fylgist með gangi mála af miklum áhuga. Á skyndifundinum hjá öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna f dag, sagði Jakob Malik, fulltrúi Sovét rikjanna, að það hefði verið að kenna tilraunum til þess að leysa Kýpurdeiluna innan ramma NATO, að viðræðurnar í Genf hefðu siglt í strand. Hann hvatti til, að öryggisráðið sendi fulltrúa sína til Kvnur. Bæði Bretar, Bandaríkjamenn og fastaráð NATÓ lýstu í dag full- um stuðningi við ályktun öryggis- ráðsins um að komið yrði á algeru vopnahléi á Kýpur og síðan setzt aftur að samningaborðinu i Genf. í Aþenu sagði gríska ríkis- stjórnin, að hún hefði ákveðið að slíta hernaðarsamstarfi innan NATO vegna þess, að bandalagið hefði sýnt „vanmátt sinn til að stöðva Tyrkland i að stofna til styrjaldar milli tveggja banda- lagsþjóða". Þessari ákvörðun var fagnað um allt Grikkland, og þeg- ar Konstantin Karamanlis, for- sætisráðherra, kom af fundi stjórnarinnar hrópaði mannfjöld- inn „Hellas, Hellas“. Georg Mav- ros, utanríkisráðherra, kom til Aþenu i dag frá Genf, ásamt Glaf- kos Klerides, forseta Kýp.ur. Mav- ros sagði í Genf fyrir brottförina, að nú væri ekkert Atlantshafs- bandalag til lengur. Grikkir fjölguðu mjög í her sin- um til viðbótar þvi 160.000 manna herliði, sem þegar er til staðar og hefur verið sagt að vera við öllu búið. Telja hermálasérfræðingar, að ef Grikkir muni hefja árás á Tyrkland, þá muni það verða gert úr lofti, og er sérstaklega bent á grískar herþotur, sem eru á eyj- unum Krít og Rhodos. — Rannsóknir Framhald af bls. 2 — Ég held, að það geti orðið töluverður stuðningur fyrir fisk- iðnaðinn á þessum stöðum. Menn þurfa þá ekki að bíða eftir svari við tiltölulega einföldum rann- sóknum, sem hefur komið fyrir þegar flug hefur fallið niður og ófá dæmi eru um, að sýni hafa beinlínis eyðilagzt, sagði Björn að lokum. — 600 millj. Framhald af bls. 28 grundvöll fyrir útgerðarrekstrin- um. Segir f samþykktinni, að vegna hinnar miklu óvissu um málefni útgerðarinnar hafi stjörn LÍÚ samþykkt að boða til auka- fundar hinn 3. september næst- komandi, en í þvi sambandi er vert að vekja athygli á því, að ákveða á nýtt fiskverð hinn 1. september nk. Samþykkt stjórnar LÍÚ fer hér á eftir: Fundur stjórnar L.Í.Ú. 13. ágúst 1974 lýsir þungum áhyggj- um af fjárhagsaíkomu báta- og togaraútgerðarinnar á þessu ári og þeim drætti, sem á því hefir orðið að gera ráðstafanir til að skapa grundvöll fyrir útgerðar- rekstrinum, enda þótt margir mánuðir séu liðnir síðan ljóst var hvert stefndi. Þessir erfiðleikar hafa vaxið stöðugt, eftir því sem nauðsynlegar aðgerðir hafa dregizt. Fyrir liggja nýjar opinberar upplýsingar um, að halli á bátaút- gerðinni muni á grundvelli nú- verandi verðlags nema um 600 m. kr. á ársgrundvelli og er þá gert ráð fyrir þvf, að úthald það sem eftir er ársins verði með svipuð- um hætti og s.l. ár. — En nú þegar hefir verið hætt útgerð margra báta. Við það bætist, að mikil óvissa ríkir um útgerð allra þeirra báta, sem stundað hafa veiðar á heimamiðum á þessu sumri og mikil hætta á, að flestum þeirra verði nú lagt að óbreyttu ástandi. — Síldveiðar í Norðursjó hafa verið ýmsum erfiðleikum háðar nú og tilkostnaður hefir verið miklu hærri en s.l. ár, m.a. vegna hærra olíuverðs, þannig að tap- rekstur hefir orðið mikill, svo að þegar ber á þvf, að útgerð þessara báta sé hætt. Nýleg endurskoðun á áliti nefndar, sem kannaði horfur á rekstrarafkomu skuttogara á þessu ári sýnir, að á verðlagi í júlí gæti tap á rekstri skuttogara 400—500 brúttórúml. numið 22 millj. kr. á ársgrundvelli, en stærri skuttogara 24 millj. kr. Er þá reiknað með niðurgreiðslu á olfu allt árið. Við þessar aðstæður hefir orðið gífurleg skuldasöfnun hjá útgerð inni, sem er sérstakt vandamál, sem leysa þarf með sérstökum ráðstöfunum, þótt rekstrargrund- völlur verði lagður að öðru leyti. Fundurinn telur nauðsynlegt að vekja athygli þjóðarinnar á þessum stórfelldu vandamálum og bendir stjórnvöldum á, að úr- lausn þeirra þolir enga bið og óskar eftir, að væntanleg ríkis- stjórn hafi samráð við L.l.Ú. um ráðstafanir, sem gerðar verða í málefnum sjávarútvegsins. Vegna hinnar miklu óvissu um málefni útgerðarinnar samþykkti stjórn L.I.Ú. að boða til auka- fundar í sambandinu 3. septem- ber n.k. — Hagnýting Framhald af bls. 2 félag bænda, Búnaðarfélag Is- lands, Samband ísl. sveitarfél. o.fl. aðila. Lagadeild Háskólans hefði að vísu talið, að ákvæði þess brytu ekki f bága við eignaréttarákvæði stjórnarskrár þar eð ætla mætti, að verðmæti þessi yrðu bætt, en orðalag umsagnarinnar væri á þá lund, að hér væri mjótt á munum. Samband ísl. sveitarfélaga hefði talið sig geta fallizt á frumvarpið með ákveðnum breytingum, en umsögn búnaðarþings um frum- varpið hefði verið mjög neikvæð. Taldi Ingólfur frumvarp þetta með öllu ónauðsynlegt þar eð hægt væri skv. ákvæðum í gild- andi orkulögum að nýta jarðvarma eftir þvf sem þurfa þætti og heppilegast væri á hverjum stað. I þeim lögum væri og ekkert, er hindraði nauðsyn- legar rannsóknir né æskilegar áætlanagerðir í þessu efni. Morgunblaðið mun gera máli Ingólfs Jónssonar f þessari umræðu nánari skil síðar. Frumvarpinu var vísað til 2. umræðu og iðnaðarnefndar með 29 samhljóða atkvæðum. — Stórsókn Framhald af bls. 13 send suður á bóginn. Lagðir hafa verið nýir vegir, flugvellir hafa verið gerðir og komið hefur verið upp loftvarna- og stórskota- stöðvum. Herlið norðanmanna í Suður- Víetnam er nú 200.000 menn í ellefu herfylkjum og hefur aldrei verið öflugra, og þar við bætast 100-150.000 manna skæruliða- sveitir og hjálparsveitir. 1 Norður-Víetnam sjálfu eru 300- 350.000 hermenn. Norður:Víet- namar hafa auk þess 500-600 skriðdreka, rúmlega 300 stór- skotaliðsvopn og 1200 loftvarna- eldflaugar í Suður-Víetnam. Þrjú norður-víetnömsk herfylki eru i nyrzta hluta Suður-Víetnam. Annað herfylki er rétt norðan við hlutlausa beltið. Þriðja herfylkið er f syðsta hluta nyrzta héraðsins, þrjú herfylki eru á miðhálendinu, þrjú f viðbót vestur af Saigon og eitt á óshólmasvæðinu. Suður-víetnamski herinn er skipaður 400.000 mönnum og hefur verið endurskipulagður og batnað við það. Bandaríkjamenn eru þó ekki vissir um, að þeir hafi í fullu tré við Norður-Víetnama ef allsherjarárás verður gerð. — Stikur Framhald af bls. 14 hafa kenningar hans um tengsl málfræði og sálfræði valdið straumhvörfum. Chomsky heldur þvf fiam að málfræðin geti stuðlað að þvf að upplýsa sálfræðileg vandamál. Þetta styður hann rökum f Mál og mannshugur: „Ef litið er lengra fram í tfmann, er gildi málrannsókna fólgið f þvf, að þær gera kleift að setja tiltölu- lega nákvæmt og greinilega fram ýmis höfuðvandamál sál- fræðinnar og láta f ljós mikla vitneskju, sem skiptir máli fyr- ir þau. Og meira að segja eru málvfsindin f svipinn einstæð að þvf leyti, að þau eru samtfm- is auðug að gögnum og vel fall- in til nákvæmrar framsetning- ar á undirstöðuatriðum“. Eins og Halldór Halldórsson bendir á f inngangi sfnum mót- ast kenningar Chomskys mjög af heimspekiáhuga hans. Hann hefur til dæmis gefið út bók um sautjándu aldar heimspeki: Málvfsindi Descartessina. Chomsky hefur vakið mikla at- hygli fyrir stjórnmálaafskipti sfn, ekki sfst harða gagnrýni á utanrfkisstefnu Bandarfkj- anna. Lærdómsrit Bókmennta- félagsins eru nú orðin tólf. 1970 komu fimm bækur, 1972 fjórar bækur, meðal þeirra hin merka bók Samræður um trúar- brögðin eftir David Hume, fs- lenzk þýðing eftir Gunnar Ragnarsson með inngangi eftir Pál S. Ardal. I haust eru væntaniegar tvær bækur í við- bót: Orðræða um aðferð eftir René Descartes, fslenzk þýðing eftir Magnús G. Jónsson með inngangi eftir Þorstein Gylfa- son og Birtingur eftir Voltaire, fslénzk þýðing eftir Halldór Laxness með forspjalli eftir Þorstein Gylfason. Ég vil hvetja sem flesta til að kynna sér þessar bækur. — Læknar á æfingu Framhald af bls. 3. vera, þyrftu íslendingar að eiga fleiri slíkar þyrlur, sem hafðar yrðu úti á landi. Undirritaður blaðamaður Mbl., sem fylgdist með æfingunni fékk að síga niður úr þyrlunni. Ekki verður þvf neitað, að nokkurs uggs kenndi, þegar farið var út um dyrnar á þyrlunni, en þegar byrjað var að slaka til jarðar hvarf hræðslan algjörlega, enda var sem setið væri í hægindastöli. Sömu sögu er að segja af ferðinni upp. Á meðan á æfingunni stóð ræddum við lftillega við Skúla Johnsen, borgarlækni og Ólaf Ingibjörnsson lækni, en segja má, að hann sé upphafsmaður sjúkra- flugs lækna. Þeir sögðu, að for- sögu þessa máls mætti rekja til þess tíma, er Ólafur var læknir í Stykkishólmi, árið 1967. „Þá var mikið um sjúkraflug og sá Elíeser Jónsson oftast um það. Við ræddum oft um að það væri nauðsynlegt, að læknar væru með f sjúkraflugi. Eftir að Elíeser tók við af Birni Pálssyni hófumst við nokkrir læknar handa um að koma upp tækjabúnaði, sem ávallt mætti taka með sér í flug. Flugstöðin keypti þessi tæki sl. vor og eru þau til taks f húsa- kynnum fyrirtækisins. I þessum búnaði eru súrefnistæki, almenn læknaáhöld, umbúðir og súrefnis- tankur.“ sagði Ólafur. Skúli sagði, að þeir hefðu komið þessu máli á framfæri við lækna- félag Reykjavíkur, sem síðan sendi út bréf til lækna þar sem óskað var eftir læknum til þessa starfs. I þetta starf gáfu sig Ólafur Ingibjörnsson, Skúli Johnsen, Jón Arnasofi, Ólafur Jónssön og Ólafur Þ. Jónsson. Komu þessir menn síðan saman og útbjuggu töflu, sem gerir ráð fyrir, að alltaf sé einn þeirra tilbúinn til sjúkraflugs. Ahuginn á sjúkraflugi lækna hefur aukizt og fer þeim fjölgandi, sem tilbúnir eru til starfa. I dag, fimmtudag, er ætlunin að um 10 læknar fari út á Faxaflóa með GNÁ, en þar verða þeir látnir síga niður á dekk eins varðskipsins, enda er erfiðara að síga niður í skip en til jarðar. Þ. O. — Sniðgengur Framhald af bls. 13 þess að lána erlendum rfkjum fé til vopnakaupa. Þetta er einn stærsti hluti hernaðaraðstoðar- innar og á að falla niður á næstu þremur árum. Nefndin samþykkti einnig að leggja niður nefndir bandarískra hernaðarráðunauta í 45 löndum, þar á meðal í flestum löndum Evrópu. Nefndin samþykkti að lækka beina hernaðaraðstoð við erlend ríki um 434 milljónir dollara i 550 milljónir dollara. Nefndin samþykkti, að 2,5 milljörðum dollara skyldi varið í erlenda aðstoð, 775 milljónum dollara minni upphæð en stjórnin fór fram á eða 22%. Ákveðið var, að hámark aðstoðarinnar við Suður-Víetnam yrði 1,28 milljarðar dollara, þar af 700 milljónir dollara í hernaðar- aðstoð. Takmarka á aðstoð við Kambódfu við 347 milljónir dollara og Laos við 127 milljónir dollara. I fyrra var aðstoðin við SVíet- nam 1,57 milljarðar dollara, Kambódiu 688 milljónir dollara og Laos 127 milljónir dollara. Nefndin samþykkti að afnema heimild forsetans til þess að hundsa takmarkanir á aðstoð, sem þingið samþykkir. ísrael fær 550 milljón dollara aðstoð, þar af 250 milljón dollara hernaðaraðstoð. Egyptar fá 250 milljón dollara efnahagsaðstoð en enga hernaðaraðstoð. — Nazareth Framhald af bls. 28 yrðu endursendir. Ámundi virðist því hafa vinninginn, að svo miklu leyti sem John Fenton er ábyrgur fyrir samningum umboðsfyrir- tækisins Nems Enterprises. Þegar Morgunblaðið hafði sam- band við Ámunda i gær, sagði hann: „Málið er á hreinu og ég fæ samningana í hendur á morgun. Eg vona bara, að fólk fjölmenni á tónleikana i samræmi við þá fyrir- höfn, sem ég hef haft af málinu." — Saltfiskur Framhald af bls. 2 Framleiðslan er þó öll seld og fékkst gott verð fyrir umfram- magnið. Af vertíðarfram- leiðslunni á blautfiski voru um 16 þúsund lestir seldar til Portúgals, 7 þúsund lestir til Spánar og á annað þúsund lestir til Italíu. Þá sagði Tómas, að fyrstu sölur á þurrfiski hefðu farið fram nýlega og væru það á milli 400—600 lestir, er færu til Portúgals. Verðið á þurrfiskinum er heldur minna en blautfiskverðið frá i vetur. — Minning Bjarni Framliuld al' bls. 1S húsfreyjusessinn eftir frú Þór- unni tengdamóður sfna. Þau voru fagurlega samhent og samvalin hjónin, frú Björg og Bjarni óðalsbóndi, að halda vörð um vegsemd gömlu Vigur. Frú Björg var fyrir allra hluta sakir ein merkasta húsfreyja héraðsins. Og Bjarni var ekki aðeins umsvifamikill bóndi, heldur forystumaður sveitarinnar um flestallt það, sem beztu mönnum hverrar sveitar er trúað fyrir. Og hann var fróður maður ágætlega um margt, ekki sizt um gamalt tungutak Djúpmanna og heiti á veðurfari, sjósókn og búnaði. Búskaparsögu þessara ágætu hjóna kann ég ekki að segja eins og skyldi, enda langt um liðið síðan ég kvaddi æskustöðvar. En það hef ég fyrir satt, að með virð- ingu horfi Djúpmenn enn að Vig- ur, þar sem bræðurnir tveir sitja með sæmd. Önnur börn þeirra hjóna eru þjóðkunn öll. í fyrradag var ég meðal þeirra mörgu, sem hugsuðu vestur i Vig- ur, þar sem Bjarni bóndi var af fjölmenni kvaddur áður en stigið var á skip og lík hans flutt upp í ögur til þess að þiggja þar leg. Sín hefir aukið enn efni hið vígða svið. Býr vel um mætismenn moldin að hefðarsið, — kvað Guðmundur á Sandi, þegar hann stóð við gröf sra Sigurðar i ögurkirkjugarði og orkti sitt erfi- ljóð um þann skörungsmann. Ég hugsa um það mannval, sem þessa litlu sveit hefir prýtt með mann- dómi sínum og menningu. Ég hugsa um hinn vfgða reit, garðinn, sem geymir bein þessa fólks. Þar rennúr mér blóð til skyldu. Og ég hugsa til frú Bjarg- ar f Vigur og alls, sem henni var og er og verður kært. Jón Auðuns. Verzlunarstjóri óskast fyrir út- og innflutningsverzlun. Verður að geta unnið sjálfstætt. Kaup eftir samkomulagi. Tilboð sendist Mbl. fyrir 20. þ.m. merkt: „1356".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.