Morgunblaðið - 15.08.1974, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1974
Gísli Bjarnason
skipstjóri - Minning
F. 24.11. 1900
D. 8.8 1974.
Gísli Bjarnason var fæddur að
Stóru-Vatnsleysu á Vatnsleysu-
strönd 24. nóvember árið 1900.
Foreldrar hans voru Bjarni
Stefánsson útvegsbóndi og Elín
Sæmundsdóttir.
Gísli ólst upp í foreldrahúsum
og vandist snemma allri venju-
legri vinnu, enda heimilið stórt og
mikil umsvif til lands og sjávar.
Þráttán ára að aldri var hann
landformaður í Sandgerði. Strax
eftir fermingu fór hann á sjóinn.
Fyrsta þilfarsskipið, sem hann
var á, var „Nanna“ frá Hafnar-
firði. Fljótlega lá leið hans um
borð f togara, en á þeim árum var
það keppikefli ungra dugnaðar-
manna að hasla sér þar völl. Gísli
var á ýmsum togurum, þar á með-
al á „Belgaum" með höfðings-
manninum Þórarni Olgeirssyni.
Árið 1924 lauk Gísli prófi frá
Stýrimannaskóla tslands. Eftir
t
Systir okkar
VILBORG PÁLSDÓTTIR,
Byggðarenda 1,
lézt I Landakotsspítala aðfarar-
nótt 10 þ m
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkj-
unni föstudaginn 16. ágúst kl.
1.30 e.h.
Guðmundía Pálsdóttir,
Halldóra Pálsdóttir.
það var hann bátsmaður, 2. og 1.
stýrimaður á togurum, m.a. á B/v
„Hávarði tsfirðingi". Árið 1932
réðst hann sem 1. stýrimaður til
mágs síns, Jóhanns Péturssonar, á
b/v „Gylfa“ frá Vatneyri, eign
hinna kunnu Vatneyrarfeðga, en
útgerð og rekstur fyrirtækja
þeirra var rómuð fyrir sérstakan
myndarbrag, sem vert var. Þar
átti Gísli eftir að starfa blóma-
skeið ævi sinnar. Árið 1933 tók
hann við skipstjórn á b/v
„Leikni", sem var annar togari
þeirra Vatneyrarfeðga. Á
„Leikni" var Gísli skipstjóri til
haustsins 1936, er skipið sökk á
Halamiðum, en f þeirri ferð var
Gísli ekki með skipið. Fljótlega
keypti útgerðin b/v „Andra", sem
hlaut nafnið „Vörður“. Á því
skipi var Gísli skipstjóri, þar til
það var selt úr landi árið 1947. Þá
keypti útgerðin tvo hina svoköll-
uðu „Sáputogara“, sem voru stór
og mikil skip á þeim tíma. Annað
skipið var skírt „Vörður" og tók
Gísli við skipstjórn á þvf. 29.
janúar 1950 varð Gísli fyrir
þungu fáfalli, er bráður leki kom
að skipi hans f hafi svo það sökk,
og með því fórust fimm af áhöfn-
inni. Þennan atburð tók Gísli sér
mjög nærri og var lengi að ná sér
á eftir.
Eftir þetta hætti Gísli sjó-
mennsku, en vann um allmörg ár
sem verkstjóri í frystihúsinu
„Kaldbak“ á Vatneyri. Árið 1962
fluttist hann til Hafnarfjarðar og
gegndi þar ýmsum störfum. Sein-
t
ÓLAFUR SIGFÚSSON,
Sólbergi, Þórshöfn,
andaðist á Landspítalanum þ 9. þ.m. Útförin ferfram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 1 5. ágúst kl. 3. e.h.
Aðstandendur.
t
Ástkær eigtnmaður mínn,
ÁLFGEIR GÍSLASON,
Akurgerði 50,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni föstudaginn 16 ágústkl. 15.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna
Olga Sveinsdóttir.
t
Elsku litli sonurokkar,
JÓN GUNNAR GUÐMUNDSSON,
Æsufelli 2,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni 1 5. ágúst kl. 1 3.30. Blóm vinsam-
lega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans, er bent á Styrktarfélag
vangefinna. Björk Kolbrún Gunnarsdóttir,
Guðmundur Jónsson.
+ Móðir okkar GUÐFINNA GUDMUNDSDÓTTIR, frá Skipum, verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju, föstudaginn 1 6 ágúst kl. 2.
Börnin.
t
Útför móður okkar og tengdamóður
HELGU SIGFÚSDÓTTUR,
Borgarholtsbraut 31, Kópavogi
sem lézt 1 1 ágúst verður jarðsungin frá Aðventkirkjunni, föstudaginn
1 6 ágúst kl 15 00 Jarðsett verður í Hafnarfirði
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hennarer bent
á Systrafélagið Alfa
Kristtn Elísdóttir, Bjarni Finnsson,
Anna Elísdóttir, Sigfús Elísson,
Sigriður Elisdóttir, Gyða Björnsdóttir.
rrr—r f— tii n rnrimrrr ri ■■ifiif i IIm—Iiiiiwii^iima»,i—ii—IIIi ■!mimiwiii I ..
ustu árin vann hann sem þing-
vörður á Alþingi allt til dánar-
dægurs.
— 0 —
Eftir að Gísli tók við skipstjórn
á b/v „Leikni", kom fljótt í ljós
dugnaður hans og hæfileikar til
forustu. Á þeim árum dugði engin
meðalmennska til að hreppa skip-
stjórn á togurum og halda henni.
Gísli var mikill aflamaður, en
hugsaði þó fyrst um öryggi manna
sinna. Hin sanna sjómennska var
honum í blóð borin. Ungum
mönnum var það góður skóli að
vera undir stjórn Gísla. Það
reyndi ég af eigin raun og margir
fleiri. Hann naut virðingar og vin-
áttu skipshafnar sinnar.
Þegar við Gísli vorum saman á
b/v „Verði" kynntist ég honum
vel. Þá fann ég, hversu sterkur
persónuleiki hann var. Undir
hrjúfu yfirborði var Gísli hlýr
maður og hjartahreinn, og þegar
dýpra var skyggnzt, var hann
viðkvæmur og mátti ekkert aumt
vita.
I ársbyrjun 1943, þegar ég
óvænt tók við skipstjórn á b/v
„Baldri“, var ég ungur að árum og
reynslulitill. Þá var gott að geta
leitað til Gísla Bjarnasonar og
notið hollráða hans. Gísli Bjarna-
son var slíkur maður, að hann
hugsaði ekki einungis um velferð
manna meðan þeir voru í skip-
rúmi hjá honum, heldur bar hann
hag þeirra fyrir brjósti æ síðan.
Þess naut ég. Og nú að leiðarlok-
um sé ég, hversu mikils virði mér
hafa verið kynnin við Gísla
Bjarnason og vinátta hans.
— 0 —
Gísli Bjarnason reyndi bæði
meðlæti og mótlæti á lífsleiðinni.
Hann átti því láni að fagna að
vera kvæntur mikilhæfri og góðri
konu, Nönnu Guðmundsdóttur
frá Patreksfirði, sem bjó honum
hlýlegt og friðsamt heimili og þar
undi hann sér bezt. Þeim hjónum
varð þriggja barna auðið: Önnu
símstöðvarstjóra í Búðardal,
Guðrúnu og Bjarna rafvm., bæði
gift og búsett í Reykjavík. Þau
Gísli og Nanna vorU höfðingjar
heim að sækja og þökkum við
hjónin ánægjustundir á heimili
þeirra.
Eg og fjölskylda mín vottum
þeim Nönnu, börnum hennar og
öðrum aðstandendum innilegustu
samúð.
Einar Thoroddsen
I minningu
Bjarna í Vigur
Hver einn bær á sína sögu,
sigurljóð og raunabögu.
(M. Joch.)
má ekki síður segja um gömlu
Vigur í ísafjarðardjúpi en marga
bæi aðra og höfuðból. Á fyrri
hluta síðustu aldar hóf merkis-
bóndinn Kristján dannebrogs-
maður Guðmundsson Vigur til
mikils vegs, umsvifamikill
auðmaður og höfðingi í gömlum
stíl. En eftir hann og síðari konu
t
Innilegustu þakkir flytjum við öll-
um þeim, sem auðsýndu samúð
og hluttekningu við fráfall og
útför sonar okkar og bróður
KRISTINS ESMARS
SKARPHÉÐINSSONAR,
Aleth Kristmundsson.
Skarphéðinn Kristmundsson
og systkini.
Jóseflna Benjamínsdóttir,
Óskar Benjamínsson,
Unnur Ágústsdóttir.
hans, maddömu Önnu sýslu-
mannsdóttur frá Hjarðardal, féllu
skuggar auðnuleysis og illra ör-
laga á Vigur um skeið.
En þáturðu heldur betur skýja-
rof, þegar sra Sigurður Stefáns-
son, síðar þingskörungur og þjóð-
kunnur maður, kom í ögurþing.
Hann og kona hans, frú Þórunn
Bjarnadóttir, settust að í Vigur og
eignuðust eyna alla smám saman.
Þau hófu Vigur aftur til vegs og
bjuggu þar í nálega 40 ár við
mikla virðingu og veg.
Frá þeim árum á ég meðal
margra minninga þessa: Það er
messudagur og sra Sigurður
embættar í höfuðkirkjunni í Ögri,
en á þeim höfðinglega stað átti ég
nálega öll mín bernsku- og æsku-
sumur hjá frænkum mínum. „Nú
er mál að flagga", sagði Halldóra
frænka min og leiddi mig að
„skansinum" á gamla þinghúss-
hólnum, þar sem var mikil flagg-
stöng, og leyfði mér, litlum snáða,
að halda í flagglínuna. Fáninn
með fálkanum fór upp að húni um
leið og bátur Vigurfólksins kom
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og bálför
ÁSGEIRS HJARTARSONAR,
bókavarðar,
Snorri Ásgeirsson, Ragnheiður Asgeirsdóttir,
Halldór Ásgeirsson, Oddný Ingimarsdóttir,
Ingimar Jóhannsson.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför,
ÓLAFS KR. TEITSSONAR,
Skólavörðusti'g 20 A,
og
ÓLAFSEGGERTSSONAR,
Kvennabrekku.
Fyrir hönd aðstandenda,
Vilborg Magnúsdóttir,
Ingibjörg Sigurðardóttir.
fyrir Ögurnesið. Og fáninn var
aftur látinn falla síðla dags, þegar
bátur sra Sigurðar hvarf fyrir
Nesið. Engu mátti skeika. Form-
festa á öllu höfð, og á henni kunni
tök þetta fólk.
Messufólkið dreif að, sumt á
hestum, annað á bátum. Þegar
annað fólk var gengið til kirkju
og samhringt var, gengu þrjár
virðulegar og prúðbúnar konur,
prestsfrúin í Vigur og Ögursyst-
ur, saman í kirkjuna, og á eftir
þeim sra Sigurður. Bjarni sonur
hans lék á orgelið og sra Sigurð-
ur flutti messuna virðulega. Hann
bar virðingu fyrir embætti sínu,
og fólkið ekki síður fyrir honum.
Heimilið í Vigur var mikið og
merkilegt á alla lund, og eftir því
sem árin liðu færðust umsvifin
meir og meir yfir á herðar Bjarna,
sem einn varð eftir heima bræðr-
anna þriggja. Og hamingja
heimilisins óx, þegar systurdóttir
sra Sigurðar, Björg Björnsdóttir
frá Veðramóti, kom vestur í
Vigur, giftist Bjarna Sigurðssyni
frænda sínum og skipaði síðan
Framhald á bls. 16
t
Þökkum auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför,
ÓSKARS
SIGURBJÖRNSSONAR,
Höfn, Hornafirði.
Halla Bjarnadóttir,
Birna Óskarsdóttir,
Lucia Óskarsdóttir,
Sigurður Karlsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
GUÐMUNDU BERGMANN.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarliðs Landspítalans fyrir frábæra hjúkrun
og ástúð við hina látnu.
Andreas Bergmann
Jón Bergmann, Ágústa Bergmann,
Guðrún Schneider, George Schneider,
Sigrún Bergmann, Stefán Hallgrímsson,
Karl Bergmann, Guðrún Skúladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför eiginmanns míns, föður
okkar tengdaföður og afa,
JÓNS SIGURJÓNSSONAR
bónda, Ási, Hegranesi.
Sérstakar þakkir viljum við færa
kirkjukór Sauðárkróks. Guð
blessi ykkur öll.
Lovísa Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn og barna-
börn.