Morgunblaðið - 15.08.1974, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. AGÚST 1974
| ÍÞRIÍTIAIRETTIR MIIIICTIUIISIHS
Staðráðnir í að komast 1 meistaraflokk
Rætt við nokkra þeirra leikmanna,
sem léku til úrslita í
yngstu aldursflokkunum
Islandsmótinu I yngstu
aldursflokkunum lauk á Mela-
vellinum á mánudagskvöldið.
Breiðablik bar sigur úr býtum I
öllum flokkunum, þriðja,
f jórða og fimmta flokki, eins og
frá var sagt f Morgunblaðinu f
gær. Fréttamaður Morgun-
blaðsins ræddi að leikjunum
loknum við nokkra leikmanna
úrslitaliðanna og fara þau hér á
eftir.
Þetta var frábært, að vinna
alla flokkanna, sagði Valdimar
Valdimarsson fyrirliði 3. flokks
Breiðabliks, eftir að hann hafði
tekið við bikarnum fyrir hönd
liðs síns. Þetta er í 3ja skiptið,
sem ég tek þátt f úrslitaleik í
Islandsmóti og hef tapað þar til
nú.
-— Hverju þakkar þú þennan
góða sigur?
— Við æfum vel undir stjórn
Ásgeirs Þorvaldssonar. Hóp-
urinn er að vísu ekki stór, en
samstilltur og ákveðinn I að
gefa sig ekki enda höfum við
ekki tapað leik í sumar og ekki
einu sinni gert jafntefli. Það
eru 17 leikir, sem við höfum
unnið í röð.
Jú, ég er ákveðinn í að halda
áfram að æfa og komast í
meistaraflokk, sagði Valdimar
að lokum, en næsta takmark
okkar f Kópavogi er að komast
upp úr 2. deild í 1. deild.
Þorsteínn Hilmarsson, fyrir-
liði 4. flokks Breiðabliks,
sagðist vera 12 ára og bráðum
13. Hann sagði, að þetta væri
3ja árið, sem hann tæki þátt í
Islandsmóti og hefði verið
íslandsmeistari með 5. flokki f
fyrra. Erfiðasti leikurinn okkar
í riðlakeppninni var án efa á
móti Vestmannaeyingum.
Stefán Árnason
Leikurinn var jafn 1—1 þegar 7
mín. voru eftir, en þá skoruðum
við 3 mörk og unnum leikinn
4—1. Við tókum þá á úthaldinu,
bætti hann við. Ég hef leikið
knattspyrnu síðan ég var 7 ára
og er ákveðinn í að halda áfram
að keppa og æfa. Og eins og
aðrir vildi hann þakka þjálf-
aranum, Gissuri Guðmunds-
syni, hvað þeim hefði gengið
vel í sumar, enda hefðu þeir
ekki tapað leik.
Það vakti athygli, að í 4.
flokks liði Breiðabliks voru tví-
burar, líkir eins og tveir vatns-
dropar. Það eina, sem greindi
þá í sundur á vellinum, var, að
annar var með töluna 9 á bak-
inu, en hinn með töluna 5. Þess-
ir drengir eru þeir Sigurður
Viggó Halldórsson og
Guðmundur Ólafur Halldórs-
son.
Strákarnir sögðu, að Sigurð-
ur væri aðal markaskorari liðs-
ins og að hann skoraði í hverj-
um leik. Ég hitti Sigurð eftir
leikinn, en hann brá ekki vana
sínum að þessu sinni og skoraði
tvö mörk f úrslitaleiknum. Ég
spurði hann um mörkin:
— Ég fékk sendingu, sagði
hann, komst frír innfyrir og
skaut yfir markvörðinn, undir
þverslána, en knötturinn fór
innfyrir marklínuna og út
aftur. Síðan skoraði ég 3ja
markið í leiknum með skalla,
sagði Sigurður. Sveinn Ottós-
son komst inní hornið og gaf
knöttinn yfir nokkra varnar-
menn, en þá kom ég hlaupandi
og skallaði í netið.
— Ég skoraði 13 mörk í
Islandsmótinu, en alls hef ég
skorað 35 mörk í 23 leikjum í
sumar.
Skúli Rósantsson
Að lokum spurði ég þennan
mikla markaskorara hverjir
væru hans uppáhalds knatt-
spyrnumenn og sagði hann, að
það værp þeir Matthías
Hallgrfmsson og Guðni
Kjartansson, en bezta liðið taldi
hann vera lið Akraness.
Skúli Rósantsson 13 ára fyrir-
liði IBK i 4. flokki, sagði, að
úrslitaleikurinn við Breiðablik
hefði verið jafn, en taldi, að 2-1
sigur Breiðabliks hefði gefið
réttari mynd af leiknum.
Við unnum alla okkar Ieiki í
riðlakeppninni nema gegn Val,
en sfðan mættum við þeim í
aukaleik um efsta sætið og þá
unnið 5-1.
Ég er búinn að leika knatt-
spyrnu frá því ég var smá-
strákur, sagði Skúli, og ætla að
halda þvf áfram.
Hann sagði, að erfiðasti
leikurinn hefði verið gegn
Þrótti í riðlakeppninni, en
þann leik unnum við 1-0. Þá
sagði Skúli, að í sumar hefði
liðið tekið þátt í móti f Hjörring
í Danmörku, þar sem þátttak-
endur voru 8 lið frá öllum
Norðurlöndunum og Frakk-
landi. Þar hafnaði IBK f 3ja
sæti og fékk bikar að launum.
Þannig að við höfðum þá alla-
vega unnið einn bikar í sumar,
þótt við töpuðum af þessum í
kvöld, sagði Skúli að lokum.
Sigurjón Kristjánsson 12 ára
fyrirliði 5. flokks Breiðabliks,
var að vonum ánægður eftir
leikinn, þegar ég hitti hann að
máli. Hann sagði, að leikurinn
hefði ekki verið svo mjög
erfiður og strákarnir ekkert
verið taugaóstyrkir, nema
kannski nokkrir. Guðmundur
Þórðarson þjálfar okkur og
hann er ffnn þjálfari, sagði
Sigurjón, en við æfum þrisvar í
viku og er alltaf vel mætt.
Erfiðasti leikurinn okkar var
á móti Víkingi, sagði hann, en
þá skoruðum við fyrsta markið,
en Víkingar komust í 3-2.
Sigurjón Kristjánsson
En undir lokin tókst okkur að
skora tvö mörk og vinna leikinn
4-3. Sigurjón sagðist leika stöðu
tengiliðs f liðinu og hafa einnig
verið Islandsmeistari í þessum
flokki f fyrra. Einnig sagðist
hann vera staðráðinn í að halda
áfram að æfa og stefna að því
að komast í meistaraflokk,
þegar hann hefði aldur til þess.
— Þess má að lokum geta, að
Sigurjón á ætt sfna að rekja til
Akraness, en faðir hans
Kristján Sigurjónsson var á
sínum tíma leikmaður með
„Gullaldarliði" Akurnesinga og
tók á móti meistaratitlinum
ásamt félögum sfnum á þessum
sama velli fyrir réttum 20
árum.
Stefán Árnason, 12 ára fyrir-
liði ÍBK í 5. flokki, var ekkert
sérlega óhress eftir tapið fyrir
Blikunum. Þetta var erfiður
leikur, sagði hann, en
Þorsteinn Hilmarsson
strákarnir í Breiðabiik voru
miklu betri og áttu skilið að
vinna. Hann sagðist vera „aft-
ari haffsent" f liðinu, en kvaðst
ekki muna hvenær hann
byrjaði að leika knattspyrnu.
Leikurinn á móti Fylki var erfið
astur f riðlakeppninni, sagði
hann. Við töpuðum 3-2 þótt við
ættum allan leikinn. Þeir fengu
þrjú tækifæri og skoruðu úr
þeim öllum. En það gerði
ekkert til því þeir töpuðu tveim
leikjum, en við bara þessum
eina. Jú, ég er ákveðinn í að
halda áfram að æfa, sagði
Stefán að lokum, og kannski
kemst ég einhverntíma í lands-
Iiðið.
Þá vildi Stefán geta þess, að
strákarnir í 5. fl. æfa vel undir
stjórn Hólmberts Friðjóns-
sonar, sem hann sagði, að væri
mjög góður þjálfari.
—H.dan.
Valdimar Valdimarsson
Miklir keppnis-
menn og HM-farar
í KR-húsinu í kvöld
AUSTFIRÐINGURINN Skúli
Öskarsson verður meðal kepp-
enda á lyftingamótinu, sem hefst
í íþróttahúsi KR klukkan 20 í
kvöld. Verða örugglega margir,
sem leggja leið sína í KR-húsið í
kvöld til að sjá þennan skemmti-
lega keppnismann reyna við lóð-
in. Auk Skúla verða meðal kepp-
enda á mótinu þeir Guðmundur
Sigurðsson og Gústaf Agnarsson,
sem keppa á heimsmeistaramót-
inu í Manilla á Filippseyjum f
september. Báðir hafa þeir æft
mjög vel í sumar og vissulega eru
miklir möguleikar á þvf, að Gúst-
af setji einhver góð met í snörun-
inni í kvöld. Alls verða sex kepp-
endur á mótinu í kvöld, þeir, sem
ekki hafa verið nefndir, eru Frið-
rik Jósepsson, Kári Elíasson og
Árni Þór Helgason.
Hinn mikli keppnismaður Skúli
Óskarsson f keppni á síðasta
Norðurlandamóti.
BE.ROENS PN.VATBANK
... a<>(f terWt'-
"—■■■ StOT ....
*
'
Misskilningur
í 3. deildinni
VIÐ sögðum frá því í blaðinu í
fyrradag, að úrslitaleikirnir f 3.
deild í knattspyrnu færu fram nú
í vikunni. Ekki er það þó alveg
rétt, úrslitakeppni 3. deildar hefst
ekki fyrr en í næstu viku, annað-
hvort á fimmtudag eða föstudag.
Það voru fleiri skekkjur í þessari
stuttu frétt um 3. deildina. Sagt
var, að Víðir úr garði væri í úrslit-
um, en átti að vera Reynir úr
Sandgerði. I úrslitakeppninni
verður riðlaskiptingin þá þessi.
A-riðill: Þróttur Neskaupstað,
Austri Eskifirði, Reynir Árskógs-
strönd og Stefnir Súgandafirði;
B-riðill: Víkingur Ólafsvík,
Stjarnan Garðahreppi, Knatt-
spyrnufélag Siglufjarðar og
Reynir Sandgerði.