Morgunblaðið - 15.08.1974, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. AGUST 1974
27
1 íl'RliTTAFHÍITIi; MORCmiBlAflSIWS
Útlit fyrir hörkueinvígi
í úrslitaleik útimótsins
SlÐUSTU leikirnir f útimótinu I
handknattleik fóru fram I gær-
kvöldi, þá lék Fram gegn FH og
Grótta vid ÍR. Ur a-riðlinum eru
Haukarnir komnir I úrslitin og
FH-ingar máttu tapa leiknum f
gærkvöldi með nokkurra marka
mun, en voru eigi að sfður örugg-
ir með úrslitaleikinn.
Á mánudaginn lék FH við ÍR og
sigruðu Hafnfirðingarnir örugg-
lega með 31 marki gegn 23, eftir
nokkuð jafnan fyrri hálfleik.
Ölafur Einarsson var í aðalhlut-
verkinu hjá FH-ingunum í þess-
um leik og skoraði um helming
marka liðsins, þá var Jón Gestur
einnig drjúgur. A mánudaginn
unnu Framarar lið Gróttu með 10
marka mun, 23:13.
ANNAR flokkur kvenna úr Hauk-
um varð Islandsmeistari utanhúss
í fyrrakvöld, er liðið vann FH í
aukaúrslitaleik. Fyrri leiknum
lauk með 3:3 jafntefli eftir fram-
lengdan leik, en aukaleikinn
unnu Haukastúlkurnar 2:1. Svo
virðist sem Haukarnir séu að ná
upp góðum kvennaflokki — og
reyndar mjög sterkum yngri
flokkum — en Haukarnir eru
nýbyrjaðir að senda kvennalið til
keppni að nýju.
1 gærkvöldi léku svo Valur og
Víkingur. Sigruðu Valsmennirnir
með sex marka mun 25:19. Þá
léku Haukarnir við lið KR og tóku
Vesturbæjarliðið í kennslustund,
úrslitin urðu 27:14, eða 13 marka
munur.
Urslitaleikirnir í Islandsmótinu
utanhúss fara fram á föstudaginn
við Austurbæjarskólann.
Klukkan 19.00 hefst leikurinn um
3. og 4. sætið og eigast þar við
Valur og sennilega IR og úrslita-
leikurinn sjálfur hefst svo
klukkan 20, þar mætast Haukar
og væntanlega FH. Fari svo, sem
allt bendir til, að Haukar og FH
leiki til úrslita, má svo sannarlega
reikna með skemmtilegum leik
þar sem ekkert verður gefið eftir.
Fyrir tuttugu árum eða svo áttu
Haukar hins vegar mjög góða
kvennaflokka, sem urðu þá
nokkrum sinnum Islands-
meistarar. Árið 1946 varð
meistaraflokkur kvenna f Hauk-
um Islandsmeistari utanhúss, en
2. flokkurinn hefur ekki orðið
Islandsmeistari utanhúss fyrr en
nú. Ef til vill líður ekki á löngu
þar til Haukar verða stórveldi í
kvennahandknattleiknum.
Venjan er sú að ekkert er gefið
eftir þegar Hafnarfjarðarliðin
mætast og það verður víst örugg-
lega ekki gert í úrslitaleik
Islandsmóts.
Islandsmótið
í golfi:
••
Oldungarnir
luku sér af fyrsta
keppnisdaginn
LÁRUS Arnórsson, Golfklúbbi
Reykjavíkur, varð íslandsmeist-
ari öldunga í golfi, en keppnin f
öldungaflokknum fór fram í
fyrradag — fyrsta keppnisdag Is-
landsmótsins. Fór Lárus 18 hol-
urnar á 82 höggum. I þremur
næstu sætunum urðu þeir Mart-
einn Guðjónsson, GV, Pétur Auð-
unsson, GK, og Öli B. Jónsson,
NK, á 87 höggum. Léku þeir þrjár
holur um 2. sætið og sigraði þá
Marteinn, Pétur varð annar, Öli
þriðji. Hólmgeir Guðmundsson,
GS, og Sigurður Matthíasson, GR,
urðu í 5.—6. sæti með 89 högg.
Með forgjöf sigraði Lárus einn-
ig á 66 höggum nettó, Ingólfur
Helgason, GR, varð annar á 73
höggum, Sigurður Matthiasson
þriðji ásamt Óla B. Jónssyni, sem
báðir voru með 75 högg nettó og
munu þeir leika um þriðja sætið í
dag.
I sveitakeppninni sigraði sveit
Golfklúbbsins Keilis á 485 högg-
úm, átta voru i hverri sveit, en
árangur sex beztu talinn. GR varð
í öðru sæti á 487 höggum, Akur-
eyringar og Vestmannaeyingar
komu inn jafnir á 497 höggum
Nesklúbburinn varð í 5. sæti á 516
höggum og Suðurnesjamenn, sem
unnu sveitakeppnina í fyrra ráku
lestina að þessu sinni á 521 höggi.
Björgvin Þorsteinsson fékk
bezt skor keppenda, 72 högg, en
síðan komu þeir jafnir Haraldur
Júliusson, Sigurður Thorarensen
og Einar Guðnason.
Flokkakeppnin hófst í gær og
verður sagt frá fyrsta keppnisdeg-
inum í blaðinu á morgun.
Það voru ekki skoruð mörg mörk í Islandsmóti stúlknanna f 2. flokki,
en þarna er þó eitt þeirra að verða að veruleika f leik Hauka og Fram f
riðlakeppninni.
Haukar meistarar
í 2. flokki kvenna
Stefán Jónsson kominn f sfna uppáhaldsstöðu, búinn að losa sig við
andstæðingana og markið blasir við fyrir framan hann. (Ijósm. RAX)
Enska deildin að
byrja
FYRSTU leikirnir f ensku deilda-
keppninni á þessu hausti fara
fram núna á laugardaginn og um
leið fara fslenzku getraunirnar af
stað að loknu sumarleyfi. Eins og
menn minnast varð Leeds enskur
Þrír sterkir í
banni hjá Leeds
ÞEIR Billy Bremner og Kevin
Keegan, Sem reknir voru af velli í
leik Leeds og Liverpool síðast-
liðinn laugardag, hafa nú verið
dæmdir í þriggja leikja bann með
félögum sínum. Geta þeir þvf ekki
verið með í fyrstu deildarleikjum
liðanna, en enska 1. deildin hefst
á laugardaginn. Kemur þetta
bann sér mjög illa fyrir Leeds þvf
þrír af sterkustu leikmönnum
Leeds verða í banni til að byrja
með. Auk Bremners verða þeir
Norman Hunter og Allan Clarke i
banni tvo fyrstu leikina.
© The Football League
Leikir 17. égúst 1974
Birmingham - Middlesbro
Burnley - Wolves ....
Chelsea - Carlisle
Everton - Derby ........
Leicester - Arsenal
Luton - Liverpool ......
Manch. City - West Ham
Newcastle - Coventry . .
Sheffield Utd. - Q.P.R.
Stoke - Leeds ..........
Tottenham - Ipswich .
W.B.A. - Fulham
1
1 XII
X
1 1 — —
X
-- s
1 1 X
X
l
1
meistari sfðastliðið haust eftir
harða keppni við Liverpool, sem
bar sigur úr býtum f bikarkeppn-
inni. Middlesborough vann f 2.
deild og með liðinu upp f 1. deild
fóru Luton og Carlisle. Ur 1. deild
féllu Norwich, Southampton og
hið fræga lið Manchester United.
Crystal Palace, Swindon og
Preston féllu úr 2. deild.
Spá okkar á fyrsta getrauna-
seðlinum eru hér til hliðar.
Að hengja bakara fyrir smið
VEGNA yfirlýsingar Alfreðs
Þorsteinssonar, formanns
Knattspyrnufélagsins Fram, f
viðtali f Morgunblaðinu f gær
kom Ellert Schram formaður
KSt að máli við blaðið. Fór
Ellert þess á leit, að yfirlýsing
sú, sem hann var beðinn að
leggja fram f dómstól KRR yrði
birt f heild f blaðinu og fer
greinargerðin hér á eftir:
Samkvæmt beiðni Bergs
Guðnasonar, form. héraðsdóm-
stóls KRR, skal eftirfarandi
upplýst varðandi afskipti
Knattspyrnusambands tslands
og undirritaðs af þátttöku Elm-
ars Geirssonar f I. deildakeppn-
inni f ár:
Nokkrum dögum fyrir leik
Fram og Vfkings 15. júlf s.l.
hringdi í mig Hilmar Svavars-
son f.h. Knattspyrnufélagsins
Fram. Hann sagðist vilja segja
mér frá þvf, að Elmar Geirsson
væri væntanlegur heim og
mundi leika með Fram næstu
leiki f I. deildarkeppninni.
Hann tók fram, að undir
sömu kringumstæðum í fyrra
eða fyrri árum hefði verið hafð-
ur sá háttur á, að hringja f
formann KSl og tilkynna hon-
um um komu og þátttöku Elm-
ars.
Eg svaraði þvf til, að úr þvf
svo hefði áður verið gert, þá
mundi ég ekki gera athuga-
semdir nú, enda var efst f huga
mfnum ánægja með, að Elmar
léki hér á Iandi til gagns og
skemmtunar fyrir fslenzka
knattspyrnuunnendur. Eg leit
ekki svo á, að með þessu sfmtali
væri verið að leita samþykkis
eða synjunar hjá KSl á þátt-
töku Elmars.
Á fundi f stjórn KSl 14. júlf
gat ég þessa samtals mfns við
Hilmar og ftrekaði þá þá skoð-
un mfna, að hér væri ekki um
formlega tilkynningu að ræða.
Málið var ekki á dagskrá og
ekkert um það bókað, enda
ekki um það beðið.
I fundargerðum KSl frá sfð-
ustu 2—3 árum er ekki að finna
neinar bókanir, þar sem stjórn
KSl tekur afstöðu til félaga-
skipta eða keppnisþátttöku
Elmars Geirssonar.
I júnf ’72 er lagt fram bréf
frá Elmari Geirssyni en engin
afstaða tekin til þess. Bréfið
hefur ekki fundist, né önnur
gögn, sem að liði geta komið til
að upplýsa þetta mál.
Reykjavfk, 12. ágúst 1974.
* Ellert B. Schram (sign)“.
1 viðtali við Morgunblaðið f
gær tók Ellert fram, að áður en
hann sendi dómstól KRR ofan-
ritaða yfirlýsingu hefði hann
hringt f Hilmar Svavarsson og
borið hana undir hann. — Var
hann sammála um, að þessi frá-
sögn væri sannleikanum sam-
kvæm, sagði Ellert. — Ég held,
að bæði ég og forystumenn
Fram hafi verið f góðri trú um
að það væri hafið yfir allan
vafa, ,að Elmar væri löglegur
leikmaður með Fram. Er þá
þátttaka hans f mótum hér á
landi með Fram undanfarin ár
höfð f huga. Eg held, að þetta sé
ástæðan fyrir þvf, að þeir fóru
ekki fram á formlegt samþykki
stjórnar KSl og þetta er ástæð-
an fyrir þvf, að ég gerði engar
athugasemdir. Eg var fullkom-
lega f góðri trú um, að ég væri
með þvf að bregðast við eins og
Framarar sjálfir óskuðu.
— Þess vegna er ég furðu
lostinn er formaður Fram vill
nú hengja bakara fyrir smið
með því að ásaka mig fyrir hver
niðurstaða dómsins hefur orð-
ið. Eg hef ekki með neinum
hætti viljað skaða Fram f þessu
máli, eins og ég hef tekið fram f
samtölum mfnum við Hilmar
Svavarsson.
— Hitt er svo annað mál,
hvort það hefði dugað, að stjórn
KSl hefði litið svo á, að Elmar
væri löglegur. Af dómnum má
ráða að svo hefði ekki verið.
Alla vega er ljóst, að ég tek
ekki bindandi ákvarðanir fyrir
stjórn KSl f sfmtölum enda
þótt það kunni að hafa tfðkazt
áður.
— Varðandi „týnd“ skjöl hjá
KSl, er við aðra að sakast en
núvcrandi stjórn KSl. Hitt er
svo annað mál, að erfitt kann að
reynast að finna eitt eða annað
skjal, ef fátt eitt er fært til
bókar og mál afgreidd með sfm-
tölum, sagði Ellert að lokum.