Morgunblaðið - 15.08.1974, Page 28
lESIjD
eru owijiiinj, • •,. .
takmarkanu t *eium
DRGLEGR
FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1974
1600tonn af makríl
til Neskaupstaðar
FLESTIR fslenzku Norðursjávar-
bátanna eru nú hættir sfld-
veiðum, nokkrir komnir heim en
aðrir farnir til makrílveiða norð-
austur af Hjaltlandi. Veiðin þar
hefur verið misjöfn en þó hefur
Börkur Ld. farið tvær ferðir
þangað og landaði f annað skiptið
fullfermi — um 700 tonnum — f
Neskaupstað.
Fréttaritari Morgunblaðsins í
Neskaupstað símaði í gær og
sagði, að 7 Norðursjávarbátar
Grænlenzkur
drengur lézt
hér af völdum
hundabits
ÞRIGGJA ára grænlenzkur
drengur lézt f fyrrinótt f Borg-
arspftalanum af völdum sára,
er grænlenzkir hundar veittu
honum.
Drengurinn var frá þorpinu
Unanak í Grænlandi og mun
hópur hunda þar hafa ráðizt á
hann. Hlaut hann svo mikil
sár, einkum í andliti, að ekki
reyndist unnt að gera að sárum
hans í Grænlandi, heldur var
hann fluttur með þyrlu til
Syðri-Straumfjarðar og komið
þar um borð í DC-6 flugvél, er
flutti hann áfram til Reykja-
vfkur. Héraðslæknirinn í Un-
anak var með drengnum allan
tímann en hingað kom flugvél-
in aðfararnótt þriðjudagsins.
Drengurinn gekkst síðan undir
langa og erfiða skurðaðgerð á
þriðjudagsmorgun en hún
dugði ekki til að bjarga lífi
drengsins. Lézt hann i Borgar-
sjúkrahúsinu í fyrrinótt.
hefðu nú tilkynnt komu sína
þangað með alls um 1600 tonn til
löndunar. Bátarnir voru: Loftur
Baldvinsson með 200 tonn, Gísli
Árni með 200 tonn, Faxaborg með
200 tonn, Þorsteinn með 200 tonn,
Pétur Jónsson með 300 tonn, Ás-
berg með 200 tonn og Eldborg
með 200 tonn.
Um tveggja sólarhringa sigling
er frá Neskaupstað á miðin.
Bræðsla er þegar hafin i fiski-
mjölsverksmiðjunni á Neskaup-
stað en bátarnir munu fá um 8 kr.
fyrir kílóið.
Ekki þingfundir
í þessari viku
ER FORSETI neðri deildar
Alþingis sleit deildarfundi í gær
.gat hann þess, að ekki yrðu þing-
fundir í dag og 'trúlega ekki í
þessari viku. Raunar væri óvíst
um framhald funda í deiidinni á
næstunni.
Viðræðunefndir Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins á fundi f stjórnarráðshúsinu í
gærmorgun. Talið frá vinstri: Halldór E. Sigurðsson, Matthías A. Mathiesen, Geir Hallgrímsson,
Ólafur Jóhannesson, Einar Ágústsson, Gunnar Thoroddsen, Ingólfur Jónsson og Þórarinn Þórarins-
r
Utgerðarmenn áhyggjufullir:
600 millj. kr. halli
á bátaútgerðinni
Tap á hverjum skuttogara 22—24 milljónir á ári
SÍÐUSTU athuganir á f járhagsaf-
komu báta- og togaraútgerðarinn-
ar gefa til kynna, að um geysi-
legan hallarekstur er að ræða f
báðum þessum meginþáttum út-
gerðarinnar. Nýjar opinberar
upplýsingar sýna, að halli á báta-
SILD
VIÐ
I REKNET
SV-LAND
útgerðinni muni á grundvelli
núverandi verðlags nema um 600
milljónir króna á árinu, og hefur
útgerð margra báta þegar verið
hætt. Nýleg endurskoðun á
rekstrarafkomu skuttogara á
þessu ári sýnir einnig, að miðað
við verðlag f júlf gæti tap á
rekstri skuttogara 400—500
brúttólestir numið 22 milljónum
króna á ársgrundvelli en stærri
skuttogara um 24 milljónir
króna.
Þessar upplýsingar koma fram í
samþykkt, er gerð var á fundi
stjórnar Landssambands ísl.
útvegsmanna sl. þriðjudag og er
þeim drætti, sem orðið hefur á þvf
að gera ráðstafanir til að tryggja
Framhald á bls. 16
Stjórnarmyndun:
Viðræður
haldaáfram
VIÐRÆÐUNEFNDIR Sjálf-
stæðisflokksins og Framsókn-
arflokksins komu saman til
fyrsta fundar kl. 10 árdegis í
gær í stjórnarráðshúsinu við
Lækjartorg. Geir Hallgríms-
son tjáði Morgunblaðinu í
gær, að ræddir hefðu verið
möguleikar á hugsanlegri sam-
stöðu og samstarfi þessara
tveggja flokka.
Viðræðunefndirnar héldu
annan fund kl. 15 í gær og nýr
fundur hefur verið boðaður kl.
10 árdegis í dag, fimmtudag.
Enn er ekki ljóst, hversu
langan tíma þessar viðræður
munu taka. Alþýðuflokknum
hefur ekki enn verið boðin
þátttaka f þeim.
John Fenton:
VART hefur orðið við töluverða
síld við suðvesturströnd landsins
að undanförnu. Veiði hefur verið
leyfð á síldinni í reknet og munu
fáeinir bátar hafa byrjað þessar
veiðar.
Morgunblaðið sneri sér til
Tómasar Þorvaldssonar, útgerðar-
manns í Grindavík, sem þekkir
manna bezt til þessara veiða, og
spurði hann hvort hann teldi, að
margir hefðu í hyggju að fara á
reknetin núna. Tómas sagði, að
margir útgerðarmenn væru nú að
velta þvf fyrir sér hvort þeir ættu
að leggja í þann veiðarfæra-
kostnað er síldveiðar í reknet
hefðu í för með sér. Tómas benti
á, að mestur hluti þess veiðar-
færabúnaðs, er til het'ði verið,
væri nú úr sér genginn og menn
veigruðu sér við því að koma sér
upp slíkum búnaði að nýju, þar eð
sildin nú væri tæpast nógu mikil
til þess að standa undir þeim
kostnaði.
Tómas minnti á, að það væri
ríkjandi hugsunarháttur meðal
sjómanna og útgerðarmanna
hérlendis að fiska sem mest á sem
skemmstum tíma og því væru
ekki allir ginnkeyptir fyrir
reknetaveiðinni. „En hjágætnum
og skynsömum mönnum virðist
mér þó nokkur áhugi fyrir þvl að
vekja þessa veiðiaðferð upp að
nýju,“ sagði Tómas. Hann taldi,
að sú reynsla, sem fékkst af þess-
um veiðum í fyrra og svo aftur
núna, gæfi ástæðu til bjartsýni
um að sú yrði raunin.
Tómas sagði, að síldin, sem nú
veiddist í reknetin, væri allgóð, ef
hún hlyti rétta meðferð, enda
hefðu reknetin sem önnur neta-
veiði þann góða eiginleika, að þau
sigtuðu smáfiskinn út og hann
fengi áfram að lifa.
Ámundi fær Nazareth
Jón Ólafsson:
Bíðum dóms Salómons konungs
UMBOÐSMANNASTRlÐIÐ um
brezku hljómsveitina Nazareth
virðist nú vera f algleymingi. I
Morgunblaðinu f gær birtust tvær
heilsfðuauglýsingar um hljóm-
leika Nazareth hér f Reykjavfk —
önnur frá Joke-hljómplötum en
hin frá Amunda Ámundasyni.
Morgunblaðinu tókst f gær að ná
sambandi við Nems Enterprises,
umboðsskrifstofu Nazareth f Eng-
landi, og fékk þar staðfestingu á
þvf, að Ámundi Ámundason fengi
samninginn og yrði það formlega
staðfest 15. ágúst, þ.e. f dag. Morg-
unblaðið bar þá þessar upplýsing-
Dauðara en Dauðahafið
ÞAÐ hefur ekki farið framhjá
neinum, og þá sízt laxveiði-
mönnum, að laxveiðar hafa
verið með dræmasta móti f
sumar. Er hitum og góðviðri
kennt um.
Við ónefnda laxveiðiá
stendur veiðikofi. 1 kofa þess-
um er gestabók. 1 bók þessa
hafa vonsviknir veiðimenn
ritað eftirmæli um veiðiskap
sinn í ánni í sumar, og kennir
þar margra grasa. Einn hefur
ritað eitthvað á þessa leið:
„Þessi spræna er alger dauði,
dauðari en Dauðahafið.“ Annar
skrifar: „Ekkert líf, 2400 krón-
ur fyrir ekkert." Og sá þriðji
ritar: „Er ekki frá því að veiða
megi þennan eina lax, sem er í
ánni, ef maður hefur
toppáhöld, svo sem dýptarmæli,
ratsjá, botnvörpu... “ Ekki var
allur móður úr þeim, sem talaði
sem mest um dauðann, því
hann kom í ána seinna um
sumarið. Þá stóð eitthvað á
þessa leið: „Einn lax í ánni,
náðist ekki á land.“
En þrátt fyrir þessar raunir
verða laxveiðimennirnir
væntanlega mættir til leiks
næsta sumar, í von um að
krækja í þann stóra.
ar undir Jón Ölafsson, forsvars-
mann Joke hljómplötufyrirtækis-
ins, en hann sagði aðeins: „Málið
er f höndum Salómons konungs
og við skulum bfða og sjá hver
hans dómur verður.“ Virðist
þetta svar gefa til kynna, að Jón
telji enn ekki öll kurl til grafar
komin f máli þessu.
Þegar Mbl. hafði samband við
skrifstofur Nems Enterprises í
London var Steve Barnett, sá,
sem undirritaði skeytið til Jóns
Ólafssonar, ekki viðlátinn, en fyr-
ir svörum varð John Fenton, sem
áður hafði staðfest, að Amundi
hefði réttinn til hljómleikahalds-
ins. Sagði Fenton, að vegna ým-
issa orsaka hefði einhver rugling-
ur átt sér stað, en að Ámundi
fengi staðfestingu á samningnum
i dag. Aðspurður um innborgun-
ina, sem Jón hafði sent til Lond-
on, sagði Fenton, að þeir peningar
Framhald á bls. 16