Morgunblaðið - 11.09.1974, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1974
Viðskiptahagsmunir
og stefnan
í utanríkismálum
Starfshópur sambands ungra sjálfstæðismanna um viðskiptahagsmuni
og stefnuna í utanríkismálum heldur næsta fund sinn miðvikudaginn
1 1. september.
Gestur fundarins verður Jón Skaftason alþingismaður. Rætt verður um
viðskiptahlið íslenzkrar utanríkisstefnu. Fundurinn er haldinn í Galta-
felli og hefst kl. 20.30.
□ INN =
UIM SiMi Z42SQ
Notið sumarmánuðina
til endurbóta á
hitakerfinu í
húsakynnum yðar
Ef þér viljið ná hinum fuUkomnu
hitaþagindum og jafnframt Uekka
hitakostnudinn, þá tettuó þér að
líta med gagnrýni á handstilltu
lokana og láta setja DanfosS
hitastýróa ofnventla i stað þeirra.
Danfoss hitastýrða ofnloka getið
þér stílh á það hítustig, sem
hentar yður bezt i hverju herbergí.
ug hitinn helzl jafn og stöðugur,
án lillits ti! veðurs og vinda.
Danfoss ojhhiiasiillana má seija
á allar gerðir miðstöðvarofna.
Látið sérfrteðinga okkar leiðbeina
yður. Kostnaðurinn er minni ert
þér haldið.
Danjoss ojhhitastiUír
er lykiUinn
aó þcegbtdum
Vigdfs með teppið, sem hún er að vefa f tilefni 1100 ára landnámsafmælisins. Ljósm. Sv. Þorm.
Miðvikudaginn 11. sept.
Vigdís Kristjánsdóttir sjötug
Listamaðurinn Vigdfs Krist-
jánsdóttir er sjötug f dag, fædd
11. september 1904 að Korpúlfs-
stöðum f Mosfellssveit. Vigdfs er
nú að vefa fyrir Reykjavfkurborg
teppi f tilefni 1100 ára afmælis
landnáms.
Kornung missti Vigdfs móður
sfna og föður sinn á æskuskeiði,
en var alin upp frá bernsku hér f
Reykjavík hjá Sigrfði móðursyst-
ur sinni. Sterkir stofnar standa að
Vigdfsi og nægir að nefna, að
Rannveig amma hennar var systir
Bjarna Thorarensens skálds og
amtmanns.
En það er Iistaferill Vigdfsar,
sem vert er að minnast við þessi
tfmamót f lffi hennar. Ung byrj-
aði hún að mála og það mun hafa
verið strax á barnaskólaárunum f
Landakoti, að kennarar hennar
komu auga á listahæfileika henn-
ar og hvöttu hana til listnáms.
Fyrstu handleiðslunnar á þeirri
braut naut hún hjá Stefáni Ei-
rfkssyni, Rfkarði Jónssyni og
Guðmundi Thorsteinsson. Nám
við Listaháskólann f Kaupmanna-
höfn stundaði hún fyrir ein-
dregna áeggjan prófessors
Kræsten Iversen f þeirri erfiðu
listgrein, sem hún er þekktust
fyrir, þ.e. listvefnaði. Vigdfs mun
vera einn af brautryðjendum
þessarar listgreinar hér á landi
og stundaði hún framhaldsnám f
þeirri grein, m.a. hjá þekktum
listvefurum f Noregi. Eru verk
hennar þjóðkunn. Hæfni og
smekkvfsi Vigdfsar á sviði tónlist-
arinnar hafa vinir hennar fengið
rfkulega að njóta á fallegu heim-
ili hennar að Fjölnisvegi 14, en
framhaldsnám f pfanóleik stund-
aði hún f Þýzkalandi um eins árs
skeið.
Vigdfs er f jarverandi f dag.
Vantar
fólk
til að framleiða
útflutnings-
vörurnar
I nýútkomnum Sambandsfrétt-
um segir, að fyrstu sex mánuði
þess á árs hafi heildarsala
Iðnaðardeildar Sambandsins
numið 783 millj. kr., en hafi verið
640 millj. kr. á sama tfma f fyrra.
Hefur þvf salan aukist um rúm
22%. En á sama tfma hefur fram-
leiðsluaukningin orðið 25.7%.
Utflutningur deildarinnar
fyrstu sjö mánuði ársins var hins
vegar 261.5 millj. kr., sem er held-
ur minna en á sama tímabili s.l.
ár, er hann var 276.8 millj. kr.
Blaðið hefur eftir Harry
Frederiksen framkvæmdastjóra
Iðnaðardeildar, að sala deildar-
innar hafi gengið greiðlega, það
sem af er árinu, og megi heita að
allar vörur hafi selzt jafnóðum og
þær hafa verið framleiddar. Hins
vegar hefur verið mikill skortur á
iðnverkafólki á Akureyri, sem
hefur háð verksmiðjunum veru-
lega, sérstaklega f sambandi við
framleiðslu á útflutningsvörum.
Sími íMÍMIer 10004
Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám
Tilboð
Tilboð óskast í Moskwitch sendiferðabíl, árgerð
1 972, í því ástandi sem hann er í eftir árekstur.
Bíllinn er til sýnis á Vesturgötu 3.
Tilboðum sé skilað fyrir 1 4. þ.m. til I. Pálmason
hf., sama stað.
Vil kaupa
Mercedes Bens 230 árg. '71—'72 beinskipt-
an. Mikil útborgun.
Upplýsingar í síma 25874.
Félagasamtök — Hinstakiingar
Tilboð óskást í lítið notaðan offsetfjölritara (Rex
Rotary) ásamt plötugerðartæki. Einnig er til
sölu á sama stað nýr rafmagnspappírshnífur,
ásamt heftara og kjallímingarvél.
Nánari upplýsinqar er hæqt að fá í síma 40908
milli kl. 1 —6 e.h.
Innrömmun —
Málverk
Erlendir rammalistar. Matt og glært gler. Eftir-
prentanir: smekklega innrammaðar, aðeins ein
af hverri tegund.
Myndamarkaðurinn, við Fischersund,
Opið daglega frá kl. 1 — 6.
Sími 2- 7850.
Bátur til sölu
Til sölu er 1 7 lesta eikarbátur smíðaður árið
1 972. Báturinn er útbúinn til línu og togveiða.
Nánari upplýsingar gefur: Bókhaldsskrifstofan
s.f. Dalvík, símar 96-61318 og 96-61319, og í
síma 13532 Reykjavík.