Morgunblaðið - 13.10.1974, Side 1
48 SIÐUR
199. tbl. 61. árg.
SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Þessi mynd
var tekin fyrir
skömmu i
Tangier í
Afríku. Stúlk-
an á myndinni
er íslenzk og
hún hefur
ekki setið auð-
um höndum I
verzlunar-
hverfunum,
búin að kaupa
tvær hand-
töskur og eitt-
hvað er lika
falið í papp-
írnum. Arab-
anum á mynd-
inni hefur
þótt hún lík-
leg til að
kaupa fleiri
töskur og með
mikilli innlif-
un býður
hann eina
tösku enn, en
Frónbúinn
virðist þó
halda sínu
striki blákalt.
Ljósmynd
Mbl. Ól. K. M.
Fékk Sato verðlaun-
in vegna áróðurs
tveggja landa sinna?
Washington 12. okt. NTB.
BANDARÍSKA stórblaðið
Washington Post staðhæfir í dag
að fyrrverandi japanskur
diplómat Tsohikazu Kase, og
Morinosike Kajima, stjórnarfor-
maður milljónafyrirtækis í Japan,
hafi átt mestan þátt í að Eisako
Sato, fyrrv. forsætisráðherra
Japans, hafi fengið friðarverð-
laun Nóbels í ár. Hafi Kajima
varið síðustu fjórtán mánuðum til
að berjast fyrir því að fá Sato
samþykktan og notað til þess ýmis
meðul. Segir blaðið að hann hafi
byrjað þessa baráttu í Banda-
ríkjunum í fyrra eftir að honum
hafði mistekizt að fá því fram-
gengt að annar Japani, sem ekki
hefur verið nafngreindur, fengi
þessi verðlaun.
Blaðið segir að Kajima hafi
reynt að tryggja Sato gegn
hugsanlegri gagnrýni með því að
afla sér stuðnings Tanaka, for-
sætisráðherra Japans og Ohira,
þáverandi utanrikisráðherra. Var
þetta gert vegna þess að Sato vildi
ekki láta stinga upp á sér nema
þessir tveir legðu blessun sína
yfir það.
Þá segir blaðið að Tsohikazu
Kase, fyrrverandi sendiherra
Japans hjá Sameinuðu þjóðunum,
hafi síðan gengið í lið með Kajima
og það sé fyrst og fremst fyrir
áróður þessara tveggja manna, að
Sato hafi fengið friðarverðlaun
Nóbels.
Fulltrúar í Nóbelsnefnd norska
stórþingsins neituðu í dag að
segja nokkuð um þessa frétt.
Sögðu þeir engan hafa umboð til
að tjá sig nema formanninn Ásu
Lianasses, en fréttamönnum tókst
ekki að ná tali af henni í morgun.
Wilson flytur sjónvarpsræðu á morgun
Heath lætur ekkert uppskátt um hvort hann dregur sig í hlé
Krafizt
krufningar
á líki Tinu
Niarchos
Parfs, 12. okt.
AP. Reuter
CHRISTINA Onassis, dóttir
Tinu Niarchos og fyrsta eigin-
manns hennar, hefur krafizt
þess að lfk móður hennar verði
krufið til að kornast að þvf
fyrir vfst, hver hafi verið
dánarorsök hennar. Eins og
frá hefur verið skýrt fannst
Tina Niarchos látin á heimili
sínufParfsfgær.
Aristoteles Onassis, fyrsti
eiginmaður hennar, sagðist
vera harmi sleginn og undr-
andi yfir andláti Tinu og sagði
að þau hefðu hitzt nýlega og
hún virzt vera við beztu heilsu.
London 12. okt.
Reuter Ntb. Ap.
HAROLD Wilson forsætis-
ráðherra Breta byrjar i
dag að ræða við samráð-
herra sína um efnahags-
vanda landsins og næstu
stjórn, og er búizt við að
hann flytji sjónvarpsávarp
til brezku þjóðarinnar á
Rockefeller
rausnarlegur í
gjöfum sínum
New York, 12. okt. AP.
NELSON Rockefeller varafor-
setaefni Bandarfkjanna hefur
skýrt frá þvf að hann hafi gef-
ið átján samstarfsmönnum
sfnum samtals 1.778.878 doll-
ara, meðan hann var rfkis-
stjóri f New York. Hann
sagðist einnig eiga útistand-
andi lán að upphæð 155 þús-
und dollara hjá þremur af
þessum átján. Aður hafði
Rockefeller skýrt frá gjöfum
og lánum til 5 af þessum 18,
þar á meðal var 50 þúsund
dollara gjöf til Henry Kissing-
ers, sem var starf smaður hans.
Ekki hefur neitt komið fram
f rannsókn á gjafmildi Rocke-
fellers sem bendi til að þar séu
maðkar í mysunni, enda þótt
ýmsum þyki sem hann hafi
verið stórtækur í gjöfum
sínum.
mánudag og skýri þá frá
helztu áformum stjórnar
sinnar. Gera menn ráð
fyrir, að hann boði þar
aukna þjóðnýtingu.
Edward Heath formaður
íhaldsflokksins hefur enn
ekki látið neitt eftir sér
hafa, sem gæti bent til þess
að hann ætlaði að láta af
formennsku flokksins. En
fréttastofum ber saman
um að hart muni verða lagt
að honum á næstunni, og
einn þingmanna flokksins,
Nicholas Winterton þing-
maður í Chesshire, hefur
þegar kveðið upp úr með
það að flokkurinn þurfi
sárlega annan flokksfor-
ingja, sem veki með fólki
meiri tiltrú en Heath hefur
gert.
Heath hefur hins vegar lýst þvf
yfir, að hann hafi allar stundir
unnið f þágu þjóðar sinnar og
flokks sfns og hann hafi hug á að
halda því áfram.
Stjórnmálafréttaritarar segja
að sá íhaldsþingmaður, sem hefur
nú mest fylgi sem eftirmaður
Heaths, sé William Whitelaw sem
fór með málefni Norður Irlands,
þegar ástandið þar var hvað alvar-
legast.
Ljóst er nú að Verkamanna-
flokkurinn er enn stærsti flokkur
Skotlands þrátt fyrir fylgisaukn-
ingu skozkra þjóðernissinna þa?
þjóðernissinnar unnu fjögur
þingsæti í Skotlandi, öll á kostnað
Ihaldsflokksins. Af 71 þingsæti
Skotlands f Neðri málstofunni
skipa Verkamannaflokksþing-
menn 41, Ihaldsmenn 16, þjóð-
ernissinnar 11 og Frjálslyndir 3.
I sjónvarpsræðu Wilsons á
mánudaginn er þess vænzt að
hann geri allýtarlega grein fyrir
nauðsynlegum aðgerðum í efna-
hagsmálum, en þar eru allir
flokkar sammála um að róttækra
aðgerða sé þörf. Auk aukinnar
þjóðýtinar er sennilegt að skattar
verði hækkaðir stórlega á því sem
talið er umfram meðaltekjur, far-
ið verði fram á ákveðna sjálfboða-
vinnu launþega til að hafa hemil
á verðbólgunni og fleiri ráðstaf-
anir. Þá verður einnig á dagskrá
aðild Breta að Efnahagsbandalag-
inu, en mjög eru skiptar skoðanir
um aðildina innan Verkamanna-
flokksins.
Enda þótt Wilson hafi naumari
meirihluta en búizt hafði verið
við, er talið fráleitt að aðrir flokk-
ar muni ýta á að kosningar verði á
næstunni. Allir kosningasjóðir
eru tæmdir og ljóst er að brezkum
almenningi er áfram um, að starf-
hæf rfkisstjórn fái frið til að
glfma við hinn mikla efnahags-
vanda.
George Papado-
poulos saksóttur
Aþenu, 12. okt. Reuter.
LÖGFRÆÐINGASAMTÖK
Aþenuborgar hafa höfðað mál á
hendur 52 herforingjum — þar á
meðal er Georges Papadopolos
fyrrverandi forseti — fyrir þátt
þeirra í valdaráni hersins árið
1967, þegar þingræði var af numið
í Grikklandi. Meðal annarra
þekktra manna er Pattakos, fyrr-
verandi innanríkis ráðherra og
Demetrios Ionnides, yfirmaður
herlögreglunnar. Þessir 52 hafa
allir verið látnir hætta störfum.
Pertímenn takmarka
ansjósuveiðarnar
Lima, Peru 12. okt.
Einkaskeyti til Morgunblaðs-
insfrá AP.
PER() hefur ákveðið að tak-
marka vciðar ansjósu við fimm
miiljón tonn á þessu ári til að
reyna með þvf að koma f veg
fyrir að ansjósuiðnaðurinn
iendi f viðlfka erfiðleikum og
gerðist fyrir nokkrum árum.
Ofveiði og breytingar á
hitastingi og seltu í sjónum
varð til þess að ansjósan hvarf
af miðum sínum f byrjun ársins
1972 og afleiðingarnar urðu
þær að framleiðsla Perúmanna
á fiskimjöli dróst gffurlega
saman, en áður höfðu Perú-
mennframleitt mest allra þjóða
heims af mjöli. Geta má þess að
árið áður hafði mjölframleiðsla
Perú numið 12 milljónum
tonna. Þá hófust ansjósuveiðar
í marz og lauk í júlí. I ár var
veiðitíminn frá því i marz og
þar til í maí. Veiddust þá
2.350.000 tonn af ansjósu. Það
sem eftir er til að fylla leyfi-
legan fimm milljón tonna kvóta
verður veitt frá miðjum þessum
mánuði og fram i desember.
I athugun er einnig að breyta
veiðitfma ansjósu og er gert ráð
fyrir að með þvf megi hvíla
stofninn og koma í veg fyrir
ofveiði. Ansjósustofnar eru
mjög fljótir að rétta við og
binda Perúmenn því vonir við
að þær takmarkanir sem þeir
hyggjast setja á veiðarnar verði
til að efla stofninn mjög veru-
lega.