Morgunblaðið - 13.10.1974, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.10.1974, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1974 Hvað eru Farfuglar? Þeir kynna félagsstarfið með föndurmunum og fleiru í félagsheimilinu að Laufásveg 41, 2. hæð, alla virka daga kl. 20 — 22.30. Laugar- daga og sunnudaga kl. 14 — 18 dagana 12. — 20. okt. 1974. Kvöldsamkoma Æskulýðsstarf Þjóðkirkjunnar og Grensássöfn- uður gangast fyrir kvöldsamkomu í Safnaðar- heimili Grensássóknar í kvöld sunnudaginn 1 3. október kl. 22. Væntanlegur gestur samkomunnar Mr. Harvey Thomas, framkvæmdastjóri Eurofest '75 náinn samstarfsmaður Dr. Billy* Grahams. Söng- sveitin Kórbrot syngur. Fjölmennið. Nefndin. Haustmót Skáksambands Suðurlands hefst fimmtudaginn 17. október kl. 20 í Safnaðarheimilinu í Hveragerði. Teflt verður á fimmtudögum. Keppt verður í unglingafl. ef þátttaka leyfir. Innritun í síma 4367 kl. 19 — 20 næstu daga og á mótsstað frá kl. 1 9,30. Bifreiðaeigendur athugið: Ljósastillum bíla alla daga frá kl. 8 —18 og einnig laugardaga frá kl. 13 —18 út október- mánuð. Getum einnig bætt við okkur verkefn- um í almennum bílaviðgerðum. Bifreiðaverkstæðið Vélvirkinn, Súðarvog 40, sími 83630. laugavegi 170—172 — Sími° 21240 — Mál o g skóli Framhald af bls. 25 og kotríki er skammarleg bá- bylja, sem skólunum væri sæmd að kveða niður. En tungumála-áráttan færir sig sl og æ upp á skaftið. Nú er svo komið, að farið er að kenna smábörnum erlend mál, löngu áður en þau hafa náð nokkurri fótfestu í móðurmálinu. Ég man hvað mér ofbauð, þegar ungur sveinn, mér skyldur, kom heim úr barnaskólanum og sagðist eiga að fara að læra ensku. Auðvitað sagði ég drengnum undir eins, að þá kennslubók skyldi hann ekki opna og í enskutímum ætti hann að halda fyrir eyrun og Iesa draugasögur. En því miður veit ég ekki nema hann hafi haft meiri beyg af ensku- kennaranum en mér. Svo er það vitaskuld hneyksli, að notaðar skuli erlendar kennslubækur I fram- haldsskólum. Þó er það ill- skárra en að fá ungviði I hendur „íslenzkar" kennslu- bækur á hraklegu máli, eins og mér er kunnugt um, að stund- um á sér stað. Að sjálfsögðu gegnir öðru máli um bækur I háskóla, enda ættu nemendur, þegar þar kemur, að vera orðn- ir nógu vel að sér í íslenzku til þess að stunda nám á erlendar bækur. Heyrt hef ég þó undan því kvartað, að í Háskóla Islands komi æ fleiri málleys- ingjar á íslenzku; og skyldi eng- an undra, svo sem í pottinn er búið. Nú kann margur að spyrja: Hvernig getur það átt sér stað, að móðurmálið lendi f þeim mun meiri óhirðu sem háborg íslenzkra fræða teygir turna sína hærra til lofts? Hverjum gefur betri sýn til allra átta en þeim, sem þar halda vörð? Og hverjum stæði nær að hlutast til um afdrif þjóðtungunnar en þeim, sem henni eru handgegn- ir öðrum fremur? Eða eru það ef til vill fílabeinsturnar, sem hæst rísa? Eru þeir, sem þar starfa, svo bergnumdir af fræð- um sínum, að þeir gleymi sjálfu lífi íslenzkrar tungu? Hlutverk háskóla er að afla þekkingar og greiða henni veg út I þjóðlífið. Þeim, sem starfa að íslenzkum fræðum á vegum Háskóla Islands, hvílir sú skylda á herðum að stunda fslenzk málvísindi. Þeirri skyldu er vissulega sinnt. Hins vegar er það skylda valdhafanna I menntamálum að sjá svo um, að störf fræði- manna vorra séu hagnýtt I þágu alþjóðar. Það er skylda valdhaf- anna að búa svo I haginn, að risið geti blómleg þjóðmenning á þeim grundvelli, sem lagður er með vlsindalegu starfi. Það er skylda valdhafanna að aftra þeirri þróun, að fslenzkt mál fái smám saman að fölna á vörum þjóðarinnar, en verða þeim mun viðameiri sérgrein fræði- manna. Hitt liggur beint við, að þá sé einmitt leitað fulltingis þeirra, sem gerst mega vita, fræðimanna um Islenzkt mál. Varla leikur vafi á því, að starf það, sem unnið er að hinni miklu orðabók Háskóla Islands, er eitthvert hið þarfasta og brýnasta þjóðþrifaverk, sem unnið er um sinn. En kald- hæðin væru þau örlög, að sú bók bryti skurnið um það leyti, sem íslenzkt mál væri að leggj- ast undir rekurnar, að hún yrði eins konar nytjalaus safn- gripur, eins og beinagrind forn- aldar-skepnu, vitnisburður um dautt tungumál, slitinn streng á hörpu þjóðanna. íslenzk tunga hefur staðið af sér svo hörð él, að oss hættir til að ætla, að henni sé óhætt I öllum veðrum. En ef skólarnir bragðast þeirri skyldu, sem þeir hafa tekið við af heimilun- um, hversu lengi mun hún þá standast þann gjörningabyl, sem nú ríður húsum? f^mnRGFRLDRR 7f mRRKHfl VÐRR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.