Morgunblaðið - 13.10.1974, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.10.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1974 3 tt af íslenzkum bókum ? svör þeirra, sem að bókagerð vinna. Meðan ritlaun fyrir eins til tveggja ára vinnu nema ekki meira en svosem þrennum mán- aðarlaunum menntaskólakenn- ara, liggur i augum uppi að veita þarf rithöfundum opinber viðbót- arritlaun f einhverri mynd, ef bókaskrif eiga ekki hreinlega að leggjast af hér á landi. Það er til dæmis engin tilviljun hve fáar frambærilegar þýðingar erlendra bókmennta eru gefnar út á ís- landi. Það stafar einfaldiega af því, að greiðslur fyrir slfka vinnu eru langt fyrir neðan alla vinnu- taxta f landinu. Islendingar mega kannski enn um sinn vænta þess.að einhverjir eldhugar setji saman bækur f trássi við náttúrulögmálin, en í verðbólguþjóðfélagi eiga einnig slfkir menn æ erfiðara uppdráttar nema þeir séu á elli- eða örorku- styrk. Rfkið veitir landbúnaði og fiskveiðum margvíslega opinbera aðstoð, sömuleiðis leikhúsum og ýmissi annarri menningarstarf- semi. Bókmenntirnar verða að sitja við sama borð og þessar greinar, því þær eru þjóðinni engu síður nauðsynlegar en fisk- ur, kjöt og leikir. Verði afnám söluskatts af bók- um til að auka bóksölu og efla bókmenntastarfsemi í landinu, er ég því að sjálfsögðu hlynntur, en leiði það til þess, að starfskjör íslenskra rithöfunda versni enn, hlýt ég að mæla gegn þvf. Með aukinni bóksölu en þverrandi bókmenntasköpun vinnst senni- lega það eitt, að reyfarar og miðl- ungsbókmenntir fá byr á kostnað vandaðra og metnaðarfullra bók- mennta. Með lögum um launasjóð rithöfunda, sem nú liggja fyrir alþingi, er hægt að búa þannig um hnútana, að kjör rithöfunda verði f engu skert, þó söluskattur af bókum verði afnuminn, og það er I rauninni eina viðunandi lausn- in.“ Jónas Eggertsson NIÐURFELLING SÖLUSKATTS MIKIL HJALP BÖKAUTGAF- UNNI. Jónas Eggertsson, formaður Félags fslenzkra bókaverzlana sagði, að þegar söluskattur væri orðinn nærri fimmti hluti bókar- verðsins ásamt pappírsverði, sem hækkað hafi ofboðslega undan- farið, svo og allur innlendur kostnaður, þá yrði það áreiðan- lega mikil hjálp fyrir fslenzka bókaútgáfu, ef hætt væri að taka þennan toll af bóksölunni. Jónas sagðist ekki vera í vafa um það, að niðurfelling söluskatts myndi hjálpa bókaútgáfunni hér á landi út úr miklum þrengingum. Raunar sagðist Jónas ekki enn vera farinn að gera sér grein fyrir þvf verðlagi, sem yrði á jólabók- unum f ár, þar sem þær væru fáar komnar á markað enn, en hann kvað alla búast við um 50% hækk- un. Nýlega kvaðst hann hafa fengið í sölu litla barnabók, sem kostaði nú 690 krónur með söluskatti, en verð bókarinnar væri sjálft ekki nema 580 krónur. Söluskatturinn af bókinni væri 110 krónur. Jónas Eggertsson kvað bókasala hafa haft til athugunar, hvort ekki væri full ástæða til þess nú að aðgreina verð bókarinnar við verðmerkingar frá söluskattinum, svo að fólkið gerði sér grein fyrir því hve stór hluti rynni beint til ríkisins af kaupverðinu. Þetta skapaði þó mikla vinnu fyrir bók- salana. VERÐBÓLGAN HEFUR LEIKIÐ bókaUtgáfun a grAtt. Arnbjörn Kristinsson, varafor- maður Bóksalafélags Islands, sem er félag bókaútgefenda, sagði, að bókaútgáfan væri í miklum þrengingum eins og sakir stæðu. Það vantaði ekki efni, höfunda eða þýðendur, verðlagsákvæðin væru alvara málsins. Hann sagði, að geigvænleg verðbólga hefði leikið bókaútgáfuna mjög grátt. Af þeim sökum fyrst og fremst ykist verðmismunur innlendra og erlendra bóka jafnt og þétt. Á árunum 1960 til 1970 hefðu inn- lendar og erlendar bækur verið á svipuðu verði. Nú væri verðmis- munurinn hins vegar orðinn sá, að á sama tfma og íslenzk bók Arnbjörn Kristinsson. kostaði 1700 kr. kostaði sambæri- leg bandarfsk bók 1100 krónur. Þá sagði Arnbjörn Kristinsson, að höfuðatriðið væri að afnema söluskatt af bókum. Slík ráðstöf- un yrði einvörðungu kaupendum til hagsbóta. Söluskatturinn væri nú orðinn verulegur hluti af bókarverði, og enginn vafi væri á, að hann drægi úr bókakaupum. Meðalbækur kostuðu nú 2000 til 4000 krónur. Reikna mætti með, að 300 til 700 krónur færu í ríkis- sióð í formi söluskatts. Arnbjörn Kristinsson sagði ennfremur að sala innlendra bóka árið 1973 hefði numið um það bil 400 milljónum króna. Af þeirri upphæð hefðu nálægt 50 millj. kr. farið f söluskatt. Allt útlit væri nú fyrir, að samdráttur yrði í bókaút- gáfu. Frumsamdar fslenzkar barna- og unglingabækur væru á undanhaldi fyrir spennandi hroll- vekjum vegna áhrifa sjönvarpsins og við lægi, að óframkvæmanlegt væri að framleiða myndskreyttar barnabækur. RITHÖFUNDAR STANDI JAFN- FÆTIS KUNNI. Jónas Guðmundsson, formaður Félags íslenzkra rithöfunda sagði, að rithöfundar þyrftu að leggja höfuðáherzlu á að ná sömu rétt- indum og helztu húsdýr lands- manna. Það væri enginn sölu- skattur á mjólkurafurðum og algengustu kjötafurðum, svo að ljóst mætti vera, að ef rithöfund- ar á Islandi stæðu f sama þjóð- félagsþrepi og kýrin eða sauð- kindin, væri enginn söluskattur á afurðum þeirra. Rithöfundar hlytu þvf að vera hlynntir öllum ráðstöfunum í þá veru að auka bókasölu á Islandi. Jónas Guðmundsson G j aldeyrisdeildin í f asteignakönnun Gjaldeyriseftirlit bankanna hefur nú hafið könnun á ummæl- um um að Islendingar eigi fasteignir í öðrum löndum án þess að hafa heimild til þess. Skila- skylda Islendinga er mjög ströng og mega þeir ekki skuldbinda sig neitt erlendis nema með leyfi stjórnvalda. Gjaldeyrisdeildin hefur snúið sér til utanríkisráðu- neytisins og beðið það að kanna hvort eitthvað sé hæft f þessum munnmælum, sem nokkur dag- blöð f Reykjavík hafa haft á orði að undanförnu. M.a. verður leitað til spænskra stjórnvalda til að vita hvort þau geti gefið einhverj- ar slíkar upplýsingar um Spán. Morgunblaðið hafði í gær sam- band við Björn Tryggvason, bankastjóra Seðlabankans, og sagði hann að gjaldeyrisdeildin hefði ekki veitt nein leyfi til fasteignakaupa á Spáni. Prentarar segjaupp A FÉLAGSFUNDI i hinu ís- lenska prentarafélagi, sem hald- inn var s.l. fimmtudagskvöld, var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að segja upp samningum við atvinnurekendur frá og með 15. nóvember n.k. Nýr skírnar- fontur í Ingjalds- hóiskirkju 1 SUMAR barst Ingjaldshóls- kirkju á Snæfellsnesi góð gjöf. Er það skfrnarfontur úr tré, útskorin af Rfkarði Jónssyni myndhöggv- ara. Skfrnarfonturinn er gefinn til minningar um hjónin Hólmfríði Guðmundsdóttur og Ásbjörn Gils- son. Gefendur eru börn þeirra hjóna og aðrir afkomendur. Guð- rún Ásbjörnsdóttir afhenti gjöf- ina og sóknarpresturinn, sr. Arni Bergur Sigurbjörnsson, þakkaði fyrir hönd safnaðarins. Gjöfin var afhent á sjómanna- daginn, sunnudaginn 9. júní sJ., en Ásbjörn Gilsson var einn af kunnustu og farsælustu formönn- um byggðarlagsins um áraraðir. Daginn eftir, 10. júnf, var fæðing- ardagur Hólmfríðar, konu hans. Ingjaldshólskirkja var þéttsetin þennan dag, og voru flestir af- komenda þeirra hjóna þar saman- komnir. SLYSVIÐ BRÚARLAM) MJÖG harður árekstur varð við Brúarland um hádegi f gær. Leigubifreið, sem var að koma að norðan, lagðist þversum á vegin- um og lenti f árekstri við jeppa, sem var á norðurleið. Ökumaður jeppans slasaðist eitthvað á fót- um og óttazt er að leigubflstjór- inn hafi slasast alvarlega og far- þegi hans eitthvað. Hinir slösuðu voru f rannsókn f slysadeild Borg- arspftalans er Mbl. fór f prentun f gær og þvf var ekki ljóst enn hvernig þeir væru slasaðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.