Morgunblaðið - 13.10.1974, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1974
ta
A að fella niður söluska
„FRAMTlÐ fslenzkrar b<5kaút-
gáfu er f hættu. Skjðtra úrræða er
þörf. Islendingar verða að gera
það upp við sig, hvort bækur eiga
að koma út 1 landinu." Þannig
hðfst bréf, sem örlygur Hálfdán-
arson, formaður Bðksalafélags ts-
lands, reit Ólafi Jðhannessyni
viðskiptaráðherra f byrjun þessa
mánaðar og f bréfinu segir, að
þessar upphafssetningar þess séu
ekki staðlausir stafir, heldur sá
raunveruleiki, sem blasir við fs-
lenzkri bðkaútgáfu og að allar
Ifkur bendi til, að svo mikill sam-
dráttur verði f fslenzkri bðkaút-
gáfu á næstu tveimur til þremur
árum, að hún beri þess ekki bæt-
ur.
Formaður Bóksalafélagsins rek-
ur margar ástæður, sem hann tel-
ur vera fyrir því, að samdráttur í
bókaútgáfu verði óhjákvæmileg-
ur við óbreyttar aðstæður, svo
sem þróun sjónvarpsins, stækkun
dagblaða, stöðug verðbólga og
aukin afkastageta bókasafna.
Vegna þessara alvarlegu þróunar,
sem Bóksalafélagið telur muni
verða, segir formaður þess í bréf-
inu til ráðherra, að félagið fari
fram á það við hann svo og ríkis-
stjórnina i heild, að hún hlutist til
um ákveðnar úrbætur. Þar er
fyrsttaliðað fella þurfi niður sölu-
skatt af íslenzkum bókum. Sölu-
skattur sé nú orðinn það hár, að
hann sé farinn að hafa afgerandi
áhrif á bókakaup almennings.
Söluskattur er þegar orðinn af
meðalbók um 400 til 500 krónur.
Morgunblaðið leitaði til nokk-
urra manna, sem eru í forsvari
fyrir bókaútgefendum, bóksölum
og rithöfundum og spurði þá álits
á hugmyndinni um að fella sölu-
skatt niður af bókum. Jafnframt
var leitað svara Höskulds Jóns-
sonar ráðuneytisstjóra 1 fjármála-
ráðuneytinu og fara svör þeirra
hér á eftir.
Höskuldur Jónsson
SÖLUSKATTI AF BÖKUM HEF-
UR í REYND ÞEGAR VERIÐ
RAÐSTAFAÐ.
Höskuldur Jónsson, ráðuneytis-
stjóri i fjármálaráðuneytinu
sagði:
„Ráðuneytið telur ekki tíma-
bært að tjá sig um hugmynd
þessa, þar sem ekki liggur fyrir
neitt formlegt erindi um slíka
skattívilnun. Ráðuneytið minnir
hins vegar á eftirfarandi atriði:
1. Öll framkvæmd við álagn-
ingu söluskatts og eftirlit með
þeim skatti verður flóknari því
fleiri sem undanþágur eru.
2. Til er þingsályktun um end-
urgreiðslu söluskatts til rithöf-
unda. Þingsályktun þessi var sam-
þykkt á Alþingi 18. maí 1972. 1
ályktuninni er gert ráð fyrir, að
fjárhæð, er nemi sem næst and-
virði söluskatts af bókum, renni
til rithöfunda og höfunda fræði-
rita. 1 reynd er því búið að ráð-
stafa söluskatti þeim til rithöf-
unda, sem nú er rætt um að fella
niður.
3. Söluskattur er aðeins einn af
tekjustofnum ríkisins. Hækkun á
söluskatti hefur og verið forsenda
þess, að tekjuskatti er 1 hóf stillt.
Gera má því ráð fyrir, að auknar
undanþágur frá söluskatti muni
brátt hafa 1 för með sér hækkun
tekjuskatts.
4. Mörg fyrirtæki telja sig hafa
átt í erfiðleikum með rekstur sinn
að undanförnu. Það verður lftt
öfundsvert hlutverk að eiga að
kjósa fyrirtækjum lff eða dauða
með heimildum til að fella niður
söluskatt hjá einstökum atvinnu-
greinum, ári þar illa.“
ENDASKIPTI A MENNINGAR-
ÞRÖUN
Ragnar Jónsson i Helgafelli
svaraði spurningu Morgunblaðs-
ins þannig:
„Forustuþjóðir hafa á öllum
öldum beitt fyrir sig hugdjörfum
mönnum og framsýnum, mönnum
með skapandi afl í taugum. Þær
vissu, að vísindi og listir eru 1
senn vaki og aflstöð andlegs lífs,
og þannig einnig undirstaða al-
mennra framfara og þroska.
Islendingar hafa á siðustu ára-
tugum lagt gffurlegt fjármagn að
mörkum til endurnýjunar listum
og vísindum. Stuðningur þjóðar-
innar við leikhús, hljómsveitir og
listaskóla er athyglisverður, og
um mart til fyrirmyndar. Það
skýtur því dálftið skökku við, og
er óvænt spor aftur á bak, er
hrapað er til þess óyndisúrræðis
Ragnar Jónsson
að leggja lúxusskatt á bækur,
nærri 20% söluskatt, eða allt að
40C.00 á venjulega jólabók. Þetta
var óheillaspor, sem erfitt verður
að skýra fyrir hinni menningar-
þyrstu bókmenntaþjóð.
„Hið æðra því lægra skal ráða“,
þótti vel mælt af Einari Bene-
diktssyni í byrjun þessarar aldar.
Vonandi rennur öldin ekki sitt
skeið með þvi að hafa endaskipti
á þróuninni: Heimta að hið lægra
skuli nú aftur ráða hér.
LAUNASJÖÐUR RITHÖFUNDA
EINA LAUSNIN.
Sigurður A. Magnússon, for-
maður Rithöfundasambands Is-
lands sagði:
„Það ætti að vera rithöfundum
til hagsbóta, að stuðlað sé að auk-
inni sölu innlendra bóka, þvf þeir
fá vitaskuld part af sínum laun-
um af bóksölu, þó sá partur sé að
vísu raunalega rýr, ef miðað er
við aðra þá, sem að bókagerð
starfa, og fá allir óskert laun fyrir
sitt framlag. Það er ein af þver-
sögnum hérlendrar bókaútgáfu,
að allir fá full laun goldin fyrir
sín störf nema sá, sem semur bók-
ina og leggur þannig grunninn að
fslenskri bókagerð. Vegna þessa
augljósa og hrópandi misréttis
fengu rithöfundar þvf til leiðar
komið fyrir tveimur árum, að
hluti þess fjár, sem ríkið tók af
hverri bók, kom f þeirra hlut. Var
upphaflega rætt um, að upphæðin
næmi sem næst andvirði sölu-
skatts af innlendum bókum, en úr
því varð aldrei, heldur veitti
alþingi höfundum tiltekna upp-
hæð til viðbótarritlauna, sem nam
ekki einu sinni þriðjungi af and-
virði söluskatts af bókum. Einsog
nú er ástatt fær rfkið beint í sinn
hlut talsvert meira fyrir hverja
selda bók heldur en sjálfur höf-
undurinn, og eru þá ekki teknir
með f reikninginn skattar og út-
Sigurður A. Magnússon
Konur slasast í
umferðarslysum
Sparakstur um næstu helgi
A MIÐVIKUDAGS- og
fimmtudagskvöld urðu 4 meirl-
háttar umferðaróhöpp f Reykja-
vfk. Áttu konur hlut að máli f öll
skiptin. Varð að flytja nokkrar
kvennanna til læknismeðferðar.
Á miðvikudagskvöld varð mjög
harður árekstur milli tveggja
fólksbifreiða á mótum Skeiðar-
vogs og Elliðavogs. Öku þærbáðar
eftir Ellicivogi, en skyndilega
beygði önnur upp Skeiðarvog f
veg fyrir hina bifreiðina. Tvær
konur óku bflunum og voru þær
einar í þeim. Meiddust þær lftils-
háttar, en bflarnir eru stór-
skemmdir.
Á fimmtudagskvöld urðu 3 slys.
Kona varð fyrir bíl á Bústaðavegi
við Háaleitisbraut. Gerðist þetta
um klukkan 19.30. Var hún flutt á
slysadeildina og reyndist hún
töluvert mikið slösuð, lærbrotin
og með áverka á höfði. Um
klukkan 22 varð mjög harður
árekstur tveggja fólksbifreiða á
mótum Klapparstígs og Hverfis-
götu. Bflarnir skemmdust mikið,
en fólkið í þeim slapp ótrúlega
vel, ein kona kastaðist úr annarri
bifreiðinni og hlaut smávægileg
meiðsli, en aðrir sluppu ómeiddir.
Loks varð harður árekstur á mót-
um Grensásvegar og Miklubraut-
ar seint um kvðldið. I annarri
bifreiðinni voru 4 stúlkur og
meiddust þær allar eitthvað, þar
af hlaut ein mikla ákverka í and-
liti. Ein kona var f hinum bílnum
og meiddist hún sáralftið. Bílarn-
ir eru mikið skemmdir.
NÆSTKOMANDI sunnudag
gengst tslenzki bifreiða- og vél-
hjólaklúbburinn fyrir sparakstri.
Byggist þessi akstur á þvf, að bif-
reiðin fari sem lengsta vegalengd
á aðeins 5 lftrum af benslni.
Mörg bifreiðaumboð hafa þegar
tilkynnt þátttöku og er búizt við
því, að allflestar bifreiðategundir
sem hér eru verði með í keppn-
inni. Keppnin hefst klukkan 14,
og verður lagt af stað frá Essó-
stöðinni á Ártúnshöfða og ekið f
austurátt, í áttina að Selfossi.
Bflarnir verða flokkaðir eftir
rúmtaksfjölda.
I dag, sunnudag, gengst
Islenzki bifreiða- og vélhjóla-
klúbburinn fyrir kvikmynda-
sýningum í Tónabæ klukkan 16.
Háaleitishverfí:
Forsætisráðherra
talar á þriðjudag
AÐALFUNDUR Félags sjálf-
stæðismanna f Káalcitishverfi
verður haldinn þriðjudaginn 15.
október n.k. Fundurinn verður
haldinn 1 Miðbæ við Háaleitis-
braut og á dagskrá eru venjuleg
aðalfundarstörf.
Geir Hallgrímsson forsætisráð-
herra heldur ræðu á fundinum og
fjallar um stjórnmálaviðhorfið.
Að ræðunni lokinni mun hann
svara fyrirspurnum fundar-
manna.
F ella- og
Hólahverfi
AÐALFUNDUR Sjálfstæðis-
félags Fella- og Hólahverfis verð-
ur haldinn í Glaumbæ (kaffi-
terfu) mánudagskvöld kl. 20.30.
-----♦ ♦ ♦--
Reykjanes-
kjördæmi
HINN árlegi formannafundur
Kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins f Reykjaneskjördæmi
verður haldinn I Sjálfstæðishús-
inu f Keflavfk n.k. þriðjudags-
kvöld kl. 21.00. Gestur fundarins
verður Gunnar Helgason, for-
maður Verkalýðsráðs Sjálfstæðis-
flokksins. A fundinn koma
alþingismennirnir Axel Jónsson,
Oddur Ólaf sson, Ölaf ur G. Einars-
son og Matthfas A. Mathiesen
f jármálaráðherra. Formenn og
varaformenn sjálfstæðisfélag-
anna og fulltrúaráða 1 kjördæm-
inu eru eindregið hvattir til að
sækja fundinn.
Bergþurs í Afglapaskarði
Ferðasaga
Þjóðviljans
Nýverið birtust í Þjóðviljan-
um ferðaþættir úr Norðurlandi
vestra, kjördæmi Ragnars
Arnalds, formanns Alþýðu-
bandalagsins. I gær birtir Þjóð-
viljinn afsökunarbeiðni for-
mannsins, væntanlega fyrir
hönd blaðamannsins, „á fárán-
legum skrifum" úr kjör-
dæminu. og viðurkcnningu rit-
stjóra blaðsins á mistökum, sem
áttu sér stað við birtingu þessa
efnis".
Hér á cftir fara nokkur sýnis-
horn úr ferðaþáttunum og af-
sökunarbeiðnin.
„Og þarna fóru forgörðum
myndir af formanninum
(Ragnari Arnalds) við vélavið-
gerðir á jeppanum, af sumar-
húsi Ölajós 1 Fljótum, af rúst-
um heimkynna hinna lands-
frægu Bakkabræðra og mynd
af formanninum á svölum hálf-
byggðs húss síns 1 Varmahlíð,
með Miðskitjuskarð í baksýn.
Svona mætti lengi telja eða þar
til geðshræringin skekur
skrokkinn og andinn liggur
marflatur vegna jafnvægis-
leysis.“
„Ragnar formaður kann tals-
vert af sögum og örnnefnum á
leiðinni frá Siglufirði til
Varmahlíðar. Hann var þó
varla búinn að hita sig upp
þegar við komum að Stráka-
göngum. Þar beið ung og falleg
kona við opið og beiddist fars.
Hún var norsk. Hún var lfka
gift. Og hún vildi alls ekki fara
með okkur lengra en gegn um
gatið. Og þegar hún yfirgaf
okkur vestan ganganna hafði
ég logið upp sögu um ægilegan
bergþurs, sem byggi 1 göngun-
um. Eftir að hún var blessunar-
lega Iaus við okkur sagði
Ragnar mér af Afglapaskarði.
Og af því ég var nýbúinn að
Ijúga að blessaðri konunni hélt
ég lfka, að hann væri að ljúga
að mér. Svo ég gáði í þjóðsögur
Jóns Ámasonar eftir því, hvort
formaðurinn segði satt, enda
varinn góður þegar um er að
ræða frásagnir stjórnmála-
manna. Eg segi ekkert um það
hvort það hafi komið mér á
óvart eða ekki, að það, sein for-
maðurinn sagði, bar heim og
saman við þjóðsöguna."
„1 þjóðsögum Jóns Árnasonar
er þess getið að Bakkabræður
séu annað hvort upprunnir á
Bakka í Fljótum eða Bakka f
Svarfaðardal. Heldur hallast
Jón að því að þeir séu upprunn-
ir í Fljótunum. En á þeim tíma
er Jón lét efasemdir í
ljós... hafði heldur ekki fæðst
neinn Olafur Jóhannesson. Öli-
jó er fæddur f Fljótunum.
Hefðu Bakkabræður verið frá
Bakka í Svarfaðardal hefði Óli-
jó fæðst sem Svarfdælingur."
„Það er ástæða til að taka það
fram að það var ekki formaður-
inn, sem sagði mér sögurnar af
Fljóta-Garði, svo fólk fari ekki
að halda, að hann sé dónalegrí
en gengur og gerist. Þar komu
aðrir til, enda skagfirskt að
vera kvensamur og skagfirskt
að segja kvennafarssögur."
Afsökunar-
beiðniRagnars
Arnalds
„1 nokkrum blöðum Þjóð-
viljans nú fyrir helgina eru
birtar frásagnir og viðtöl af
Norðurlandi vestra. Sumt af
þessu efni er fróðlegt, en annað
heldur hroðvirknislegt. — Má
sem dæmi nefna, að birt er
óþekkjanleg mynd, sem sögð er
af framkvæmdastjóra einum á
Sauðárkróki, og virðist mynda-
smiðurinn ekki hafa fundið
annað tækifæri til myndatöku,
en þegar þessi ágæti maður
fékk sér sfðdegisblund.
Hitt er þó verra, að stærsti
hlutinn af efninu er mikill
langhundur 1 ferðasögustíl,
birtur 1 4 blöðum, þar sem m.a.
fléttist inn 1 ýmsir hugarórar og
klámsögur, sem ekki eru prent-
hæfar 1 Þjóðviljanum. Þessi
skrif hefðu betur aldrei birst,
enda hafa þau valdið mikilli
gremju, eins og skiljanlegt er,
þegar höggvið er með ósvffnum
söguburði nærri ágætu fólki,
sem lifir og starfar meðal
okkar. — Með þetta í huga tek
ég að mér það hlutverk sem
einn af aðstandendum þessa
blaðs, að biðja lesendur Þjóð-
Framhald á bls. 45
•>