Morgunblaðið - 13.10.1974, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. OKTÖBER 1974
19
Þessar þrjár mæður eiga samanlagt 1 6 böm
Guillermo Pena bæjarstjóri t Puerto Cortes og Cogelio skýra fyrir fólkinu hvernig á a8 nýta vistirnar
Það tókst nú ekki, með þá seinni en
kom ekki að sök, því þar voru að
minnsta kosti fimmtán bílar að basla
við að komast yfir — sumir með
aðstoð stórrar ýtu. Stórir flutningabílar
grófu sig niður og spóluðu I leðjunni;
Þegar þeir voru loks komnir upp, fest-
ust litlu bílarnir og svo framvegis.
Klukkan var því að ganga ttu um
kvöldið, þegar við komumst til borgar-
innar, þreytt og svöng, grútskítug og
blaut með skóna barmafulla af leðju
Nú kom sér sannarlega vel að Gran
hótel Sula hafði bæði heitt og kalt
vatn.
Fyrri hluta næsta dags var unnið að
þvt með aðstoð Ricardos að fá viðtöl,
við ýmsa aðila er hefðu með höndum
upplýsingar um mat á skemmdum,
áætlanir um endurreisnarstarfið, fjár-
mögnun þess, hugsanlegar lántökur
og ráðstafanir til að koma fólki til vinnu
hvernig matvæla yrði aflað, hverrar
aðstoðar væri von o.s.frv. f þetta fór
langur timi, en árangurinn varð rýr.
Ymist voru menn ekki við eða á fund-
um með fulltrúum ýmissa stofnana,
sem komnar voru til borgarinnar. Við
notuðum því sfðari hluta dagsins til að
skoða ummerkin eftir flóðin í borginni
sjálfri og iðnaðarbænum Chotome,
sem hafði orðið langverst úti af öllum
og þriðjungur íbúanna, um 2000
manns, sagður hafa farizt.
Ástandið i Cholome var ekki ósvipað
því, sem verið hafði í Omoa, hús
þurrkuð burt, allar götur rifnar upp,
brak og trjábolir um allt. Og I betri
íbúðahverfunum milli San Pedro og
Choloma mátti sjá, hvernig aurinn
hafði mokazt í haugum inn t húsgarða
og eyðilagt þá. Haugarnir minntu á
snjóskafla heima, aðeins liturinn var
annar og ófrýnilegri. Steinveggir um-
hverfis garðana voru vtða hrundir og
húsin mjög óhrein og Ijót til að sjá Það
yrði nóg að gera á næstunni að mála
þar og hreinsa.
Ricardo fór með okkur t fótbolta-
klúbbinn sinn, nýtt hús, sem hafði
verið vlgt fyrir viku eða svo. Það stóð
að visu uppi, en innanstokksmunir all
ir voru ónýtir. Var enn verið að moka
vatni út úr húsinu. Umhverfis iþrótta-
völl þar skammt frá, hafði verið stein-
veggur, hann var nú að mestu hruninn
eða lá niðri.
Að siðustu komum við í tjaldbúðir,
þar sem um 750 manns höfðust við.
Búizt var við 500 til viðbótar síðar um
kvöldið. Þarna var gott skipulag á öllu,
hver fjölskylda hafði sinn skika I stóru
tjöldunum, sem stjórn Venezuela hafði
sent, margar fjölskyldur höfðu tjöld út
af fyrir sig., það þótti vænlegra til að
halda friði. Sömuleiðis var þarna vatn
og salerni. Læknir var til viðtals og
vopnaðir hermenn héldu uppi röð og
reglu. Stórt svæði var I tjaldbúðunum
miðjum, þar sem börn gátu leikið sér
Sennilega leið engum á flóðasvæðun-
um betur en þessu fólki enn sem
komið var — en von var á fleirum
næstu daga og þá viðbúið að þrengdist
að þeim sem fyrir voru Og yrði ekki
framhald á matvælasendingum yrði
fljótlega illa bitizt i þessum búðum
Það var gott að koma aftur til Guate-
mala í svalann og siðmenninguna. Að
baki voru þrir ógleymanlegir dagar,
þar sem mér hafði gefizt tækifæri til að
skyggnast ofurlítið inn í þessa að
mörgu leyti framandi veröld öðru vísi
en sem ferðamaður, kynnast þvi hve
illa náttúruöflin geta leikið aðra en
íslendinga, og kynnast þvi hvað orðið
„fellibylur" getur þýtt
Risatré voru rifin upp meS rótum
Helstu kostir:
Auðvitað
vill konan
laga gott kaffi
fyrirhafnarlítið.
Gefið henni því
Remington
kaffilagara.
Samstæða meS könnu og trekt. Hægt að stilla rennsli heita
vatnsins (þér getið notað eigin kaffikönnu) — Hitavatns-
geymir tekur 1.3 lítra cg er með skiptingu fyrir 1—10
bolla — Sjálfvirkur hitastillir varnar ofhitun — Hitaplatan
heldur kaffi hæfilega heitu allan daginn — Fallega hannað
heimilistæki — Árs ábyrgð
SPERtíY=y=RE/\AINGTON
Laugavegi I78 simi 38000 — merki sem tryggir gæðin.
Dieselrafstöð
Höfum til leigu 37,5 kVA dieselrafstöð, 3 fasa,
380/220 V.
Orka h.f.,
Laugavegi 1 78,
sími 38000
TOP
OFTHE
POPS
PLEASE PLEASE ME
ROCKET
SHE
KISSIN’ IN THE BACK ROW
OF THE MOVIES
THE BANGIN’ MAN
ROCKYOURBABY
BANDONTHERUN
TOOBIG
THE SIXTEENS
IFYOUGOAWAY
LIGHTOFLOVE
RINGRING
HEIMILISTÆKI SF.
Sætúni 8 og Hafnarstræti 3